Morgunblaðið - 04.12.1964, Side 26
26
MQRGU NBLAÐIÐ
i
Föstudagur 4. des. 1964
Agnar
Anton
Birgi
Guðmundur
Hólmsteinn
Sigurkarl
Skúli
Xómas
Viðar
Þorsteinn
Ungir en vaskir
í Evrópukeppni
ISLANDSMEISTARAR ÍR í
körfuknattleik mæta á morgun
írlandsmeisturunum Collegian
Basketball Club, í íþróttahúsinu
á Keflavíkurflugvelli. — Leikur
þessi er liður I Evrópukeppni
meistaraliða í körfuknattleik. —
Leikur þessi er fyrsti stórleikur-
inn í körfuknattleik sem íslend-
ingum gefst kostur á að sjá hér á
heimavelli. Fremur fátt er vitað
um styrk íranna utan það er rak-
ið var hér í blaðinu sl. þriðjudag,
og var það byggt á upplýsingum
sem sendar voru hingað til lands-
ins frá írska liðinu sjálfu. Lið
Íslandsmeistaranna ÍR er öllum
körfuknattleiksunnendum vel
kunnugt. Það hefur orðið ís-
lands- og Reykjavikurmeistari
nær óslitið undanfarin ár og bor-
ið höfuð og herðar yfir önnur ís-
lenzk lið. 1 liðinu eru margir
beztu og þekktustu leikmenn
landsins og skærustu stjörnur
landsliðsins undanfarin ár. Liðið
er mjög ungt að árum, meðal-
aldur liðsmanna er aðeins tæp
20 ár, sá elzti 26 ára og þrir eru
yngstir 16 ára.
Liðið er þannig skipað:
Nr. 4, Birgir Jakobsson, 16 ára,
hæð 192 cm. Birgir hóf að iðka
körfuknattleik 10 ára gamall, og
hefur á síðustu tveim árum tekið
geysilegum framförum og er nú
í hópi okkar allra efnilegustu
yngri körfuknattleiksmanna. —
Hann lék í fyrsta sinn með meist-
araflokki sí. vetur og var í haust
vaiinn í úrvalslið Reykjavíkur og
úrvalslið unglinga. Hann hefur
gott stökkskot og nær mörgum
fráskotum.
Nr. 5, Guðmundur Þorsteinsson,
22 árá, hæð 2 metrar. Guðmundur
hefur um árabil verið ein skær-
asta stjarna ÍR-liðsins og lands-
liðsins. Hann hóf að leika með
meistaraflokki ÍR árið 1959, þá
aðeins 16 ára. Hefur síðan leikið
með flestum eða öllum úrvals-
liðum og leikið 6 landsleiki.
Hann missti af síðasta Polar Cup
í Helsinki vegna veikinda en er
nú kominn til fullrar heilsu aft-
ur og verður liðinu væntanlega
mikill styrkur á morgun. Aðal-
styrkleiki Guðmundar er hæfni
hans undir körfunni. jafnt við
að skora stig og h- a fráköst.
Hefur hann jafnan verið meðal
stigahæstu manna í öllum mót-
um. Beztu skot hans eru stökk-
skot af stuttu færi og blakskot.
Nr. 6, Agnar Friðriksson, 19
ára, hæð 188 cm. Agnar hefur
leikið 4 landsleiki fullorðinna og
4 unglingalandsleiki. Stærsti
leikur hans var gegn Luxemburg
í Evrópukeppni unglinga í París
haustið 1963; þar skoraði hann
yfir 20 stig og var álitinn bezti
maður vallarins. Agnar hefur
mjög gott stökkskot af löngu
færi, sem erfitt er að verjast,
eínnig nær hann miklu af frá-
köstum.
Nr. 7, Skúli Jóhannsson, 16
ára, hæð 184 cm. Skúli er einn
af hinum mörgu efnilegu ungu
mönnum félagsins. Hann hefur
ekki leikið áður með meistara-
flokki, en átt góða ieiki bæði með
I. og II. flokki félagsins. Skúli
er skytta góð og nær miklu af
fráköstum.
Nr. 8, Sigurkarl Stefánsson, 17
ára, hæð 176 cm. Sigurkarl er
nýliði í liðinu og hefur leikið áð-
ur með 2. flokki. Hann hóf að
iðka körfuknattleik fyrir u. þ. b.
tveimur árum, svo sýnt er að
hann hefur ekki náð fullum
þroska ennþá.
Nr. 9, Anton Björnsson, 17 ára,
189 cm. Anton er einn allra efni-
legasti leikmaður ÍR-inga, hann
ÍSLENDINGAR eru meðal fárra
handknattleiksþjóða, sem geta
státað af sigri yfir landsliði Svía
í. handknattleik á síðari árum.
