Morgunblaðið - 04.12.1964, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.12.1964, Blaðsíða 27
I- Föstudagur 4. des. 1964 27 MORGUNBLAÐIÐ Tæpar 16 millj. kr. í einum drætti A FIMMTUDAGINN kemur, þ. 10. des., verður dregið í 12. flokki Happdrœttis Háskóla íslands. — Dregnir verða samtals 6.300 vinn ingar að fjárhæð 15.780.000 kr. Er þetta hæsta f járhæð, sem dreg in hefur verið út í einum drætti á íslandi. Vinningarnir skiptast þannig: 2 vinningar á 1.000.000 kr. 2 vinningar á 200.000 kr. 2 vinningar á 100.000 kr. 4 vinningar á 50.000 kr. 242 vinningar á 10.000 kr. 1 1.128 vinningar á 5.000 kr. |t 4.928 vinningar á l.OOÓ kr. 1 Til sámanburðar má geta þess, að þegar fyrst var dregið í happ drættinu, þann 10. marz 1934, fyrir rúmum þrjátíu árum, var dregið um 200 vinninga að fjár- hæð 36.200 krónur. Hæsti vinn- ingurinn var þá 10.000 kr. Um seinustu áramót var velta happdrættisins tvöfölduð með út gáfu Aukaflokksins. Salan hefur gengið framúrskarandi vel, þann ig að nú eru seld um 77% af öll um miðunum. Mjög mikil eftir- spurn er eftir röðum af miðum, og eru þegar farnar að bérast pantanir fyrir næsta ár, svo fyr irsjáanlegt verður að miðarnir munu seljast upp um næstu ára- mót. Eins og áður er getið, er hæsti vinningurinn nú í desember ein milljón króna. Vegna ú.tgáfu Aukaflokksins eru nú tveir heil- miðar af hverju númeri. Er því hugsanlegt að einhver geti orðið svo heppinn að fá tvær milljón- ir króna, ef hann skyldi hafa tryggt sér númerið sitt í Auka- flokknum. Happdrætti DAS í GÆR var dregið í 8. flokki Happdrættis DAS um 200 vinn inga og féllu vinningar þannig: íbúð eftir eigin vali kr. 500 þús. kom á nr. 64175, umboð Seyð isfjörður. Opel Caravan Station-bifreið kom á nr. 24543, umb. Aðalumb. Vaux'haU- Victor fólksbifreið kom á nr. 9354, umb. Sigr. Helga dóttir. Bifreið eftir eigin vali kr. 130 þús. kom á nr. 44176, umboð Að- alumboð. Bifreið eftir eigin vali kr. 130 þús. kom á nr. 51159, umboð Eg- ilsstaðir. • Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir kr. 25 þús. kom á nr. 37880 umboð Aðalumboð. Húsbúnaður eftir eigin vali fyr ir kr. 20 þús. kom á nr. 18874, um boð Aðalumboð og nr. 55550, um boð Verzl. Réttarholt. Húsbúnaður eftir eigin vali fyr Kviknar í báti í Hafnarfirði Á TÓL.FTA tímanum í gærkvöldi kviknaði í vb. Emmu RE 353, þar sem hún lá við nýju bryggjuna í Hafnarfjarðarhöfn. Slökkvilið Hafnarfjarðar fór á eldstað og tókst fljótlega að slökkva. Ekki munu miklar skemmdir hafa orð ið á bátnum. Ókunnugt var um eldsupptök í gærkvöldi, en dtukknir menn höfðu verið um borð. Bretar víttir a OECD-hindi París, 3. des. (NTB) RÁÐHERRAFUNDUR Efna- hags- og íramfarastofnunar Evrópu (OECD) vítti í dag Breta harðlega fyrir ráðstaf- anir þær, sem brezka stjórnin hefur gripið til í því skyni að efla brezkt efnahagslíf. Mun harðasta gagnrýnin hafa verið flutt af Belganum Maurice Brasseur, en hann er ráðherra sá, sem fer með málefni utan- ríkisverzlunar Belgíu. Brasse- ur mun hafa haldið því fram á fundinum i dag að 15% inn- flutningstollurinn, sem Bretar hafa komið á, muni síður en svo gefa útflutningi Breta byr undir vængi. Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta- málaráðherra, situr ráðherra- fund OECD í París, ásamt þeim Þórhalii Ásgeirssyni, ráðuneytisstjóra, og Pétri Thorsteinssyni, sendiherra. ir kr. 15 þús. kom á nr. 6428, 58249 og 62726, umboð Aðalum- boð. Eftirtalin númer hlutu hús- búnað fyrir kr. 10 þús. hvert: 17891, 21996, 22694, 34528, 38646, 49452, 39899, 47554, 51840, 64538. Auk þess var dregið um 180 vinninga á 5 þús. kr. hvern. (Birt án ábyrgðar). Drengur slasast LAUST fyrir kl. 16 í gær varð átta ára drengur á reiðhjóli, Haf steinn Gunnarsson frá Blikalóni við Hafnarfjörð, fyrir bifreið á Smyrlahrauni í Hafnarfirði. — Slasaðist drengurinn og var flutt ur til læknis, en síðan í Slysa- varðstofuna í Reykjavík, og var hann þar enn á miðnætti sl. nótt. Arkady Sobolev látinn í Moskvu Moskvu, 2. des. AP-NTB TASS fréttastofan skýrði svo frá í dag, að látinn væri í Moskvu Arkady Sobolev, aðstoð- arutanrikisráðherra 61 árs að aldri. Ekki var sagt hvert bana- mein hans varð en birt var minn- ingargrein um hann eftir Andrei Gromyko, utanrikisráðherra. Scxbolev hóf störf í utanríkis- þjónustunni sovézku árið 1939. Á síðairi árum heimstyrjaldarinnar var hann sendiráðsstarfsmaður í London og á árinu 1945-46 var hann stjórnmálalegur ráðunaut- ur yfirstjórnar sovézka hersins í Þýzkalandi. Þá var Sobolev meðal þeirra, sem unnu a'ð gerð stofnskrár Sameinuðu þjóðanna í Sam Fransisco og fra.m til ársins 1949 var hann einn af aðstoðar Tramkvæmdastjórunum en hafði einkum með að gera mál, er komu fyrir öryggisráðið. Árið 1955 var hann aðalfulltrúi Sovét- ríkjanna hjá S.Þ., fyrirrennari Valerins Zorins í því embætti. Úr Ieiknum „Afbrýðisöm eiginkona“, sem úngmennafélag Hruna- manna sýnir nú víðsvegar um Suðurland. 99 Afbrýðisöm eiginkona hjá Ungmennaíélagi Hrunamanna 66 GELDINGAHOLTI, 30. nóv. — Ungmennafélag Hrunamanna frumsýndi gamanleikinn „Af- brýðisöm eiginkona" eftir Guy Paxton og Edward Heile í félags- heimili Hrunamanna sl. laugar- dagskvöld. Leikstjóri er Hólm- fríður Pálsdóttir, en leikendur Kjartan Helgason, Sigurbjörg Hreiðarsdóttir, Guðmundur Ingi- marsson, Haraldur Sveinsson, Guðrún Sveinsdóttir, Loftur Þor- steinsson, Helga Einarsdóttir, Anna Magnúsdóttir og Helgi Jóns son. Um 200 manns sóttu sýninguna og var leiknum mjög vel tekið af áhorfendum, sem þökkuðu leik- stjóra og leikendum með lófataki og blómum í leikslok. Leiksýning þessi var mjög vel heppnuð, leikritið sjálft að vísu ekki merkilegt, en sprenghlægi- legt. Meðferð leikaranna á hlut- verkum var með ágætum, leikur- inn gekk hratt og heildarsvipur góður. Leikstjórn Hólmfríðar Pálsdóttur hefur borið góðan ár- angur, en þetta er þriðja leikrit- ið, sem hún setur á svið hjá Umf. Hrunamanna. Ungmennafélag Hrunamanna hefur unnið að leikstarfsemi í meira en hálfa öld og ætíð haft á að skipa góðum starfskröftum á því sviði og hefur enn, eins og þessi sýning ber með sér. Ráðgert er'að sýna leikinn nú á næstunni víðsvegar um Suður- land og verður næsta sýning á Selfossi föstudaginn 4. desember, þá í Þjórsárveri laugardaginn 5. des., að Brúarlandi í Landsveit sunnudaginn 6. desember kl. 3 síðdegis og að Hvoli sama dag kl. 9,30 um kvöldið. Vilji Sunnlendingar skemmta sér eina kvöldstund við græsku- laust gaman sjá þeir þessar sýn- ingar Hrunamanna. — J. Ól. Shastri í London London, 3. des. (AP) LAL Bhadur Shastri, forsætisráð- herra Indlands, kom til London í dag, en þar mun hann eiga við- ræður við Harold Wilson, for- sætisráðherra. Þetta er fyrsta heimsókn Shastris til Vestur- landa. — Shastri átti þegar í dag viðræður við brezku