Morgunblaðið - 30.07.1964, Blaðsíða 12
12
MORGU N BLADIÐ
Fimmtudagúr 30. Júlí 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjorar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinssoii.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
Nini og Helga sýna blússur
SKA TTARNIR
| Ttsvarsskráin hér í Reykja-
vík er komin út. Nú eins
og jafnan áður munu borg-
ararnir vafalaust verða mis-
jafnlega ánægðir með þau
gjöld, sem á þá eru .lögð. En
sú staðreynd verður þó ekki
sniðgengin, að skattalaga-
breyting sú, sem ríkisstjórn-
in beitti sér fyrir á sl. vetri,
mun hafa í för með sér veru-
lega skattalækkun á öllum
landsmönnum, miðað við ó-
breyttar tekjur frá sl. ári. —
Persónufrádráttur hefir ver-
ið hækkaður allverulega,
þannig, að skattfrjálsar tekj-
ur einstaklinga hækka nú úr
50.000,00 kr. í 65.000,00 kr. Hjá
hjónum hækka skattfrjálsar
tekjur úr 70.000,00 kr. í 91.
000,00 kr.
Þegar það er haft í huga,
að atvinnutekjur manna
hækkuðu verulega á sl. ári,
er augljóst að skattarnir
hefðu hlotið að hækka veru-
lega, ef skattalagabreyting
ríkisstjórnarinnar hefði ekki
komið til.
Viðreisnarstjórnin hafði
tvívegis áður lækkað skatta.
flún byrjaði á því, að stór-
lækka tekjuskatt á einstakl-
ing stráx árið 1960. Má þá
segja að tekjuskattur hafi
verið felldur niður af þurft-
artekjum. Eru þær reglur
enn í gildi. Af þeim leiðir að
þúsundir fjölskyldna, lág-
launafólkið, sem minnst ber
úr býtum verða tekjuskatts-
lausar.
Næst lækkaði Viðreisnar-.
stjórnin skatta á atvinnufyr-
irtækjum og félögum, og
gerði þeim auðveldara að af-
skrifa framleiðslutæki sín og
endurnýja en áður hafði tíðk-
azt. Á síðasta Alþingi var svo
persónufrádráttur hækkaður
verulega og þannig fram-
kvæmd raunveruleg skatta-
lækkun miðað við að tekjur
væru óbreyttar.
Hinar þrjár skattalækkanir
Viðreisnarstjórnarinnar sýna,
að breytt hefir verið um
stefnu í skattamálunum frá
því að Framsóknarflokkurinn
og Eysteinn Jónsson réðu hér
lögum og lofum í skattamál-
um. Skattar hafa verið lækk-
aðir og framkvæmd skatt-
heimtunnar gerð eðlilegri og
heilbrigðari. — Skattheimtan
miðast ekki lengur við það, að
refsa einstaklingum og at-
vinnufyrirtækjum fyrir að
leggja sig fram um aukna
tekjuöflun eða vaxandi fram-
leiðslu. Hið íslenzka þjóðfé-
lag, þar sem stórfelldar fram-
kvæmdir og uppbygging á sér
stöðugt stað, þarfnast hins
vegar mikilla tekna til þess að
geta orðið við kröfum borgara
sinna um fjölþættar umbæt
ur og framfarir. Þess vegna
eru opinber gjöld einstakl-
inga og atvinnufyrirtækja all
há.
Hitt er sjálfsagt að játa, að
á hærri tekjum hafa skatta-
lækkanirnar sem gerðar voru
á síðasta þingi naumast haft
við kaup- og verðhækkunum,
þannig að menn með háar og
allháar tekjur greiða heldur
hærri gjöld en á síðasta.ári,
en hins vegar eru gjöldin mun
minni á lægri tekjum.
En þeir, sem hærri tekjurn
ar hafa, verða að hafa það í
huga, að eitthvað verður að
greiða fyrir vinnufriðinn, sem
nú hefur tekizt að fá, en væg-
ast sagt er vafasamt, að samn-
ingar hefðu tekizt, ef áður
hefði ekki verið búið að létta
byrðum af láglaunafólki, þótt
það þyngdi nokkuð skatta
þeirra, sem hærri laun hafa.
