Morgunblaðið - 23.08.1964, Síða 15

Morgunblaðið - 23.08.1964, Síða 15
Sunnudagur 23. ágúst 1964 MORCUNBLAÐIB 15 Ameríkuferð forsætisráðherra Stundum heyrast þær raddir, að við íslendingar eyðum of miklu fé í samskiptum okkar við umheiminn, óþörf sé þátttaka í ýmsum ráðstefnum, of miklu fé varið til utanríkisþjónustunnar o.s.frv. Eðlilegt er, að kommún- istar reki slíkan áróður; það er beinlínis andstætt baráttu þeirra fyrir því að einangra Islendinga frá vinveittum þjóðum og koma þeim undir austræn áhrif, að við styrkjum aðstöðu okkar með sam skiptum við aðrar þjóðir. En þeir, sem vilja sjálfstætt og frjálst ísland, gera sér í vax- andi mæli grein fyrir því, að samskipti okkar við aðrar þjóðir, kynning landsins og kynni af öðrum þjóðum, er frumnauðsyn. Menn gera sér ljóst, að það verð- ur að greiða þann kostnað, sem því er samfara að vera sjálfstæð þjóð. Bjarni Beneditksson, forsætis- ráðherra, þáði boð um að heim- sækja íslendingabyggðir í Vest- urheimi og vináttuboð Johnsons forseta um að hitta hann og Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna að máli. Þeir munu fáir, sem ekki gera sér grein fyrir mikilvægi slíkrar farar — og þarf ekki að eyða að því mörgum orðum. REYKJAVÍKURBRÉF LaugarcL 15. ágúst För forsætisráðherra heppnað- íst líka í alla ^taði hið bezta og ekkert skyggði þar á. Lágkúra Tímans Eins og áður segir er ekki við því að búast, að kommúnistar fagni því, að forystumenn okkar leggja sig fram um að treysta vináttubönd við vestrænar lýð- ræðisþjóðir. Þó gat „Þjóðviljinn“ viðræðna forsætisráðherra við forseta Bandaríkjanna á forsíðu sinni, þótt lítið færi að vísu fyrir fréttinni. Blaðið hefur talið, að ekki væri unnt annað en gera svo mikilli fregn nokkur skil. Hins vegar gat Tíminn naum- ast þesssarar meginfregnar dags- ins. Eins dálks klausa var raun- ar í blaðinu, en vendilega falin. Mörg dæmi má nefna um það, hve fráleitt er að tala um Tím- ann sem fréttablað, en þetta er þó einna skýrast. Forsætisráð- herra okkar hittir að máli mesta valdamann veraldar og ræðir við hann og utanríiksráðherra hans, en Tíminn getur naumast um það. Hinar beinu pólitísku falsanir Tímans eru mál út af fyrir sig, en hið pólitíska ofstæki lætur þar ekki staðar numið, heldur verður líka að falsa fréttirnar. Af þvi að forsætisráðherrann er *tjórnmálaandstæðingur Fram- tóknarmanna, þá er bannað að geta fregnar, sem hann er við riðinn. Þetta er slí.k lágkúra, að furðulegt er, ef finnanlegt er fólk, sem les Tíma'hn til þess að reyna að afla sér réttra upplýs- Inga. Það skortir meira en lítið á dómgreind slíkra manna. Fulltrúar Osló- borgar Af eðlilegum ástæðum eru sam *kipti okkar í margvíslegum nialefnum meiri við Norðurlönd- tn en aðrar þjóðir. Þar á meðal hefur verið margháttað samstarf jnilli höfuðborga Norðurland- *nna. Þótt sjálfsagt sé einna minnsta þekkingu og reynslu að sækja til okkar, telja höfuðborgir hinna Norðurlandanna eðlilegt *ð seuda hingað fulltrúa sína til skrafs og ráðagerða við borgar- yfirvöld Reykjavíkur, og nú eru hér góðir gestir frá Oslóborg. Þegar við þá er rætt kemur líka á daginn, að mörg vandamál þeirra eru hin sömu og okkar. Þar er kvartað undan sköttum ekki síður en hér, þar var rifizt ósköpin öll um ráðhús o.s.frv. Þessi samskipti höfuðborganna víkka sjóndeildarhring stjórn- enda þeirra. Þar fæðast nýjar hugmyndir og menn læra hverj- ir af öðrum. Stundum er ef til vill ekki áþreifanlegt það, sem vinnst við slíkar viðræður, en á því er enginn vafi að þegar til lengdar lætur er það bæði margt og mikilvægt. Við Islendingar