Morgunblaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.07.1964, Blaðsíða 27
í>rlðjudagur 7. júlí 1964 Biskup vísiterar Strandaprófasts- dæmi, BISKUP íslands, herra Sigur- björn Einarsson vísiterar Stranda prófastsdæmi og er áætlun hans sem hér segir: í>riðjudaginn 7. júlí kl. 2: Ár- nes. — Miðvikud. 8. júlí kl. 2: Káldrananes. Sama dag kl. 8,30: Drangsnes. — Fimmtudaginn 9. júlí kl. 2: Staður í Steingríms- firði. Sama dag kl. 8,30: Hólma- vík. — Föstudaginn 10. júlí kl. 1: Kollafjarðarnes. Sama dag kl. 5: Óspakseyri. — Laugardaginn 11. júlí kl, 2: Staður í Hrútafirði. — Sunudaginn 12. júlí kl. 2: Prests bakki. Þess er vænzt, að sóknarnefnd ir og annað safnaðarfólk, komi til kirkju til viðtals við biskup. Sérstaklega óskar biskup að fá fermingarbörn ársins og önnur ungmenni sóknanna til viðtals. Harður bíla- árekstur í Eyja- firði Akureyri, 6. júlí: — HAKÐUR árekstur varð hjá Öng ulsstöðum um miðnætti á laugar dagskvöld milli Zephyr-leigu- bíls og Volvo Stationbíls, sem báð ir voru frá Akureyri. Hæð er á veginum, þar sem bílarnir skuilu saman. Kona, sem sat í framsæti Volvo-biisins, kastaðist fram í framrúðuna, skarst á höfði og var flutt í sjúkrahús, en síðan heim. Önnur meiðsli urðu ekki á mönnum, en Volvo-bíllinn var ekki ökufær á eftir. Leigu- bíllinn skemmdist minna. — Sv. P. MORGU NBLAÐID 27 AtKugasemd ÞAÐ skal tekið fram, að um- mæli í sunnudágsblaðinu um rekstrarafkomu síldarverksmiðj - unnar í Krossanesi eru ekki höfð eftir framkvæmdastjóranum, Guðmundi Guðlaugssyni. Yfirlitsmynd af jökulröndinni, Stefán Pálsson sést fremst á myndinni, Brúarjökull um við yfir Múla við Fiski- = dalsá, sem er mjög brattur og = torfær, en af honum fagurt | útsýni. Síðan var ekið að Brú h í Jökuldal og þaðan veginn = niður Jökuldalinn til Egils- j§ staða. §j Ferðaskrifstofa Austurlands §§ hefur áform um að fara ferðir s upp að Brúarjökli reglulega í = sumar, sömuleiðis er reiknað = með ferðum að Snæfelli, en = þangað hefur ekkf verið fært 1 enn, sökum bleytu. Ferðaskrif = stofan útvegar tjöld og mat í §j ferðirnar. Auk þess sér hún §§ um að skipuleggja ferðir niður = á firði. S TritiiiiintiiiiiiuiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiittiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiimMtiiiMitiiui Frh. af bls. 28 óbyggðum. í Fagradal slógum við upp tjöldum og gistum um nóttina. Frá tjaldstaðnum var ekki nema um 2ja t íma akst- ur að jökulröndinni, og þang- að fórum við árla á sunnudags morgun. Við komum að jökulrönd- inni rétt við Kverká. Jökull- inn hefur skriðið fram yfir upptök árinnar, þannig að áin rennur nú undan jöklinum. Jökulröndin er margra mann- hæða há, ákaflega tilkomumik il og hrikaleg. Gamla jökul- röndin frá 1890, þegar jökull- inn skreið síðast, er um það bil 200 metrum ofar en núver- andi rönd. Veður var eins og bezt verð ur á kosið á íslandi, fjalla- hringur fagur og tær jökul- sýnin út á Eyjabakkajökul hrikaleg og tignarleg sjón og Kverkfjöllin sérlega fögur. — Við jökulinn mældist 11 stiga hiti og köld gola kom niður af honum. Örskammt norðar mældist 17 stiga hiti í forsælu. Við áttum að gá að mælistik- um, sem settar voru upp á veg um Jóns Eyþórssonar, en kom um ekki auga á þær. Fjallabíllinn stóð sig mjög vel í ferðinni, festist aðeins einu sinni, en komst að lokum upp af eigin rammleik. Það ep heldur várasamt að aka jafn nálægt jökulröndinni og við gerðum, því jarðvegurinn þarna er svikull á stöku stað. Yfirborðið lítur út eins og sándur, en er í rauninni ekki nema nokkrir sentimetrar á þykkt og leðjupyttir undir. Frost er ekki djúpt í jörðu. Frá Kverká fórum viff upp að Sauðá rétt