Morgunblaðið - 15.11.1964, Blaðsíða 1
32 s'íður og Lesbölt
■‘i
Frú Alice Blankenship
Walnut Rklge, er ekki í vand
ræðum með að þurrka þvott-^
inn sinn. Hún býr við enda •
flugvallar, en þar hafa farið
I fram miklir æfingaflutningar
| á hermönnum síðustu daga.
Hún hengir út þvottinn, og
lætur loftstrauminn frá skrúf
1 um vélanna þurrka hann. Frú-
i in segir að þetta sé fljótvirk-
I ara en nokkur sjáilfvirkur
þurrkari.
Kvöldberlingur birtir
„annan leynilista"
yfir handritin
konungssafni, sem safnað var að
skipun Friðriks III., svo og hand
rit úr yngra konungssafni, þ.e.a.s.
rit úr bókasafni sagnfræðingsins
P. E. Suhms, kammerherra, sém
konungur keypti 1776, og enn-
fremur rit úr safni Otto Thotts
greifa, sem fært var Konungs-
bókhlöðunni að gjöf 1785.
Blaðið hefur eftirfarandi upp-
lýsingar að flytja lesendum sín-
um um þessi atri'ði:
„Það lítur svo út, sem listinn
viðurkenni Codex Regius (Sæm-
undaneddu) og Flateyjarbók
sem handrit, sem eigi að verða
í Danmörku, en hinsvegar standi
skinnhandritið áf Njálssötgu til
boða til afhendingar. En þegar
kom til kasta lagafrumvarpsins
sjálfs er niðurstaðan þveröfug.
Flateyjarbók og Codex Regins
skyldu afhendast, þrátt fyrir að
þessi handrit falli utan ramma
laganna, en Njáls saga skyldi
verða í Danmörku.“
Segir hrossakaup hafa átt sér stað um
Konungsbók, Flateyjarbók og Njálssögu
BFRLINGSKE Aftenavis birtir
í dag það, sem blaðið nefnir
„Leynilista nr. 2“, þ.ea.s. lista
yfir þau handrit frá Konunglegu
bókhlöðunni, sem við fyrsta mat
voru talin falla innan ramma
lagafrumvarpsins 1961. Er hér
einkum um að ræða rit úr eldra
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn, 14. okt.:
IMýjar árásir á Kin-
verja i Rússlandi
Vopnahléið rofið eftir nær mánaðar þogn
Smærri ríki
Evrópu lialdi fund
Kaupmannahöfn, 14. nóv.
NTB
POUL Möller, talsmaður danska
íhaldsflo'kksins, hefur látið svo
ummælt, að nauðsyn veri tií að
Ihin smærri ríki Evrópu haldi með
sér fund hið bráðasta til þess að
eamræma stefnu sína í mark-
aðsmálum Evrópu. Möller segir
eð ísland, Finnland, Danmörk,
Noregur, Svíþjóð, Sviss og Aust-
urríki ættu að sitja slíkan fund.
Moskva og Peking, 14. nóv.
AP — NTB.
SOVÉTRÍKIN rufu í dag mán-
aðarhlé það, sem orðið hefur á
árásum á Kínverja, og réðust nú
hatramlega að þeim. Birtust árás
irnar í tímaritinu „Vandamál frið
ar og sósíalisma", aðeins degi eft
ir að Chou En-lai, forsætisráðh.
Kína, hafði haldið heimleiðis eft
ir átta daga viðræður í Moskvu.
Tímariti því, sem hér um ræð
ir, er ritstýrt af sovétvinum í
Prag í Tékkóslóvakíu, en það er
prentað á rússnesku í Moskvu.
Því var skilað tilbúnu til prent-
unar 24. okt. — eftir fall Krús-
Bandaríkjamenn og
V-Þjóðverjar semja
— um smíði flugvéla ofl;
Wasbington, 14. nóv.
RÁÐGERT var að í dag undir-
riíuðu Bandaríkjamenn og V-
Þjóðverjar þrjá samninga um
varnarmál og siglingai, að því
»r góðar heimildir hermdu i
morgun í Washington. Verða
Bamningarnir undirritaðir af
varnarmálaráðherrum beggja
landanna, Kai-Uwe von Hassel
®g Robert McNamara.
Samningagerð þessi markar
endi tveggja daga heimsóknar
von Hassel til Washi.^,.^.,, þar
eem hann hefur rætt við banda-
rísk stjórnarvöld.
Hermt var í Washington að
íyrsti samningurinn fjallaði um
samstarf um nauðsynlegar rann-
sóknír vegna byggingar sprengju
flugvólar, sem á að geta hafið
sig til flugs og len. lóðrétt. Ann-
Br samningur fjallar sam-
vinnu um framleiðslu miðunar-
teekja íyrir skip og hinn þriðji
um aS sérfræðingar frá Stan-
ford rannsóknastofnuninni í
Kaliforníu, sendi ráðgjafa til
Þýzkalands með það fyrir augum
að vinna að því að varnar,..'-' 'u-
leikar í Þýzkalandi verði nýttir
betur.
jeffs og „yopnahlé" hafði verið
gert til bráðabirgða milli Moskva
og Peking.
í ritinu, sem út kom í dag, eru
Handritin
norsk menn-
ingnreign?
