Morgunblaðið - 11.10.1964, Blaðsíða 32
bílaleiga
magnúsap
skipliolt 21
•Imar: 211»O-21I0S
ii I
0 0 0
C 0 o I
ni
2aa |
z z z
* > > I
Fulltrúakjöri Iðju lýkur í dag
LESBÓK
fylflr btaðinu í da.g og e»r efni^
1 bennar sem sér segir:
k Bis.:
1. 40 ára minningar í Þjóðskjala i
safni, eftir Kjartan Sveinsson.í
2. Svipmynd: Francisco Franco./
1 Úr sólsetrinu, smásaga eftir l
C. P. Thompson.
— Ljóð, eftir Sigriði Jónsdóttur. ^
4. Prestasaga eftir Oscar t'íau-
sen: Brauðlaus prestur, grár og|
gamall.
5. Þjóðleikhúsið 196J—1964: Eitt^
lélegasta leikárið, eftir Haraldl
Björnsson (Fyrri grein). i
8. Emily Coleman: Með Birgitl
Nilsson upp á háa-C.
Fjaðrafok.
10.
11.
i 14.
15.
16.
Húsmæðraskólinn á Löngu-
mýri 20 ára (ljóð).
Sögur af Ása-Þór. Teíkningar^
eftir Harald Guðbergsson.
Ferdinand.
Krossgáta.
BRIDGE.
Iðnverkafólk mun svara pólitískri drós
kommúnista og Framsóknarmanna
d verðugan hdtt
IÐJA, félag verksmiffjufólks í
Reykjavík, kýs í dag fulltrúa
sína á þing Alþýðusambands ís-
lands. Kosningin hófst í gær og
lýkur í kvöld kl. 10. Kosningin
fer fram á skrifstofu Iffju í Skip-
holti 19 (sama hús og Röffull).
— Tveir listar eru í kjöri, A-listi
er borinn fram af kommúnistum
og Framsóknarmönnum, en B-
listinn er horinn fram af stjórn
Iffju og trúnaffarmannaráffi.
Kosningaskrifstofa B-listans er
í Vonarstræti 4 (VR) 3. hæff.
Símar skrifstofunnar eru 33137
og 33147.
Þessu sinni hafa komið fram
tveir listar, B-listinn, borinn
fram af stjórn og trúnaðarmanna
ráði Iðju og A-listinn, sem er bor
inn fram af Framsóknarmönnum
og kommúnistum í sameiningu.
Undanfarin ár bafa þeir borið
fram hver í sínu iagi, en samein-
ingin nú sýnir, hve samvinna
þessara tveggja f’iokka er orðin
náin.
Það vakti athygli að enginn
frambjóðenda A-listans kom til
þess að vitja kjörskrár, heldur
kom á þeirra vegum sonur Ey-
steins Jónssonar, fyrrv. ráðherra,
en Eysteinfl mun stjórna þessum
sambræðingi Framsóknarmanna
og kommúnista.
Framsóknarmenn hafa einir
flokka reynt að korna af stað
pólitísku moldviðri í sambandi
við kjör fulltrúa verkalýðsfélag
anna á Aiþýðusamhandslþingið.
Iðnverkafólk í Reykjavík, eins og
aðrir meðlimir verkalýðsfélaga,
munu svara þessari pólitísku árás
Framsóknarmanna ásamt komm-
únistum á verðugan hátt.
Iffjufólk er hvatt til þess aff
fjölmenna á kjörstaff og kjósa
snemma, en kooningunnj lýkur
klukkan 10.
Frambaltí á bÍB. 31.
Kosið í múrnraiélaginu í dog
Listi lýðræðissinna er A-listinn
FULLTRÚAKJÖR til ASÍ-þings í Múraraféiagi Reykjavíkur í skrif.
stofu félagsins í dag (sunnudag) kl. 1 e. h. til kl. 10 e. h.
í kjöri eru tveir listar, A-LÍSTI, borinn fram af stjórn og trún»
aðarmannaráffi og er þannig skipaður:
Affalfulltrúar: Eggert G. Þorsteinsson, Einar Jónsson, Hilmar
Guðlaugsson.
Varafulltrúar: Jón G. S. Jónsson, Kristján Haraldsson, Hilmar
• Guffjónsson.
B-listi er borinn fram af Bergsteini Jónssyni, Ragnarl Hansen
o. fl, fyrir hönd kommúnista, sem reynzt hafa öflugastir sundrung.
armenn í félaginu undanfarin ár.
Múrarar! Kjósiff snemma, fylkiff ykkur um A-LISTANN, og
hrindið árás kommúnista.
ASB kýs um helgina
ASB, félag afgreiffslustúlkna í brauff- og mjólkurbúðum, kýs þrjá
fulltrúa á Alþýffusambandsþing nú um helgina.
