Morgunblaðið - 07.07.1964, Síða 26
26
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 7. júlí 1964
Þrumuskot framvarðar
gerði út um leikinn
Valur vann KR 1.0 í gærkvöldi
Úr 800 metra hlaupinu á afmælismóti K'R. Halldór Guðbjörnsson
er fyrstur, þá Agnar Levy og Helgi Hólm.
VANN
YFIRBURÐUM
SÍÐARI hluti afmælismóts K.R.
fór fram á laugardaginn á Laug-
ardalsvellin.uim, en fyrri daginn
hafði K.R. algera yfirburði yfir
keppinauta sína í stigakeppninni
Síðari dagurinn varð jafnari, en
samt varð sigur K.R. mjög stór.
Úrslit urðu þessi: K.R.-Í.R.
121:69, K.R.-Úrval 119:73. Þess
skal getið, að nokkuð var um
fórföll í liði andstæðinga K.R.,
svo að ef til v3il sýna þessi úr-
Alþjóðlegt frjóls-
íþróttomót
NÝLEGA fór fram í Zúrich al-
þjóðlegt frjálsíþróttamót og náð-
ist ágætur árangur í mörgum
greinum.
Helztu úrslit urðu þessi:
110 m grindahlaup:
1. Cornchia (Ítalía) 14.0
2. Duriez (Frakkland) 14.1
3. Mazza (Ítalía) 14.1
100 m hlaup, A-riðill:
L Ottolina (Ítalía) 10.3
2. Piquemal (Frakkland) 10.4
3. Metz (V-Þýzkaland) 10.4
4. Taidebeur (Frakkland) 10'.5
100 m hlaup, B-riðilI:
1. Winke (V-Þýzkaland) 10.5
2. Ontao (Kenya) 10.5
3. Befder (V-Þýzkaland) 10.6
800 m hlaup:
1. Morimoto (Japan) 1.47.9
2. Klaban (Austurriki) 1.48.1
3. Lambrechts (Belgía) 1.49.1
4. Lundt (Frakkland) 1.49.2
slit ekki rétt styrkleikaMutföU.
Stigahæsti einstaklingurinn varð
Valbjöm Þorláksson, K.R., með
23 stig.
Kristleifur Guðbjömsson
vann 3000 metra hlaup á 8:47,6
sek. Halldór bróðir hans vann
800 jnetra hlaupið, en það var
skemmtilegasta keppni síðari
dagsins. Tíminn var góður mið-
að við aðstæður, sem ekki vom
sem ákjósanllegastar, 2:00.0 sek.
Næstur varð Agnar Leví einnig
úr K.R., aðeins 3/10 á etftir Hall-
dóri. Valbjöm sigraði í 200 m.
ihlaupi á 22.9 sek., sömuleiðis í
stangarstökki, með 4.15 metra
stökki. Björgvin Hólm Í.R. vann
spjótkastið með ágætu kasti,
60.97.
FLESTIR voru búnir að sætta
sig við jafntefli, og fólk farið að
tínast út af vellinum, þegar hið
óvænta skeði; Matthías Hjartar-
son, vinstri framvörður Vals, var
kominn í námunda við vítateig
KR og þaðan skaut hann þvílíku
þrumuskoti efst í hornið, að fall-
egra mark hefur ekki sézt lengi
hér á vellinum.
Og þýðingarmikið var þetta ó-
vænta mark. Nú hefur Valur náð
sér í 6 stig í mótinu og nær ör-
uggur um að falla ekki niður.
Aftur á móti þykir KR sárt að
missa þarna tvö stig til viðbótar.
Leikurinn í gær var langt frá
að vera vel leikinn, heldur þóf-
kenndur úr hófi fram og fór að
mestu fram á vallarmiðju, sem
aldrei getur orðið annað en lang-
dregin endaleysa. Auðséð var, að'
bæði liðin lögðu hart að sér, en
hin mikla þýðing þessa leiks fyr-
ir báða aðila hefur eflaust gert
það að verkum, að ekki losaði
um spilið. Menn voru ragir og hik
andi, allt of mikið um ónákvæm-
ar sendingar, stundum svo, að
furðulegt má teljast.
