Morgunblaðið - 22.08.1964, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.08.1964, Qupperneq 1
24 siður Sl. árgangur 195. tbl. — Laugardagur 22. ágúst 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Stjórnarherinn náði BUKAVO úr höndum uppreisnarmanna Hundruð manna hafa fallið í bardögum um horgina Leopoldville, 21. ágúst — (AP-NTB) — £ HERMENN stjórnarinnar í Leopoldville hafa náð borg- inni Bukavo við austurlandamæri Kongó úr Tiöndum upp- reisnarmanna og hrakið þá á flótta nokkra kílómetra út fyrir borgarmörkin. Hafa staðið harðir bardagar um borgina síð- ustu daga og mikið mannfall orðið. Er haft eftir talsmanni Sameinuðu þjóðanna, að talin hafi verið a.m.k. 300 lík á göt- um borgarinnar. Er vitað, að nokkrir evrópskir menn voru meðal hinna föllnu og saknað er enn þriggja Bandaríkja- Dianna, er hurfu fyrir tveim dögum. • Talið er, að ráðið hafi úr- slitum um gang átakanna um Bukavo, að Moise Tsjombe, for- sætisráðherra, sendi þangað í gær vel þjálfað lið 150 Katanga-her- manna, er aðstoðuðu Lconard Mulamba, fyrirliða stjórnarhers- ins, sem þá taldi um 800 manns, — við að endurskipuleggja það og stappa í hermennina stálinu. Var um tíma svo komið fyrir stjórnarliðinu, að það hraktist undan uppreisnarmönnum inn í íbúðarhverfi evrópskra manna. • Bardagarnir í borginni, sem er hin fimmta stærsta í landinu, hafa leikið hana illa. Bárust fréttir til Leopoldville í dag um að borgin væri símasambands- Framhald á bls. 2 Mikið mannfall í S.-Vietnam 188 Banditríkjamenn hafa látið þar lífið Saigon, 21. ágúst. — (AP) — TIL. meiri háttar orrustu kom í gærkveldi milli Viet Cong skæru liða og stjórnarhersins í Viet- nam. Er talið, að um tvö hundr- uð skæruliðar hafi fallið og rúmt hundrað liðsmanna stjórnarinnar auk fjögurra bandarískra her- fræðinga. Hafa þá falíið í Suður- Vietnam 188 bandarískir menn. Átökin urðu í Kien Hoa-hér- aðinu, um 80 km suður af Saigon og hófust með fyrirsát kommún- ista. Var stjórnarherinn að leita að bækistöð þeirra, þaðan sem þeir höfðu þá um morguninn gert árás á eina af útvarðar- stöðvum stjórnarhersins. í höfuðborginni sjálfri fóru u.þb. 400 stúdentar kröfugöngu í dag. Kröfðust. þeir „akadem- ísks“ frelsi, afléttingu hernaðar- ástandsins í landinu og brott- vikningu úr embættum öllum mönnum, er starfað hefðu fyrir stjórn Ngo Dinh Diems. Kölluðu stúdentarnir stjórn Khans hers- höfðingja „verra einræði en Diemstjórnarinnar" og afhentu í skrifstofu hans mótmælaorðsend- ingu. Ritari forsetans tók á móti henni og hét að koma henni á framfæri. Ganga stúdentanna var látin með öllu afskitpalaus. Mun hershöfðinginn hafa fyrir- skipað, að svo yrði gert. tllllllllllllllllUIIIIIBHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllllllllllillllllllllllllillllllllllimillUllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll | Taugaveikibróður | I faraldur í Kuopio | Kuopio, Finnlandi 21. ágúst NTB. • í aðalsjúkrahúsinu í Kuopio hefur komið upp tauga veikibróður-faraldur. Er talið að a.m.k. fjörutíu manns hafi tekið veikina, en staðfest til- felli eru enn aðeins 13. Heilbrigðisyfirvöld bæjar- ins hafá ákveðið, að allt starfs fólk sjúkrahússins verði bólu- sett og fólk er