Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 22
22 MORGU N BLAÐIÐ • ií:í . • n ■ • • m• i! ru 4 1 Fimmtudagur 30. júlí 1964 Fram-Valur skildu jöfn 0-0 I leik í rigmngu og k&lsaveðri Etns og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu mætir KR ensku meisturunum Liverpool í Evrópukeppninni. — Myndin hér að ofan er af markmanni Liverpool, Lawrence, sem þykir mjög góður og átti mikinn þátt í velgengni liðsins síðasta keppnis- tímabil. Enska knattspyrnan STJÓRN Liverpool, mótiherja KR í Evrópukeppninni, hefur ákveð- ið að hætkka laun leikmannanna, Er reiknað með að hver leikmað ur geti komizt upp í 6 þús. pund fyrir naestu 12 mánuði. Hver leik maður mun t.d. fá 2 pund fyrir hverja 1000 áhorfendur umfram 28 þús. áhorfendur, en aðsókn að vellinum, Anfield, er venju- lega um 50-60 þúsund. Leikmenn munu auk þess fá greitt sérstak- lega fyrir hvert sett mark. — Framh. á bls. 23. F R A M og Valur mættust í 1. deild í gærkvöldi á Laugardals- vellinum. Það var rigning og leiðindaveður. Og ekki megnuðu liðin að hafa sig upp úr veðrinu og sýna betri og léttari leik. Það virðist eins og íslenzk knatt- spyrna sé sett í einhverja fjötra. Veðrið getur ekki leyst hana úr álögum — það eru aðeins leik- menn sem megna það — en leik- menn skortir okkur nú. LAUGARDAGINN 27. júni var Sundmót Austurlamds háð í Sund laug Eskifjarðar. Til leiks voru mættir 29 keppendur. Seyðfirð- ingar forfölluðust á síðustu stundu og komust . ekki til keppni. Þessi urðu helztu úrslit: Karlaflokkur (17 ára og eldri): 500 m frjáls aðferð Stefán Þórarinsson SE 8:09,4 Ingi T. Björnsson, Þr. 9:20,2 100 m bringusund Stefán Þórarinsson SE 1:24,5 Sigurjóh Stefánsson, Þr. 1:28,9 50 m frjáls aðferð Sigurjón Stefánsson Þr. 31,8 Úlfar Hermannsson, Þr. 32,1 50 m baksund Helgi Jóhannsson, Þ. 41,7 Ingi Tómas Björnsson, Þ. 41,7 4x25 m boðsund A-sveit Þróttar 1:02,1 B-sveit Þróttar 1:10,1 KONUR: 500 m frjáls aðferð Elínborg Eyþórsdóttir, Þr. 9:03,3 Elísabet Karlsdóttir Þr. 9:36,0 Fram og Valur mættust í 1. deildarkeppninni í gærkvöldi í rigningu og leiðindaveðri. Leik- urinn hjá liðunum var ekki fram- ar veðrinu og mátti reyndar rétt- látt teljast að honum lyktaði með 0—0. Bæði liðin áttu möguleika á að skora mark en hvorugu tókst. Þetta var einn af þessum leið- indaleikjum þegar liðin hlaupa fram og aftur um völlinn, upp- 100 m bringusund Svandís Rafnsdóttir, Þr. 1:47,4 Halldóra Axelsdóttir, Þr. 1:49,3 50 m frjáls aðferð Jóna ólafsdóttir, Þr. 39,9 Elísabet Karlsdóttir, Þr. 40,5 50 m baksund Elínborg Eyþórsdóttir, Þr. 46,1 Elísabet Karlsdóttir, Þr. 55,6 DRENGIR, 16 ára og yngri: 500 m frjáls aðferð Ingi Kristinn Stefáns. Þr. 8:53,1 Alfreð Dan Þórarinsson SE 9:04,0 100 m bringusund Ingi Kr. Stefánsson, Þr. 1:34,1 Rögnvaldur Sigurðsson, rÞ. 1:41,3 50 m baksund Þorsteinn Kristjánsson, Þr. 46,6 Örn Agnarsson, Þr, 50,6 50 m frjáls aðferð Þorsteinn Kristjánsson, Þr. 36,7 Örn Agnarsson, Þr. 37,9 TELPUR 16 ára og yngrj 500 m frjáls aðferð Svandís Rafnsdóttir, Þr. 9:42,6 Stefanía Steindórsd. Þr. 10:01,8 100 m bringusund Stefanía Steindórsd., Þr. 1:45,1 Framhald á bls. 23. hlaup gagn upphlaupi — en tekst ekki að skora mark, ekki vegna þess að leikmenn vilja ekki sjá mark — heldur af getuleysi. ★ Það brá þó fyrir góðum köfl- um í leik, all nákvæmar send- ingar milli tveggja ti'l þriggja manna oig síðan aftur fyrir þann fjórða, sem var á harða hlaupum fram — og upphiaupið var búið. En bæði lið reyndu og reyndu. En allar tilraunir