Morgunblaðið - 11.10.1964, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.10.1964, Blaðsíða 21
Sunnudagur 11. okt. 1964 MORGU N BLAÐID 21 Kjartan Leifur Markússon Itflintiingarorð HINN 15. september s.l. and- aðist á Landspítalanium heiðurs- maðurinn og bóndinn Kjartan Leiíur Markússon frá Hjörleifs- höfða. Fyrstu kynni mín af honum voru, er ég ungur að aldri kom með foreldrum mínum austur í Hjörleifshöfða og naut þeirrar ánægj u að mega dvelja eina dagstund með heímilisfódk- inu þar. Ekki hafði ég verið lengi inni, eftir að ég var búinn að metta mig á alls konar kræsingum hjá húsbændunum, þegar synir þeirra koanu til mín og buðu mér út til að skoða umhverfið. Þáði ég það að sjálfsögðu. Voru þetta bræðumir Skæringur og Kjartan Leifur. Þannig urðu fyrstu kynni mín af þeim bræðrum og heimil inu í Hjörleifshöfða. , Kjartan Leifur var fæddur 8. apríl 1895 í Hjörleifshöfða, og vom foreldrar hans hjónin Ás- laug Skæringsdóttir og Markús Loftsson, er lengi bjó í Hjörleifs- höfða og var kunnur maður á sinni tíð og fróður vel. Kjartan Leifur ólst upp með foreldrum sínum í Höfðanum, en föður sinn missti hann árið 1906. Þegar Kjartan Leifur hafði aldur til, gekk hann á bænda- skólann á Hvanneyri og sóttist námið vel, enda vel gefinn og skýr í allri hugsun. Eftir námið þar, kom hann heim í Höfðann sinn, fullur áf áhuga og lífsorku, enda var tekið til óspiiltra mál- anna um að bæta jörðina á allan hátt. Var mikil ánægja að koma þangað heim og sjá þær miklu umbætur, sem áttu sér stað, á Umfferðin eykst og bifreiðaárekstrum fjölgar. Þaö borgar sig að ganga vei frá bifreiðatryggmgunni. Hafíð samband viö „Almennar” og kynnið yður skilmála og kjör Síminn er 17700. ALMENNAB TRYGGINGAR" PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SlMI 17700 meðan Kjartan Leifur dvaldist þar. Frá Hjörleifshöfða fluttist Kjartan Leifur 25 ára að aldri að Suður-Hvammi í Mýrdal með móður sinni og seinni manni hennar, Hallgrími BjarnEisyni frá Kerlingardal. Þar lagði Kjart an Leifur sig állan fram eins og áður, eftir því sem orka og kraftar leyfðu. Eftir lárt móður sinnar lét stjúpi hans fljótlega af búskap og fékk búið í hendur stjúpsyni sínum, en með þeim var hin bezta vinátta, og þeir studdu hvom annan með ráðum og dáð- um. Er Kjartan Leifur hafði tekið við búsforráðum, gekk hann að eiga Ástu Þórarinsdóttur árið 1932. Reyndist hún honum hin á gætasta kona og studdi hann í hvívetna. Á sama hátt reyndist hún frábærlega vel þeim gamal- mennum, sem dvöldust á heimili þeirra hjóna til hinztu stundar. Öll þau ár, sem við Kjartan Leifur vorum saman í næsta ná- grenni, bar aldrei skugga á milii okkar, og var mjög gott að skipta við hann. Eins var ánægju legt að hitta hann, eftir að ég var horfinn úr sveitinni, hvort sem var það eystra eða hér í Reykjavik. Fannst mér ég hitta góðan bróður, þar sem hann var fyrir. Á síðari árum átti Kjartan Leifur við vahheilsu að stríða. Varð hann þess vegna að bregða búi og láta af þeirri atvinnu, sem hann hafði helgað krafta sína. Fluttust þau hjón þá til Víkur og áttu þar heima síðan. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið, og eru þau öll upp komin og hvert öðru myndar- legra. Vildu þau gera föður sín- um lífið sem léttast méð nær- veru sinnL Ekki hélt ég, þegar ég var á ferð þar eystra í sumar, að það yrði í síðasta sinni, sem ég fengi að þrýsta hönd vinar míns, Kjartans Leifs, í herbergi hans, þar sem umræður fóru fram á gam.la sveita vísu, enda þótt hann væri oft þjáður. Kjartan tók þungbærum veik indium sínum með mestu still- ingu og ró, þar til yfir lauk og hann var allur. Hann var jarð- sunginn frá Víkurkirkju 26. f.m. ■ af sóknarprestinum, sr. Páli Pálssyni. Um leið og ég þakka hinum látna alla vináttu og tryggð við mig og systkini mín, sendi ég eftirlifandi konu hans og börn- um og öðrum ættingjum samúð- arkveðjur okkar. Markús Jónsson frá Giljum. Orðsending frá Laufinu Höfum fengið nýja sendingu af vetrarkápum, þar á meðal stór númer (yfirstærðir). Einnig úrval af kjólum og drögtúm. Dömubúðin Laufið, Austurstrætt 1. Síldarsöllunaraðstaða Til leigu er fiskverkunarhús, Nýja Loftshús, Kefla vík. Söltunarbjóð fylgja. — íbúðarbraggi á efri hæð. Upplýsingar í síma 15215 og 2267, Keflavík. Til sölu í Hlíðunum falleg 5 herbergja íbúð. — Laus strax. Ólafur Þorgrlmsson bæstaréttarlömaður Austurstræti 14 — Sími 21785. Til sölu í Hlíðunum 4ra herbergja björt og falleg risíbúð. Laus fljótlega. f * Olafur Þorgrímsson hæstaréttarlömaður Austurstræti 14 — Sími 21785. Stúlkur vantar strax. Þvottahúsið Rergstaðastræti 52. ______Uppl. í símum 17140 og 14030.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.