Mörg landslið hafa reynt að ná
slíkum árangri en örfáum tekizt.
En það bar tU tíðinda nú í vik-
unni að Frakkar bættust í hóp
þeirra þjóða, sem tekizt hefur,
þeir unnu Svía í landsleik, sem
fram fór í Mulhouse í Frakk-
Iandi með 19:12.
Leikurinn var lokfeleikur í
keppnisför sænska landsliðsins
til 3 landa. Förin var ekki glæsi
leg fyrir Svía. Þeir unnu Sviss-
lendinga og Hollendinga með 3
marka mun, en töpuðu fyrir
Frökkum með 7 markamun. —
Þetta er í fjórða sinn, sem Frakk
ar og Svíar leika landsleik í hand
knattleik. Svíar unnu fyrri leik
ina 18:9, 15:11 og 14:11. En núna
var enginn vafi á hvor var betri
aðilinn. Svíar höfðu einu sinni
forystu í leiknum 3:2. 1 hálfleik
stóð 9:4 fyrir Frakka. Mörk Svía
skoruðu Rolf Almqvist 3, Gösta
Carlson 3, Jarlenius 2, Kjell
Jönsson 2, Bárd og Arkevall sitt
hvor.
Frakkar hafa verið í mikilli
framför (þeir unnu t.d. Spán-
verja 16:8) i vor en töpuðu fyrir
þeim í fyrrahaust). En greinilegt
er einnig að Svíar eru með lak-
Heimsmet
ÁSTRALÍUMAÐURINN Ron
Clark setti í gær heimsmet í 3
mílna hlaupi (4827 metrar) á
13.7, 2 mín. á Olympíuleikvangin
um í Melbourne. Eldra metið
átti Halberg N-Sjálandi og var
það 2,4 sek. lakara.
ÍR-ingar
hefur leikið 3 landsleiki fullorð-
inna og 4 unglinga-landsleiki.
Hann er mjög fjölhæfur leikmað-
ur, byggir upp spil, skytta góð,
nær mörgum fráköstum og harð-
ur í vörn. Hann er einnig mjög
hæfur í öðrum íþróttum, jafnt
handknattleik sem knattspyrnu.
Nr. 10, Viðar Ólafsson, 18 ára,
hæð 185 cm. Viðar hefur leikið
4 unglingalandsleiki og einnig
var hann valinn í landslið full-
orðinna fyrir Polar Cup í Hels-
inki í marz sl., en vegna veik-
inda komst hann ekki þá ferð.
Viðar er mjög rólegur leikmað-
ur og eiga andstæðingar hans oft
erfitt með að átta sig á hversu
Nr. 11, Haukur Hannesson, 26
ára, hæð 179 cm. Haukur er ald-
ursforseti liðsins, þótt ekki sé
hann ýkja gamall. Hann er
traustur leikmaður, fljótur og á-
gæt skytta. Hann hefur leikið
fjóra landsleiki fullorðinna, og
leikið með meistaraflokki félags-
ins frá 1958.
Nr. 12, Þorsteinn Hallgrímsson,
asta móti um þessar mundir —
vaxa nú sigurvonir Fram, sem
mæta á sænsku meisturunum í
22 ára, hæð 183 cm. Þorsteinn
hefur um árabil borið af öðrum
íslenzkum körfuknattleiksmönn-
um. í Pola Cup í marz sl. var
hann kjörinn bezti leikmaður ís-
lenzka liðsins, og vinsælasti leik-
maður keppninnar. Finnsku blöð-
in sögðu hann jafnvel vera meðal
beztu leiknianna í Evrópu. Hann
varð í þeirri keppni langstiga-
hæstur allra með 77 stig í þrem-
ur leikjum, sem er frábært af-
rek. Þorsteinn hefur leikið alla
landsleiki íslands, tíu að tölu, og
var aðeins sextán ára þegar hann
lék fyrst með landsliðinu. Fyrir-
liði landsliðsins hefur hann verið
frá upphafi, nema fyrsta leikinn.
Hann er mjög alhliða leikmaður,
byggir upp sókn, skytta mjög
góð, nær miklu af fráköstum, og
snjall í vörn — og þykir þetta
nokkuð gott af manni ekki hærri
í loftinu en hann er.
Nr. 13, Tómas Zoéga, 18 ára,
hæð 183 cm. Tómas hefur leikið
4 unglingalandsleiki. Hann hefur
verið fastur leikmaður í meist-
araflokki ÍR um nokkurt skeið
og er hittni af löngu færi hans
sterkasta hlið.