þurfum vegna mannfæðar og skorts á sérkunn- áttu á sumum sviðum að sækja til annarra ráðleggingar og að- stoð. Þannig vinna nú eins og kunnugt er danskir skipulags- sérfræðingar, með íslenzkum skipulagsmönnum að heildar- skipulagi Reykjavíkur og ná- grennis. Slík samvinna er eðli- leg og hún kemur af sjálfu sér, þegar samskiptin við nágrannana aukast. Róg;ur erlendis Sem betur fer hefur okkur ís- lendingum lengst af frá lýðveld- isstofnun tekizt að halda þannig á utanrikismálum okkar og sam- skiptum við aðrar þjóðir, að veg- ur okkar hefur stöðugt farið vax- andi og við njótum nú meira álits sem fullvalda og ábyrg þjóð en áður, þótt auðvitað hafi efna- hagserfiðleikarnir stundum vald- ið okkur álitshnekki. Þetta álit leitast góðir íslend- ingar við að styrkja í viðræðum við erlenda menn og þar sem þeir geeta haft áhrif á erlendri grund. Það finnst mönnum yfir- . leitt jafn sjálfsagt eins og hitt að rífast um málefnin hér innan- lands og segja þá stundum meira en hægt er við að standa. Stöku sinnum bregður þó út af þessu. Kommúnistar fara á mót trúbræðra sinna til þess eins að rægja land sitt og þjóð —- og kippa menn sér ekki upp yið það, en hitt er sorglegt þegar ungir og efnilegir menn fara eins að; Það bar við nú fyrir skemmstu að ungur fslendingar ritaði níð- grein um íslenzk stjórnarvöld í norskt blað. Var hún sérlega ræt- in og þess vegna endurprentaði Tíminn hana með augljósri ánægju og aðdáun. Greinarhöfundur gerist meira að segja svo djarfur að nefna „landráðahugmyndir" í niðurlagi níðgreinar þeirrar, sem hann hef- ur látið greiða sér fyrir að skrifa um land sitt. Mætti hann gjarn- an hugleiða betur hvað í því orði felst. Spilling og skattsvik Mikið hefur að undanförnu verið rætt um skattsvikin og er það vel, því að þau hafa án efa aukizt aftur frá því að umbót varð í þessu efni eftir hinar gagngerðu breytingar skattalag- anna árið 1961. Hitt er víst, að skattsvikin eru áreiðanlega ekki meiri en þau voru fyrir þá breyt- ingu, enda höfðu skattalögin um langan aldur verið þannig, að menn töluðu opinberlega um það, að það væri réttmætt að sniðganga þau. Þau væru ófram- kvæmanleg — og var vissulega mikið til í því. En hvernig stendur á því, að menn hneykslast svo miklu meira nú yfir skattsyikum en fyrir hálf- um eða einum áratug? Varla getur það stafað af því að spill- ingin í íslenzku þjóðlífi hafi auk- izt. Nei, sem betur fer er ástæð- an hin gagnstæða, þ.e.a.s. að við höfum sótt fram í áttina til meira réttlætis og heilbrigðari stjórn- arhátta. Þess vegna verður sú krafa sífellt háværari, að við upprætum leifar spillingarinnar. Me»um ekki n »Ieyma Við Islendingar megum ekki gleyma því, hvernig ástandið var í íslenzku þjóðlífi, þegar Við- reisnarstjórnin hóf aðgerðir sín- ar. í fyrsta lagi voru skatta- lögirv þannig, að varla fannst maður, sem taldi sér skylt að tí- unda allar tekjur sínar. Lögin beinlínis bönnuðu honum það. I öðru lagi voru hér víðtæk innflutnings- og gjaldeyrishöft og ranglát verðlagsákvæði, sem allt bauð heim spillingu og ósóma. í þriðja lagi var svo uppbóta- kerfið alræmda í algleymingi með allri þeirri spillingu og póli- tíska braski, sem því var sam- fara. Við bjuggum sem sagt við ómengaða vinstri-stefnu. Við fengum að kynnast henni í fram- kvæmd, og sú reynsla ætti að nægja til þess að menn kölluðu ekki slík ósköp yfir sig að nýju. Það er eftirtektarvert, að enn þann dag í dag hælir Framsókn- arflokkurinn vinstri stjórninni og stjórnarfarinu, sem þá ríkti hér. Hann fer þannig ekki dult með það, að hann vilji innleiða alla spillinguna