Morgunblaðið - 15.11.1964, Side 31

Morgunblaðið - 15.11.1964, Side 31
Sunnudagur 15. nóv. 1964 MORClí N BLAÐIB 31 Óperettan Sardasfurstinnan hefur nú verið sýnd 22 sinnum í Þjóð leikliúsinu. Sýningar hófi.st aftur á óperettunni fyrir nokkru og hefur aðsókn verið ágæt. Næsta sýning verður á sunnudag. Myndin er af Lárusi Pálssyni og Guðbjörgu Þorbjarnardóttur i hlutverkum sínum. Komust ekkl í land á Surtsey VARÐSKIPIÐ Þór fór sl. fimmtu dag með þá Guðmund Kjartans- son, jarðfræðing, og Þorleif Ein- arsson, jarðfræðing, ásamt 3 að- stoðarmönnum þeirra í átt til Surtseyjar, þar sem þeir ætluðu zJ'J ganga á land í gær. Vísindamennirnir fóru í gær- dag frá Þór og um borð í Ægi, sem flutti þá til Surtseyjar, en þegar þangað var komið var ó- lendandi vegna veðurs. Ætlunin er að vísindamennirn ir reyni landgöngu í Surtsey í dag ef veður leyfir. Málverkasýning á Akranesi Akranesi, 14. nóv.: — H'REINN Elíasson opnar mynd- listarsýningu í dag kl. 16 í vinnu stofu sinni, Víðigerði 3 hér á Akranesi. Sýniningin stendur ýf ir í hálfan mánuð. Á síðustu sýningu Hreins mál- ara, keypti bæjarstjórn Akra- ness eitt af verkum hans á 35 þúsund krónur, og var það mos- aik-mynd, sem ber nafnið: Sjó- menn að draga þorskanet á hafi új;i. Myndin var keypt sem vísir að listasafni fyrir Akranesbæ. — Oddur. Fyrsta bókauppboð vetrarins Uppboðsgestlr. A myndllnnl sé st meðal annars, hvar Jakob Th orarensen, skáld, fær sér í nefið, i hita leiksins. EYRSTA bókauppboðið á þess- um vetri hélt Sigurður Benedikts son í Þjóðleikhúskjallaranum á föstudag. Mættir voru til leiks flestir þeir bókasafnarar, sem alltaf koma á uppboð, bæði til að kaupa og fylgjast með verð- lagi bóka. Andinn á bókauppboð um er mjög ólíkur því, sem ger- ist á listmunauppboðunum. Bóka uppboðin eru eins og klúbbfund- ir, þar sem saman sitja menn með ólík áhugamál, en hver hef- ur sinna hagsmuna að gæta. Allt fer fram í nokkrum gamantón, þótt öllum sé fúlasta alvara um bókakaupin. „Jæja, strákar mínir“, svona eetti Sigurður uppboðið. „Verið þið velkomnir. Við skulum reyna að láta þetta ganga greitt, því að númerin eru svo mörg, 120 alls“. Boðin gengu greitt, eins og Sigurður hafði mælzt til. Fyrstu bækurnar voru fremur ódýrar og ýfirboðin oft aðeins 25 krónur í einu. Flestar bækurnar voru heil ar og óskemmdar, þótt þær væru komnar til ára sinna. Hins vegar vantaði nokkrar síður eða titil- blað á nokkrar þeirra og var þá óspart beint íyrirspurnum um gallana til Sigurðar. Þegar Sigurður ætlaði að bjóða upp númer 48, Rímur af Gústaf Adólf, sem á vantaði titiiblaðið, var sagt með þrumuraust í saln- um: „Þetta er ekki það, sem þú segir, heldur úr Fróðlegu ljóða- safni. „Nú er það ekki ágætt líka?“ svaraði Sigurður. Var bók in síðan seld. Þegar tekið var að selja dýr- ari bækurnar, óx mjög hiti leiks- ins. Gengu boðin þá ekki á öðru en hundruðum. Vakti það geysi- lega kátínu, er Sigurður hvatti menn til dáða og hrópaði: „Ekki stoppa“, þegar boðin hættu snögg lega, er þau höfðu gengið eins og á færibandi um hríð. Virtist svo sem mönnum yrði stundum svo hverft við, að þeir byðu óvilj andi aftur. Margir fágætar 'bækur voru seldar á uppboði þessu, en eng- in stór ritsöfn. Dýrast voru seld- ir Annálar Björns á Skarðsá, — prentaðir í Hrappsey árið 1774, á kr. 8,200,00. Næst kom íslands kortlægning, útgefin af Munks- gaard árið 1944, en hún var seld á 5,500 krónur. Öllum vandamönnum, starfsfélögum og vinum, Verk- stjórafélagi Reykjavikur og Verkstjórasambandi íslands, þakka ég innilega fyrir heillaskeyti, miklar gjafir og allan vináttuvott er mér var sýndur í tilefni af 65 ára afmæli mínu 9. þ.m. — Méð virðingu og þökk óska ég ykkur gæfu og gengis um alla framtíð. Björn E. Jónsson. Alýkomnir 6M varahlutir Í Morris fixford ‘55 Stimpilhringir Legur Knastásar Ventlar V entlastýringar Rockerarmar Tímahjól Tímakeðjur Ventlagormar Olíudælur Bremsudælur og sett í þær Demparar Slitgúmmí Stýrisendar Bretti Krómlistar Þéttikantar Húnar Læsingar Framrúður Stuðarar Stuðarahom og margt fleira fyrir aðrar gerðir bifreiða Ljósasamlokur 12 v. Vindlakveikjarar 12 v. Speglar Öskubakkar Loftdælur Loftmælar AVOK Hjólbarðar fyrir flestar tegundir bifreiða Ennfremur hvítir dekkjahringir 10”, 12” og 13” í Morris 1100 og MlfJ Minor 850 Púströr Púströrsfestingar Barkar allir Blöndungar Kveikjur Platínur Þéttar Hamrar Kveikjulok Vatnshosur Vatnslásar Loftsíur Olíusíur Kúplingsdiskar Bremsudælur og sett í þær Hjöruliðir Öxlar Ljósarofar Boddyfestingar Hurðir Bretti Húnar Lamir Rúður Þéttikantar Viftureimar Kerti Aurhlífar og margt fleira. I Morris Minor 1000 Blöndungar Platínur Þéttar Hamrar Kerti Kveikjulok Bremsdælur og sett í þær Bremsuborðar Handbremsubarkar Startpuugar Fjaðrir Detnparar Felgur Gler í luktir Bretti V atnskassahlíf ar Stýrisendar og fleira bifreiðadeild, Suðurlandsbraut 6. — Sími 22235. Jarðarför móður okkar og tengdamóður LEOPOLDÍNU HALLDÓRSDÓTTUR EIRÍKS fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 16. þ. m. kL 2 eftir hádegi. Anna Eiríks, Þorhjörg Trvggvadóttir, ívar Daníelsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.