Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 24
bilaleiga magnúsar skiptiolt 21 Kimar: 211SO-21I8S 0 0 0 0 0 0 2 Z Z I 11 B 11 C C C I r p r 0 0 0 0 0 o l z a a ... »»—www II m m Hátt sumarvatn komið í SIpURJÓN Rist, vatnamæl- ingamáður hjá Raforkumála- skrifstofunni sagði blaðinu í ■ stuttu viðtali í gær, að nú væri komið hátt sumarvatn í jökulár og yfirleitt öll vatns- föll eftir langan þurrkakafla. Sérstakt einkenni á þessu vori væri það, að tæplega væri hægt að tala um hin venjulegu vorflóð, því að snjó laust hefði verið upp í 700— 800 metra hæð. Maí- og júní- mánuðir, sem að jafnaði eru vatnsmiklir mánuðir, voru mjög þurrir að þessu sinni og rennsli í ám lítið. Dagana 10.—15. ágúst fer fram hér í Reykjavík fundur allar ár norrænna vatnafræðinga, hinn fjórði, sem haldinn er. Þá verður efnt til 10 ára sam- starfs vatnafræðinga á vegum UNESCO og taka fslendingar þátt í því með hinum Norður- löndunum. Á að kanna hinn svokallaða vatnsbúskap jarð- arinnar, áveitur, virkjanir o. fl. Mönnum verður alltaf ljós- ara, hve lajkiivægt vatnið er, sérstaklega í þéttbýlum lönd- um, og sagði Sigurjón Rist, að einnig væri nauðsynlegt, að við gerðum okkur grein fyrir verðmætum allrar þeirrar vatnsorku, sem hér er að finna. Þessa mynd tók Ijósmyndari Mbl. Sv. Þ. á dögunum af nýjum vegaraafla, sem verið er að gera aust- ur í Mýrdal. Mun hann vera um 800—900 metra langur og kemur í stað gamla vegarkaflans inn I Vík í Mýrdal, sem er ökumönnum kunnur fyrir glæfraiegar beygjur. Myndin var tekin við sýslu- mannssetrið við Vík. i Lík finnst í Ölfusá STANGAVEIÐIMENN fundu lík af karlmanni í flæðarmál- inu skammt ofan Ölfusárósa um fimmleytið í gær. Gerðu þeir bóndanum á Hrauni við- vart og tilkynnti hann lög- reglunni á Selfossi um fund þennan. Kom hún á vettvang og flutti líkið til Reykjavíkur. Rannsóknarlögreglan í Reykjavík hefur fengið málið til meðferðar, en ekki var hægt að bera kennsl á líkið í gærkvöldi, en það virðist hafa verið í sjó um þriggja vikna eða mánaðarskeið. Ekkert kom fram um orsök lekans f GÆRMORGUN kl. 10 hófust sjópróf vegna óhappsins út af Hellnanesi á mánudagskvöid, er leki kom að Hrefnu RE með þeim afleiðingum, að skipið sökk tveim ur stundum síðar. Kristján Jóns- : son, borgardómari, var í dómara- sæti, þegar skipshöfnin á Hrefnu var yfirheyrð. Gat enginn skip- verja gert sér grein fyrir því, hvernig lekinn byrjaði. Einar Guðjónsson, skipstjóri á Hrefnu, sagði í réttinum, að þeir hefðu verið að dragnótaveiðum í góðu veðri og verið að taka ann- að holið, þegar menn tóku eftir sjó í lestinni. Fór skipstjórinn niður í vélarrúmið, þar sem sjór- inn náði þá upp á miðja vél. — Kallaði hann á vélstjórann og fóru þeir báðir að huga að dæl- um skipsins, en vélin stöðvaðist og lensidæla um leið. Ljósavél, sem var í sambandi við dælu, gekk ekki heldur. Báðu þeir því Sigurður með 343 tonn af karfa TOGARINN Sigurður kom inn á þriðjudagsmorgun með 343 tonn af karfa af miðunum við A-Grænland. Hefur togarinn afl að vel að undanförnu, fengið rúm 1200 tonn í fjórum veiðiferðum Skipstjóri í þéim var Svavar Benediktsson. Skipið fer aftur á veiðar í dag. Fjölmennl héniðsmót Sjólf- stæðismnnna í Strondosysln SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld efndu Sjálfstæðismenn í Stranda sýslu til héraðsmóts að Sævangi. Sr. Andrés Ólafsson setti sam- komuna og stjórnaði henni. Dagskráin hófst með einsöng Erlings Vigfússonar, óperusöngv- ara, en undirleik annaðist Ragn- ar Björnsson, söngstjóri. Þá flutti Sigurður Bjarnason, alþm., ræðu. Síðan söng Erlingur Vig- fússon einsöng öðru sinni. Þessu Jörundur III. með 3000 tunnur í kasti JÖRUNDUR III frá Reykjavík var væntanlegur til Raufar- hafnar um hálffimm Ieytið i nótt með 2800 tunnur af stórri og feitri söltunarsíld, sem veiddist í einu kasti um 110 mílur austur af Raufarhöfn um hádegisbil í gær. Er þetta einn mesti afli, sem síldveiði- skipi hefur tekizt að ná úr að- eins einu kasti. Var kastað eftir asdic-tæki og gekk vel að ná síldinni og það tók um þrjár klukkustundir. Blaðið átti tal af Magnúsi