Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fímmfudafur 30. júTÍ 1964
Hitfasf Erhards
og Krúsjeff ?
Bandankjastjórn telur fund þeirra
geta leitt til betri samhúðar
Waáhington, 29. júlí — NTB
TALSMAÐUR bandaríska ut-
antíkisráðuneytisins skýrði
frá því í Washington í dag, að
það væri skoðun Bandaríkja-
stjórnar, að fundur Krúsjeffs,
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, og Erhards, kanzlara
V-Þýzkalands, gæti bætt til
muna sambúð landanna.
Talsmaðurinn vildi ekki ræða,
á favern hátt slíkur fundur kynni
að leiða gott af sér. Ekki vildi
hann heldur skýra frá því, hvort
stjórnin teldi, að slíkur fundur
væri æskilegur eða timabær nú.
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
HÉR fara á eftir bráðabirgða
tölur Hagstofu íslands um verð-
mæti útflutnings og innflutnings
I þinímánuði sl.
TJtflutt alts fyrir 441,902 þús.,
innflutt alls fyrir 1,034,551 þús.
þar af skip og flugvélar fyrir
580,853 þús. Vöruskiptajöfnuður-
inn í júraí var því óhagstæður um
502,049 þús.
Fyrstu sex mánuði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð-
ur um 586,374 þús., en á sama
tíma í fyrra óhagstæður um
433,816 þús. M' voru flutt inn
skip og flugvélar fyrir 133,100
þús. króna.
Hins vegar sagði hann, að
v-þýzka stjórnin hefði látið
bandariska ráðamenn fylgjast
með gangi málsins.
Blaðafulltrúar þingflokks
sósíaldemokrata í Bonn létu í
fara frá sér greinangerð, þar sem
sagt er, að komi Krúsjéff til V-
Þýzkalands, þá skuli hann gera
sér grein fyrir þvi, að hann verði
að koma fram af fúllri alvöru,
ekki hafa í frammi látalæti. For-
sætisráðherran hljóti að skilja,
að bæði V- og A-Þjóðverjar hafi
miklar álhyggjur af Þýzkalands-
málinu, og því verði ekki leynt
bak við yfirborðskenndar tæki-
færisræður.
Breyta varð stefnu „Ranger 7“,
sem stefndi á dökku hlið tungls
- ekki tjóst, bvort núverandi stefna er rétt, fyrr en
að 12-14 t'imum liðnum
Makarios og
Grikkir sammála
Aþena, 29. júlí — (NTB)
MAKARÍOS, erkibiskup og fbr-
seti Kýpur, skýrði frá því í dag,
að harm hefði í dag átt þriggja
tíma fund með Geprg Papand-
reu, forsætisráðherra Grikk-
Iands, utanríkisráðherranum
Kostofx>ulos og Gargufalias land
varnaráðherra.
Makaríos sagði, að allar hliðar
Kýpurdeilunnar hefðu verið til
umræðu, og hefðu ýmsar á-
kvarðanir verið teknar. Ekki
vildi hann nánar að þeim víkja,
en sagði þó, að sérstökum til-
mælum yrði beint til Samein-
uðu þjóðanna.
Ma-karíos lýsti því einnig yfir
við þetta tækifæri, að Kýpur-
stjórn og gríska stjómin væru
sammála um öll atriði Kýpur-
deilunnar.
Pasadena, Kaliforníu,
29. júlí — AP
BANDARÍSKIR vfsinda-
menn tilkynntu í dag, að
þeir hefðu orðið að breyta
nokkuð stefnu tunglfarsins
„Ranger 7“, svo að það
lenti ekki á þeirri hlið
hnattarins, er frá sólu veit.
Megintilgangur með tungl-
skotinu er að afla vitneskju
um yfirborð tunglsins, með
sjónvarpsmyndum.
Er stefnu „Rangers 7“ var
breytt, voru ræstir þrýsti-
hreyflar í geimfarinu, og þeir
látnir starfa í um 50 sekúnd-
ur. Tekið var fram, að ekki
væri með vissu hægt að segja
um, hvort hárrétt stefna hefði
náðst, fyrr en að 12 til 14
stundum liðnum.
Að öðru leyti hafa öll tæki
í geimfarinu starfað eins og
til var ætlazt.
Bandaríska geimferðastofn-
unin, NASA, tilkynnti í dag
kl. 14.00 (eftir ísl. tíma), að
þá væri „Ranger 7“ 114.208
mílur frá jörðu, en hraði þess
þá var 3.562 mílur á klukku-
stund, miðað við jörðu.
Þá var geimfarið 130.952
mílur frá tunglinu, og hraði
þess, miðað við tunglið, 3.219
mílur á klst. Mismunurinn
felst í því, að geimfarið fjar-
lægist jörðu, um leið og jörð-
in fjarlægist það. Þessu er
hins vegar öfugt farið með af-
stöðu tunglsins til farsins.