T-éítib var um skemmtileg upp-
hlaup, eins og áður getur og
sjaldan skapaðist alvarleg hætta
fyrir framan markið. Þó áttu
bæði liðin nokkur góð tækifæri.
Hermann Gunnarsson fór illa
með nær opið færi, eftir að mark
vörður KR hafði misst knöttinn
frá sér og fyrir fætur hans. Sömu
leiðis var sárt fyrir KR að sjá
Svein Jónsson misnota illa opið
tækifæri rétt innan vítateigs
Vals. Þarna vaæ sennilega bezta
markfæri leiksins nokkrum mín
útum áður en Matthías skoraði
Eftir tíu mínútur var
draumurinn búinn
Akranes breytti 0:2 i 7:2
5000 m hlaup:
1. Bolotnikov (Rússland) 13.38.6
13.39.0
13.43.4
14.07.4
14.09.2
2. Clarke (Ástralía)
3. Roelandts (Belgía)
4. Cervan (Júgóslavía)
5. Bernard (Frakkland)
Sleggjukast:
1. Matusek (Tékkóslóvakía) 65.58
2. Cieply (Pólland) 63.35
3. Husson (Frakkland) 62.91
4x400 m boðhlaup:
1. Pólland
2. Frakkland
3. Sviss
3.07.1
3.08.3
3.10.8
MENN heldu að vonum, að nú
mundi þeir verða vitni að ein-
hverju sögulegu; aðeins 8 mínút-
ur liðnar og Þróttarar búnir að
skora tvö mörk hjá Akurnesing-
um í ágætri sóknarlotu.
En þar með var draumurinn
búinn. Þróttur var hreinlega
yfírspilaður það sem eftir var
leiksins og sigur Akraness varð
stór og verðskuldaður, eftir
skinandi falleg mörk, flest byggð
upp af góðum samleik. Að vísu
má segja að Þróttarar hafi lítið
þvælzt fyrir Akurnesingum,
mótspyrnan varð furðulega lítil
og máttvana, þegar þess er gætt,
að í hlut á lið, sem er að berjast
við fall í II .deild. Tvö mörk
yfir í byrjun leiks ætti að vera
forskot, sem hvetti tií vasklegrar
varnarbaráttu
En * það var engu lí'kara, en
liösmenn Þróttar létu sér í
léttu rúmi liggja hvernig færi.
Við höfum séð þetta lið berjast
og vera samtaka, en þarna var
því svo alls ekki til að dreifa.
Ríkharður lék nú aftur með
liði Akraness, og er eins og ann-
ar blær sé yfir liðinu. Ég sá það
síðast gegn Val hér á Laugar-
dalsvellinum, og þá var það ekki
beysið. Að vísu leit ekki vel út
á fyrstu 10 mínútum leiksins
gegn Þrótti þarna á sunnudags-
kvöldi,, en ákveðinn samleikur
og keppnisharka snéri tapi í stór
an sigur. En vörnin má svei mér
passa sig gegn sterkari liðum.
Þessi tvö mörk, sem Þróttur
gerði, voru að vísu vel skoruð,
en vörn Akraness gaf færin með
hugsanarleysi og lélegum stað-
setningum. Það síðara, skalla-
mark frá Jens, skrifast á reikn-
ing Helga í markinu, en hann
hafði nægan tíma til að staðsetja
sig rétt og forða marki. Fyrra
njarkið skoraði Axel af stuttu
færi, eftir að leikig hafði verið
i mestu rólegheitum inn í víta-
teig Skagamanna.
Það var hinn ungi o.g skemmti-
legi Eyleifur sem átti mestan
heiðurinn af uppbyggingu fyrsta
marks Akraness og reyndar
flestra hinna. Hann lék hratt
upp hægri kantinn, vel inn að
endamörkum og gaf þaðan fyrir
fætur Ríkharðs, sem skoraði
auðveldlega af stuttu færi. Og
aftur var það Eyleifur, sem
byggði upp fyrir næsta mark, gaf
fyrir Val. Hefði Sveinn skorað
þarna væru stigin nú mjög senni
lega hinu megin.
