Morgunblaðið - 29.07.1964, Side 12
12
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 29. júlí 1964
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
ITelzta árásarefni Framsókn-
arforingjanna á Viðreisn-
arstjórnina er það, að hún
fylgir nú ekki í einu og öllu
sömu stefnu og hún gerði fyr-
ir 5 árum. Virðast þeir álíta,
að ríkisstjórnir og stjórnmála
flokkar geti í eitt skipti fyrir
öll markað stefnu sína, sem
síðan breytist ekkert, hvað
->sem verða vill í heimsmála-
eða þjóðmálaþróun.
Þessi skoðun kann að hafa
þótt góð og gegn fyrir svo
sem eins og hálfri eða einni
öld, þegar málin þróuðust
yfirleitt beinlínis silalega,
miðað við það,
öld hraðans.
brosa í kampinn, þegar þeir
heyra slík skringilegheit.
Nú á tímum þarf ekki hálf-
an áratug til þess. að þróun
mála taki margvíslegum
breytingum, svo að sú stjórn
væri afturhaldsstjórn, sem
ekki aðlaðaði stefnu sína
breyttum háttum. Viðreisnar
stjórnin er hins vegar lifandi
stjórn, sem á hverjum tíma
tekur vandamálin föstum tök-
um og fylgist með þróun
mála, hvort heldur er á vett
vangi innanlandsmála, eða
samskiptum við aðrar þjóðir.
> Raunar ætti það ekki að
vera ofvaxið skilningi Fram-
sóknarleiðtoganna, að stjórn
arstefnan hlýtur einmitt á
þessu 5 ára tímabili að hafa
breytzt verulega. Þegar Við
reisnarstjórnin tók við völd-
um var hér allt í hreinum
vandræðum. Við höfðum
glatað öllu trausti út á við.
Gjaldeyrisvandræðin voru
svo alvarleg að varla varð séð
fram úr því, hvernig afla ætti
fjár til kaupa brýnustu nauð-
synja. Uppbótafargan hafði
tildrazt upp, sem kom í veg
fyrir alla heilbrigða sam-
keppni og svo mætti lengi
telja.
Til að ráða bót á slíku
yandræðaástandi dugðu auð-
vitað engin vettlingatök, og
þess vegna voru viðreisnar-
ráðstafanirnar vissulega nokk
uð harðar aðgöngu. Þjóðinni
var sagt umbúðalaust, að hún
yrði að leggja á sig byrðar
til að rétta við. Sem betur
fór reyndust þær þó léttbær-
‘ari, en boðað hafði verið og
árangur þeirra skjótari en
hinir bjartsýnustu höfðu þor-
að að vona.
En þegar þessum mikla
érangri viðreisnarinnar hafði
verið náð; við höfðum á ný
öðlazt traust út á við, við
höfðum gert verzlun okkar að
verulegu leyti frjálsa, við
höfðum upprætt uppbótakerf
ið o.s.frv., hlaut auðvitað
stjórnarstefnan að breytast
til samræmis við breytta
háttu.
Nú var ekki lengur nauð-
synlegt að viðhalda öllum
þeim ráðstöfunum, sem gerð-
ar höfðu verið á neyðar-
stundu. Ný vandamál sköpuð-
ust hinsvegar eins og ætíð
hlýtur að vera í lifandi þjóð-
félagi og við þeim var brugð-
izt með nýjum úrræðum.
Morgunblaðinu er svo sem
sama þótt Tíminn haldi áfram
að klifa á því, að Viðreisnar-
stjórnin sé stefnulaus, vegna
sem nu er a þegs ag bregst við vanda-
Nútímamenn málunum eins og þau horfa
við hverju sinni, en rígbynd-
ur sig ekki við einhverjar
kennisetningar, sem ekki
hæfa í dag, þótt þær hefðu
verið nauðsynlegar fyrir
nokkrum árum. Þeir mega
gjarnan ímynda sér að stjórn-
in sé veikari af þessum sök
um, en fólkið brosir í kamp-
inn.
HÁIR VEXTIR
grein sem Jón Skaftason,
þingmaður Framsóknar
flokksins, ritar í Tímann ;
gær, segir hann m.a.:
„Sú endurskipting eigna
þjóðfélagsins, sem verðbólgu-
þróunin hefur framkallað, þar
sem lántakendur hagnast stöð
ugt á kostnað lánveitenda,
getur ekki talizt sanngjörn né
verðskulduð“.
Síðan mælir hann með verð
tryggingu sparifjár, bæði
þess, sem safnast upp í bönk-
um landsins, vegna fjársparn-
aðar, og þess fjár er safnast
saman t.d. í lífeyrissjóðum og
segir: „Að sjálfsögðu yrði að
binda útlán þessa f jár vísitölu
við tilsvarandi hættí og spari-
fé“.
Þegar menn lesa þessi orð
Framsóknarþingmannsins, fer
ekki hjá því að þeir minnist
þess, að allt fram að þessu
hafa Framsóknarmenn talið
háa vexti eina meginmein-
semd í íslenzku efnahagslífi.
Nú boða þeir hinsvegar að
hækka eigi vexti verulega.
Þeir segja að lánveitendur
hafi tapað, vegna þess að þeir
hafi ekki fengið nægilegt end-
urgjald fyrir fjármuni sína,
en lántakendur hafi grætt af
sömu ástæðum.
Vísitölubinding sparifjár
er auðvitað ein leiðin til að
tryggja sparifjáreigendum
réttmæta umbun fyrir það
að ljá fé sitt öðrum. Á tímum
verðhækkana þýðir því verð-,
Sally 18 ára cg Allan Fry 19 — þau sýna hvert stefnir.
