Morgunblaðið - 23.08.1964, Side 3

Morgunblaðið - 23.08.1964, Side 3
SunnudaguT 23. ágúst 1964 MORGU N BLAÐIf) $ | Heklumynd og stúlkur, sem ekki vilja skyggja á sig Sr. Eiríkur J. Eiríksson Skugginn - Lampinn | VIÐ komum á mínútunni ^ kl. 6. Þegar Kjarval hefur | ákveðið einhvern tíma þá | er víst ’eins gott að vera §j stundvís. | Þegar við kornum inn = voru gestir hjá listamann- 1 inum, amerísk kona og 1 kunningjar hennar. Frúin 1 var að skoða listaverk á § vegum háskóla í heima- = landi sínu. = Við létum það ekkert á okk S ur íá, heldur settumst út í = horn og tókum að skoða 1 ýmsar myndir og blaðaúr- = klippur, sem Kjarval hefir lát = ið upp um veggi 1 vinnusal S sínum. H Erindið kom seinna. Við =- ætluðum að skoða tvö ný lista § verk, sem Sigurður Benedikts = son, sá heimsfrægi listaverka- 1 sali, hafi tjáð okkur að nú = stæðu fuilgerð og ástæða væri § til að kynna fyrir þjóðinni. = — Ég hef verið hálfla.sinn í H sumar, segir Kjarval. í>að er §§ ekki sanngjarnt vegna vina = og kunningja að vera lasinn. = En að undanförnu hef ég eins g og gleymt löppinni. Ég hef unnið að þessari Heklumynd af kappi. Ekki bragðað dropa. Ég er búinn að eiga heilan konjakspela og fulla brennivínsflösku í hálf- an annan mánuð. Ég má nefni lega ekki bragða það, þegar ég er að vinna, til þess að örva ekki sjáaldrið. Og listamaðurinn virðir fyrir sér verk sitt. Það er Heklumynd, sem hann hefir unnið að í 17 ár. — Mynd málarans gætum við kallað hana. Ég hef málað margar myndir af Heklu. Þegar einhver vinur hefir komið og einhver vinur hans hefir átt afmæli. Þá hef ég málað myndir af Heklu. En þessi er öðru vísi. Ég var bú- inn að gera hana fyrir nærri 17 árum en ég var ekki ánægð ur með hana. Svo breytti ég henni og hætti við hana. En nú fyrir rúmum mánuði réð- ist ég að henni á ný. Líklega læt ég hana vera svona. Það er að morgna vinstra megin. Til hægri er nóttin að hverfa. — Byrjaðirðu á myndinni þegar gosið stóð 1947. — Já. Það voru ósköp sem á gengu. Og mikil var litdýrð- in þegar hraunið vall fram, eða þegar þessir glóandi steinar skullu niður á víði- hrislurnar. Hvernig þær blán- uðu um leið og þær dóu. Ég stökk einu sinni og greip gló- andi stein sem hafði lent á einni hríslunni og henti hon- um í burtu. Ég var fullur af hugsjónum eins og skáti eða ungmennafélagi. Það hefir ráðið því að ég greip stein- inn. ■—Heldurðu að sú litadýrð sem þú sást þá hafi haft áhrif á allt litaflóðið í þessari mynd? — Nei. Og þó. Ég veit það ekki. Ég dreif í því að moka litum í myndina. — Hefirðu farið austur í sumar. — Já tvisvar. Fyrst flaug ég, en mér fannst ailt fullt af tómlæti svo ég fór aftur suður. Svo fór ég austur í bíl og þá hafði ég með mér mik- ið af litum og ætlaði að vinna mikið. En ég sá ekki neitt. Mér fannst ég vera að svíkja bæinn minn hér. Svo ég fór suður aftur eftir tvo daga. Svo fór ég að Kýlingum og í Land mannalaugar. Þar var svo mik ið af fegurð, að þetta rann Framhald á bls. 8 XIII. sunnudagur eftir trini- tatis. Guðspjallið. Lúk. 10, 23—37. OFT hafa menn komið á móti mér upp undir heiðina eða alla leið á heiði með ljós. Þá héfur ljósið lýst mér, en þeim ekki, eins er það bar. Þó hefur hann éinnig gengið í birtu þess nokkurri, með því að hann horfði fram á veg okkar beggj^. Menn kannast við nafn hinnar ensku hjúkrunarkonu Florence Nightingale. Hún vann alla ævi að hjúkrun. Án sterkrar köllunar hefði hún ekki komið svo jniklu til vegar um líknarmál. Löngun- ar að bæta úr böli meðbræðranna varð snemma vart með henni. Einkum varð Florence Night- ingale fræg fyrir störf sín í Krím- stríðinu. Er hún fór aústur þang- að, hafði hún með sér sveit hjúkr unarkvenna. Var gagnrýnt í blöð- unum, að þessar konur væru úr ýmsum trúfélögum og menn spurðu í hvaða trúfélagi Night- ingale sjálf mundi vera. Prestur einn svaraði þeirri spurningu þannig, að hún væri í félagsskap, sem of fámennur væri 1 verölfj hér, — hins