Morgunblaðið - 15.11.1964, Qupperneq 5
Sunnudagur 15. nóv. 1964
MORGUNBLAÐIV
Öll skilyrði hér til myndvefnaðar
„Við eigum allt hér á landi
til að skapa listvefnað. Við
eigum stórbrotna sögu, stór-
brotið land og við eigum ull-
arfogið, sem er bezta efnið
í myndvefnað, sem ég þekki.
En við erum að týna listinni
að draga tog, og þá erum við
iila á vegi stödd.“
Vigdís Kristjánsdóttir, sem
sýnir um þessar mundir í
gfugga Mbl. maolir þessi orð
við blaðamann Mbl., þegar
hann heimisótti hana í vinnu-
stofunn uppi á lofti í Austur-
bæjarskólanum. Vinnustofan
er sérkennilega búin ýmsum
munum og húsgögnum, en
mest ber þó á gríðarlega stór-
um vefstól, sem Vigdís fékk
í Noregi. Vefurinn í houum
er ZVn meter á breidd.
„Já, þetta er satt, með tog-
ið okkar“, bpldur Vigdis á-
fram. „Núna eru á landinu
aðeins örfáar gamlar konur,
sem kunna þá list að draga
tog. Síðasta sendingin, sem
ég fékk, var unnin af Kristj-
önu Hjaltalín í .Bxukey á
Bredðafirði, og Kristjana varð
niræð í haust.
Togið og þessi list að draga
það með sérstökum kSrnb-
um, er áireiðanlega þjóðlegt
og rammisfenzkt. Þetta tog er
það langbezta, sem hægt er
að fá til myndvefnaðar. Norð-
menn eiga t.d. ekki jafn gott
tog. Og kunna ekki að draga
tog á þenna hátt. En listin að
draga togið er að deyja út.
Þetta er islenzkur þjóðarauð-
ur, og honum verður að
bjarga. f>að þurfa að rísa upp
nokkrar íslenzkar valkyrjur,
ungar konur, læra þetta og
bj arga þar með þessari list
frá glötun.
Vigdís við vefstólinn stóra.
Og svo er amnað, 9em mig
langar til að geta um. Ég vil
að beztu listamemm þjóðar-
innar taki höndum saman um
að gera fyrirmyndir fyrir
myndvefnað. Þetta verður að
gerast, ef hér á að skapast
my ndv efna ðarstí 11. Það á að
bjóða út verkin, og hér þarf
að starfrækja „atelier“, vinnu
stofur fyrir myndvefnað, þax
sem hægt er að vinma stór,
sögu’.eg teppi, en slíkt er
geysilega mikil vinna og
krefst mikillar natni og þol-
inmæði.
MyndstíLI Gunnlaugs Schev
ings er alveg sérstaklega vel
fallinn til myndveínaðar,
bæði myndir hans frá land-
búnaði oig sjávarútvegi. Þetta
eru svo hreinir og skærir
fletir. Alveg kjörinn stíll til
myndvefnaðar, og m.a.s.
Frakkar myndu gleypa við
hoinum, og kalla þeir þó
ekki allt ömmu sína í þéssum
efnum. Má í því sambamdi
minna á Góbelínvefnað þeirra
sem heimsfrægur er, og marg
ir ferðast um hálfan hnöttinn
í einskpnar pílagrímsferð, til
að sjá. Ég hef séð í Frakk-
landi ofin teppi eftir fyrir-
myndum Cromers, Picasso og
Matisse, og þetta eru áreið-
anlega ekki úrelt nöfn. Þetta
er gert með samþykki þeirra,
og stundum gera þeir fyrir-
myndir fyrir vefnað eftir
pöntunum.
Ég myndi telja Nbreg ’and
myndvefnaðarins á Norður-
löndum og nægir þar að
minna á hin stóru teppi í
ráðhúsimu í Os!ó. Meistarinn,
sem þar um fjallaði, Jons-
borg, var kennari minn.“
Með þetta kvöddum við Vig
dísi, en hún lofaði að segja
okkur seinna frá jurtalium á
bandi til vefmaðar, sem hún
notar í hinn fallega mynd-
vefnað sinn. Fr. S.