Tveir listar eru í kjöri, A- og B-listi. B-Iistinn er þannig
skipaður:
Aðalfulltrúar: Birgitta Guðmundsdóttir, Kleppsvegi 30, Guð-
björg Guðnadóttir, Mjólkursamsalan, Margrét Eiríks-
dóttir, Sandholt.
Varafuiltrúar: Jónína Þorkelsdóttir, Mjólkursamsalan, Martha
Stefánsdiittir, Bernhöftsbakarí, Halla Guðmundsdóttir,
Alþýðubrauðgerðin.
Kosið er í skrifstofu félagsins að Lindargötu 9. Kosið er frá
kl. 2—10 e h. í dag. Simx kosningaskrifstofu B-listans er 2-32-08.
Alþingi sett í gær
Aldursforseti, Ölafur Thors, minntist
forsetafrúarinnar við þingsetninguna
ALÞINGI, hið 85. í röðinni, var
sett í gær. Hófst athöfnin að
vanda með guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni. Prestur var séra Jón
Þorvarðarson.
Að lokinni guðsþjónustu var
fundur í Alþingishúsinu í Sam-
einuðu þingi. Tók forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, fyrstur
til máls. Las hann upp forseta-
bréf frá 25. september 1964 um,
að Alþingi skuli koma saman h.
10. október 1964. Að svo búnu
lýsti forseti yfir, að Alþingi væri
sett.
Síðan mælti forseti:
„Eg árna Alþingi allra heilla í
störfum, að það megi verða landi
og þjóð til trausts og halds, til
gæfu og gengis. Ég veit, að það
misvirðir enginn, að ég nota
þetta tækifæri til þess að þakka
innilega alla þá samúð og marg-
víslega hjálp, sem okkur hefur
verið sýnd og veitt á þessum örð-
ugu tímamótum í lífi mínu.
Ég þakka ríkisstjórn, ég þakka
Alþingi og ég þakka alþjóð. Ég
þakka kveðjur og minningargrein
ar og allt þetta sýnir, að konan
mín, Dóra Þórhallsdóttir, var
metin að verðleikum. Þetta verð-
ur okkur því meiri styrkur, sem
lengra líður frá.
Að svo mæitu hið ég þingmenn
um að rísa úr sætum og minnast
ættjarðarinnar“.
Þingmenn risu úr sætum og for
sætisráðherra, Bjarrvi Benedikts-
son, mælti: „Heill forseta vorum
og fósturjörð. Island lifi“.
Tóku þingmenn undir þau orð
með ferföldu húrrahrópi.
„Samkvæmt 1. gr. þingskapa
ber nú aldursforseta að stjórna
þingfundi, þar til kosning forseta
sameinaðs þings hefur getað farið
fram. Aldursforseti er nú Ólafur
Thors, 1. þingmaður Reykjanes-
kjördæmis, og bið ég hann um
að stjórna þingfundi og ganga til
forsetastóls".
Þá gekk Ólafur Thors til for-
setastóls og tók við stjórn þing-
fundar.
Minntist hann forsetafrúar,
Dóru Þórhallsdóttur, og mælti á
þessa leið:
„Herra forseti fslands.
Hæstvirt ríkisstjórn.
Fimmtudaginn 10. fyrra mán-
aðar andaðist hér í bæ forsetafrú
Dóra Þórhallsdóttir eftir skamma
sjúkdómslegu.
Frú Dóra var fædd í Reykjavík
hinn 23. febrúar 1893, yngst fjög-
urra barna hjónanna Þórhalls
biskups Bjarnarsonar og frú Val-
gerðar Jónsdóttur.
Frú Dóra óx upp í föðurgarðL
Hún varð snemma meginstoð
móður sinnar í langvarandi veik-
indum hennar og tók við öllum
búsforráðum á biskupsheimilinu
Framh. á bls. 2.
Gunnar Thoroddsen
Fjármálaráðherra ræðir
skattamál á Varðarfuitdi
FUNlýUR verður haldinn í
Landsmálafélaginu Verði næst-
komandi þriðjudagskvöld í Sjálf
stæðishúsinu, og hefst hann kl.
20.30.
Frummælandi á fundinum
verður Gunnar Thoroddsen, fjár
málaráðherra, og umræðuefni
er: SKATTAMÁLIN.
Kosið ■ lð|u í dac|
Listi lýðræðissinna er B-listinn
KOSNINGASKRIFSTOFA B-Iistans í Iðju er í Vonarstræti 4 (VR)
Skrifstofan er opin, meðan á kosningu stendur, frá kl. 10 f. h.
til kl. 10 e h. Kosið er aff Skipholti 19.
SÍMAR SKRIFSTOFUNNAR ERU: 23137 og 23147.
Sjálfboðaliffar, sem aðstoða vilja viff kosninguna eru beðnir aff
hafa samband viff skrifstofuna.
Ólafur Thors, aldursforseti Alþingis, í forsetastóli.
Ljósm. Mbl.: ÓI.K.M.
Ásgeir Ásgeirsson, forseti, setur Alþingl.