Morgunblaðið - 29.07.1964, Qupperneq 2
2
MORGU NBLADIB
Miðvikudagur 29. júlí 1964
LÆGÐIN, sem olli norðan- skírt um nær allt land og brak
veðrinu í fyrradag hér á landi, andi þerrir.
var komin austur undir Noreg Litla laegðin við Suður-
íigær og fylgdi henni þá storm- Grænland var á austurleið og
ur og úrfelli vestan fjalls í mun að líkindum e'kki spitla
Noregi. Hér á landi var aftur verðrf verulega í dag.
á móti logn að katla og heið-
Vírussjúkdómur í börunm
víðar en í Kópavogi
VEGNíV frélta nm torkenni-
lega sjukdóiua á börnum í
Kópavogi, sem talið er, að eigi
rót sina að rekja til opins
skólpraesis. sem rennur í aust-
anverðum Digraneshálsi, sneri
blaðið sér í gær tii Kjartans
Jóhannssonar, héraðslaeknis,
og spurði hann álits.
Sagðist Kjartan oft hafa
bent bæjaryfirvöldunum á
smithættu, sem af þessum
óþrifalæk stafaði, en vegna 11
millj. króna fjárframlags
Kópavogskaupstaðar í Foss-
vogsræsið nýja, hefði enn ekki
orðið úr úrbótum, sem verða
kostnaðarsamar.
Um sjúkdómstilfellin, sem
hafa lýst sér sem útbrot í
kringum munn og augu nokk-
urra barna, sagði héraðslækn-
irinn, að um þessar mundir
gengi virussjúkdómur sama
eðlis víðar en í Kópavogi, og
þar af leiðandi væri varhuga-
vert að bendla hann eingöngu
við hið opna skolpræsi.
Afburðagóður þurrkur
á Suðurlandi í gær
JVFBRAGÐSGOÐUR þurrkur
var Ihér á Suðurlandi í dag og
náðu bændur upp heyjum og
fluttu í hlöðu“, sagði Gunnar
Sigurðsson í Seljatunigu í sím-
tali við blaðið í gærkvöld. Sagði
hann að fólk yrði í heyskap
fram eftir kvöldi. í fyrradag var
byrjað að breiða úr sætum og
snúa og í gær náðist talsvert af
heyi í hlöðu, 16 stiga hiti mæld-
ist í Gaulverjabæjarhreppi í gær,
og sagði Gunnar í Seljaturngu, að
slíkir dagar væru ómetanlegir í
heyskap og brúnin hefði lyfzt
talsvert á bændum eftir alla
óþurrkana að undanförnu. Veð-
urstofan spáði sunnangolu í
dag og skýjuðu veðri. Lægð er
á leið yfir landið og fer heldur
vaxandi, en ekki er hægt að svo
stöddu að segja til um, hvort
hún veldur rigningu eða ekki.
Búizt er við, að aftur dragi til
norðanáttar eftir tvo sólarhringa.
Fiskimatið athugaði
frystirými í Brúarfossi
BLAÐAFULLTRÚI Eimskipafé
lagsins tjáði blaðinu í gær, að
fram héfði farið gagnger hreins-
un á lestum í Brúarfossi og eitr-
að í þeim aftur í gær, en maðk-
aða mjölið var flutt í skemmu
vestur á Grandagarði og þar
eitráð í því aftur með blásýru.
Fiskmati ríkisins var kunnugt
um það rétt fyrir hádegi í gær-
morgun, að flytja ætti hraðfryst-
an fisk til Bandaríkjanna í lest-
um skipsins. Fulltrúar þess at-
huguðu, hvort frystilestir væru
örugglega lausar við skordýrin,
sem fundust í lestarrými, og einn
ig hvort dauðar pöddur gætu
komizt á fiskpakka og valdið á-
Loftleiðir
greiða 29.4
millj. kr. í
skatta og
ústvör
LOFTLEIÐUM h.f. er nú gert
að grciða 16.535.300 kr. í út-
svar, og er það hæsta útsvar,
sem nokkru sinni hefur verið
lagt hér á.