Fiskar í undirdjúpum
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla fór 10. l>m. frá Cambellton í
Kanada áleiðis til Piraeus. Askja kom
til Leningrad í gær frá London.
Hafskip h.f.: Laxá fór frá Hull 13.
|>m. til Rvíkur. Rangá er í Gdynia.
Selá fór frá Seyðisfirði í gær til Hull
og Hamtoorgar. Urkersingel fór frá
Raufarhöfn í gær til Adrossan. Furs-
und fór frá Seyðisfirði 11. þ.m. til
Hull. Etly Danielsen er á Norðfirði.
Spurven fór væntanlega frá F/eyðar-
firði í gær til Turku.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug
Skýfaxi kemur frá Khöfn og Glasgow
kl. 16:05 (DC-6B) í dag. Sólfaxi fer
til Glasgow og K.hafnar kl. 03:00 á
morgun. Vélin kemur aftur til Rvíkur
kl. 16:05 á þriðjudaginn. Innanlands-
flug: í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar og Vestmannaeyja. Á morg
un er áætláð að fljúga til Akureyrar
Vestmannaeyja, Hornafjarðar, ísafjarð
*r og Egilsstaða.;
H.f. Jöklar: Drangajökull kom til
Riga 13. þm. o>g fer þaðan til Helsing-
fors. Hofisjökull fór í gærkvöldi til
GrimBiby, Finnlands og Russlands.
Langjökull kom í gær til NY og fer
þaðan til Le Havre og Rotterdam.
Vatnajökull fór í fyrrakvöld frá Vest
naannaeyjuim tU Dublin, Livérpool,
Avenmouth, London og Rotterdam.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell er í
Brest fer* þaðan væntanlega 18. til
Rvíkur. Jökulfell lestar á Vestfjörðum
er væntanlegur til Faxaflóahafna á
morgur. Dísarfell fer væntanlega í
dag frá Stettin til Raufa/hafnar. Litla
fell er væntanlegt til Rvíkur í dag.
Helgafell er væntanlegt til Riga í dag.
Hamrafell fer væntanlega á morgun
frá Batumi til íslands. Stapafell fer
í dag frá Raufarhöfn til Frederikstad.
Mælifell fór 13. frá Torrevieja til
Rvikur.
Eimskipafélag íslands h.f.: Bakka-
foss fór frá Rönne 13. 11. til Kotka og
Gdynia. og Rvíkur. Brúarfoss fór frá
Rotterdam 13. 11. til Hamborgar, Hull
og Rvíkur. Deftifoss fór frá Dublin 14.
11. til NY. Fjallfoss fór frá NY 6. 11.
væntanlegur til Rvíkur um kl. 15:00
í dag 15. 11. Goðafoss fer frá Hull 17.
11. til Rvíkur. Gullfoss fór frá Leith
13. 11. væntanlegur til Rvíkur í kvöld
15. 11. kemur að bryggju um mið-
nætti. Lagarfoss fer frá Siglufirði 14.
11. til Húsavíkur í»órshafnar, Aust-
fjarðahafna, Vestmannáeyja og Kefla
víkur. Mánafoss fer frá Kristiansand
15. 1J. til Rvíkur. Reykjafoss fór frá
Siglufirði 11. 11. tU Lysekil og Gauta-
borgar. Selfoss fór frá NY 12. 11. til
Rvíkur. Tungufoss fór frá ísafirði 14.
11. til SkagastrandaF* Siglufjarðar,
Akureyrar, Reykjavikur og Djúpavogs
og. þaðan til Antwerpen og Rotterdam.
Utan skrifstofutíma eru skipafréttir
lesnar í sjálfvirkum simsvara 2=-14-66.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á |
Austfjörðum á suðurleið. Esja fór frá
Rvík í gær vestur um land til Akur-
eyrar. Herjólfur er í Rvík. Þyrill fór j
frá Fredrikstad 14. þm. áleiðis til
íslands. Skjaldbreið er í Rvík. Herðu- I
breið er væntanleg til Rvíkur í dag
að vestan úr hringferð.