miskunn- sama Samverja. Öldin er nú önnur. Varla er lengur spurt um trúarskoðanir hjúkrunarfólks, enda mikill skort ur þeirra, er vilja gera líkn við aðra að lífsstarfi, Eru þeir, því miður, fleiri, er rétta mönnum dreggjar mein- semdanna, en þeir, sem halda á læknislyfinu og skulu þó metin og þökkuð hin stórfelldu fram- lög samfélagsins til heilbrigðis- mála og hinni hvítklæddu sveit hugprúðra karla og kvenna, ungra sem aldinna, er leggja fram líf og heilsu til þess að hjálpa öðrum til bata og fækka meinum manna. Við íslendingar önnumst um hinn særða mann við veginn fylli lega til jafns við flestar aðrar þjóðir, enda skyldum við ekki gleyma hjúkrendum og hinum sjúku, þótt heimsóknartímum ljúki, en láta svo sem verða má ljós okkar á vegi heilbrigðinnar lýsa þeim í bæn og verki líkn- arinnar. Hugsunin að bjarga, án mann- greinarálits, á sér djúpar rætur í eðli þjóðar okkar. Byggðin hef- ur lengstum verið dreifð, eins og ................................... þegar hershöfðingi raðar liði sintí og myndar langa víglínu. Vold- ugar hafa verið hersveitir og hættulegar öræfa með ströndum fram mikilla sanda og hið efra tiJ landsins. Heimsathygli hefur einatt vak- ið hjálpsemi Islendinga og björg- unarstörf. Aðstæðurnar hafa valdið þai miklu, en djúp og hre'in hvöt hef- ur sprottið fram á grjótum þeirra. Skáldið lætur kvæðishetju sína velja á milli kirkjugöngu og að rækja björgunarstarf. Guðs vilji getur og varla verið góður: „Öll óhöpp hlutu hans vilji að vera, sem varnarlausum mönnum farga'*. En er við föllumst á seinni hluta erindisins, er forsenda hans kirkjuleg einnig. „Ég hafði aðeins eitt að gera í ættarhefnd, það var — að bjarga“. Ýmsir munu hnjóta um svo kirkjulegan skilning hér, og benda menn einatt á fastheldni við kennisetningar og ýmis konar ytri aðgreiningu. Margt er þar rétt athugað, en kjarni kristin- dómsins birtist vissulega í guð- spjallinu í dag, þar sem góðvilj- inn brýtur lögmál manna og set- ur öllu sem sín eigin lög. Menn ræddu og rituðu enda- laust á dögum Jesú um vanda- málið: „Hver er náungi minn?“ En ætli við séum nú á dögum lausir við lögmálsþrælkun hinna skriftlærðu á tímum Jesú? Við skipum okkur til hægri eða vinstri, austrið og vestrið eru vandamál okkar, svertingjavanda mál suðursins eru fyrirferðar- mikil, Gyðingahaturs gætir og kenningar og flokkar þeirra eig- ast illt við. Tölur eru víða meira metnar en hjartalag og við hömpum ein- att lögbirtingablöðum til þess að varast náungannn í stað þess að leggja honum lið. Peningar eru nokkuð víða eini ljósgjafinn. Víst er um það, að kröfur gerum við: Ljósið á að koma til mín. Ef Guð er til á hann að þjóna mér eins og ég vil. Jesús segir í dag við þig: Vanda mál heimsins er vandi náungans, en fyrst og fremst þú sjálfur. Mikill guðfræðingur sagði í kennslustund: „Hann fylgir ekki mér, ekki honum né hinurn". Ekki eigna ég þessi orð þeim, er sagði þau til' fullnustu. Þau kunna að vera gripin úr sam- hengi, sem gæti skýrt þau já- kvætt. Spyrjum sjálf okkur: „Hver er ég sjálfur og hverjum fylgi ég? Hvað læt ég sjálfur af mörkum? Held ég á ljósinu að það lýsi öðr- um eða bejnist öll viðleitni mín að því, að ég horfi sjálfur við því?“ Florence Nightingale var gamalmenni orðin og sá skuggann sinn: „Er þetta hetjan frá Krím? „Konan með lampann er ódauð- leg“. Nú sýnir lampinn aðeins hrörnun mína og útslokknun“. Nei, hún hélt á lampa sínum annarra vegna, meðan henni ent- ist þrek. Ljós hins góða vilja, tendrað af Guði, mun eilíflega lýsa okkur. Gefist okkur þrek til þess að koma með ljós á veg meðbróð- ursins, að hamingja okkar verði að sjá sigur Guðs málstaðar í þakklátu brosi hans, særðs við veginn í einum eða öðrum skiln- ingi, að skugginn hverfi eigin- girninnar og fallveltisins, sem á sér sjálfselskuna að rót, og böl allt batni þannig eilíflega, okkar sjálfra og samfélagsins. >— Amen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.