Morgunblaðið - 29.07.1964, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 29.07.1964, Qupperneq 22
22 MORCU NRiAGIÐ Mlðvlkudagur 29. júlí 1984 Sex ísl. sundmet sett í keppnisför ÍR í Svíþjóð !(■' • rSS Sv' jWKfíl f' - ^ Hrafnhildur bœtti met Ágústu — Cuömundur synti á 58,3 sek í 50 m laug og Hörður náði bezta tíma ársins í Svíþjóð IIMIIIIMIIMIIIIMMMIIIIMIMIIMMIIIIMIIMMIIIMMMMMIMIIIIMIMIIMMMIIMMIIMMIIMMIMMIMMIIIIMIIIIIIlmiMMMIIMMMI SUNDFLOKKUR frá ÍR ásamt þeim Davíð Valgarðssyni ÍBK og Guðmundi Þ. Harðarsyni Æ hafa verið á keppnisferðalagi í Svíþjóð að undanförnu. Fer ÍR- flokkurinn þessa för til endur- gjalds fyrir heimsókn sænsks sundfólks hingað og sjá sænsk sundfélög um alla fyrirgreiðslu. Flokkurinn hefur keppt á 3 sund mótum — allsstaðar í 50 m laug- um og hefur ísl. sundfólkið náð mjög athyglisverðum árangri og sett sex met. Hefur Hrafnhildur Guðmundsdóttir ÍR sett þrjú met í 50 m Iaug, Guðmundur Gislason, Davíð Valgarðsson og Hörður B. Finnsson sitt metið hver. Hér fer á eftir helztu úrslit í sundum ísl. sundfólksins á þess- um þremur mótum: í HEMMESLÖV 18. JÚLÍ Hrafnhildur Guðm. sigraði í 100 m skriðsundi á 1.05.3 sem er nýtt met. Eldra metið átti Ágústa Þorsteinsdóttir og var iþað 1.05.9. Önnur í sundinu var Karin Grubb á 1.06.7. Grubb kom til íslands 1961 og var þá saenskur methafi í greininni. I RÖSTANGA 19. JÚLÍ >ar sigraði Davíð í 100 m flug- sundi á 1.04.3. Guðmundur Gísla- son varð annar á 1.05.8 og J. Lindroth Svíþj. 3. á 1.07.5. Hrafnhildur synti þarna og sigraði í 100 m bringusundi kvenna á 1.24.6 sem er met í 50 m laug. Eldra met hennar var 1.26.0. önnur í sundinu varð M. Sjöström Malmey á 1.25.7. Þarna sigraði Guðm. Gíslasón í 100 m skriðsundi á 59.9. Göran Larsson Lundi varð 2. á 1.01.4 og Davíð Valgarðsson 3. á 1.01.8. í 100 m baksundi kvenna varð Hrafnhildur 2. á 1.23.6. í 400 m bringusundi karla varð Hörður Finnsson þriðji á 5.48.9. Sigurvegari var Per Olof Fulke á 5.40.5 og 2. Ulf Eriksen á 5.48.3. f BASTAD 22. JÚLÍ Þarna bætti Hrafnhildur 4 daga gamalt met sitt í 100 m skrið- sundi, synti á 1.05.2. Karin Grubb varð önnur á 1.06.3. í 100 m flugsundi karla sigraði Davíð á 1.04.0, 2. Guðmundur Gíslason 1.04.2, 3. Jan Lindroth 1.06.0, 4. G. Wahlberg 1.06.8, 5. Guðm. Þ. Harðarson 1.11.8 (hans langbezti árangur). í 100 m bringusundi kvenna sigraði K. Svensson Lundi á 1.24.9. Hrafnhildur varð önnur á 1.25.6. f 100 m skriðsundi setti Guðm. Gíslason nýtt met í 50 m laug, synti á 58.3 sek., en gamla metið hans á 50 m braut var 59.2. Er hér um stórkost- lega framför að ræða. Guðm. Þ. Harðarson varð annar á 1.07.7, sem er hans langbezti árangur og 3. Göran Larsson á 1.02.7. í 200 m skriðsOndi karla sigraði Jan Lundin (sá er hér var á Jónasarmótinu) á 2.01.8, sem er nýtt Norðurlandamet. Gamla metið átti Svíinn Mats Svensson og var það 2.02.0. Davíð Valgarðs son varð 5. í sundinu á 2.15.0, sem er íslenzkt met í 50 m laug. Átti Davíð það eldra, 2.16.0. f 100 m bringusundi sigraði Hörður B. Finnsson á þessu móti á 1.14.9, sem er nýtt ís- lenzkt met í 50 m laug. Það eldra var 1.16.3 og átti Hörður það. Þetta er bezti tími sem náðst hefur á þessari vega- lengd í Svíþjóð í ár. 2. varð B. Zachariasson á 1.15.1. Ingólfur skorar eitt af mörkum Fram. FH og Fram unnu fyrstu leiki mótsins — og milli þeirra stendur lokaslagurinn ÍSLANDSMÓTIÐ í útihandknatt leik í m.fl. karla og meistara- og LIVERPOOL OG KRIMætast Clav ®fl Líston 28. sept? mætast hér 17. ágúst Liverpool og KR 14. ágfúst .. 4 SAMKOMULAG hefur tekizt milli KR og Liverpool um leik- daga í Evrópubikarkeppninni. Enda þótt Liverpool hafi átt rétt á leik á undan á heimavelli, hef- ur félagið fallizt á að gefa þann rétt eftir vegna erfiðra skilyrða hér fyrir leiki í miðri viku eftir miðjan september. Verður fyrri leikurinn því hér í Reykjavík, og fer hann fram mánudaginn 17. ágúst, en síðari leikurinn fer fram í Liperpool mánudaginn 14. sept- ember. Þegar eftir að dregið hafði verið í Evrópubikarkeppninni, leitaði stjórn knattspyrnudeildar KR til Björgvins Schram, for- manns K.S.