Sunnudagaskólar
Sunnudagaskólar K.F.U.M. og I
K. eru á sunnudög'um í húsum
félaganna í Reykjavík og Hafnar
firði. Hefjast kl. 10:30 og eru öll
börn hjartanlega velkomin.
Minnistexti: Minnst þú Jesú
Krists, hans, sem reis upp frá
dauðum. (2. Tímóteus 2,8).
Fíladelfía
Hátún 2, Hverfisgata 44, R. Hverfis- j
gata 8, Hf. Allstaðar kl. 10:30.
Sunnudagsskrítlan
Un.gu hjónin voru á veiðiferð í
Afríku. Dag nokkurn. þegar mað-
urinn var einmitt að komast í |
skotfæri við fallega antilópu,
heyr'ði hann ógurleg hljóð fyrir
aftan sig.
— Kondu fljótt! hrópa'ði konan
í ofboði. Mamma hefur rekizt á
ljón, þú verður að hjálpa..
— Hjálpa hvað, heldurðu að
svona stórt ljón klári sig ekki.
Dansleikur
verður haldinn sunnudaginn 15. nóv. kL 21.
á vegum Loftskeytaskólans í Tjarnacafé. ^
Góð hljómsveit — Góð skemmtun.
NEFNDIN.
ISnfyrirtœki
vantar mann við akstur og afgreiðslustörf. — Til-
boð merkt: „9533" sendist afgr. Mbl. fyrir 17. þ.m.
Síldorsöltun - utgerðnrmenn
Fyrir næsta sumar mun verða bygvð ný síldarsölt-
unarstöð á góðum stað á Austfjörðum. —
Útgerðarmönnum mun verða gefinn kostur á að
gerast hluthafar í stöðinni. Þeir, sem hafa áhuga
tilkynni það á afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld
17. nóyember, merkt: „Síldarsöltunarstöð — 9496“.
Til leigu
Þrjár stórar, glæsilegar stofur, ásamt stórri innri
forstofu í miðborginni. — Stærðin er ca. 65 ferm.
Húsnæðið er sérlega hentugt. Þeir sem vildu kynna
sér málið nánar sendi vinsamlegast tilboð í póst-
hólf 583 fyrir nk. þriðjudagskvöld.
Bazar
kvenfélagsins HEIMAEY verður í Góðtemplara-
húsinu á morgun, mánudag kl. 2.
Mikið af góðum, ódýrum munum.
Kvenfélagið HEIMAEY.
Afgreiðslumaður
óskast í varahlutaverzlun vora.
Upplýsingar hjá verzluriarstjóranum.
Bifreiðar og landbúnaðarvélar h.f.
Suðurlandsbraut 14. — Sími 19345.
Frámtíðarstarf óskast
Maður á bezta aldri, með staðgóða reynslu í starf-
stjórn og rekstri, óskar eftir fastri stöðu. — Tungu
málakunnátta og erlend viðskiptareynsla fyrir
hendi. — Reglusemi. Fjárframlag kæmi til greina.
Tilboð er greini starfssvið og hugsanleg laun sendist
í fullum trúnaði til afgr. Mbl., merkt: „Ábyggi-
legur — 9407“.
Lóð við miðborgina
Höfum verið beðnir að útvega góða lóð nálægt mið-
borginni fyrir stórt félagasamband. Lóðin má vera
byggð. Vinsamlegast hafið samband við okkur sem
fyrst.
FASTEIGNA- og LÖGFRÆÐISTOFAN
Laugavegi 28B — Sími 19455.
GÍSLI THEODÓRSSON. — Heimasími 18832.
Merkjasöludagur
Styrkfarfélags vangefirma
er næstkomandi sunnudag, 15. nóvember.
Barnaskólabörn eru hvött til þess að aðstoða við
merkjasöluna og mæta kl. 10 f.h. í barnaskólunum.
Sölulaun eru ein króna fyrir merkið.
Styrktarfélag vangefihna.