Hárín þeim á höföi rísa
MARGAR stúlkur í Bretlandi
hafa gripið til skæranna í
sumarhitunum, eins og stall-
systur þeirra annars staðar
í heiminum, og stýft á sér
lokkana. En piltarnir, sem
menn skyldu ætla að prísuðu
sig sæla með stutta hárið sitt,
eru aftur á móti farnir að láta
það vaxa. í»að er kannske of-
mælt að kalla þetta þjóðfélags
byltingu, enn sem komið er,
en síða hárið hefur valdið
mörgum misskilningnum. Oft
er ógerningur að þekkja i
sundur pilt og stúlku, einkum
ef bæði eru í þröngum bláum
gallabuxum.
Útlendingar eru alveg gátt-
aðir á þessum ósköpum ung-
linganna í Bretlandi. Miðaldra
kona frá Kansas gekk að ung
lingi í Kensington í fyrri viku
og spurði kurteislega: „Af-
sakið ungfrú, gætuð þér sagt
mér hvar er styzt i pósthús
héðan?“ og brá illilega í brún
er aðspurt ungmenni tjáði
henni í fyrsta lagi hvar póst-
húsið væri og í öðru lagi að
þrátt fyrir þröngu buxurnar
og ljósbleiku skyrtuna og síða
brúna hárið, sem hékk niður
á axlir, væri hann hreint eng
in ungfrú, heldur bara „einn
í stælnum“. Strák var skemmt
en konunni frá
meir en svo.
Kansas ekki
í>að er orðið algengt í Bret-
landi núna að unglingarnir,
sem „eru saman“ greiði sér
eins, oftast nær eitthvað í
átt við „The Beatles“, þykkan
topp fram yfir ennið, langa
barta eða vangalokka og rytju
lega stallklippingu í hnakkan
Það er orðið
erf itt að þekkja
sundur pilt og
stúlku
um. En þetta vekur ekki leng
ur neina sérstaka athygli.
Aftur á móti verður mönnum
starsýnt á axlasíða hárið, sem
sumir piltanna og stúlkurnar
þeirra hafa tekið upp. Þar má
varla á milli sjá hvort er
hvort — nema hvað hárið
stúlknanna er undantekningar
laust hreinna. Það er augljóst
mál, að sala á hárþvottameð-
ulum í Bretlandi hefur ekki
aukizt fyrir tilverknað síð-
hærðu piltanna.
Fullorðið fólk í Bretlandi,
sem eins og kunnugt er, lætur
sér ekki allt fyrir brjósti
brenna, tekur þessu fyrirbæri
misjafnlega. Sumir brosa og
segja hér vera um að kenna
öllum söngflokkunum, sem nú
vaða uppi, eins og t.d. The
Beatles (sem eru hálfu þokka
legri um höfuðið en flestir
hinna), The Rolling Stones;
The Pretty Things; The Ani-
mals; The Dave Clark Five
og The Daisies. í Bretlandi
er það enn þá talið einka-
mál manna, hversu fáránlegir
þeir vilji vera. Fólki er ekki
gjarnt að skipta sér af slíku
eða leggja á útlit og hegðun
annarra sálfræðilegt viðvan-
ingsmat sitt.
Einn vitrasti og reyndasti
sálfræðingur Breta, sem eink
um annast afbrotaunglinga,
sér ekkert óhugnanlagt við
þessa þróun málanna. Dr.
Derek Miller, sem vinnur við
Tavistock sjúkrahúsið, ung-
lingadeild, bendir á, að síða
hárið hafi lengi verið algengt
fyrinbæri meðal ungra pilta
af efri stéttunum í Bretlandi,
og þykir ekkert undarlegt, að
þessi „páfugls-hneigð“ sem
hann nefnir, hafi nú síast nið-
Framh. á bls. 23
trygging sparifjár hækkaða
vexti.
Nú hefur nokkuð verið far-
ið inn á þessa leið eins og
kunnugt er með húsnæðis-
málastjórnarlánunum. Varð-
andi styttri lán aftur á móti,
fylgir mikil skriffinnska slík-
um lánamáta, þannig að vafa-
samt er að heppilegt geti tal-
izt að fara mikið lengra inn á
oetta svið. En hitt er ánægju-
legt að Framsóknarmenn
skuli benda á nauðsyn hækk-
aðra vaxta í þessu formi. —
Varla geta þeir sama daginn
sagt að vextirnir séu of háir.
Ur
SKATTAR
m þessar mundir eru menn
að fá upplýsingar um
skatta þá, er þeir greiða til
ríkis og sveitáfélaga, af tekj-
um sínum sl. ár. Sjaldnast eru
menn ánægðir með skatta þá,
sem þeim er gert að greiða, og
sjálfsagt mun svo enn verða
nú, að flestum finnist þeir
greiða helzt til mikið.
En rétt er að menn hafi þá
í huga, að verulegar umbætur
hafa verið gerðar á skattamál
um þjóðarinnar, þannig að
tekjuskattar hér á landi eru
nú sízt hærri en í öðrum lýð-
ræðisríkjum. Með vaxandi
tekjum er eðlilegt að menn
greiði nokkuð hækkaða skatta
enda eru gerðar stöðugt meiri
kröfur til framkvæmda af
hálfu ríkis og bæjarfélaga.
Auðvitað á það samt að
vera stefnan, að einstakling-
arnir og fyrirtækin haldi eft-
ir eins miklu fé eins og unnt
er fyrir ríki og sveitafélög að
vera án. Sú hefur verið stefna
Sjálfstæðisflokksins og mun
verða áfram.
Auglýsingar:
Ú tbreiðslust jóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
I lausasölu kr.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
Skringilegar skoðanir