Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 23
irimmtudagur 30. júlí 1964
MORGUNBLAÐIÐ
23
fslenzkt prests-
embætti í Kaup-
mannahöfn
DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið
hefur með bréfi dags. 16. þ. m.
heimiiað biskupi að ráða prest
til að þjóna íslendingum þeim,
gem búsettir eru í Danmörku.
Séra Jónas Gíslason hefur ver
1S ráðinn til þessa starfa og er
hann farinn utan með fjölskyldu
sinnL
Það er kunnugt, að margir
íslendingar dveljast í Danmörku
einkum í Kaupmannahöfn, Þegar
frá eru taldar byggðir íslend-
inga í Vesturheimi eru hvergi
jafnmargir landar vorir á ein-
um stað erlendis og þar.
' Stundum hefur það borið á
feóma á undanförnum árum, að
íslenzka kirkjan þyrfti að láta
þessu fólki þjónustu í té, líkt og
aðrar kirkjur gera þar sem að-
stæður eru svipaðar. En allar ná
grannakirkjur vorar hafa á að
skipa mörgum prestum, sem
starfa meðal landa sinna í höfuð
— Sovétríkin
i Framhald af bls. 1.
Sovétríkjanna, grein fyrir
þessari skoðun brezkra ráða-
manna, á fundi þeirra beggja
í Moskvu í dag.
Eitt skilyrðið, sem Bretar telja
»ð uppfylla verði, er, að deiluað-
ilar í Laos lýsi yfir vilja sínum
til að ræðast við. Þá er bent á, að
koma verði á algeru vopnahléi í
landinu, og að herir hörfi til
þeirra staða, þar sem þeir voru í
vor, er bardagar hófust á nýjan
leik.
Ákveðið var f dag, að utan-
rikisráðherrarnir tveir hittist aft-
ur á föstudag, til frekari við-
ræðna.
Haft er eftir fulltrúum í brezku
sendinefndinni, sem nú dvelst í
Moskvu, að þeir séu ekki mjög
bjartsýnir á, að Sovétstjórnin
fallist á skoðanir Breta. Þó er
haft eftir Butler, að hann sé von-
betri um árangur, eftir að hann
frétti, að deiluaðilar í Laos hafi
ákveðið að koma saman til fund-
ar. Talið er, að fundurinn verði
haldinn einhvers staðar í Ev-
rópu, og muni þar ræðast við
hægrimenn, hlutlausir og komm-
únistar.
Talið er hugsanlegt, að slíkur
fundur geti leitt til myndunar
nýrrar samsteypustjórnar í Laos,
imdir forystu Souvanna Phouma
prins, foringja hlutlausra.
Butler mun hafa notað tæki-
færið, er hann hitti Gromyko að
máli, til að ræða viðskiptamál, en
Bretar telja, að þeir kaupi mun
meira af vörum frá Sovétríkjun-
um, en þeir flytji út þangað.
Einnig var raett um að opnað-
ar verði ræðismannsskrifstofur í
báðum löndunum, og leyfð sala
á brezkum blöðum og tímaritum
í Sovétríkjunum. Aðeins eitt
brezkt blað er þar fáanlegt,
kommúnistablaðið „Daily Work-
Afli Akranesbáta
AKRAJMESl 2«. júlí — Hálft 6.
(þús. kg af slitnum humar barst
hingað í dag og í gær af sjö bát-
um. Svanur og Fram voru afla-
hæstir með 11 hundruð kg hvor,
Ásmundur 1000 kg, Sæfaxi 720,
Haförn 700, Ver 650 og Höfrung-
upI. 260 kg. Hann var upptekinn
við að bjarga mönnunum af
Hrefnu KE. Hér liggur ms.
Beykjafoss og losar 1500 tonn af
gipsi tU Sementsverksmiðjunnar.
— Oddur.
borgum og hafnarborgum víðs-
vegar um heim.
Til skamms tíma hafa íslend
ingar og menn af íslenzku bergi
brotnir verið prestar í dönsku
kirkjunni og gegnt nokkurri
þjónustu fyrir landa sína, þótt
þeir væru danskir embættis-
menn. Má þar nefna séra Hauk
Gíslason, sem lengi var sóknor-
prestur í Kaupmannahöfn og
hafði stöku sinnum íslenzkar
guðsþjónustur. Séra Finn Tulin
ius hefur alloft unnið prestsverk
fyrir íslendinga og margan greiða
annan hefur hann gert löndum
vorum og landi. Bæði honum og
öðrum, sem kunnugastir eru, hef
ur lengi verið ljóst, að íslenzk
ur prestur í Kaupmannahöfn
hefði ærið starfssvið og mikil-
vægu hlutverki að gegna.
