Morgunblaðið - 22.08.1964, Side 15

Morgunblaðið - 22.08.1964, Side 15
Laugardagur 22. ágúst 1964 MORGtf N BLAÐIÐ 15 niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiHiiiiuiiuniiiiiiiiiiiiuiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiira I Myndir frá StykkishéEmi SÉÐ heim að Helgafelli. — Þar er nú nýtt íbúðarhús í smíðum. Hinrik Jóhannsson bóndi að Helgafelli tjáði mér að grasspretta væri með allra bezta móti á Helgafelli á þessu sumri. Hann kvaðst hafa náð mest öllu því heyi sem hann hefir slegið, inn og kvað heyfeng sinn meiri í ár en um þetta leyti í fyrra. — Hann kvað þurrka hafa verið litla en (skrifað 30. júlí) sér hefði tekizt að nota vel hverja flæsu og svo hefir hann einn- ig súgþurrkun og auðvitað all- ar heyvinnuvélar og maður er nú alls ekki einn meðan maður á slíkum vélum á að skipa. EBENESER Þorláksson Stykk ishólmi bjó mestan eða allan sinn búskap í Eyjunum á Breiðafirði. Hann er jafnan kenndur við Rúfeyjar. Hann er fróður og segir vel frá. Hann er fæddur 1877 og man því vel blómaskeið eyjanna, eða þegar milli 30 og 40 eyjar voru í byggð og hver bóndi var eins og konunngur í ríki sínu. Ekki man hann annað en velmegun í eyjunum. Hann gengur oft á daginn niður að höfn til að skeggræða við þá EITT af eldri húsunum i Stykkishólmi verður nú flutt á nýjan grunn. Þar á að risa stórbygging pósts og síma sem nýlega hefir verið boð- in út til byggingar. Um langt skeið bjó í þessu húsi ÍV. Th. Möller, síma- og póstaf- greiðslumaður í Stykkishólmi. Var þar oft glatt á hjalla og margan góðr.n gest bar þar að garði, enda Möllershjónin rómuð fyrir gestrisni og alúð. Gæti þetta hús ábyggilega’ sagt frá mörgum skemmtileg- um stundum ef það gæti mælt. Einnig bjó Richter um langan tíma í þessu húsi. sem þar eru við vinnu. Auð- vitað fer ekki hjá því að hann renni augunum út á Breiða- fjörðinn og minnist gamalla daga, bæði hamingjaríkra og erfiðra, sem hann átti þar. Margir af hinum gömlu „eyja- | jörlum“ standa honum enn fyrir hugskotssjónum og ó- sjálfrátt gerir hann saman- | burð á deginum í dag og dög- unum fyrir aldamótin. Liggur við að hann hristi kollinn. : Segir lítið en hugsar kannski þeim mun meira. Þetta er tím anna tákn. Það eru' svo fáir, ! : sem þola einangrunina í dag og þess vegna fara eyjarnar í eyði. — Já, segir Ebeneser. K Þá voru ekki póstferðir í hverri viku eða talstöð og út- varp svo menn gætu fylgzt vel með. En þá lásu menn meira i sínum tómstundum. Allt er breytt. Kannski er þetta ágætt. En þetta er ekki heimurinn, sem Ebeneser var hamingjusamastur í. En slepp- um því. Fólk á svo gott á þessu landi í dag. Og fram- tíðin lofar miklu, ef menn kunna að rata meðalhófið og gera gott úr öllu. FRYSTIHÚS Sigurðar Ágústs sonar í Stykkishólmi hefir nú verið lokað um skeið og auð- vitað bregður sjómönnunum við. En það er líka hugsað fyr- ir þeim. Fyrir næstu vertíð er áformað að hafa lokið miklum breytingum og end- urbótum á húsinu. Stórauka móttökusalinn fyrir fisk og einnig setja upp nýjar véla- samstæður og stækka vélasal- inn. Þá verður