. Samtals eiga Loftleiðir að
greiða 29.444.849 kr. í skatta
og útsvör. Sú upphæð sundur
Iiðast þannig:
TekjuúLsvar 15.768.271
Eignarútsvar 767.029
Tekjuskattur 9.396.535
Eignarskattur 596.891
Kirkjugarðsgjald 233.228
Slysatryggingar 47.753
Lífey ristryggingar 430.892
Atvinnuleysistr. 81.250
Aðstöðug jald 2.123.000
Samtals kr. ! 29.444.849
t
litsrýrnun Bandaríkjamanna á
eftirliti og vöruvöndun hérlendis.
Bergsteinn Á. Bergsteinsson, fisk
matsstjóri, tjáði blaðinu í gær-
kvöldi, að Finnbogi Árnason, yf-
irfiskmatsmaður, tveir stýrimenn
á Brúarfossi og fulltrúi borgar-
læknis hefðu hitzt um borð í skip
inu í gær og ákveðið að eitra
skildi aftur, og að fiskur yrði
ekki fluttur um borð fyrr en
gengið yrði úr skugga um, að
pöddurnar kæmust ekki í hann.
Fiskmatsstjóri óskaði að taka
fram, að í viðtali hans við for-
stjóra Eimskips og forráðamenn
útflytjenda hefðu þessir aðilar
verið á einu máli um, að ekki
bæri að hætta á neitt í iþessu sam
bandL
h.f.
STEYPUSTOÐIN
hefur
Eldflaugarskotið
áætlað á morgun
kl 6
LANDHELGISGÆZLAN sendi í
gær út eftirfarandi tilkynningu
til sjófarenda:
Næstkomandi fimmtudag, hinr
30. júlí kl, 18.00, áætla franski
vísindamenn, ef veður og aðra
aðstæður leyfa, að skjóta á lof'
eldflaug frá Mýrdalssandi. —
Staður: 63° 26' N. breid<
18" 50' V. lengd, skotstefr.
160" réttvísandi.
Öll skip eru þess vegna beði
að vera ekki á þeim tíma á eftit
farandi svæðum, þar sem 1. ag i
þrep eldflaugarinnar munu falla
í sjó.
Fyrra svæðið er beint suður
af skotstaðnum, innan íslenzku
12 sjómílna fiskveiðilandihelg-
innar, milli 18" 30' og
18" 5ð' V. lengdar. íslenzkt varð-
skip mun gæta þessa svæðis.
Síðara svæðið er suður af
íslandi, milli 13ö" að
18‘5" réttvísandi og og fjarlægð-
mna 70 að 200 sjómílur frá skot-
taðnum að telja.
andhelgiagæzlan.
:
nú í byggingu nýja steypu-
blöndunarvél af fullkomnustu
gerð á svæði fyrirtækisins við
Elliðavog. Vélsmiðja Eysteins
Leifssonar og Kristjáns Gísla-
sonar hefur annazt stálsmíði
við vél þessa, en vélar allar
eru sænskar, og hefur sænsk-
ur verkfræðinsrur séð um upp
setningu þeirra. Á myndinni
sést hið 17 tonna sílauga, sem
verið er að setja ofan á vél-
ina, en að því mun liggja stórt
færiband, er flytur allt efni
upp í sílaugað áður en það
fer til blöndunar í sjálfri vél-
inni. Er hún 22 metrar að
hæð.
7 (Ljósm. M!bl. Sv. Þ.)
ffer stjórnttrinnar
í íaos sæhir irasn
Í NA /5 hnú/tr I SV SOhnúfer X Sn/Htmt * Úii — V Shvrir 8 Þrumur KuUatM ^ HifttkH H Hmt L-lSlL
Vientiane, 23. júlí — (NTB) —
UNDANFARNA daga hefur
hersveitum stjórnarinnar í La-
os vegnað vel í bardögum. við
skæruliða Pathet Lao-kommún-
ista, Hafa hermenn stjórnarinnar
undir forystu Kong Lae, hers-
höfðingja, náð á sitt vald nokkr
um herstöðvum milli höfuðborg
arinnar, Vientiane og konungs-
borgarinnar, Luang Prabang.