beggja liða voru drepnar — þetta voru hlaup fram og til baka, sending frá Frammara til Valsmanns og öf- ugt. Fram var þó öllu nær þvi að skora — með sín tvö stangarskot en heppnin var ekki með og félögin skiptu stiigum. M0LAR JAPANSKA OL-liðið í knatt- spyrnu lék 24. júlí við úrvalslið úr 2. deildinni rússnesku. Fór leikurinn fram í Sverdlovsk og lauk með 0—0. Það var kalt og hellirigning. Enrique Figuerola frá Kúbu er líklegur til verðlauna á OL I spretthlaupunum. Um s. 1. helgi keppti hann á móti í Róm og vann sinn riðil og síðar úrslitin á 10.2 í bæði skiptin. Hann sigr- aði með yfirburðum. ísrael hefur ákveðið að senda 12 keppendur til OL í Tokáó. Keppa 4 í frjálsum íþróttum, 3 í skotfimi og 2 í lyftingum. Með þeim fara 3 þjálfarar, fararstjórn og þingfulltrúar svo alls fara 20 ísrelsmenn til OL. Sundmót Austurlands Jón Þ. Úlafsson æfir af kappi Fréttaritari Morgunblaðsins í Los Angeles, Albert K, Gans, ræðir við Jón Þórð Ólafsson, hóstgkkvara . . Það er langt til íslands (Skrifað í júní). ÞAGAR Morgunblaðið stakk upp á því, að ég ætti samtal við Jón Þórg Ólafsson, einn helzta íþróttamann íslands, sem nú ferðast úm Bandaríkin í boði utanríkisráðuneytisins. velti ég mikið fyrir mér hvern ig hann liti út. Ég verð að játa að ég varð þægilega undrandi að kynnast risa- vöxnum ungum manni með afar heillandi persónuleika. Ég spurði hann, hví hann kysi að lifa einföldu lífi og búa í einum af svefnskálum háskólans í Suður-Kaliforníu í stað þess að búa á hóteli og njóta allra þæginda fyrsta flokks þjónustu. „Ég er afar þakklátur fyr- ir“,sagði hann, „að fá tækifæri til að ferðast um Bandaríkin og kynnast þjóðinni". Svo hélt hann áfram: „En ég er ákveð- inn í að afla landi mínu frægð- ar á íþróvtaleikvanginum og til þess veiö ég að halda áfram að æfa mig á hverjum degi. Háskóli Suður-Kaliforníu hef- ur afbragðs völl til að æfa á og þess vegna finnst mér gott að búa í grendinni". Ég spurði Jón, hvort hann Höfundurinn og Jón Þ. vina. Hann leit út á hafið: „ísland virðist svo óralangt í burtu og vissulega sakna ég vinna minna og heimilis. En hvar sem ég fer hef ég svo- iítið af íslandi með mér. Ég segi fólkinu sem ég hitti frá landinu mínu, litadýrð sveit- anna, 'hverunum og þeim mikla fiskiðnaði sem er í land inu. Ég hef komizt að raun um að fólk í Bandaríkjunum veit afar lítið um ísland. Mér finnst heiður af því að segja frá landi mínu og vona að einhverjir þeirra sem ég hitti komi brátt og heimsæki okk- ur“. Við ræddum annað aðal- áhugamál Jóns, hástökk. Ég komst að raun um ag Jón Ólafsson leggur sig allan fram við að bæta þann ótrúlega ár- angur sem hann hefur náð í þessari íþróttagrein. „Ég verð að æfa mig af kappi á hverjum degi til að ná betri árangri", sagði hann, „ef ég á að verða fær um að keppa fyrir ísland á Olympíu- leikjunum í Tókíó í sumar“. Við minntumst einnig á ameríska frjálsíþróttamenn. Ég spurði Jón, um skoðun hans á þeim. Hann hugsaði sig um nokkra stund áður en hann svaraði: „Bandarikin koma til með að senda frábæra hlaupara til Tókíó í sumar, og undir forystu manna eins og hins furðulega kúluvarpara Dallas Long og C. K. Young frá U.S.L.A. og Tiwain er ég viss um að Bandaríkin öðlast drjúgan hluta af gullverð- laununum. Ég vona að ég geti keppt fyrir ísland og náð góðum árangri". Á meðan við ókum gegnum götur Los Angeles heim til svefnsala Jóns í háskólanum sagði ég við sjálfan mig: „Það hlýtur ag takst, Jón“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.