Morgunblaðið - 30.07.1964, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Annast skattkærur
Friðrik Sigurbjörnsson
lögfræðingur, Morgunblað-
inu. Heima Fjölnisveg 2.
Sími 16941.
Geymið auglýsinguna.
2—3 herb. íbúð óskast
fyrir ung barnlaus hjón.
Algjör reglusemi. Fyrir-
framgreiðsla, ef óskað er.
Tilb. merkt: „Sem fyrst —
9839“ sendist Mbl. fyrir 6.
ágúst.
Norskur
skemmtisiglingabátur með
seglaútbúnaði, 11 feta lang
ur úr plasti, til sölu. Uppl.
í síma 12893.
Duglegur maður
óskast nú þegar til af-
greiðslustarfa.
Vald. Poulsen hf.
Klapparstíg 29.
Píanó
Gott píanó til sölu. Sann-
gjarnt verð. Unglingareið-
hjól til sölu sama stað. —
Uppl. í síma 41983.
Bókageymsla
20—30 ferm. óskast. Góð
aðkeyrsla æskileg. Tilboð,
merkt: „Útgáfa — 9837“
sendist Mbl. fyrir 6/8.
Frá Fatapressu A. Kúld
Vesturgötu 23, lokað verð-
ur frá 3—lff ágúst vegna
sumarleyfa.
Píanó
Stórt og gott amerískt
píanó til sölu. Uppl. í síma
13455.
Pobeda árg. ’56 til sölu
Uppl. eftir kl. 20.00.
Sími 32300.
Er kaupandi að heddi
á Taunus 15M, árg. 1955.
Sími 75, Stokkseyri.
Útlærð hárgreiðslukona
óskast á hárgreiðslustofu á
góðum stað í bænum. Kaup
eftir samkomulagi. Tilboð
merkt: „Hárgreiðsla —
4221“ sendist Mbl. fyrir 5.
ágúst.
Eitt berbergi óskast
til leigu. Uppl. í síma 22150.
Keflavík — Nágrenni
Kominn heim, opna á
morgun kl. 1. Sauðakjöt,
hrossakjöt, svið, hansatólg
o. s. frv.
Tökum að okkur
að rífa og hreinsa steypu-
mót í ákvæðisvinnu. —
Hringið í síma 36629.
Við skerpum sagirnar
Bitstál — Simi 21500.
Grjótagötu 14.
Fyrir því segi ég yður: Hvers sem
þér biðjist og beiðist, þá trúið að
Þér hafið öðlazt það og þér munuð
fá það (Mark. 11, 24).
í dag er fimmtudagur 30. júlí og er
það 212 dagur ársins 1964. Eftir
lifa 154 dagar 15. vika sumars byrj-
ar. Árdegisrháflæði kl. 10.02. Síð-
degisháflæði kl. 22:17 Fjara er
sem næst 6 til 6*4 stundu eftir há-
flóð. Tímarnir eru miðaðir við
Reykjavík.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Keykjavíkur. Simi 24361
Vakt allan sólarhringinn.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki vikuua 20.—27. júní.
Slysavarðstofan i Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — simi 2-12-30.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki vikuna 25. júlí til 1. ágúst.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. f-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alia
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., hclgidaga fra kl.
1-4 e.h. Simi 40101.
Helgidagavarzla í Hafnarfirði
laugardag tii mánudags-
morguns 25. — 27. júlí:
Kristján Jóhannesson s. 50056
Næturvarzla aðfaranótt 28. júlí
Jósef Ólafsson simi 51820. Nætur
varzla aðfaranótt 29. júlí Eiríkur
Bjömsson sími 50235. Nætur-
varzla aðfaranótt 30. júlí Bjarni
Snæbjömsson simj 50245. Nætur-
varzla aðfaranótt 31. júli Jósef
Ólafsson sími 51820. Næturvarzla
aðfaranótt 1. ágúst Kristján
Jóhannesson sími 50056.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur em opin alla
virka daga kl. 9-7, nema laugar-
daga frá kl. 9-4 og helgidaga
frá kl. 1-4. e.h.
Orð tífsin* svara I slma lOOOt.
ij
'T""
50 ára er í dag Ingimagn Eir-
íksson, bifreiðastjóri til heimilis
Meistaravöllum 7. Hann verður
að heiman í dag.
22. þ.m. opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Kristjana Benedikts
dóttir, Hveragerði og Garðar
Ingólfsson bifreiðarstjóri Ljós-
vallag. 18 Rvík.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Grími Gríms-
syni ungfrú Ingibjörg Kristjáns-
dóttir og Sveinn Fjeldsted verzl-
unarmaður. Heimili þeirra er að
Háaleitisbraut 40. (Ljósm:
Studio Gest.s Laufásvegi 18)
S.L laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Auður Helga
Hafsteinsdóttir Sogaveg 166 og
Ágúst Höskuldsson, Efstasundi
98.
Síðastliðinn íöstudag opin-
beniðu trúlofun sina ungfrú Lára
Bernhöft, hjúkrunarkona (Gott-
freds) og Dauglas Miner, p.t.
London
Sunnudaginn 19. júlí voru gef
in saman í hjónaband af séra
Skarphéðin Péturssyni, Bjarna-
nesi ungfrú Ragnheiður ögmunds
dóttir frá Sandgerði og Birgir
Óskarsson, Höfn. Heimili hjón-
anna er í Sólgerði, Höfn.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Gyða Ólafsdóttir
Mávahlíð 29, og Hr. Eyþór Bald-
ursson, Sigtúni 41.