GÆTIÐ LÍFS OG
LIMA
rkki er ráð nema í tíma sé
tekið, segir gamalt mál-
tæki. Verzlunarmannahelgin
er um næstu helgi. Það er
einn mesti umferðatími árs-
ins. Tugir þúsunda af fólki
ferðast út úr kaupstöðum
landsins út um sveitir, upp til
heiða og fjalla. Undanfarin ár
hafa oft orðið umferðarslys
um þessa helgi og á fjölsótt-
ustu stöðunum hafa gerzt at-
burðir, sem sett hafa ómenn-
ingarstimpil á þjóðina.
Það er ástæða til þess að
vara þjóðina við því í tíma
að láta þessa sögu endurtaka
sig. Akið þess vegna varlega.
Gætið umferðarreglna, minn-
izt þess, að dauði og sorg get-
ur beðið á næsta leiti, ef gá-
lauslega er að farið. Fólkið,
sem leitar út í faðm íslenzkr-
ar náttúru til þess að leita sér
hvíldar og tilbreytingar, verð
ur einnig að gera sér ljóst,
að með hóflausri áfengisnautn
er það að gerast sekt um mik-
ið ábyrgðarleysi og afbrot
gagnvart þjóðfélagi sínu. —
Fullorðna fólkið, sem fremur
slík afbrot, er þar með að gefa
æsku landsins hraklegt for-
dæmi. Unglingarnir, sem slík
víxlspor stíga, eru jafnframt
að leiða sorg og vonbrigði yf-
ir foreldra sína.
Takmark allra, ungra og
gamalla, karla og kvenna, um
þessa verzlunarmannahelgi
ætti þess vegna að vera það,
að láta hana fara vel fram og
NINI OG Helga Björnsson,
dætur Henriks Sv. Björnsson,
sendiherra íslands í Bretlandt
sýndu fyrir skömmu unglinga
blússur í brezka blaðinu
Helga í hvítri bómullarblússu
með bláum röndum að fram-
an og ? ^>alíningum.
Helga (með síffa háriff) í grænni skyrtu úr kakhl, Ninl i hvítri
og ryðbrúnni blússu meff reglulegu blómamunstri.
Queen, sem kemur út hálfs-
mánaðarlega. Þar segir, að
blússutízkan breytist jafnört
og lund ungu stúlknanna, og
birtir nokkrar myndir af systr
unum í nýjustu tegund af
blússum.
Blaðið getur þess jafnframt,
að Nini, sem er 18 ára gömul*
stundi nám við Byam Shaw
listaskólann í Kensington, og
leggi aðaláherzlu á teiknnigu
og listmálun, en Helga, sem er
16 ára, sé enn í skóla. Charlea
hjá Vidal Sassoon hefði klippt
rennislétt, Ijóst og silkimjúkt
hár þeirra sérstaklega fyrir
myndatökuna.
Nini í blússu meff fellingarpí fum í hálsmáli og á ermum.
Blússan er blá og hvítköflótt.
siðsamlega og tryggja þar
með að hún veiti fólkinu heil-
brigða gleði og holla tilbreyt-
ingu frá önn hins daglega lífs,
úti í hinum græna faðmi ís-
lenzkrar náttúru.
MIKILMENNI
KVEÐUR
Cir Winston Churchill sat sl.
^ mánudag síðasta fund
sinn í Neðri málstofu brezka
þingsins. Rúm 60 ár voru þá
liðin síðan hann tók þar fyrst
sæti. Minntist þingheimur
þessara tím'amóta með sér-
stakri viðhöfn, sem mótaðist
af einlægri aðdáun á hinum
mikla þjóðarleiðtoga. Winston
Churchill er mikilmenni, sem
skilur ekki aðeins eftir sig
djúp spor í brezkum stjórn-
málum, heldur í veraldarsög-
unni. Það kom í hans hlut að
stýra Stóra Bretlandi á mestu
hættustund, sem yfir það hef-
ir komið.
Þegar hrun Bretlands virt-
ist vofa yfir og herskarar Ad-
olfs Hitlers stóðu, að því er
virtist, ósigrandi við Ermar-
sund, tók Winston Churchill
við stjórnartaumunum og lof-
aði þjóð sinni aðeins blóði og
tárum. En undir forustu hans
var sigurinn unninn og of-
beldis- og árásaröflin hrakin
á flótta. Brezka þjóðin stend-
ur í mikilli þakkarskuld við
Winston Churchill, sem nú er
að verða níræður. Allur hinn
frjálsi heimur þakkar honum
stórbrotið starf og hetjulega
baráttu í þágu frelsis' og mann
réttinda í heiminum.