Morgunblaðið - 29.07.1964, Page 3

Morgunblaðið - 29.07.1964, Page 3
ii.hu r Miðvikudagur 29. Jölí 1964 MORCU N BLAÐIÐ X u?'S Þegar Hrefna sökk ÖNNUK myndin sýnir skip verja á Höfrungi AK 91 bjarga Hrefnumönnum um borð í skip sitt um svipað leyti og Hrefna sekkur. Á hinni myndinni sjást bæði skipin. Annan gúmmíbát- inn má sjá lengst til vinstri á myndinni. . v.- •• s- • -.v v. .V.X.-Í.- MM«g Jakob Jakobsson ræðir gang síldveiðanna og veiðihorfur f FRÉTTAATJKA útvarpsins í gærkvöldi var samtal við Jakob Jakobsson, fiskifræðing, um gang síldveiðanna og veiðihorfur. — Hann sagði þar meðal annars: Það, sem hefur verið einkenn- andi fyrir gang síldvetðanna sem af er sumrinu, eru hinar gríðar- lega sterku síldargöngur, er komu að Austurlandi um miðjan júní- mánuð og hafa borið uppi veið- ina síðan. Jafnframt þessu hefur verið svo til alveg síldarlaust fyr- ir Norðurlandi a.m.k. enn sem komið er. Að undanförnu hafa verið gerðar rækilegar athuganir á Norðurlandsmiðum, en þær hafa ekki leitt neitt í ljós, sem gefur ástæðu til bjartsýni um síldveiðarnar þar á næstunni. Hins vegar er alltaf erfitt að full- yrða nokkuð um síldveiðar. — Á bæði djúp- og grunnmiðum fyrir Norðui'landi er sem sagt lítið síld armagn og rauðáta sáralítil. Út af Austfjörðum hefir hins vegar verið mi'kil rauðáta á grunnmiðum en minnkandi þegar fjær dregur landi. — Ástæðui’n- ar fyrir því hversu dregið hefur úr aflanum út af Austfjörðum eru einkum þær, að síldargangan fyrsta, sem kom um miðjan júní, hefur gengið hjá að mestu, farið á dýpri mið, þar sem minna er um átu. En við eigum von nýjum göngum austan úr hafi, sem ekki hafa gengið á grunn- miðin ennþá. Hins vegar er nú allmikil síld á stóru svæði í Aust urdjúpi, 90—120 sjómílur austur af Langanesi og Austfjörðum. En hún er enn dreifð og torfurnar óstöðugar. Jakob sagði að lokum að nú væri millibilsástand á síldveið unum. Síldin yrði að líkindum í góðum torfum er lengra líður á vertíðina. Og loks er það stórt atriði að skipin haldi lengur út fram á haustið en undanfarin ár fyi'ir Norður- og Austurlandi. Þjónusta við ferðamenn BLADIÐ Vesturland ritar ný- lega forustugrein um ferðamál- in á Vestfjörðum. Greinin nefn- ist: Þjónusta við ferðamenn, og er á þessa leið: — ,,Þessa dagana liggur mikill straumur ferðamanna til Vest- fjarða. Tugir ef. ekki hundruð manna leggja leið sína dagiega hingað vestur á bóginn í ýms- um erindum. Ferðamenn vilja skoða hina svipmiklu og tignar legu fegurð hinna' vestfiraku byggðarlaga og margir lcggja nú land undir fót og hefja landaleit. Vestfirðingum er það mikið ánægjuefni, að sem flestir lands menn eigi þess kost, að kynnast náttúru, landshögum, íbúum og atvinnuháttum hér vestra. Slík kynning er vafalaust til þess fallin, að auka skilning alþjóðar á þeim sérstæðu vandamálum. sem dreifbýlið á við að búa, því að enda þótt þau vandamál hafi verið mjög ofarlega á baugi í ræðu og riti á undanfömum ára tugum, er þó sjón sögu ríkari. Vestfirðingum er það einnig mikið hagsmunamál, að sem ríkastur skilningur sé fyrir hendi meða’ ráðamanna og reyndar alþjóðar, á vandamál- um dreifbýlisins, og aukinn ferðamannastraumur mun tvi- mælalaust giæða þann skiining. Aðbúnað vantar En þetta leiðir hugann að þvi vandamáli, sem aukinn ferða- mannastraumur skapar Vest- firðingum sjálfunr.. Þessi lands- hluti er orðinn langt á eftir í vegamálum, en hann er líka langt á eftir í þjónustu við ferða menn. Hér skortir tilfinnanlega nauðsynlegan aðbúnað og þjón- ustu við ferðamenn, enda þótt margt gott hafi verið gert og mikið áunnizt i þeim efnum á síðari árum. Hér á ísafirði eru nú starf- andi tvö gistihús, sem rekin eru af myndarbrag og tvær veitinga- stofur sjá ferðafólki fyrir beina. Gistihúsaþörfin hér í höfuðstað Vestfjarða er þó hvergi nærri leyst með þessu. Því hafa margir talið nauðsynlegt, að gera þyrfti úrbætur í þessum efnum, og á sú skoðun vaxandi fylgi að fagna, að gera þurfi húsmæðraskót'ann á tsafirði að sumargistihúsi. Slíkt væri mögulegt með litlum tilkostraaði, og vandalaust ætti að vera að fá aðstoð ríkisins í þess- um efnum, enda eru nú 8 skólar á landinu starfræktir sem sumar- gistihús með aðstoð ríkisins. Umbóta er þörf En þótt horfið yrði að þessu ráði, er gistihúsaþörfin á Vest- f jörðum hvergi nærri leyst. Leið- in miKi höfuðstaðar ísiands og höfuðstaðar Vestfjarða er löng og ströng. Á allri þeirri leið er að- eins eitt gistihús, sem Barð- strendingafélagið í Reykjavík hefur reist og rekið með mikl- uir. myndarbrag í Bjarkarlundi mörg undanfarin ár. Um mesta annatímann getur þetta gistihús hvergi nærri fullnægt eftirspurn- inni. Brýn nauðsyn ber að koma upp öðru gistihúsi eða jafnvel fleiri en einu, en mikifl vandi yrði leystur, ef kleift reyndist að koma upp gistihúsi í Vatns- firði. Þar hefur Barðstrendinga félagið rekið veitingaskála í nokk ur ár og undirbúið smiði gisti- húss, en fjárhagur félagsins leyfir ekki að ráðizt sé í fram- 4 kvæmdir að sinni. Það er brýnt nauðsynjamál Vestfirðinga og þeirra, sem til Vestfjarða vilja ferðast, að þarna i Vatnsfirði verði reist myndarlegt gistihiis. Ráðamenn á Vestfjörðum verða að gefa ferðamálunum meiri gaum, en gert hefur verið hingað tU. Bæta þarf sam- gönguraar á landi, sjó og í lofti og síðast en ekki sízt verður að bæta þjónustuna við ferða- menn“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.