Frá þessu var skýrt í Vienti-
ane í dag og jafnframt tilkynnt,
að árásum á bækistöðvar komm
únista yrði haldið áifram. Þrjár
hersveitir taka þátt í aðgerðum
þessum. Hafa þær tekið 22
fanga á nokkruim dfögum og náð
á sitt vald hergagnageymslum
meðfram þjóðveginum milli áð-
urnefndra borga.
Útsvörin:
Hæstu ein-
staklingar
HÉR fer á eftir skrá yfir þá ein-
staklinga í Reykjavík, sem eiga
að gjalda í útsvar 100 þús. kr.
eða meira, en þeir eru 23 talsins:
Sigurður Berndsen (nú dánar-
bú), Flókagötu 57, 422.800.
Jón Sen, fiðluleikari, Miklu-
braut 40, 196.500.
Kristján Siggeirsson, kaupmað-
ur, Hverfisgötu 26, 178.800.
Kristján Kristjánsson, forstjórl
frá Akureyri, Rauðal. 8, 175.600.
fa,,«mUr^nr Albertsson, kaup-
maður, Miðtúni 4, 173.900.
Haraldur Ágústsson, skipstjórl,
RauvaiæK 41, 1x0.900.
Hörður Guðmundsson, Litla-
gerði 4, 168.900.
Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri, Háuhlíð 12, 154.500.
Páll H. Pálsson, skrifstofustjóri,
Mávahlíð 47, 143.800.
Friðrik A. Jónsson, útvarps-
virkjameistari, Garðastræti 11.
137.600.
Torfi Hjartarson, tollstjóri,
Flókagötu 18, 128.000.
Kjartan Sveinsson, bygginga-
fræðingur, Ljósheimum 4, 125.700.
Gunnar Guðjónsson, skipamiðl
ari, Smáragötu 7, 123.500.
ísleifur Jónsson, kaupmaður,
Túngötu 41, 123.300.
Arinbjörn Óskarsson, Hagamel
10, 120.800.
Ármann Guðmundsson, húsa-
smíðameistari, Grettisgötu 56 A,
112.300.
Tómas Vigfússon, húsasmíða-
meistari, Víðimel 57, 111.100.
Sveinbjörn Sigurðsson, trésmið
ur, Tómasarhaga 53, 110.400.
Benedikt Ágústsson, skipstjóri,
Safamýri 77, 106.800.
Gunnar Jónsson, forstjórL Álf-
heimum 29, 104.200.
Friðrik Jörgensen, gjaldkeri,
Tómasarhaga 44, 103.600.
Jón Arngrímsson, Ljósheimum
8, 103.200.
Kristjana ísleifsdóttir, Hring-
braut 50, 100.500.
Aukin Iö"«æzla
eystra vegna
Frakkanna
SÍÐAN frönsku eldflaugamemv-
irnir komu austur í Vík, hefur
Sigurður Ágústsson, lögreglu-
varðstjóri úr Reykjavík, dvalizt
þar. Hefur hann aðstoðað við
löggæzlu, enda veitir ekki af að
líta eftir ferðamönnum, sem vilja
vera með nefið ofan í öllu hjá
Frökkunum. Ferðamannastraum-
ur austur hefur vaxið töluvert
vegna komu Frakkanna. Þá þótti
einnig nauðsynlegt að auka lög-
gæzlu í Vík, enda munar um
minna þegar 45 Frakkar koma I
320 manna þorp. Það er eins og
11—12 þúsund Frakkar kæmu
til Reykjavíkur. — Sögur, sem
gengið hafa um samkomubanm
eystra vegna Frakkanna og
fleira álíka gáfulegt, er hreinn
tilbúni-ngur.