Gdð sðltunarsíld í gær
f GÆPuDAG var góð veiði um
110 sjómílur austur af Raufar-
höfn og fengu mörg Skip þar
góðan afla af stórri og feitri síld.
Voru skipin að kasta á þessum
slóðum fram eftir kvöldi, en
Aukinn
viðbúnaður
Grikkja
Makarios i Aþenu
Aþenu 2i8. júlá (NTB)
GRÍSKI herinn og flotinn fékk í
dag fyrirskipun um að auka varð
gæzlu sína við landamæri Tyrk-
lands 0|g á Eyjahafinu. Segir
griska stjórnin að aðgerir þessar
séu eingöngu í varnartilgangi, og
hafi verið gripið til þeirra vegna
fregna um herflutninga Tyrkja
við strönd Anatólíu.
Makaríos, forseti Kýpur, ræddi
í dag við gríska ráðlherra í
Aþenu. Meðal mála á dagskrá
var tillagan um að þess verði
farið á leit við Alls'herjarþing
Sameinuðu þjóðanna, að það
styðji sjálfstæða Kýpur og
sjálfsáikvörðunarrétt íbúanna.
Á morgun ræðir Makaríos
m. a. við Papandreou, forsætis-
ráðherra Grikkja og er gert ráð
fyrir að gefin verði út yfirlýsing
að viðræðum þeirra loknum.
undir miðnætti var kominn NA-
kaldi og veiðiveur orðið verra.
Eftirtalin skip tilikynntu um afla
Súlan 800 tunnur, Sigurður
Bjarnason 1300, Steingrímur
trölli 1000, Hilmir II. 500, Jörund-
ur III. 2800, Jörundur II. 1500,
Sigurður SI 500, Guðbjörg ÓF
Meiddist á fæti
AKRANESI 28. júlí. — UM
fimm-leytið 1 gærdag hvolfdi
Volkswagenbíl, sem ekið var á
geysihraða hjá vegamótum inn-
an við Fellsöxl. Þarna voru þre-
menningar á ferð til að heim-
sækja vini sína á Molakaffi á
Hótel Akranesi. Einn þeirra
meiddist á fæti, ekki alvarlega
þó, gekk samt á læknisfund.
— Oddur.
900, Einar Hálfdáns 400, Anna
450, Hafrún 1200, Grótta 500,
Guðrún 500, Oddgeir 1000, ögri
500, Vigri 500, Margrét 1500,
Straumnes 300, Áskell 600, Sæ-
faxi 4i50, Arnames 500, Faxi 500
Fagriklettur 450 og Arnfirðingur
4—500 tunnur.
Síldin fer öll til söltunar, eink-
um á Raufarhöfn, en nokkur
skip halda með afla til Siglu-
fjarðar.
Tvö slys í
umferðinni
TVÖ slys urðu I umferðinni í
gær. Um kl. 2 var lögreglan
kvödd inn á Sogaveg, en þar
hafði 9 ára telpa, Sigríður S.
Friðriksdóttir, orðið fyrir bíL
Var hún að koma úr strætisvagni
og hljóp frá eldri sfcúlku, sem
með henni var. og lenti fyrir bíl
á leið vestur Sogaveg. Meiddíst
stúlkan ekki alvarlega, en var
flutt í Slysavarðstofuna.
Þá varð önnur telpa fyrir bíl
fyrir framan Kronbúðina á Sund.
laugavegi. Var hún flutt í Slysa-
varðstofuna til öryggis, en
meiðsli hennar voru lítil sem
engin.
Útsvöiin í Eskifjarðurhreppi
NÝLOKIÐ er niðurjöfnun út-
svara og aðstöðugjalds í Eski-
fjarðarhreppL
Alls var jafnað niður krónum
5.424.210 á 256 gjaldendur.
Hæstu gjaldendur eru:
Hraðfrystihús Eiskifj. h.f. 315.000
Jóhann Klausen netag.m. 162.900
Happasœll land-
aði sex flyðrum
Butler rœðir
Laos við Krúsjeff
Sovétrikin ætla ekki að bætta
formennsku þegar i stað
AKRANBSI 29. júlí. — Happa-
sæll, skipstjóri Kristinn Gíslason,
gerði í gær fallegt upphlaup í
trillubátaflotanum, svo talað sé
á máli knattspyrnumanna, og
sannaði áþreifanlega, að mörg er
matarholan í Faxaflóa. Hann
landaði sex lúðum, sú stærsta vó
360 pund, sú næststærsta rúmlega
200 pund. Sú minnsta vó 40 pund
og hinar þrjár þar á milli. Allar
voru flyðrurnar fallegar og
girnilegar til átu, kúptar af spiki.