FRÉTTIR
Frá mæðrastyrksnefnd:: Hvíldar-
vika mæðrastyrksnefndar í Hlaðgerð-
arkoti, Mosfelissveit, verður að þessu
sinni 21. ágúst. Umsóknir sendist nefnd
inni sem fyrst. Allar nánari upp-
lýsingar í síma 1*43-49 milli 2—4 dag-
lega.
Séra Grímur Grimsson hefur við-
talstíma alla virka daga kl. 6—7 e h.
á Kambsvegi 36. Sími 34819.
Viðtalstími séra Felixar Ólafssonar
er alla virka daga nema laugardaga
kl. 6 — 7 á Háaleitisbraut 18, sími
38352
Verð fjarverandi um tíma. Vottorð
fyrir Fríkirkjafólk afgreidd á Hag-
stofunni. Þorsteinn Björnsson frí-
kirkjuprestur.
GAIVIALT og goti
BRÓKLINDINN.
Maður nokkur í ísafjarðarsýslu
veðsetti sig fjandanum, en ekki
er þess getið á hvem hátt samn-
ingur þessi fór fram, eða hvað
kölski gerði fyrir manninn. Þá
er fór að líða að tíma þeim, er
maðurinn skyldi fara til fjandans
tók honum að verða órótt, og
vildi hann fyrir hvem mun geta
komizt hjá þessum vistarverum.
Hann fór því til fjölkunnugs
manns eins og bað hann ráða.
Galdramaðurinn svaraði, að mál
þetta væri illt viðureignar, en ef
hann færi til kirkju í öllum sjó-
fötum sínum úthverfum einhvem
tiltekinn helgan dag, þá myndi
hann losna við kölska. Maðurinn
ætlaði að fylgja ráðum þessum
nákvæmlega og fór í sjóföt sin
úthverf þann dag, er til var tekið,
en hann fór svo til kirkjunnar,
að hann hafði gleymt bróklinda
sínum. Aldrei spurðist framar til
manns þessa, og varð kona hans
svo gröm, er hún fann bróklind-
ann að hún hengdi sig í honum.
Grímur Jónsson frá Súðavík
1901._________________
VÍSDKORN
Menning reynist rotin hér,
ranga beinir veginn.
Hlakkar í einum, ef hann sér
annan meinum sleginn.
Magnús Gíslason frá
Vöglum
Spakmœli dagsins
Þeim mistekst ekki, sem deyja
fyrir mikið málefni. — Byron
só NÆST bezti
Tobías gamli var 90 ára og lagði ai stað til kirkju sunnudags-
morgun með Jósafat son sinn, sem var sjötugur. Heitt var í veðri
>g vegurinn ógreiður. Jósafat þreyttist og bar sig aumlega. Varð
þá Tobias reiður og sagði:
— Ég hef alltaf sagL að maður ætti aldrei að taka börnin sín
með í kirkjuferð.
Fimmtudagur 30. júlí 1964
ER THELMA DÖNSK?
Það má nú segja, að upp a
mörgu tekur þetta fræga fólk!
Hérna sjáið þið hana Thelmu
Ingvarsdóttur og stöllu hennar,
dönsku fegurðardrottninguna,
Yvonne Mortensen, bera á milli
sín stórboxarann og fyrrverandi
heimsmeistara í þeirri bönnuðu
íþrótt, Ingimar Johanson.
Allt þetta fólk átti að fara með
sömu flugvél frá Kastrup flug-
velli í Kaupmannahöfn til Miami
strandarinnar í Florida, þær til
að taka þátt í keppninni um ung-
frú Alheim, en Ingimar til að
vera dómari í sömu keppni. Þær
hafa sjálfsagt ætlað, að honum
rynni hið norræna blóð í æðum
og myndi verða þeim hliðhollur,
ef þær tækju hann réttum tökum
strax í byrjun. Á hinni myndinni
hefur Ingmar snúið hlutverkun-
um við, og gæti svo sem vel
tekið undir með manninum:
„Tekit hefi ek hvelpa tvá ..."
Annars kalla skandinavisk blöð
Thelmu, danska, hvað sem nú það
á að þýða. Er þeim ekki nóg að
eiga Thorvaldsen, Eiriksen og
Finsen?
Þankabrot
Hvað þarftu mikinn svefn?
Flestir hugsa lítið um hve mik
I ill svefn er þeim nauðsynlegur
eða ónauðsynlegur, á meðan heils
an er góð. En hinir skipta milljón
um eða tugmilljónum, sem verða
að leita sér upplýsingar um þetta
efni, oftast vegna svefnleysis.
Eftirfarandi tafla sýnir hvað sér
fræðingar (læknar) telja eðlileg
ast, heilbrigðu fólki á ýmsum
aldri, þó er tekið fram, að svefn-
þörf einstaklinga sé ætíð misjöfn
og kemur þar margt til greina.
Aldur 6 ára 11% klst. á sólarh.
Aldur 10 ára 10 klst. á sólarh.
Aldur 15 ára 9 klst. á sólarh.
Aldur 20 ára 00 klst. á sólarh.
Aldur 25 ára 8 klst. á sólarh.
Aldur 60 ára 7 klst. á sólarh.
(Aldur 100 ára 24! klst. á sóla'h.)
Fimmtudagsskrítlan
— Þegar við erum gift, er ég
viss um að hún elskar mig. Húu
er alveg vitlaus eftir giftum
mönnum.
Öfugmœlavísa
Úr eitri er bezt að eta graut,
af aurnum lýsið bræða,
moka í sjóinn breiða braut,
brauð af steinum snæða.
Vinstra hornið
Dauðanum fylgja engar aðrar
ógnir en þær, sem lifið hefur
skapað.
Verið varkár
Bifreiðaskoðun: Fimmtu-
dagur R-7651 — R-7800
Varixt slysin