Fyrir rúmu ári komst rekspöl
ur á þetta mál. Átti biskup við-
ræður við ýmsa aðilja og tók það
síðan formlega upp. Stefán Jó-
hann Stefánsson, ambassador ís-
lands í Kaupmannahöfn. lét í té
álitsgerð síðsumars í fyrra, þar
sem hann hvatti eindregið til
þess, að löndum í Danmörku væri
séð fyrir íslenzkri prestsþjón-
ustu. Kirkjumálaráðherra, Jó-
hann Hafstein, sýndi málinu þeg
ar fullan skilning. Kaupmanna-
hafnarbiskup og aðrir danskir
kirkjumenn hafa fagnað þessari
hugmynd. Eftir ýmislega athug
un og undirbúning hefur þessu
nú verið til lykta ráðið á þann
hátt, sem að ofan greinir.
Hinn íslenzki prestur í Kaup-
mannahöfn er fyrst og fremst
ráðinn til venjulegrar prestsþjón
ustu meðal íslendinga þar í borg,
svo og annars staðar í Danmörku
eftir því sem við verður komið.
Mun hann reiðubúinn til hvers
konar fyrirgreiðslu, m.a. við sjúki
inga, sem leita læknishjálpar til
Danmerkur. Þá mun hann einnig
leitast við að gegna störfum fyr
ir íslendinga, sem dveljast á hin-
um Norðurlöndunum, að svo
miklu leyti sem honum verður
unnt.
Heimilisfang sér Jónasar Gísla
sonar er:
Egebæksvej 23, Holte, Dan-
mark.
Einnig má snúa sér til hans um
skrifstofu íslenzka sendiráðsins,
Islands Ambassade, Dantes Plads
3, Köbenhavn.
Bæða kjornorku
her NATO í lofti
og ó landi
London 28. jútí (NTB)
HERNAÐARSÉRFRÆÐINGAR
frá átta Atlantshafsbandalags-
rikjum hófu i dag viðræður í
London um tillögu Breta þess
efnis, að komið verði á fót sam-
eiginlegum kjarnorku land- og
flugher innan bandalagsins.
Talið er að viðræður þessar
muni standa yfir í tvo ti)l þrjá
mánuði og fjallað verði um hern
aðarlegar hliðar framkvæmda
tillagna Breta, en langt er síðan
þær voru lagðar fyrir herroála-
nefnd bandalagsins.
ICaffisnittur — Coctailsnittur
Rauda Myllan
Smurt brauð, heilar og hálfar
sneiðar.
Opið frá kl. 8—12,30.
Sími 13628
132 ísl skátar fara
á mót í Norsgi
— Þróunin
Framhald af bls. 1.
með því að reikna hvorttveggja
á f.o.b.-verði, enda er meginhluti
innflutningsins fluttur með ís-
lenzkum skipum.
Þessi mismunur nemur allt að
10% og myndi þá verzlunarjöfn-
uðurinn reiknast hagstæður um
150—200 milljónir að frádregnum
skipum og flugvélum.
Eins og að framan segir, þá er
þessi þróun því að þakka ann-
ars vegar að útflutningur hefir
orðið mikill vegna mikillar fram-
leiðslu ag hagstæðra markaða og
hinsvegar að innflutningur hefir
lítið aukizt á undanförnum mán-
uðum, en á árinu 1003 jókst hann
hröðum skrefum.
Þetta bendir til þess, sagði
dr. Jóhannes Nordal, að nokkru
meiri jöfnuður ha.fi aftur náðst
varðandi stöðu þjóðarbúsins út
á við og traust manna á gald-
miðlinum sé að aukast. Bendir
raunar ýmislegt fleira til að svo
sé.
Gjaldeyrisstaða bankanna hef-
ir einnig haldizt sæmiiega hag-
stæð, það sem af er árinu. f árs-
lok 1003 nam gjaldeyrisforðinn
netto 1311 milljónum króna.
Hann hefir síðan breytzt tiltölu-
lega lítið og var í júnílok 1285
milljónir króna, sem er 30 millj-
ón krónum meira en á sama
tíma 1063. Jafnframt eru stutt
vörukaupalán erlendis svo að
segja jafn há og þau voru fyrir
ári, en birgðir útflutningsvara
í landinu líklega nokkru hærri
en þá þótt tölur liggi enniþá ekki
fyrir.
Gjaldeyrisstaða bankanna hef-
ir haldizt þetta hagkvæm, þrátt
| fyrir það að reynt hefir verið
| að draga úr lántökum erlendis
til annars en skipa- og flugvéla-
kaupa en það hefir sem kunnugt
er alltaf að miklu leyti verið
keypt fyrir lánsfé.
Seð'labankastjórinn sagði, að
hið aukna jafnvægi, sérstaklega
í innflutningnum, sé að veru-
legu leyti að þak'ka meira að-
haldi í peningamálum undan-
, farna mánuði og svo nú síðast
því, að tekizt hefir að stöðva
víxilhækkanir kaupgjalds og
verðlags og skapa almennara
traust á framtíðarverðgildi pen-
inga. Megin vandinn nú er að
sjálfsögðu að treysta grundvöll
þess jafnvægis, sem náðst hefir
í verðlagsmálum og auka traustið
á íslenzku krónunni bæði innan-
lands og utan.
