Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 4. okt. 1964 MORGU NBLAÐIÐ 5 Ferðalangur í Afráku „Ferðalagið var stórkostlegt ævintýri fyrir mig, og ég er ekkert þreytt. Mér fundust vegirnir betri en á íslandi og loftslagið jafnvel heldur betra Hinir innfæddu voru vinalegir og þeir voru barnslegir og glaðir, en eftir því, sem þeir komust í meiri snertingu við menninguna, urðu þeir merki Jegri með sig, og tollverðirnir svörtu eru engin lömb að leika sér við. Þeir virðast vita af sér“. Það var frú Ruth Þorvalds- son, sem þetta mælti, þegar blaðamaður Mbl. hitti hana að máli á dögunum. Frú Ruth er dönsk að ætt- erni, en er gift Magnúsi Þor- valdssyrii í Hveragerði. Sonur jþeirra heitir Jóhann Þorvalds son og hann er kristniboði í Afriku á vegum Aðventista. Jóhann var fyrst kristniboði í Sierra Leone, en síðar flutti hann til Ili-Jfe í Nigeriu. Jó- hann er prestlærður, en starf- ar við stórt sjúkrahús í bæn- um, en 5 spítalar eru í um- dæmi hans. Frú Ruth fór í sumar að heimsækja son sinn. Hún þakikar Ferðaskrifstofunni fyr ir mikla og góða fyrirgreiðslu á ferðalaginu. Hún mátti borga í íslenzkum peningum. Og að síðustu varð niðurstað- an sú, að allt stóð heima. Áhyggjurnar urðu eftir heima. „Ég fór með flugvél til Eng- lands. Þaðan með skipi til Freetowri í Sierra Leone, en þar tók Jóhann sonur okkar á | móti mér. Skipið, sem ég | ferðaðist með hét APAPA, og * þar var nú aldeilis mikið gert fyrir fariþega Ég var í tvo mánuði í Sierra Leone. í Skóianum hjá Jóhanni voru um 200 nemendur, bæði ung- lingar og börn. Ég átti einu sinni vinkonu. Hún er nú graf i í Freetown. Áður en ég lagði af stað var ég bólusett gegn Jóhann Þorvaldsson krlstni- boði. Kofar hinna infæddu við hliðina á forsetahöllinni allskonar sjúkdómum, sérstak lega þó gegn gulu. í Sierra Leone eru um 100.000 hoidsveikir, en aðvent istar hafa marga spítala þar fyrir holdsveika. Meðan ég dvaldist í Sierra Leone, fór ég í ferðalag með Jóhanni syni okkar til Liberiu. Við ferðuðumst 1000 km. gegn um frumskóiginn. Við sáurn lít- ið af stórum villidýrum, en því meir af öpum, sem þar léku kúnstir sínar. í Monro- viu er forsetahöllin mikla o-g glæst, á borð við Bændahöll- ina hér. En rétt handan við götuna eru kofar hinna inn- fæddu, klesstir saman af leir og strái. Andstæðumar eru miklar. í kofunum er ekkert. Alls ekkert. Bara gólfið. Fólkið eldar fyrir utan dyrn ar, jafnvel á aðalvegunum inn an um bílana. Hitinn? Nei, hann var ekki svo mikill. Ég kom þangað á regntíma, en samt var rigningin ekkert meiri en hér á Suðurlandi. Vegirnir voru mjög góðir, yfir leitt malbikaðir, en þegar henni sieppti, var ofaníburður inn harður og góður. Amerikanar gefa börnum mat þar um slóðir. Frá Liberiu komu flestir negrar, sem flutt ir voru til Bandaríkjanna á dögum þrælatímabilsins. Ég kom til Accra í Ghana. Accra er líka borg andstæð- anna. Samt er hún mesta ný- tízkuborg þeirra í Afríku, sem ég sá. Þar eru miklar hjól- reiðar, rétt eins og í Kaup- mannahöfn. Inni í frumskóg- inum er háskóli, sem þjálfar 100 stúdenta til náms í B. A. fræðum um 100 km. frá Lagos. 