Í. og félaga í KR, og fór þess á leit við hann, að hann aðstoðaði féiagið við samninga- gerðina við Liverpool. Varð hann við því og hefur síðan staðið í samfelldum viðræðum við fram- kvæmdastjóra og ritara Liver- pool, með þeim ánægjulega ár- angri fyrir félagið og íslenzka knattspyrnuunnendur, sem áður segir. Stendur félaigið í mikilli þakkarskuld við Björgvin Sohram fyrir þennan mikilsverða stuðning. KR hefur öll leyfi íþróttasam- takanna fyrir þátttöku í Evrópu- keppninni, en eftir er að semja um afnot Laugardalsvallarins og tilfærslu á leikjurn KR vegna þessara leikja, við Í.B.R., móta- nefnd K.S.Í. og stjórn K.R.R. Heimsóikn eins bezta knattspyrnu liðs Evrópu í ár yrði ógerleg með öðru móti en þátttöku í þessari keppni, og verður að telja hval- reki íslenzkri knattspyrnu, og félagið er þess fullvisst að það fær góðar undirtektir viðkom- andi aðila. CÁSSIUS Clay og Sonny List- on hafa undirritað samning um kappleik um heimsmeist- aratignina og skal hann fara fram á tímabilinu 15. sept. til 31. okt. Clay skrifaði undir í Louisville og Liston í Fila- delfíu. Nilon framkv.stj. Listons sagði að þrjár borgir kæmu til greina sem vettvangur leiksins, Louisville, Las Vegas og Baltimore. „Sennilegast verður leikurinn mánudaginn 28. sept“, sagði framkv.stj. Clays. Framkv.stj. beggja telja Louisville einna heppi- legastan vettvang, gott áhorf- endarými og góð lega. Clay undirskrifaði nafn sitt þannig „Muhammed Ali, Aka Cassius M. Clay jr.“ „Aka“ á að þýða „einnig“. Hann er við æfingar í Miami en kveðst jafnvel ætla að æfa um tíma í Egyptalandi, Alsír eða Ghana — í þessum löndum ætti hann heimiboð til æfinga. Undirskrift samningsins hef ur vakið mikla athygli og undrun. Mikið hefur verið bollalagt um hver mundi mæta Clay fyrstur en almennt var talið af sérfræðingum að það yrði ekki Liston. Eftir að þingnefnd rannsakaði fjár- hagshlið fyrri leiks þeirra, töldu margir að alþjóðasam- bandið myndi ekki viður- kenna annan leik milli þeirra um heimsmeistaratitil. 2. fl. kvenna hófst á Hörðuvöll- um í Hafnarfirði á sunnudaginn. Sér FH um framkvæmd mótsins. Hófst mótið með Ieikjum í karla- flokki milli FH og Hauka og síð- ar var leikur Fram ÍR. Vann FII sinn leik með 23:17 og Fran* vann ÍR 41:24. HAUKAR VEITTU FH KEPPNI FH tók í upphafi örugga for- ustu, en um 8 ára skeið hefur FH ekki verið ógnað í útihand* knattleik. Það kom mjög á óvart er á leið leikinn að Haukar unnu á forskotið. Í hálfleik var staðan 13:9. Síðar tókst Haukum enn að minnka bilið og munaði tvíveg- is ekki nema 2 mörkum á liðun um og fundu FH-ingar ekki réttu tökin á liði Hauka. Undir leiks- lok kom þó öryggi FH til og vann FH verðskuldaðan sigur 23:17. Enn sem fyrr voru það þeir Ragnar Jónsson, Birgir Björns- son og Kristján Stefánsson, sem báru uppi lið FH en sérstaka at hygli vakti og yngsti sonur Hall steins hins ötula þjálfara liðsins, Geir, sem er mjög vaxandi leik- maður. FRAM VANN AUÐVELDAN SIGUR Fram átti ekki í neinum erfið leikum með ÍR-liðið. Var raunar aldrei um keppni að ræða í þess orðs fyllsta skilningi og Framar ar tóku lífinu með ró. Virðast þeir eiga mjög vel þjálfuðu liði á að skipa, þó 24 mörk ÍR-liðs- ins tali sínu máli um ekki allt of þétta vörn. En hins ber að gæta að Framarar lögðu sig ekki fram. Aðalleikur mótsins verður án efa milli Fram og FH en sá leik ur er á fimmtudaginn. í kvöld í KVÖLD verður 1. deildar- keppninni haldið áfram á Laug- ardalsvelli. Þá keppa Fram og Valur (kl. 20.30). Í Hafnarfirði verður íslands- mótinu í handknattleik haldið áfram á Hörðuvöllum. í m. HL karla keppa KR og Ármann og í m. f. kvenna fara fram tveir leikir Valur gegn Þrótti og síðaa Fram gegn Viking.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.