Morgunblaðið - 29.07.1964, Síða 10
10
MORGtJMBLAÐr^
Miðvikudagur 29. júlí 1964
Markaðs- og framleiðslumál aðalumræðuefni
aðalfundur NBC
AÐALFUNDUR Norræna
bændasambandsins, NBC,
hófst í Bændahöllinni í gær
kl. 9.30. í fyrrakvöld höfðu
erlendu fulltrúarnir komið
flugleiðis hingað með flug-
vélum Flugfélags íslands,
en þeir eru samtals 85 tals-
haldnir til skiptis á Norður-
löndunum og er þetta annar
fundurinn, sem haldinn er hér
á landi. Að sjálfsögðu lá starf-
semin niðri á stríðsárunum.
Aðalfundir sambandsins eru
jafnan lokaðir og þar eru mál
rædd mjög opinskátt, en sölu-
og framleiðslumál landbúnað-
arvara eru gjarnan viðkvæm,
Hér sést yfir hóp kvenna NBC- fulltrúa við ‘Arbæ. Fjarst til
hægri á myndinni standa þeir Ragnar Ásgeirsson leiðsögumað
ur kvennanna og Lárus Sigurbjörnsson forstöðumaður Ár-
bæjarsafnsins.
ins. Með þeim eru konur
nokkurra þeirra, svo gest-
irnir eru alls um 100.
Fundur hófst með ræðu nú-
verandi forseta NBC, Sveins
Tryggvasonar, framkvæmda-
stjóra Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Bauð hann full-
trúa velkomna og sagði þenn-
an aðalfund NBC settan.
Norræna bændasambandið
var stofnsett árið 1934 og var
þá aðeins fámenn stofnun. Ár-
legir aðalfundir hafa verið
en þetta eru meginmál þau
sem rædd eru á fundum þess-
um. Forsetar félagsdeilda
hinna einstöku landa munu í
lok fundarins gefa út sameig-
inlega yfirlýsingu.
☆
Sem fyrr segir eru það fyrst
og fremst sölumál og fram-
leiðslumál fyrirtækja þeirra á
Eiginkonur NBC-fulltrúa í kaffiboði I Dillonshúsi við Árbæ.
Norðurlöndum, sem annast um
dreifingu landbúnaðarvara,
sem rædd eru á þessum fund-
um. Bæði Stéttarsamband
bænda og Búnaðarfélag ís-
lands eru þátttakendur í þess-
um félagsskap, Þótt að sjálf-
sögðu spanni þau yfir víðara
svið en samtökin hafa afskipti
af. Vísindalegar niðurstöður
eða skipulagsmál landbúnaðar
ins eru þarna ekki rædd, nema
að því leyti er þau ná til dreif-
ingar og vinnslu landbúnaðar-
vara. Þátttökufélög hinna ein-
stöku landa eru nokkuð svip-
uð og hin íslenzku, nema hvað
þau eru fleiri og að því leyti
frábrugðnari sem landbúnaður
hinna landanna er fjölbreytt-
ari. Þar eru framleiðslu- og
dreifingarfyrirtækin, eða sam
tök þeirra skipt í fleiri deildir
en hér, og má þar t.d. nefna
sambönd mjólkursamlaga, sam
bönd skógeigenda og eggja-
framleiðenda, svo tekin séu
dæmi.
Megintilgangur NBC er að
ræða sameiginlegar lausnir
Norðurlandanna í markaðs-
málum landbúnaðarvara.
Að loknum kosningum for-
seta og fundanefnda í gær-
morgun flutti Hjalti Gestsson
ráðunautur erindi um ís-
lenzkan landbúnað og landbún
aðarpólitík. Þá flutti finnski
ríkisþingmaðurinn Lindh er-
indi eftir prófessor Niels West
ermark, sem ekki gat setið
fundinn, um fjárhagsástand
landbúnaðarins á Norðurlönd
um. Þessu næst flutti Agnar
Guðnason skýrslu forseta, en
síðan flutti P. Grabö skýrslu
IFAP.
Síðasta atriði dagskrár fund
arins í gær voru yfirlitsum-
ræður um markaðsmálin og
tóku þar margir til máls.
Fulltrúar snæddu í gær há
degisverð í boði Sláturfélags
Suðurlands, en kvöldverð Í
boði íslandsdeildar NBC, hvort
tveggja að Hótel Sögu.
í dag heldur fundurinn
áfram í Bændahöllinni, en á
fimmtudag verður haldið í
ferðalag um Suðurland.
í gær var konum fundar-
manna boðið að heimsækja
dælustöðina að Reykjum,
Reykjalund og loks sátu þær
kaffiboð í Dillonshúsi við Ár-
bæ.
Agnar Guðnason aðalritari NBC flytur skýrslu forseta samban dsins. Við borðið t.v. við ræðustólinn sitja forsetar deilda NBC.
Sveinn Tryggvason, sem er jafnframt forseti þessa þings, er annar frá vinstri. (Ljósm. Sv. Þorm.)
BRIDGE
Á NORÐURLANDAMÓTINU 1
bridge sem fram fór í Ósló sigr-
aði A-sveit íslands A-sveit Dan-
merkur með 92-72 eða 5-1. Spilið,
sem hér fer á eftir, er frá þessum
leik, og gekk heldur illa fyrir ís-
lenzku spilurunum.
Þar sem dönsku spilararnir
sátu A—V gengu sagnir þannig:
Norður Austur Suður Vestur
pass 1 A 2 ¥ 3 *
pass 4 * pass 5 *
pass pass pass
A D 8 7 4 2
V 10 8 7
♦ 64
♦ 863
A 10 6 * ÁKG
V 5 5 3
♦ KG8 52 V G 4 3
*kdg ♦ Á 10
72 ♦ Á 5 4
A 9
V ÁKD962
♦ D973
♦ 10 9
5 lauf unnust auðveldlega og
danska sveitin fékk 400 fyrir.
Á hinu borðinu sátu íslenzkt*
spilararnir A—V sagnir þannig: og þar gengu
Norður Austur Suður Vestur
pass 1 * 2 ¥ 3 ♦
pass 3 ♦- pass 4 ♦
pass 4 ♦ pass 4 V
pass 5 ♦ pass 5 ♦ ,
pass 6 ♦ allir pass
Ekki er hægt að vinna 6 tígla,
en 6 lauf er aftur á móti betn
lokasögn. Spilið varð 5 niður og
fékk danska sveitin 250 fyrir eða
samtals 650 eða 12 stig.