Gaman hefði verið að sjá for-
manninn, er hann var einn að
innbyrða stórlúðurnar. Tvær trill
ur reru með ýsulóð, Bensi, er
fiskaði 1100 kg og Sæljón með
900. Dragnótatrillurnar lönduðu
og í gær. Hæst var Björg með
1300 kg, Hafþór 1200 og Sigur-
sæll 500 kg. Stærsti róður Sigur-
bjargar, sem er með handfæri,
skipstjóri Helgi Guðmundsson,
var, er hún aflaði tvö tonn og
tíu kg betur. I dag er landlega,
sunnan-suðaustan stormur, sjö
vindstig, en heldur að hægja.
' — Oddur.
Moskvu, 28. júlí (NTB)
ÁREIÐANLEGAR heimiidir í
Moskvu hermdu í dag, að Krús-
jeff, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, hefði orðið við beiðni Butl-
ers, utanríkisráðherra Breta, um
að halda áfram samstarfi sem
miðar að því að tryggja friðinn í
Laos. Bretar og Rússar gegndu
formennsku á Genfarráðstefn-
unni um Laos 1962. Rússar hafa
að undanförnu hófcað að segja af
sér formennsku og fyrrgreindar
heimildir herma, að þeir muni
gera það, verði ekki samþykkt
tillaga þeirra um að Genfarráð-
stefnan frá 1962, sem tryggja
átti hlutleysi og sjálfstæði Laos,
verði kölluð saman á ný.
Fjórtán lönd áttu sæti á þess-
ari ráðstefnu og hafa Sovétríkin
sent þeim öllum tillögu sína.
Richard A. Butler, utanríkis-
ráðherra Breta, kom til Moskvu
í gær og í morgun ræddi hann við
Krúsjeff og Andrei Gromyko, ut-
anríkisráðherra. Við þær viðræð-
ur kvað Gromyko Rússa stað-
ráðna í að greiða ekki skuldir
sínar við Sameinuðu þjóðirnar
vegna gæzlustarfa þeirra í Kongó
og á Gaza-svæðinu.
Fréttamenn segja, að viðræður
Butlers og Krúsjeffs hafi fyrst
og fremst snúiz um Laos og verið
vinsamlegar. Herma heimildir, að
Krúsjeff hafi falhzt á að fresta
því að láta verða af hótun sinni
um að hætta því samstarfi við
Breta, sem beinist að því að varð
veita friðinn í Laos. Heimildir
herma einnig, að Butler hafi gert
Krúsjeff ljóst, að Bretar væru
fúsir til þess að fallast á tillög-
una um að kalla saman Laosráð-
stefnuna, ef gengið yrði að ýms-
um skilyrðum. T.d. hafði Butler
lagt áherzlu á að áður en ráð-
stefnan hæfist yrðu hinir stríð-
andi aðilar í Laos að semja vopna
hlé og halda aðeins þeim stöðvum
sem hefðu verið í þeirra höndum
í febrúar sl.
Auk Laos ræddu Krúsjeff og
Butler önnur vandamál, sem eru
ofarlega á baugi í heiminum, þar
á meðal afvopnun. Einnig ræddu
þeir aukin viðskipti og menning-
Jón Kjartansson h.f. 155.400
Kaupfélagið Björk 151.000
Jónas Oddss. héraðslækn. 98.700
Aðalst. Valdimarss. skipstj. 70.800
Árni Halldórss. skipstj. 64.500
Kristinn Karlsson skipstj. 60.800
Karl Símonarson Vélsm. 63.000
Elís Guðnason rafv.m. 52.300
Jafnað var niður samkvæmt
gildandi útsvarslögum. Ekkert út
svar var lagt á eignir og ekkert
útsvar lagt á menn 67 ára og
eldri. Að lokum voru öll útsvör
lækkuð um 7%. — G. W.
Erlendar
fréttir
Köln, V-Þýzkalandi,
29. júlí — NTB:
Iðnsamband V-Þýzkalands hefur
skýrt frá því, að verðlag í land
inu hafi hækkað um 14% á sL
fimm árum. Kaup hafi hins veg-
ar hækkað að meðaltali um 52%
á sama tíma.
Sao Paulo, 29. júlí — NTB:
Talið er, að a.m.k. 20 hafi látíð
lífið í kuldum þeim, sem að und
anförnu hafa gengið yfir í BrasU
íu. Mestur mun kuldinn hafa orð
ið — 4 stig.
Kairó, 29. júlí — NTB:_
Egypzka flugfélagið hefur fest
kaup á 7 nýjum Comet-þotum,
til viðbótar þeim, sem fyrir eru.
París, 29. júlí — NTB: —
Fasfcaráð Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, kvaddi í dag Dirk
Stikker, sem nú hefur látið af
framkvæmdastiórastörfum banda
artengsl landa sinna.
lagsins.