varað við því að sækja til sjúkrahússins, nema um neyðartilfelli sé að ræða. Við rannsókn hefur komið í ljós, að starfsstúlka ein í eld- húsi sjúkrahússins bar veik- ina þangað, enda þótt hún sjálf væri heillbrigð. Er óttazt, að hún hafi verið smitberi í nokkurn tíma. BJIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiilllllllllllllllilHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll umá Utéinríkisráð- herra í Finnlandi Meðfylgjandi mynd var tekin sl. miðvikudag, er utanríkisráðherra íslands og kona hans komu til Gullranda sveitaseturs Urho Kekkonens, forseta Finnlands, en þar sátu þau hádegisverðar- boð hans. Á myndinni er forseti að heilsa utanríkisráðherra, og konu hans. Að baki þeim standa utanríkisráðherra Finnlands, Jaakko Hallama og kona hans. Heimsókn utanríkisráð- herra í Finnlandi lokið I GÆRKVELDI lauk hinni opinberu heimsókn utan- ríkisráðherra íslands, Guð- mundar í. Guðmundssonar, og konu hans í Finnlandi, með kvöldverðarboði þeirra hjóna í Helsingfors. Halda þau þaðan til Stokk- hólms í kvöld. Síðasta dag heimsóknarinn- ar dvöldust þau í Helsingfors og sátu þar meðal annars há- degisverðarboð borgarstjórn- arinnar í ráðhúsinu, ásamt sextíu öðrum gestum. Á fimmtudag flugu þau ásamt sendiherra íslands og konu hans til borgarinnar Kuopio, sem er aðalborgin á mesta vatnasvæðinu í miðhluta Finn lands. Landshöfðinginn og borgarstjórnarmenn tóku á móti gestunum á flugvellin- um — en síðan var ekið um borgina, skoðaðar nýjar fram- kvæmdir, svo sem borgarleik- hús, kirkjumunasafn, miklar trjávinnslustöðvar og verka- mannabústaðir. Borgarstjórnin bauð til há- degisverðar í hipum víðfræga útsýnisturni í Puijo-hlíðinni, sem er 150 metrum yfir Kalla vesi-vatninu, sem borgin stendur við. Var siðan siglt á fljótabát um Kallavesi og nær liggjandi vötn. Siðari hluta dagsins átti utanrikisráðherr- ann viðtal við blaðamenn og um kvöldið sátu ráðherrahjón in og sendiherrahjónin boð landshöfðingjans. Makarios býður ferða- frelsi um Nicosiu — fái stjómarherinn að fara um Kyreniaþjóðveginn Nicosia, 21. ágúst (AP-NTB) 0 MAKARIOS, erkibiskup á Kýpur, hefur boðizt til að veita tyrkneskum Kýpurbú- um fullt ferðafrelsi um leiðir þær til og frá Nicosíu, sem stjórnarherinn hefur til þessa meinað þeim umferð um — að því tilskyldu, að þeir heim- ili einnig fullt ferðafrelsi um vegi, er þeir hafi á sínu valdi. Er þar fyrst og fremst um að ræða hinn mikilvæga veg milli Nicosíu og Kyrenía. Meg inhluti hans hefur verið und- ir stjórn tyrkneskra manna frá því í desember sl., þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnarinnar til að vinna hann úr höndum þeirra. í>að var talsmaður Sameinuð þjóðanna, sem frá þessu skýri í dag. Hafði Makaríos lagt frai tilboð sitt á fundi með þeim Gal Plaza, sérlegum sendimanni 1 Thants, framkv.stj. S.þ. og Thii ayya hershöfðingja, yfirmam gæzluliðs S.þ., þar sem m.; voru ræddar leiðir til að lin þvingunarráðstafanir Kýpui stjórnar gagnvart tyrkneskui mönnum á eynni. Þá var í dag haldinn fundu fulltrúa Kýpurstjórnar, Rauð krossins og gæzluliðs S.þ. ur matvælaflutninga til tyrknesk minnihlutans. Reyndu fulltrúar Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.