fyrir neðan upp tökin. Þar rákumst við á stóra hreindýrahjörð og var gizkað á að þar væru 70—80 hrein- dýr. Leiðin lá nú vestur fyrir Hvannstóðsfjöll og að Lauga- völlum. Frá Laugavöllum fór- Daufara yfir síld- veiðunum í gær FRÁ kl. 7 á sunnudagsmorgun til jafnlengdar í gærmorgun til- kynnti 31 síldveiðiskip afla sinn, samtals 21.750 mál og tunnur. Nokkru daufara var yfir veiðun- um aðfaranótt mánudags en ver- ið hefur undanfarið. Straumur og iþoka tálmuðu veiðum. í gær morgun var ástandið orðið betra. Saltað var í 1410 tunnur á Raufarhöfn á sunnudag. Síldarleitin á Dalatanga tjáði blaðinu seint í gærkvöld, að deyfð hefði verið yfir síldveiðum í gær og lítið kastað þar sem mikill straumur var og síldin stóð djúpt. Voru bátarnir eink- um í Norðfjarðardýpi og Seyðis- fjarðardýpi éins og að undan- förnu. Fjórtán skip tilkynntu um Hverjum mætir KR? Dregið í Evrópukeppninni á morgun EINS og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu hefur verið á- kveðið, að KR (íslandsmeistarar 1963) taki þátt í Evrópukeppni meistaraliða og hefur þátttöku- tilkynning verið send. Er þetta í fyrsta sinn sem knattspyrnuflokk ur eins félags tekur þátt í Ev- rópukeppni, en áður hefur Fram tekið þátt í Evrópukeppni meist- araliða í handknattleik. 31 lið hefur tilkynnt þátttöku í keppninni og eru þau frá 30 löndum, en þar af eru 2 frá Ítalíu, þ.e. núverandi Evrópumeistarar, Internazionale, sem fá þátttöku- rétt án keppni og nýkjörnir meistarar, Bologna. 2 lönd taka ekki þátt í keppninni að þessu sinni, en þau eru Rússland og Kýpur. Mikið hefur verið rætt um hvaða lið lendi saman í 1. um- ferð, en um það verður dregið á morgun í skrifstofu Evrópusam- bandsins í Sviss. Dönsku þátttak- endurnir, B 1909, hafa lýst yfir, að þeir óski sér að mæta KR .Er það hvort tveggja, að þeir telja sig hafa sigurmöguleika, svo og að ferð til ísJands sé ávallt ævin- týri líkust. Reglur keppninnar eru í stuttu tnáli þær, að þau lið sem dregia eru saman leika tvo leiki, heima og heiman, og á leikjum í 1. um- ferð að vera lokið fyrir 1. októ- ber. Það lið sem sigrar, þegar lögð hafa verið saman úrslit í báðum leikjum, kemst áfram. Reiknað er með, að núverandi Evrópumeistarar sitji yfir í 1. um ferð. Liðin, sem keppa munu, eru þessi: N-írland: Glentoran. England: Liverpool. Skotland: Glasgow Rangers. ísland: KR. Noregur: Lyn. Svíþjóð: Malmþ F.F. Finnland: Lahti-Reipas. Danmörk: B 1909. V-Þýzkaland: Köln. A-Þýzkaland: Chemic. (Leipzig). Holland: DWS-Amsterdam. Belgía Anderlecht. Luxemborg: Aris-Bonneweg. Sviss: La Chaux-de-Fonds. Portúgal: Benefica. Spánn: Real-Madrid. Frakkland: St. Etíenne. Ítalía: Bologna. Ítalía: Internazionale. Grikkland: Panathinaikos (Aþenu). Austurríki: Rapid-Wiea. Júgóslavía: Rauða Stjarnan (Beograd). Pólland: Gornik. Tyrkland: Fenerbache. Tékkóslóvakía: Dukla. Búlgaría: Lokomotiv (Sofía). Malta: Sliema Wanderers. Albanía: Partizani-Tirana. Ungverjaland: Vasas-Gyoer. írland: Shamrock Rovers. Rúmenía: Meistarakeppni ekki lokið. Patterson vann Maclien S. L. SUNNUDAG fór fram i Stokkhólmi hnefaleikakeppni milli fyrrverandi heimsmeistara, Floyd Patterson, og Edde Machen sem talinn hefur verið standa næst því að fá að skora á nú- verandi heimsmeistara. Patterson sigraði með miklum yfirburðum og vann nær allar 12 loturnar á stigum. Keppnin var ekki eins spennandi og reikn- að hafði verið með, svo miklir voru yfirburðir Pattersons. Keppnin fór fram á Raasunda- leikvanginum í Stokkhólmi að viðstöddum 40 þús. áhorfendum, sem greiddu sem svarar 300 þús. dollara í aðgangseyri. Fyrir leik- inn fékk Patterson greidda 100 pús. dollara, en Machen 50 