á ný, og komm- únistar segja beinlínis að það eina, sem skort hafi á í vinstri stjórninni, hafi verið harka. Ef hennar hefði gætt hefði stjórnin getað opnað leiðina til kommún- ískrar áþjánar. Báðir stjórnarandstöðuflokk- arnir vilja aukin ríkisafskipti, það er þeirra meginstefnumál. Þess vegna hafa þeir barizt svo hatrammlega gegn öllum aðgerð- um Viðreisnarstjórnarinnar til þess að afnema höft, þvinganir og ofríki ríkisvalds. En aukin rík- isafskipti þýða ekki sízt aukin yfirráð ríkisvaldsins yfir fjár- magni þjóðfélagsins, þ.e.a.s. aukna skattheimtu x einu formi eða öðru. Stefnur í skatta- málum Eðli málsins samkvæmt eru stjórnarandstæðingar þess vegna hlynntir mikilli skattheimtu og ásakanir þeirra um að skattar séu of háir koma þess vegna úr hörðustu átt. Leiðréttingar í skattamálum verða ekki gerðar af mönnum, sem andvígir eru einkaframtaki og eignasöfnun al- mennings, heldur af þeim, sem gera sér grein fyrir því, að ríkis- valdið á að eftirláta borgurunum eins mikil yfirráð yfir aflafé sínu eins og' «nnt er. Engum dettur í hug að fundn- ar verði reglur, sem í öllum til- fellum verði hinar réttlátustu og sanngjörnustu. Tilvikin eru svo mörg að aldrei verður við öllu séð. Sérstaklega er þó erfitt að setja reglur, sem ríkja eiga til frambúðar, þegar urn verðbólgu- þróun er að ræða, því að þá raskast allar slíkar reglur meira eða minna aixvs og raun ber vitni. . Hér í blaðinu hefur það til dæmis verið nefnt áður, að eigna- skattar kæmu mjög misjafnlega niður, þar sem miðað er við hið lága fasteignamat við álagningu þeirra þeirra. Annað dæmi mætti nefna: Menn voru yfirleitt sam- mála um það, að eðlilegt væri að vextir af skuldum húsbyggjenda væru frádráttarbærir. Var það talið sanngjarnt, því að í flestum tilfellum er bygging eigin hús- næðis mesta átak manna í lífinu og því eðlilegt að létta undir með þeim, því að flestir eru þeir skuldum vafðir eins og sá gamli skömmunum. En á verðbólgutím- um getur þetta verið vafasamt, því að einmitt þeir, sem fé festa í fasteignum, hagnast á rýrnandi verðgildi peninganna og þar með óbeint lækkandi skuldum sínum. Verðbólgan verst Sjálfsagt hefur ekki annað blað oftar varað við verðbólg- unni en einmitt Morgunblaðið. Það hefur bent á, hve margvís- legt misræmi skapaðist, þegar ekki væri unnt að halda verð- lagi nokkurn veginn stöðugu og þannig væri nær ógjörlegt á verð bólgutímum að skapa viðunandá réttlæti. Menn hafa nú fengið að súpa seyðið af verðbólguþróuninni, Vonandi nægileg'a til þess að þeir geri sér grein fyrir því, að það er ekki heildinni í hag að halda áfram á þeirri braut — og fyrst og fremst ætti það auð- vitað að vera kappsmál laun- þega að st.emma stigu við nýrri þróun í þá átt. Ef það tekst mun líka reynast tiltölulega auðvelt að bæta ástapd í fjárhags- og skattamálum, svo að það verði með svipuðum hætti og hjá nágrannaþjóðunum. Auð- vitað ekki gallalaust, slíkt þjóð- félag þekkist ekki og kemur aldrei til með að þekkjast,- en samt gott og heilbrigt þjóðfélag, sem menn geta vel unað að búa í. — Og eitt er rétt að menn hafi hugfast, þegar þeir í fjár- hagserfiðleikum eða af öðrum ástæðum hneigjast til að hyggja auð í annars garði, að flest allir eiga við sína erfiðleika að etja í einu formi eða öðru. Hver og einn reynir að sigrast á þeim, og þáð er einmitt þessi baxátta ein- staklinganna, sem á að orka því að bæta þjóðfélagið. Hitt leiðir sjaldnast til farsællar niðurstöðu að ætla að leysa málin með því einu að ásaka aðra uw. allar vammir og skammir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.