Bergen, 14. nóv. — NTB
PRÓFESSOR dr. Ludvig)
Holm-Olsen, rektor háskólansl
í Bergen, hefur látið svo um»
mælt við blöð þar í borg, að|
hann telji, að norsk stjórnar-
völd eigi að hlutast til um aðl
er Danir afhendi íslendinguml
handritin verði viðeigandi til- ,
lit sýnt því, sem sé norsk'
menningareign. Rektorinn hef |
ur séð lista þann yfir handrit, I
sem til mála hefur komið að j
afhenda íslendingum, og hann ]
segir að nauðsynlegt sé, áðurl
en endanleg ákvörðun verður j
tek'in um afhendinguna, að |
meira tillit verði tekið til Nor-
egs, en gert er á þessum lista.'
Truman segir MacArthur
hafa verið eigingjarnan
New York, 14. nóv. — NTB:
HARRY S, TruBian, fyrrum
Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir
í sjónvarpi í gærkvöldi, að hinn
Iátni hershöfðingi Douglas Mac
Arthur hefði verið „eigingjarn
maður (egoisti), sem trúði því
að hann væri sjálfur nauðsyn-
legur svo Bandaríkin mættu lifa.
Hann virðist hafa verið þeirrar
slcoðunar, að án hans mundi land
ið fara í kaIdakol“, sagði Tru-
man.
Sjónvarpsþátturinn fjallaði um
atburði þá, er Truman setti Mac
Arthur af sem yfirmann herja
V esturveldanna í Kóreustyrj-
öldinni 1951. Truman sagði að
höfuðorsökin fyrir missætti
þeirra MacArthurs hafi verið sú,
að hershöfðinginn hefði krafizt
þess, að flugvélar yrðu sendar
yfir Yalu-ána og látnar kasta
sprengjum á Kína. Þá sagði Tru
man að MacArthur hafi verið
Framhald á bis. 2
greinar þar sem Kínverjar eru
gagnrýndir harðlega af kommún
istaleiðtogunum Luigi Longo,
Ítalíu, Tim Buck, Kanada; Santi
ago Karrilo, Spáni og H. Ahikari,
Indlandi.
í tímaritinu er einnig viðbót,
þar sem Jihn D. Bernal, forseti
Heimsfriðarráðsins, ræðst harka
lega á Kínverja fyrir kjarnorku-
sprengjutilraun þeirra fyrr í
haust.
Chou En-lai, forsætisráðherra
Kína, kom heim úr Moskvuferð
sinni í morgun. Á flugvellinum
í Peking var Mao Tse-Tung, leið
togi kínverskra kommúnista,
meðal þeirra, sem tóku á móti
honum.
„Það sem gerðist í þessu máli,
var að á síðustu stundu fór fram
hrossakaup um Njálssögu annars
vegar og Codex Regius hins veg-
ar, fyrir tilstilli ráðherra, og
samningamenn íslands lýstu því
jafnframt yfir, að málið væri
komið í strand, ef Flateyjarbók
fylgdi ekki líka með í kaupun-
um. Þetta gerðist eftir átakan-
legan ráðherrafund, þar sem þá-
verandi forsætisráðherra, Viggo
Kampmann, tók ákvörðun."
Berlingske Aftenavis segir að á
lista þessum séu 60 verk úr
gamla konungssafninu. Þau, sem
þá hafi verið gert ráð fyrir að
yrðu áfram í Danmörku, hafi
verið: Runologia Jóns Ólafsson-
ar, Þiðriks saga, Flateyjarbók,
Framhald á bls. 2
Fallbyssubátur ræðst
á dýpkunarskip
— skaut að því mörgum skotum á alþjóða
siglingaleið, en ílúði síðan inn 1 a-þýzka
landhelgi
Lubeckv, V-Þýzkalandi,
14. nóvember — NTB: —
AUSTUR-ÞÝZKUR fallbyssubát
ur réðist í gær að 3.000 tonna v-
þýzku dýpkunarskipi á alþjóða
siglingaleið út af Lúbeck og
skaut mörgum skotum fyrir
framan stefni skpisins, að því
er hafnarlögreglan í Lúbeck
sagði í dag. A-þýzka árásarskip
ið forðaði sér síðan inn í a-þýzka
landhelgi er skip frá v-þýzkum
tollyfirvöldum og strandvarna-
liðinu komu á vettvang.
Skipstjórinn á dýpkunarsipp-
inu, Ernst Fuhrmann, segir að
hann hafi klallað á aðstoð um
talstöð skipsins er a-þýzki fall-
byssubáturinn sigldi þvert í veg
fyrir dýpkunarskipið. Lagði þá
v-þýzkur tollbátur þegar af stað
frá Travemunde, skammt frá
Lubeck, og skip frá strand-
gæzlunni v-þýzku, hraðaði sér
einnig á staðinn. Er skipin komu
svo nærri, að til dýpkunarskips-
ins og fallbyssubátsins sást, var
fallbyssubáturinn aðeins 20 . m.
frá því fyrrnefnda, en er hann
varð skipanna var, flúði hann
inn í a-þýzka landhelgi.
Yfirvöld í V-Þýzkalandi segja,
að dýpkunarskipið, sem heitir
„Otto Prúss“ h<afi allan tímann
yerið á alþjóða siglingaleið til
Lúbeck. Telja yfirvöldin engan
vafa leika á því, að fallbyssubát
urinn hafi ætlað að hertaka „Otto
Prúss“.