Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.10.1964, Blaðsíða 32
 biialeiga í II i magnúsar rrf| skíphiolt 21 *SS* simar: 21190-21185 zzzl *> Þ X I HÚSAVÍK, 3. okt. — I Kinnar- íjöilum er skál, sem hlotið hefur ýms nöfn, svo sem Ófæruskál og Djöflaskál, en örnefnanefnd hef- ur ekki gefið henni nafn. Skál þessi er sunnan við svokallaða Fjörutorfu í Kinnarfjöllum. Fyr- ir nokkrum árum urðu þarna tepptar 7 kindur, sem þó höfðu sig allar burt, þegar sulturinn var varinn að sverfa mjög að þeim. En þarna er lítil beit, þó ekki alveg haglaust. Nú í fyrstu göngum í haust rnisstu gangnamenn 10 kindur í þessa erfiðu skál og fór einn gangnamannanna, Ófeigur Ealdursson frá Ófeigsstöðum, niður í skálina á eftir þeim Og er hann talinn þriðji maðurinn sem þangað niður hefur árætt. Þetta þykir djarflega gert, ekki sízt þar sem hann var einn á þessum slóðum, en ekki tókst Ófeigi samt að koma kindunum ppp, því þær héldu sig svo tæpt á klettabrúnunum að hann þorði ekki að hleypa neinni styggð að þeim. En síðan hafa 3 kindanna fcjargað sér upp og vonast menn til að hinar komi í sömu slóð þeg- ar þær taka að svengjast mjög, en það verður að vera áður en tnjó setur, því eftir að snjór er kominn, er vonlaust að þær komist af sjálfsdáðum upp úr þessari svonefndu Djöflaskál. — Fréttaritari Drenour í bifreiðarslysi SÍÐDEGIS í gær slasaðist dreng- nr í Reykjanesbraut. Hann var á leið í bæinn á vélhjóli, og er hann kom á móts við neðri inn- keyrsluna að Shellstöðinni, lenti hann í hríðinni á bíl. Hafði bíll- inn stanzað hinum megin við göt- una, en beygt svo þvert yfir göt- una að innkeyrslunni fyrir fram- an drenginn. Drengurinn, sem heitir Örn Ármann Sigurðsson, Sporðagrunni 7, var fluttur á Slysavarðstofuna, líklega með brotna öxl. Ungir foreldrar eiga tvö blind börn Safnað 10O þús. kr. fyrir læknishjálp á Akureyri AKUREYRI, 3. sept. — Ung hjón hér íbæ hafa orðið fyrir þeirri sáru reynslu að eignast tvö börn, sem eru á fyrsta og þriðja ári og bæði eru blind að miklu eða öllu leyti. Eldra barnið, sem er drengur, hefur þó fengið svolitla sjón við end- urteknar skurðaðgerðir, að því er talið er, en stúlkan er talin alblind. Þó er ekki vonlaust að litlu systkynin geti fengið ein- hverja sjón við frekari laeknis- aðgerðir utan lands eða innan. Foreldrarnir eru bláfátækir, eru nýbúnir að koma sér upp Með Jabb rabb tœki í göngum íbúð, sem er í mikill skuld og geta ekki af eigin rammileik stað ið straum af þeim mikla kostnaði sem af þessum lækningatilraun- um leiðir, t.d. ferðalögum til annarra landa. Sóknarprestarnir á Akureyri Orustuþota kernur inn tíi lendingar á IJSS Independ- ence. Myndina tók fréttamaSI ur Mbfc, sem fylgdist með æf- ingum flota Atlantshafsbanda lagsins fyrir skömmu. (Sjá grein á bls. 31.) hafa nýlega gengist fyrir fjár- söfnun til styrktar þeim, svo að allt verði gert sem í mannlegu valdi stendur til að leita börn- unuim lsekninga. Söfnunin geng ur afar vel og er mjög almenn, bæði hjá einstaklinguim og starfs hó'pum. Á örfáuim dögum hafa safnast fast að 100 þús. kr. og féð streymir inn dagilega, bæði til preistanna og Akureyrarblað- anna, sem taka við söfnunaríé, — Sv. Hvítsíðungar höfðu til reynzlu með sér talstöðvar eða svokölluð „labb-rabb“ tæki í aðrar göngur a Tvídægru og reyndust þau veL Þeir Þorsteinn Jónsson, flug- stjóri, og Siigurjón Jónsson, loft eiiglingafræðingur, faira venju- lega