Svona tæpt var þetta, jafntefli
og ekkert annað var sanngjarnt.
Eftir mark sitt, lögðust Valsmenn
að sjálfsögðu aliir í vörn, en KR
hélt'uppi látlausri pressU til leiks
loka.
Eins og áður segir, á hvorugt
liðið skilið nokkurt lof fyrir þenn
an leik, og fáir sköruðu fram úr.
Þó er vert að- geta markvarðar
Vals, Björgvins Hermannssonar,
sem kom inn á í síðari hálfleik
fyrir Gylfa, sem meiddist. Björg
vin sýndi mjög góðan leik, bjarg
aði snilldarlega í nokkur skipti
og ekki hægt að sjá, að þarna
væri æfingarlítill markvörður.
í liði KR áttu Ellert og Gunn-
ar Guðmannsson einna beztan
leik, einnig er athyglisverður
2. deild í Kópa-
vos»i í kvöld
f KVÖLD fer fram á hinum nýja
knattspyrnuvelli í Kópavogi, síð-
ari leikur Breiðabliks og Hauka
í keppni II. deildar. Leikurinn
hefst kl. 20:30..
Hörður Markan á hægri kantL
Sá pilfur hefur tilburði, sem lofa
góðu.
Dómari var Hannes Sigurðsson
og dæmdi hann mjög vel. Er auð
séð, að hann er 1 góðri þjálfun,
því hreifanlegri er hann en nokk
ur okkar dómara annar.
Kormákr.
Akurevri vann
Fram 8:1
Akureyri, 6. júlí: —
Knattspyrnufélagið Fram og ÍBA
kepptu á íþróttavellinum hér kL
4 í gær. Veður við hið fegursta,
sólskin, hæg sunnan gola og hitL
ÍBA sigraði með 8:1, og segja
mátti að Fram slyppi vel með
þau úrslit því að mörg tækifæri
Akureyringa nýttust ekkþ en
hins vegar komst Akureyrar-
markið aldrei í verulega hættu.
í hálfleik var staðan 2:1.
Akureyringar sýndu afar fal-
legan samleik, hraða og snerpu,
sem Framarar réðu ekki við. Lið
ið lék sem samstillt heild, en þó
vakti leikur nýliðans, Valsteins
JónssOnar, sérstaka athygli. Leik«
urinn var mjög prúðmannlega
leikinn af beggja hálfu. Dómari
var Sveinn Kristjánsson. (
— Sv. P.
Ríkharður sendir knöttinn í mark Þróttar.
falléga sendingu. til Skúla, sem
rak endahnútinn á og jafnaði
þar með leikinn.
Ríkharður færði líði sínu for-
ustuna með marki úr mjög erf-
iðri aðstöðu. Hann snéri baki að
marki, er sending kom aðvífandi
hnéhæð. Tók hann knöttinn á
ristina, vippaði aftur fyrir sig
beint í netið. Mjög laglega gert.
Við þettamark fór allurvindur
úr Þrótturum og eftir á var eins
og aðeins eitt lið léki knatt-
spyrnu á vellinum. Skagamenn
héldu uppi mi'killi sókn og skor-
uðu falleg mörk. Eyleifur skoraði
þrjú þeirra, það síðasta úr víta-
pyrnu eftir brot á hann sjálfan,
en Halldór skoraði eitt. Staðan í
hálfleik var 4—2.
Eitt fannst mér áberandi með
flesta leikmenn beggja liðanna;
hvað þeir sýndu ljótan leik í
baráttu um knöttinn. Ljótar
hrindingar Oig pústrur voru allt
of tíð. Þessu er auðvelt að venja
sig af með því að hafa í huga, að
knattspyrna er íþrótt en ekki
áflog.
Carl Bergmann dæmdi leikinn
vel.
Kormákr.
Stoðon í 1. deild
Staðan í 1. deild eftir leikinn
í gærkvöldi i Akranes 7 er 5 þessi. 0 2 21:13 10
Keflavík 5 3 2 0 12:6 8
KR 5 3 0 2 9:6 6
Valur 7 3 0 4 17:15 6
Fram 6 1 1 4 11:17 3
Þróttur 6 1 1 4 7:17 3