1 Nigeriu er fólk duglegt, og þess vegna er þar minna um atvinnuleysi, en í hinurn lönd unum. Við snertum ekki við vatni þarna, nema það væri soðið. Yfirleitt er mest nærzt á nið- ursoðnum mat. Það líður ekki á löngu áður en þeir reka hvíta menn út úr löndunum. Skoðunarfrelsið er ekkert. Segi maður sína meiningu, þá lendir hann í fangelsi. Stjórn málabaráttan er hörð á þess- um suðurslóðum. Fyrir utan hótelið okkar héldu alltaf tveir lögreglu- þjónar vörð til að leita vopna. Á íslandi má maður alltaf segja meiningu sína, en þarna eru fjölmangir í fangelsi fyrir það. Þrátt fyrir hjálp hvítra manna, _ vex andstaðan gegn þeim. Ég hafði mjög gaman af þvi að heimsækja son minn í Afríku sagði frú Ruth ða lokum. Það var gaman að sjá allt það starf, sem Aðventist- ar leysa þar af hdeni. Ferðin var sannkallað ævintýri fyrir mig og ég mun aldrei gleyma ferðinni þangað í suðrið. En Afríka hefur þörf fyrir sérmenntað fólk, ekki hvað sízt kristniboða. Þeir verða að vera velmenntaðir, en samt verða þeir að vera auðmjúkir og þolinmóðir, frekar en allir aðrir, og elska guð og sam- borgara sína, meir en sjálfa sig. Það er aðeins þörf fyrir slíka menn í Afríku um stutta stund enn. En það líður held- ur ekki á löngu, þar til verðUr sagt við þá: Verið þið blessaðir og hafið kærar þakkir. En nú getum við bjargað okkur sjálf ir.“ E. S, Frú Ruth Þorvaldsson. Á ferð og llugi Akranesferðir með sérleyfisbílum P. Þ. P. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá Reykjavík alla daga kl. 6. Frá Akra- nesi kl. 8, nema á sunnudögum kl. 3 Á laugardögum frá Rvík kl. 2 og á lunnudögum kl. 9 e.h. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. — Katla hefur væntanlega farið 1 gær- kvöldi frá Piraeus til Torrevieja og íslands. Askja hefur væntanlega farið i gærkvöldi frá Cork áleiðis til Avon- mouth, London og Stettin. H.f. Jöklar: Drangajökull kom til Cambridge 30. sept. og fer þaðan til Canada. Hofsjökull kom í gær til Rvíkur frá Norrköping. Deningrad, Helsingfors og Hamborg. Langjökull er í Aarhus. Vatnajökull fór 2. þm. frá Rotterdam tll Rvíkur. Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell fer frá Haugasundi á morgun til Faxaflóa- haifna. Jökulfell fer á morgun frá Huli til Calais og íslands. Disarfell fer í dag frá Gdynia til Riga. Litlafell fer i dag frá Ðakkafirði til Siglufjarðar. Helgafell er i Þorlákshöfn. Hamrafell er væntanlegt til Aruba 8. þ.m. Stapa- fell er væntanlegt til Rvíkur á morgun. Mælifell íer væntanlega 7. þm. frá Archangelsk til Marseilles. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Vestfjörðum á suðurleið. Esja er á Álaborg. Herjólfur er á Hornafirði. Þyrill fór frá Fredrikstað í gær áleið- is til Austfjarða. Skjaldbreið fór frá Akureyri kl. 12. á hádegi í gær á suðurleið. Herðubreið er á Austfjörð- um á suðurleið. UMU og GOIT Fáir kvöddu mig svo forðum, og fárðu vel, ljúfur hinn jlúfi. Æskulýðsvika Hjálpræðishers- ins hefst i dag og stendur yfir alla þessa viku. Nú verða sam- komur á hverju kvöldi kl. 8:30 