Morgunblaðið - 10.07.1964, Qupperneq 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 10. júlí 1964
KR vann Ymer og ÍR
með yfirburðum
Agnar Leví vann Kristleif í 1500 m hlaupi
ÞRIGGJA landa keppni Ymer-
ÍR-KR fór fram á Melavelinum
i gærkveldi og lauk með yfir-
burðarsigri KR, sem hlaut 88
stig, Ymer hlaut 57 x/i og ÍR
4014- Þetta hálfa stig kemur vegna
þess að tveir voru dæmdir
jafnir í 110 m. grindahlaupi.
Athyglisverður árangur náðist
í nokkrum greinum, t. d. setti
Valbjörn Þorláksson persónulegt
met i 110 m grindahlaupi,
15,1 sek., sem er bezti tími hér-
lendis á þessu ári. í þrístökki
kom fram bráðefnilegur, ungur
piltur úr KR, Þorvaldur Bene-
diktsson, stÖkk 14.36 m. sem er
mjög athygliSverður árangur og
bezta afrek ársins í þeirri grein.
Þarna er eflaust 15 m. maður á
ferðinni og það fljótlega.
Keppni í spjótkasti varð mjög
horð, og nokkrir sentimetrar
skildu tvo fyrstu menn. Sigur-
vegari var Björgvin Hólm úr ÍR
með 60.73 m. Kjartan Guðjóns-
son, ÍR var annar með 60.61 m.
Ekki er hægt ag segja að Sví-
ainir hafi verig sigursælir á
þessu móti, því að aðeins í einni
grein var Svíi fyrstur, Axel
Ivar Claessen, í sleggjukasti,
50 39 m .á undan Þórði B. Sig-
urðssyni, KR, 40.08 m.
Óiafur Guðmundsson, KR, sigr
aði bæði í 100 og 400 m. hlaupi
á 11,0 sek. og 51,4 sek., en
skemmtilegasta hlaup kvöldsins
var 1500 m, hlaupið. Þar gerðust
þau tíðindi, að Agnar Levý, KR,
sigraði félaga sinn Kristleif Guð-
björnsson í fyrsta sinn á iþessari
vegalengd. Kristleifur hefur ver-
ið ósigrandi í 1500 m. hlaupi und-
anfarin ár. Nokkur gola var og
tímarnir því ekki eins góðir og
skyldi, 4.03,0 mín og 4.03,9 mín.
í langstökki sigraði Úlfar Teits
son, KR, með 6,78 m., en annar
varð Bent Andersson, Ymer, með
6,54 m.
4x100 m. hlaup sigraði sveit
Úr mest spennandi hlaupi mótsins, 1500 metrunum. Kristleifur hefur forustuna, Agnar er annar
og Bror Jónsson, Yemer, þriðji.
KR á 43,6 sek.
Sigurvegarar í aukagreinum
urðu sem hér segir: 100 m. hlaup
kvenna og sömuleiðis í lang-
stökki, Sigríður Sigurðardóttir,
ÍR, 13,1 sek. og 4,86 m. og í há-
stökki karla Jón Þ. Ólafsson ÍR
1,98 m.
Athygli vakti, hversu röskur
og líflegur þulur mótsins var, og
Iþótti áhorfendum það skemmti-
leg tilbreyting, en þetta er ekki
í fyrsta sinn, sem sá heiðursmað
ur er líflegur á íþróttavellinum,
Iþví þarna var enginn annar en
„gamla“ kempan Haukur Claus-
en.
Kormákr.
Handknattleiks
■
Úr B-riðli 110 metra grindahlaupsins. Sigurvegarinn, Þorvaldur Benediktsson, KR, er i miðið. —
Hann fékk tímann 15.9 sek. Sami maður sigraði í þrístökki og vakti þar mikla athygli. Jón Þ. Ól-
afsson (t.v.) sameinar þarna tvær greinar, grindahlaup og hástökk. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Ólafur Guðmundsson, KR, sigurvegari í 100 metra og 400 metra
hlaupi. Hér kemur hann í mark í því fyrrnefnda.
Sigra Færeyia-
fararnir í kvöld?
f KVÖLD kl. 8.30 fer fram á Laugardalsvellinum leikur milli A«
landsliðsins og B-landsliðs, en lið það mun fara til keppni í Fær-
eyjum í næstu viku. Allmargar breytingar hafa verið gerðar á B-
landsliðinu þar eð nokkrir leikmenn hafa boðað forföll. — Liðin
eru þannig skipuð:
Heimir Guðjónsson, KR
Jóhannes Atlason, Fram Jón Stefánsson ÍRA.
Högni Gunnlaugsson, ÍBK
Sveinn Teitsson, ÍA Jón Leósson, ÍA
Axel Axelsson, Þrótti uunnar Guðmannsson, KR
Eyleifur Hafsteinsson, ÍA Ellert Schram, KR
Ríkarður Jónsson, f A
B-LIÐ
Skúli Hákonarson, ÍA
Kári Árnason ,ÍBA Skúli Ágústsson, ÍBA
Hermann Gunnarsson, Val Baldur Scheving, Fram
Matthías Hjartarson, Val Þórður Jónsson, KR
Björn Júlíusson, Val
Þorsteinn Friþjófsson, Val Sigurður Einarsson, Fram
Gísli Þorkelsson, KR
Fyrirliði A-liðsins er Ríkarður Jónsson, en B-liðsins Skúll
Ágústsson. Dómari er Hannes Þ. Sigurðsson.
íslandsmót í
Hafnarfirði
ÍSLANDSMÓT í útihandknatt-
leik fyrir árið 1964 verða háð í
Hafnarfirði. Keppt verður í m. fl,
og II. fl. kvenna og m. fl. karla,
Núverandi íslandsmeistarar
eru: M. fl. kvenna: FH. II. fl,
kvenna: Valur. M. fl. karla: FH.
Framkvæmdaraðili mun aug-
lýsa eftir þátttöku. (Frá HSÍ).
Núvcrandi „Frjáisíþróttadrottning“, Sigríður Sigurðardóttir,
komin vel fram úr Halldóru Helgadóttur, KR, í 100 metra hlaup-
inu, en þær voru mjög jafnar framan af hlaupinu.
lið til Færeyja
í TILEFNI af 25 ára afmæli fær-
eyska íþróttasambandsins hefur
landsliði íslands í handknattleik
verið boðið til keppni í Færeyj-
um hinn 18. júlí nk. — íslenzki
flokkurinn fer flugleiðis til Fær-
eyja 17. júlí nk., en fer þaðan
með ms. Dronning Alexandrine
20. júlí.
íslenzka liðið hefur nú verið
valið og er þannig skipað:
Hjalti Einarsson, FH,
Þorsteinn Bjömsson, Ármann,
Örn Hallsteinsson, FH,
Birgir Björnsson, FH,
Páll Eiríksson, FH,
Karl Jóhannsson, KR,
Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR,
Hörður Kristinsson, Ármann,
Guðjón Jónsson, Fram,
Ingólfur Óskarsson, Fram,
Sigurður Einarsson, Fram.
Þjálfari liðsins. Karl G. Bene-
diktsson, verður einnig með í för-
inni. (Frá HSÍ).