Nr. 14, Hólmsteinn Sigurðsson,
25 ára, hæð 191 cm. Hólmsteinn
er næst reyndasti maður liðsins
Gautaborg á þriðjudaginn kem-
ur í 1. umferð Evrópukeppninn-
hvað landsleiki snertir, hefur
leikið alla landsleiki íslands ut-
an þann fyrsta. Hann héfur verið
fastur leikmaður í meistaraflokki
ÍR síðan 1958 og einn traustasti
maður liðsins. Hólmsteinn hefur
einnig verið valinn í nær öll úr«
valslið og tilraunalanðslið síðan
árið 1960. Hann er ekki áberandi
leikmaður á velli, en reynist
þeim mun drýgri. Hann er manna
lagnastur að nota stöðuna undir
körfunni og aðhlaup í hraðupp-
hlaupum bregðast honum mjög
sjaldan.
Nr. 15, Jón Jónasson, 16 ára,
hæð 184 cm. Jón var varamaður
í unglingalandsliðinu í Paría
haustið 1963, síðan hefur hann
tekið stórstígum framförum og
var í haust valinn í Reykjavíkur-
úrval og unglingaúrval, og nii
síðast í landslið karla, sem fer til
Bandaríkjanna síðar I þessum
mánuði. Jón er góð skytta á stökk
skotum og hirðir mörg fráköst,
hann er fljótur og erfiður leik-
maður að dekka.
M0LAR
Johnson forseti Bandaríkj-
anna hafði matarboð í Hvita
húsinu fyrir þá Bandarikja-
menn er unnu verðlaun í
Tokíó á þriðjudag. Við það
tækifæri sagði hann m.a.
„Japanir eru listamenn í gest-
risni og að þessu sinnl (Ol-
leikjunum) gerðu þeir þó bet
ur en orð fer af þeim fyrir“.
ar.
Heimsmeistarinn sýnir
badminton hér í kvöld
í KVÖLD sýna hinir heims-
kunnu dönsku badmintonmenn
sem TBR býður hingað til að
gefa ísl. badmintonunnendum
kost á að sjá badminton leik
eins og hann gerist beztur í
heiminum. Sýningarleikur
Dananna verður í Valshúsinu
kl. 8:30 í kvöld og einnig sýna
þeir á saina stað kl. 3 á laug
ardag.
Danir eru tvímælalaust
beztu badmintonleikarar Ev-
rópu og standa á sporði þeim
beztu í heiminum — og eiga
þann mánn, sem talinn er
heimsmeistari í einliðaleik.
Heimsmeistarakeppni í bad-
minton fer fram milli liðs-
hópa frá þátttökuþjóðunum og
er ekki keppt í einliðaleik. En
enska meistarakeppnin, sem
opin er öllum og sótt af beztu
mönnum hvaðanæva að úr
heiminum er skoðuð sem
heimsmeistarakeppni og í ein
liðaleik þar hefur Erland
Kops sigrað 5 sinnum eða oft
ar en nokkur annar. Hann hef
ur 20 sinnum verið í landsliði
Erland Fops
Dana. Síðasta heimsmeistara
keppni fór fram í Tokíó í maí
sl. Þar komust Danir og Indó
nesar í úrslit og áttu úrslit 9
leikja að ráða hvort landið
hlyti heimsmeistaratign. Eftir
8 leiki var staðan jöfn, báðir
höfðu unnið 4. í úrslitaleikn
um tefldu Danir fram Erland
Kops og Henning Boreh — en
þeir koma báðir hingað. Danir -
unnu fyrstu lotu 15:12. í 2.
lotu tóku áhorfendur að erta
þá með stanzlausum ljósglömp
um frá myndavélum og með
því að veifa hundruðum
flagga. Kvað svo ramt að
þessu að dómarinn stöðvaði
leikinn og kalla varð lögreglu
til að stilla til friðar. Ráðist
var á blaðaljósmyndara, sem
hugðist ljósmynda skrílslæt-
in. Leiktöfin varð 20 mínútur.
En ólætin höfðu haft sín á-
hrif. Danirnir töpuðu 2. lotu
með litlum mun og úxslita-
lotu með miklum mun. Indó-
nesar héldu því heimsmeist-
aratigninni með 5 sigrum
gegn 4 í úrslitabaráttunni.
Það eru þessir menn, sem
hundruðum badmintoniðk-
enda gefst kostur á að sjá í
dag og á morgun og á TBR
þakkir skildar fyrir að bjóða
slíkum mönnum heim.
Frakkar unnu Svía 19:12