og á laugardagskvöldið verður miðnætursamkoma kl. 11. Ræðu- efni og öðrum liðum æskulýðs- vikunnar er beint til vrngs fólks sérstaklega en allir eru velkomm ir. Unga fólkið í Hjálpræðishern um tekuir mikinn þátt í samkom unum, lúðrasveitog strenigjasveit Hjálpræðishersins leika og mikill söngur og f jölbreyttux. >f Gengið >f Gengið 29. september 1964 Notað mótatimbur l’’x'6”, l”x7” Og 2”x4” til sölu. — Sími 15144. Píanókennsla Guðrún Þorsteinsdóttir Ljósheimum 3. Simi 35530. Þýzkukennsla Létt aðferð. Fljót talkunn- átta. Edith Daudistel Laugavegi 55, uppi. Sími 21033 frá 6—7. Skrifborð Til sölu skrifborð úr ljósu birki, mjög hentugt fyrir skólafólk. Uppl. í síma 38051 í dag. kaup Sala 1 Enskt pund .. 119,64 119,94 1 Banoarikjadollar ... 42 95 43.06 1 Kanadadollar 39,91 40,02 100 Austurr sch. 166.46 166,83 100 Danskar krónur 620,20 621,80 100 Norskar krónur 600,30 601,84 100 Sænskar krónur ... 384.52 836.67 100 Finnsk mórk... 1.335.72 1.339.14 100 ... 874.08 876.32 100 Svissn. franksr .... 992.95 995.50 1000 ítalsk. lí-’ir ... ... 68,80 68,98 100 Gvllini .. 1.191 40 1.194.46 100 V-þýzk mörk 1.080,86 083 62 100 BttJg. frankar 86.34 86,56 VISUKORN f tilefni af samtali Morgun- blaðsins við prófessor Jóhannes Bröndum Nielsen, birt 1/10 1964. Nú er Bröndum holt að heyra hina gömlu kenningu: „að Danir eigi alltaf meira af eigingirni, en menningu". Skellinaðra í góðu lagi til sölu. Verð kr. 8.000,- Uppl. í síma 37642. Keflavík Ódýrar skólabuxur á drengi. Skólapeysur á drengi og telpur, úlpur og jakkar. ELSA Keflavík. Konur Kópavogi Konur óskast í vinnu fyrri- hluta dags 5 daga i viku. Uppl. í síma 40706. Keflavík Mjög ódýrar kvenblússur seldar næstu daga. Nælon- kápur, unglingastærðir kr. 250. Elsa, sími 2044. Sveitavinna Ábyggilegur piltur 15—17 ára óskast að Geita- skarði í Austur-Húnavatnssýslu. — Uppl. í síma 50820 og Geitaskarði sími um Gunnsteinsstaði. fbúð óskast 2ja—Ira herb. íbúð óskast til leigu. Upplýsingar í síma 35927. • • FONN FONN óskar FONN eftir stúlku á aldrinum 18—30 ára, sem tekið getur að sér afgreiðslu með fleiru. Umrætt starf er hrein- legt en fjölbreytt og gefur góðum starfskrafti, kost á háu kaupi. — Nánari upplýsingar verða ekki veitt ar í síma, en þær er vildu sinna þessu frekar eru vinsamlega beðnar að koma til viðtals milli kl. 17,30 og 18,30, mánudagi í Þvottahúsið Fónn Fjólugötu 19B. (Gengið upp sundið). F O N N F O N N Asvallagötu 69. Símar: 21515 og 21516. KVÖLDSÍMI 3 36 87. Vesturbæntim Höfum fengið til sölu 3ja og 4ra herb. íbúðir í sam- býlishúsi í Vesturbænum. Húsið stendur við Meist- aravelli fyrir enda Víðimels. — íbúðirnar seljast til búnar undir tréverk og málningu, með fullgerðri sameign til afhendingar í vor. 2—3 svefnherbergi og línherbergi fylgja hverri íbúð. Svalir meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar. Óvenju stór og glæsi- leg stofa. — Glæsilegt umhverfi. — Hitaveita. Hagkvæmt verð — Þægilegir skilmálar. Skoðið staðinn um helgina. — Teikningar fyrirliggjandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.