þús. dollara. Reiknag er með, að Patterson hafi mikla möguleika, að fá að skora á heimsmeistarann Cassius Clay á næstunni. afla í dag. Þrjú aflahæstu voru Sólfari með 1500 mál, Súlan 1500 og Draupnir 800 mál. Voru skipin með afla allt niður í 200 mál. — Svarta þoka var í dag á Dala- tanga, en nokkru bjartara á mið unum og vindur um 3 vindstig. VOPNAF « I, 6. júlí. — Síldar- verksmiðjan hér hefur nú alls tekið á móti 102,127 málum til bræðslu. Fimm skip bíða hér lönd unar. Eru það Guðbjartur Krist- án með 1000 mál, Guðfinnur 400, Oddgeir 1050, Sveinbjörn Jakobs- son 800 og Hugrún 1600. Fréttaritari. NESKAUPSTAÐ, 6. júlí. — Sið- asta sólarhring hafa eftirtalin skip komið með síld til Neskaup staðar: Sæfell 900 mál, HVanney 150, Andvari 350, Vonin 700 Sig urfari SS 300. Þá hefur síldar- vei'ksmiðjan hér tekið á móti 88 þús. málum og hér bíða löndunar skip með 8,700 mál, og þurfa þau að bíða til aðfaranætur miðviku dags. í gær var fyrsta síldin sölt uð hér. Var það söltunarstöðin Ás, sem saltaði 165 tunnur, upp- saltaðar, og gekk um helmingur úr síldinni vegna þess hve hún var horuð. Bakkafoss losar hér 900 tonn af salti og þegar þeirri afskipun er lokið, verða flestar söltunar- stöðvarnar tilbúnar að Itefja sölt um Ásgeir. Fræðslumyndir fyrir konur í Ganila bíói í KVÖLD kl. 8 verða sýndar í Gamla bíói tvær fræðslukvik- myndir á vegum hinnar nýju leitarstöðvar Krabbameinsfélags- ins. Fyrri myndin „Tíminn og tvær konur“ fjallar um nauðsyn þess, fyrir konur, að koma í tæka tíð til læknis eða leitarstöðvar til skoðunar, svo frekar sé hægt að fyrirbyggja krabbamein í legi. Skýringar með þessari mynd eru á íslenzku, fluttar af Þórarni Guðnsisyni lækni. Seinni myndin sýnir leiðbeiningar fyrir konur um sjálfsathugun á brjóstum. Jafnframt verður fræðsluriti um þetta efni úthlutað. — Yfirlæknir leitarstöðvarinnar, frú Alma Þór- arinsson, ftytur stutt ávarp á undan sýningunni, sem hefst stundvíslega kl. 8. Aðgangur er ókeypis og einungis fyrir konur. Svíar heiðra Pál Asgeir Tryggvason KONUNGUR Svia, Gustaf VI Aaolf, hefur sæmt Pál Ásg. Tryggvason, deildarstjóra ísl. utanríkisráðuneytinu og fyrv. sendifulltrúa í ísl. sendiráðinu í Stokkholmi, kommenderstöckn- et av Kungl, Nordstjárneorden. Kappreiðar á skeiðvellinum við Ölver AKRANESI, 6. júlí. — Kappreið- arnar hófust kl. 3 e. h. á sunnu- daginn á skeiðvellinum við Ölver, Fyrst fóru hestamenn í hópferð um völlinn, en síðan flutti Pétur Ottesen, fyrrv. al- þingismaður, ræðu. Gizkað er á, að á annað þús- und manns væri statt við skeið- völlinn. Fjölmargir sátu í bílun- um, því að það rigndi alltaf ann- að slagið. Úrslit í keppninni urðu sem hér segir: I 350 metra stökki varð fyrstur Tilberi, 29,4 sek., eigandi Skúli Kristjánsson, annar varð Reykur, 29,5 sek., eigandi Hall- dór Ólafsson, þriðji varð Skjóni, 31 sek., eigandi Sigurður Val- geirsson. f 300 m stökki varð fyrst ur Móri, 24,8 sek., eigandi Skúli Kristjánsson, annar varð Logi, 25,8 sek., eigandi Skúli Krist- jánsson, þriðja varð Löpp, 26 sek., eigandi Þorkell Guðmundsson. Tíminn var svo slæmur hjá skeiðhestunum, að engin verð- laun voru veitt. — O . Þrír fluttir í járnum af dans- Íeik AKRANESI, 6. júlí. — Dnsleikur var haldinn s.l. laugardagskvöld í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Ekki er annars get ið, en að hann hafi farið frið- samlega fram, þar til í lokin, að þrír ölvaðir menn gerðust að- sópsmiklir og kom til slagsmála. Fjórir lögreglumenn héðan voru á staðnum. Skelltu þeir hand- járnum á óeirðaseggina og fluttu þá í járnunum í fangahúsið í Borgarnesi, — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.