öll önnur að- staða með flökun og frágang á fiskinum, því flökunar- og vinnusalur verður stækkaður og margt gert þar fullkomn- ara. Vonandi tekst að Ijúka þessu verki fyrir áramótin í seinasta lagi. Kappreiðar Harðar v/ð Arnarhamar Reykjum, Mosfellssv.eit, 18. ágúst: KAPPREIÐAR hestamannafé lagsins Harðar voru haldnar b1. sunnudag við Arnarhamar á Kjalarnesi. Var fjölmenni og margt hrossa. Alls voru skráð um 40 hross í hlaup og gæðingakeppni og var það með mesta móti. Helztu úrslit voru þessi: | 250 m. skeið (50 m. forhlaup) 1. Blesi, Kristjáns Finnssonar á Grjóteyri, sem hlaut þó að- eins 2. verðlaun með tímann 26,4 sek. • Aðrir hestar náðu ekki til- ekildum tíma til verðlauna. 250 m. hlaup viðvaninga. 1. Funi, Aðalsteins Aðalsteins sonar á Korpúlfsstöðum á 19,7 sek. 2. Drottning Hildar Axelsdótt ur á 19,7 sek. 3. Glettingur, Ólafs Sigurðsson •r á 20,1 sek. 300 m. stökk. 1. Lokkur, Eggerts Kristjáns- •onar á 22,4 sek. 2. Tilberi, Skúla Kristjánsson- ar á 22,5 sek. 3. Lokkur, Einars Ellertsson- ar á 22,7 sek. 350 m. stökk. 1. Gnýfari, Þorgeirs í Gufu- nesi á 26,1 sek. 2. Þytur, Sveins Sveinssonar á 26,1 sek. 3. Steinn, Guðmundar Jónsson ár, Reykjum á 26,6 sek. Úrslit. Alhliða góðhestar. 1. Eldur, Guðmundar Ólafs- sonar Rvík. 2. Blesi, Kristjáns Þorgeirs- sonar, Leirvogstungu. 3. Kópur, Hauks Níelssonar á Heigafelli. Úrslit. Klárhestar með tölti. 1. Prettur, Margrétar Johnson, Rvík. 2. Smári, Ólafs Ingimundar- sonar, Hrísbrú. 3. Vindur, Matthíasar Einars- sonar, Teigi. Gestir kappreiðanna skemmtu sér vel í góða veðrinu við Arnar hamar, enda tókst vallarstjóra, Gísla Jónssyni, að koma í veg fyrir óþarfa tafir. Mesta og verð skuldaða athygli vakti hinn aldni hlaupagarpur Gnýfari frá Gufunesi, sem nú er 23ja eða jafnvel 25 vetra gamall. Ekki eru allir á einu máli um aldur hans, en hvað sem því líður, býr kempan enn yfir feikna hraða og keppnisskapi, sem sjá má af því, að t.d. Logi Sigurðar Sig- urðssonar, sem er mjög sterkur kappreiðahestur og vann m. a. létt 800 m. á Þingvöllum í sum- ar, varð að láta sér nægja 4. sæti í úrslitum. Skeiðið varð rislágt, eins og oft vill verða, en önnur hlaup þokka leg. Framkvæmd var öll með mesta sóma, en nokkuð var á- berandi að kappreiðareglur voru ekki í heiðri hafðar, einkum hvað við kom þyngd knapa. Einnig hvað aldur snerti á knöpum, .sem var að því er virtist allt niður í 9 eða 10 ár. Ef slys ber að höndum á börnum, sem eru knap ar, hvílir þung ábyrgð á að- standendum þeirra, eigendum hestanna og um leið hvílir þung ábyrgð á stjórn viðkomandi fé- lags. í gæðingadómnefnd voru: Bjarni Bjarnason, Laugarvatni; Þorlákur Ottesen og Sólveig Baldvinsdóttir. I kappreiðadómnefnd áttu sæti Gísli Ellertsson, Guðmundur Þor láksson og Anna Sigurðardóttir. Bifreiiasýning í dog Gjörið svo vel og skoðið bílana. Bifreiðasa'an Borgurtúni 1 Símar 18085 og 19615. J. G. Dagsf erðir til KULUSUK Á GRÆNLANDI þiiðjudaginn 25. ágúst. — Verð kr. 3800,00. Lönd og Leiðir Aðalstræti 8 — Símar: 20800—20760.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.