Morgunblaðið - 22.08.1964, Síða 22

Morgunblaðið - 22.08.1964, Síða 22
22 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 22. ágðst 1964 Heimir og Högni ekki meö ? Endanleg ákvörðun tekin í dag í GÆRKVÖLDI benti allt til þess að tvær veigamiklar breyt- ingar yrðu á ísl. knattspyrnulandsliðinu, sem mæta á Finnum á sunnudaginn kl. 4 síðd. Er mjög óvíst að Heimir markvörð- ur Guðjónsson og Högni miðvörður Gunnlaugsson verði með sakir meiðsla. Sæmundur Gíslason formaður landsliðsnefndar, tjáði blaðinu í gærkvöldi að meiðsli Heimis væru í baki. Hefði hann kennt þeirra eftir leik KR við Bermuda þá er hann einnig slasaðist á hendi og á augabrún, og var bor- inn af leikvelli. Virtist svo sem vöðvi í baki væri máttlitill eða lamaður að einhverju leyti og fylgdu því þrautir miklar. Taldi Sæmundur sennilegast að Heimir myndi ekki vera fær um að leika á sunnudaginn. Högni Gunnlaugsson tognaði í læri er Keflavík og Akureyri léku bæjarkeppni s.l. sunnudag. Hefur hann síðan gengið til lækn inga, farið í ljós og nudd. Högni verður reyndur á laugardags- morgun og þá endanleg ákvörð- un tekin um hvort hann leikur í landsleiknum eða ekki. Verði Heimir ekki í markinu kemur varamaðurinn Gísli Þor- kelsson í hans stað og verði Högni ekki með má telja líkleg- ast að Jón Stefánsson verði mið vörður en Sigurður Einarsson, Fram, komi í stöðu bakvarðar og verður það þá fyrsti landsleikur Sigurðar í knattspyrnu, en .hann á allmarga að baki í handknatt- leik. Olympíueldur á leið til Aþenu OLYMPÍUELDURINN fyrir Tokíóleikana var tendraður í Héraðsmót Dalamanna í frjálsíþróttum HÉRAÐSMÓT U.M.S. Dalamanna 26. júlí 1964, að Tjarnarlundi í KARLAR: 100 m. hlaup: 1. Gissur Tryggvason D. 11,9 Saurbæ, Dalasýslu. Úrslit urðu: Kringlukast: 1. Jóhann Péturssen D. , 28,70 Langstökk: 1. Gissur Tryggvason D. 6,26 Hástökk: 1. Gissur Tryggvason D. 1,53 Kúluvarp: 1. Gissur Tryggvason D. 10,93 Spjótkast: 1. Gunnar Tryggvason D. 32,98 Þrístökk: 1. Gissur Tryggvason D. 12,46 KONUR: 80 m. hlaup: 1. Helga Gestsdóttir D 13,1 Kúluvarp: 1. Halldóra Guðbjartsd. S. 8,12 UMF. Dögun 75% stig. UMF. Stjarnan 20% stig UMF. Von 4 stig Flest stig einstaklinga: Gissur Tryggvason 25 stig. Dómari var Sigþór Lárusson. Guðni Jónsson nýliði er 7. frá Akureyri í landsliðinu GUÐNI JÓNSSON, 21 árs Ak ureyringur, hefur nú verið valinn í landslið íslands í knattspyrnu í fyrsta sinn, enda hefur hann getið sér ágætan orðstír í knattspyrnu leikjum í sumar. Fréttamaður Mbl. hitti því Guðna snöggvast að máli í gær. — Jæja Guðni, velkom'inn í landsliðið. Ertu ekki glað- ur? — Jú, blessaður vertu, bæði glaður og kvíðinn. — Varstu ekki farinn að búast við þessu? — Nei, mig hefur auðvitað lengi dreymt um að verða valinn, en ég þorði aldrei að vona að það yrði svona snemma. Ég hélt að það yrði pressuleikur fyrir leikinn við Finna og var satt að segja farinn að gera mér hugmynd ir um að vera valinn í blaða liðið. Hærra setti ég nú mark ið ekki. — í hvaða stöðu varstu val inn? — Ég verð hægri framvörð ur eins og ég hef verið í Akur eyrarliðinu. — Hvenær byrjaðir þú að iðka knattspyrnu? — Um svipað leyti og ég fór að ganga, held ég. Við Magnú.s Jónatansson og Skúli Ágústsson erum jafnaldrar og félagar frá barnæsku og við höfum verið að sparka bolta frá því að ég man eftir og allt af haldið hópinn. — f hvaða félagi ertu? — Ég er í Þór og er búinn að leika þar í öllum flokk- um. — Hvernig æfir þú? — Ég hef verið í fótboltan- um á sumrin og körfubolta á