í því skyni er nauðsynlegt að
,gætt verði sem mest hófs í nýj-
um framkvæmdum og frjáfest-
ingu og ekki slakað um of á því
aðhaldi í peningamá'lum, sem
átt hefir svo mikinn þátt í að
forða þjóðarbúinu frá áföllum
undanfarna mánuði, sagði Jó-
hannes Nordal að tokurn.
DAGANA 27. og 28. júlí halda
132 íslenzkir skátar tii Noregs.
Hópurinn fer með flugvél til
Oslóar og dvelur þar í nokkra
daga og skoðar borgina. Móttaka
verður fyrir þá í ráðhúsi Oslóar-
borgar og einnig munu þeir
halda íslandskvöld fyrir norska
skáta.
Að lokinni dvöl í Osló skiljast
leiðir. Piltarnir, sem eru 91 og
undir forystu þeirra Guðmundar
Ástráðssonar og Birgis Þórðar-
sonar munu halda rakleitt norð-
ur til Bodö og taka þar þátt í
landsmóti norskra drengjaskáta,
ásamt 7—8000 öðrum piltum.
Þetta mót er hið fyrsta, sem
haldið er norðan heimsskauts-
baugs og er dagskrá þess hin
fjölbreyttasta.
Stúlkurnar, sem eru 37 og
undir stjórn frú Hrefnu Tynes
og Sigrúnar Sigurgestsdóttur
munu hins vegar ferðast þvert
yfir Noreg og síðan víða um
vesturströndina.
Tilgangur ferðar þessarar er
tviþættur, annars vegar að kynn
ast landi forfeðranna og hins
vegar að endurgjalda heimsókn
norskra skáta hingað til lands
árið 1962, en þá héldu íslenzkir
skátar 50 ára afmæli sitt hátíð-
legt með landsmóti á Þingvöll-
um.
Þátttakendur eru frá 13 ára
upp undir 60 ára aldur Og mjög
víða af landinu. Þetta er stærsti
íslenzki skátahópurinn, sem hald
ið hefur út fyrir landsteinana.
Hópurinn mun fljúga heim frá
Þrándheimi hinn 17. ágúst
Auk Noregsfaranna eru fleiri
íslenzkir skátar á útleið eða þeg-
ar farnir. 10 manna hópur undir
stjóm Grétars Marínóssonar er á
förum til Englands til að taka
þátt í skátamóti í Devon, 7 manna
hópur er í Bandaríkjunum í boði
þarlendra drengjaskáta. Forystu-
maður þeirra er Arnfinnur Jóns-
son. Og í allþjóðaskála kvenskáta
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
t Morgunbiaðinu en öðrum
blöðum.
í Sviss em staddar tvær íslenzk-
ar skátastúlkur í boði erlendra
kvenskáta.
— Enska
knattspyrnan
Frarohald af bls; 22.
Reiknað er með að Northhamp-
ton kaupi Ted Farmer frá Wolv-
erhampton fyrir 25 þús. pund. —
Hinir kunnu spilarar Roy Vern-
on og Jimmy Gabriel frá EJver-
ton hafa óskað eftir að vera seld
ir. Er þetta mikið áfall fyrir fé-
lagið því báðir em kunnir lands
liðsmenn .Vernon, sem keyptur
var frá Blaokburn hefur verið
fastur leikmaður í laodsliði Wal-
es. Gabriel, sem keyptur var frá
Dundee hefur oft lei'kið í skozka
landsliðinu. — Enska deildar-
keppnin hefst að þessu sinni Iaug
ardaginn 22. ágúst n.k. Hinn 15
ágúst fer fram hinn árlegi leikur
milli bikarmeistaranna (Wesl
Ham) og sigurvegaranna í deild-
arkeppninni (Liverpool). Munu
margir á íslandi fylgjast með úr-
slitum í þessum fyrsta leik Livei
pool, svo og öðrum leikjum þai
til þeir mæta K.R.
— /Jb róttir
Framh. af bls. 22
Ólöf St. ólafsdóttir, Þr. 1:54,5
("Stefanía er aðeins 11 ára).
50 m frjáls aðferð
Hjálmfríður Jóhannsd., Þr. 42,1
Guðbjörg Haraldsd., Þr. 46,9
íþróttafélagið Þróttur í Nes-
kaupstað sigraði í stigakeppninm,
hlaut 143 stig. Annað að stigum
varð Samvirkjafélag Eiðaþing-
hár, hlaut 16 stig.
Þróttur vann nú Frambikarinn
í annað skipti. Var hann gefinn
af Kaupfélaginu Fram í Norðfirði
árið 1961, og vinnst til eignar, ef
sama félag vinnur hann þrisvar
sinnum í röð, eða fimm sinnum
alls.
íþróttafélagið Huginn á Seyðis-
firði hefur ainnig unnið bikarxnn
tvisvar.
vontr
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Nýbúð, Hörpugötu 13b