í gönigur með Hvítsíðung- um. í fyrra barst það í tal að gott m.undi vera að hafa „labb- rabb“-tæki við smölun á heið- um, og nú fékk Sigurjón lánuð 3 slík tæki til reynslu. Voru þau notuð við smölunina þassa 3 daga, sem göngurnar standa yfir. Mbl. spurði Þorstein Jónsson Forsætisrá3herra talar á fuiltrúaráðsfundi NÆSTK. þriðjudagskvöld 6. okt. verður lundur í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík og hefst hann kl. 8.36. Frum- mælandi verður dr. Bjarni Bene- ditksson, forsætisráðherra. Þetta er fyrsti fundur Fulltrúaráðsins á þessu hausti og eru fulltrúa- ráðsmeðlimir hvattir til þess að fjölmenna á fundinn. Sýna þarf skírteini við inngangiim. hvort tækin hefðu komið að gagni. Hann sagði að ekki hefði að vísu reynt mikið á það nú, vegna þess að veður var gott, þó hefðu tækin komið að not- um við að hafa samband við yztu leitarmenn. En tveir yztu mennixnir höfðu tæki og leitar- stjórinn, sem var í miðri röð. „Labb-rabb“-tækin sem notuð voru draga 5—10 km, og telur Þorsteinn að einkum mundi þau gera gagn í vondum veðrum. Gömgurnar gengu vel og komu gangnamenn með stóðið og 40 til 50 kindur niður í Þverárrétt Veður var gott fyrstu tvo dag- ana, en þoka fyrri hluta þriðja dagsins. Gunnar Gunnars- son íer utan GUNNAR Gunnarsson, rithöf- undur og frú hans eru á förum í dag, til Danmerkur. Mbl. spurði Gunnar um þetta ferðalag. Hann sagði að þetta yrði stutt ferð, til að tala við læknj og reka fleiri einkaerindi. Sæmileg trillubáta- veiði í Grímsey Akranesi, 2. október. INGÓLFUR Geirdal, 15 ára pilt- ur, Presthúsabraut 22 hér í bæ, er nýkominn heim eftir 3ja mán- aða sumardvöl í Grímsey. Hann gerði að upsa og trillubáta-fiski og haflSi upp 20 þús. kr. Aðspurð- ur sagði hann að 2 trillur hefðu róið frá eynni í allt sumar, en í lok ágúst fjölgaði þeim í 6—7, og reru trillurnar, sem eru litlar allan september, ýmist með hand færi eða línu og fiskuðu 500— 1000 pund í róðri. Gæftir voru stopular. í sumar voru flestir trillumenn í upsaveiðum fram að mánaðarmótum ágúst-sept. — Höfðu 70 tonna bát og herpinót, en upsaveiðin var treg, um 300 tonn alls. En um síldina mega Grímseyingar muna sína ævina aðra. Signý Óladóttir, móðir Ing- ólfs, vann um árið fyrstu verð- laun fyrir síldarsöltun. Hún hafið saltað í flestar turinurnar af öllum síldarstúlkum það sumarið, og það var í Grímsey. Nú fóru þau hjónin Freyr og Signý þangað einu sinni eða tvisvar snöggvast. Svona hefir síldin brugðizt í Grimsey í sum- ar. — Teflduð þið manntafl? spurði ég Ingólf. — Nei, við spiluðum hridge í upsanum. — Fórstu í kirkju? -— Einu sinni. — Hvernig leizt þér á séra Einar djákna? — Vel. Ræða hans var góð. — Sástu mynd af Williard Fiske? — Já, stóra mynd af honum I ; bókasafninu. — Ekki undrar mig það, Ing- ólfur. Willard Fiske batt órofa tryggð við Grímseyinga. Fyrst gaf hann þeim skákbækur og síðan hundr- uð annara bóka. Akurnesingur, sem reri á Skál- um á Lánganesi fyrir 51 ári, sagði mér að samtímis honum þar, hefði verið Grímseyingur, rúm- lega sjötugur, róið einn á báti, Friðrik að nafni, tengdafaðir bóndans á Skálum. Hvenær sem tóm gafst til greip hann hvern mann, sem hann náði í, til að tefla við sig skák. Var ekki Friðrik gamll per- sónugervingur þessara ástríðu- fullu skákunnenda, sem Willard Fiske varð svo hrifinn af í Gríms- ey. — — Oddur, Kindu í sjálfheldu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.