Guðmundssyni skipstjóra á Jörundi í gegnum Raufarhafn- arradíó um miðnætti og spurði hann, hvort þetta væri ekki mesti afli, sem hann vissi til að skip hefði fengið i einu kasti. Sagði Magrús, að erfitt væri að fullyrða um það, en þetta væri það mesta, sem hann vissi til að háfað hefði verið í einn og sama hát. næst flutti Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, ræðu. Að lok- inni ræðu ráðherrans fluttu Róbert Arnfinnsson og Rúrik Haraldsson skemmtiþátt. Var ræðumönnum og listamönnunum mjög vel tekið. Lauk samkom- unni með dansleik fram eftir nóttu. Mót þetta var mjög fjölsótt, fór vel fram og var hið ánægju-' legasta í alia staöi. Aðalkonsúll Belga HINN 13. júlí gaf utanríkisráðu neytið út tilkynningu þess efnis, að Kristjáni G. Gíslasyni, ræðis- manni Bel//- í Reykjavík, hefði ! verið veitt nafnbót aðalræðis- manns. Eldflaugarskotið um miðnætti ELDFLAUGARSKOTI Fraklka á Mýrdalssandi hefur verið frest að um nokkra tíma frá því, sem áður var tilkynnt, og áætla þeir skotið á tímanum kl. 23,30 — j 02,30 í kvöld. x I um aðstoð nálægra skipa og fóru í gúmmíbátana. Skipið sökk á I tveimur klukkustundum. Ekkert hefur enn komið fram, er upplýst gæti orsakir þessa 1 skipstapa. Skipstjórinn gat þess við sjópróf, að hann hefði orðið var við lítilsháttar leka undan 1 styttu í vélarrúmi, sem þó er ekki talinn hafa verið alvarlegs eðlis. j Verða nú rannsökuð tækniatriði og sjóprófum frestað í bili. Verð- j ur málið lagt fyrir skipaskoðun- arstjóra og saksóknara ríkisins til umsagnar, þegar rannsókn í sjódómi lýkur. Kristján Jónsson, borgardóm- ari, sagði í stuttu viðtali við Mbl., að myndirnar, sem birtust í .blaðinu í gær, hafi komið að miklu gagni við sjóprófin, og í sumum tilvikum gætu svipaðar j myndir upplýst mikilvæg atriði, en örsjaldan væri hægt að kom- ast yfir ljósmyndir af sjóslysum. Heitt vatn í Aðaldal JARÐHITARANNSÓKNIR hafa að undanförnu farið fram norður í Aðaldal á veg- um Raforkumálaskrifstofunn- ar. Hafa athuganir verið gerðar allvíða og fyrir nokkr- um dögum var borað niður á heitt vatn í landi Hafralækjar. Þar var boruð hola um 100 metra í jörðu niður o<g komið niður á 75 stiga heitt vatn, 7—8 sekúndulítra. AKRANESI, 29. júlí. — Vélbát- urinn Höfrungur II kemur til Þorlákshafnar í kvöld. Bíll er á leiðinni þangað með haustsíldar- nót. Vélbáturinn Haraldur er og á leið til Þorlákshafnar. — Oddur. íslenzka krónan viður- kennd ■ frihöfninni ? PYRIR fjórum mánuðum rúm- um sendi Ólafur Thordersen, frí- hafnarstjóri á Keflavíkurflug- velli, utanrikisráðuneytinu bréf, þar sem hann fór fram á, að veitt yrði heimild til að taka við íslenzkum gjaldmiðli fyrir vörur í fríhöfninni í stað þess, að nú er aðeins erlendum gjaldeyri veitt viðtaka. Er mál þetta nú til athugunar í ráðuneytinu. í samtali við blaðið í gær sagði Ólafur, að ráðuneytinu þætti sennilega meiri hagur af því að selja vörur í fríhöfninni aðeins fyrir erlendan gjald- eyri, en nú væri íslenzka krónan búin að öðlast það mikla viðurkenningu í er- lendum bönkum, að, ferðamenn eyddu gjaldeyri í frínöfninni hér, en skiptu svo íslenzkum pening- um í bönkum erlendis, þegar þangað kæoni, þó að í smáum stíi væri. Með flutningi flugþjónustu Loftleiða á Keflavíkurflugvöll eykst umferð íslendinga um frí- höfnina að mun. Sigurður Magn- ússon, fulltrúi Loftleiða, sagði í viðtali við blaðið í gær, að það liti út sem lítilsvirðing á ís- lenzku krónunni, ef ekki verður tekið við henni í fríhöfninni. í fríhöfninni eru á boðstólum skartgripir, áfengi, tóbak, ilm- vötn, myndavélar o. fl., sem sennilega er óviða hægt að fá við jafnlágu verði og þar. Hafa útlendir ferðamenn lýst því, hversu vöruúryal væri miklu meira í fríhöfniijni á Keflavíkur- flugvelli en t. d. í Luxemborg. Hafa sumir farþegar Loftleiða á leið frá Luxemborg til New York viljað kaupa varning hér af þess- um sökum. Engin takmörk eru fyrir því, hversu mikið magn hver einstakur flugfarþegi getur keypt, en veittar eru upplýsingar um innflutningsreglur á flugvöll- um, sem flogið er til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.