veturna o,g svo stundaði ég mikið leikfimi hér áður. — Hefur þú leikið mikil- væga leiki fyrr? — Ég lék (þressiuleik um daginn áður en Bermudalands liðið kom og svo var ég vara maður með B-landsliðinu gegn Færeyjum í sumar og lék þann landsleik nærri allan. — Hafðirðu farið utan áð- ur? — Já, ég fór með Akur- eyrarlandsliðinu í keppnisför til vinabæja í Noregi og Dan mörku sumarið 1961. — Hve margir Akureyring ar hafa verið valdir í lands liðið hingað til? — Ég mun vera sá sjöundi. gærmorgun, föstudag á Olymps- fjalli. Þegar eftir athöfnina var hlaupið af stað með blysið og bera grískir íþróttamenn það til Aþenu í boðhlaupi. Þaðan verð- ur flogið með kyndilinn í jap- anskri flugvél til Asíu og höfð viðkoma og athöfn í mörgum borgum þar. Loks hafnar vélin í Japan og verður hlaupið með eldinn um gervallt landið og loks hafnað á Olympíuleikvang- inum 10. október. Eldurinn var tendraður við altari sem sett var upp að forn- um sið. Síðan hlupu hlaupararnir af stað með blysið og hljóp hver maður 1 km. vegalengd. Fyrsta borgin sem farið var um var Pyrgos, 21 km. frá fjall- inu. Þar var eldur tendraður á altari og síðan haldið áfram í átt til Aþenu. Þegar hlaupararnir sem blysið báru fóru fram hjá bóndabýlum veifuðu þeir með kyndlinum og hrópuðu hvatn- ingarorð. í KerlingarfjöUum Skíðaskóli hefur verið starf- ræktur í Kerlingarfjöllum við vaxandi vinsældir undanfarin ár. Þessi mynd var tekin fyrir nokkru þar innra og sýnir hvernig gestir njóta góðviðr- Sambandsráðs- fundur Ung- mennafélags Isl. 14. samibandsráðsfundur Ung- mennafélags íslands verður hald- inn í Haukadal 5. og 6. sept. og hefst kl. 4 e.hád. á laugardag, Helztu mál þingsins verða þessi: Landsmótið 1965, Þrastaskógur, félagsmál, næsta sambandsþing. Á sunnudag verða skoðuð mann- virki, sem verið er að vinna að á Laugarvatni og verða tekin í notkun á landsmótinu. Einnig verða skoðuð mannvirki í Þrasta skógi, leikvangur og veitinga- skáli, sem verið er að reisa, þar sem Hótel Þrastalundur stóðv Sambandsráðsfundinn sækja hér- aðsstjórar allra héraðssamband- anna auk stjórnar og gesta. (Frétt fiá Ungmennafélgai íslands). MOLAR SVÍAR sigruðu í knattspyrnu keppni norrænna lögreglu- manna. Þeir unnu Dani í úr- slitaleik með 3—0. I keppn- inni um þriðja sætið unnu Norðmenn Finna með ?—0. IDA Bjerke ung sundkona í Bergen, setti norskt met í 400 m. fjórsundi á 5.53.5 mín í gær. Eldra metið var 5.57.5 10 km. hlaup var hápunktur fyrsta dagsins á meistaramót- inu norska í frjálsum íþrótt- um sem hófst í Gjörvi í gær. Meðal áhorfenda var Ólafur konungur, Thor Helland setti nýtt norskt met 29.27.6 mín en Odd Fuglem og Poul Ben- um voru aðeins 4/10 úr sek- undu á eftir. Thor Helland bætti persónulegt met sitt um hálfa aðra mínútu. Bezt hafði hann áður hlaupið á 30.58.0 — en eignaðist nú svo óvænt norska metið. í öðrum greinum unnu þeir sem búizt hafði verið við, M. Lundemo vann Maraþonhlaup á 2.27.51.4 5 mín á undan næsta manni og hafði forystu frá upphafi. Þrístökk vann Martin Jensen 15.34, 200 m. Carl Nimæs 21.7. HVER einstakur keppandi og fararstjóri á OL í Tókíó hefur verið tryggður af japönsku Olympíunefndinni og nemur tryggingin um 125 þús. isl. kr. ef um dauðsfall er að ræða. FINNINN Matti Yrjölæ settl finnskt og horrænt met í kúlu- varpi í gær, varpaði 18.16 m. Á dögunum varpaði Matti Yrjölæ 18.28 m en það met var ekki hægt að staðfesta þar sem afrekið var unnið á félags móti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.