stjórnina, og fyrr í dag gekk hann á fund Elísa betar drottningar. Páfi vígði sex biskupa Bombay, 3. des. (NTB) PÁLL páfi VI. vigði í dag sex biskupa frá fimm meginlöndum við hátíðlega athöfn i Bombay. Fyrr um daginn hafði páfi gengið á fund Radakrishnan, for- seta Indlands, og sæmt hann æðsta heiðursmerki, sem páfi get ur veitt þjóðarleiðtoga, sem ekki er kristinn. Þá afhenti páfi for- setanum peningagjöf til munað- arlausra barna í landinu, og nam hún um 2,2 millj. ísl. kr. Páfi var ákaft hylltur, er hann kom til biskupsvígslunnar, sem fór fram undir berum himni. — Voru þar saman komnir 250.000 manns af ýmsum trúarbrögðum. Blöð í Portúgal hafa ekki skýrt frá heimsókn páfa til Indlands, utan tvö kaþólsk blöð, sem laus- lega greindu frá brottför hans frá Róm. — Utanríkisráðherra Portúgals hefur látið svo um mælt, að heimsókn páfans til Ind- lands sé móðgun af hálfu páfa við kaþólska þjóð. — Indverjar tóku portúgölsku nýlenduna Goa af Portúgölum í desember 1961. Úr Ieiksýningunni. Bninaútsalon NÚ HEFUR verið selt fyrir eitt- hvað á fjórðu milljón króna á brunaútsölu Samvinnutrygginga á Hallveigarstöðum, að því er Ásgeir Magnússon, forstjóri, tjáði Mbl. í gær. Á þriðjudag hafði verið selt fyrir um þrjár milljónir króna, og hefur héldur dregið úr sölunni síðustu daga. Ekki er ákveðið, hvenær útsöl- unni lýkur, en reynt verður að selja, meðan einhver fæst til að kaupa. Sótt var um kvöldsöluleyfi til lögreglustjóra, til þess að hraða sölunni, en það fékkst ekki. — Kvað Ásgeir Magnússon ekki heldur von til þess að Samvinnu tryggingar fengju slíkt leyfi fremur en aðrir. Húsvíkingar fá nýjan bát Húsavík, 3. des.: — f DAG bættist bátaflota Húsa- víkur nýr bátur, sem keyptur er frá Hrisey, og ber nafnið Far- sæll II. Báturinn er 19 tonn að stærð smíðaður á þessu ári í skipa- smíðastöð KEA, og er hann sér- staklega vel útbúinn af ekki stærri bát að vera, m.a. með rat- sjá. Hinir nýju eigendur bátsins eru bræðurnir Ingvar og Guð- mundur Hólmgeirssynir, og gera þeir bátinn út frá Húsavík. — Fréttaritari. Jólasöfnun mæðra- styrks- nefndar JÓLASOFNUN mæðrastyrks- nefndar fer nú að hefjast og mun nefndin nú eins og undanfarin ár kappkosta við að liðsinna gamalmennum, einstæð um mæðrum og börnum þeirra fyrir jólin. Leitar nefndin því enn einu sinni til Reykvíkinga í þeirri von, að þeir sýni nefnd- inni sömu gjafmildi og sama skilning og fyrr. Þau eru ekki svo fá heimilin, sem setja allt traust sitt á jólaglaðning nefnd- arinnar. Treystir nefndin bæjar- búum til að stuðla að því, að þessi heimili verði ekki fyrir vonbrigðum í ár. Tekið er á móti gjöfum á skrifstofu mæðrastyrks nefndar Njálsgötu 3, alla virka daga frá kl. 10—6. Umsóknir um jólaglaðning mæðrastyrksnefndar þurfa að berast sem fyrst. „Kjarnyrði** bók, sem Pétur Sig- urðsson heíur tekið saman „KJARNYRÐI" nefnist ný bók, sem ísafold gefur út. í þeirri bólc hefur Pétur Sigurðsson regluboði tekið saman fjölda kjarnyrða og spakmæla, sem hann hefur „tínt upp“ og komið hafa honum að góðum notum á lífsleiðinni við fyrirlestrahald og aðra fræðslu- starfsemi. Aðalkaflar bókarinnar nefnast: Athafnasemi — Iðjuleysi, Bjart- sýni — Bölsýni, Bindindi, Hug- sjón og hugsanavenjur, Heilræði, Hugsunum hagrætt, Konur, Menning og þekking, Mikilmenni — Manndómur, Sitt af hverju, Trú og andleg menning, Uppeldi og Ætterni. Á bókarspjaldi segir: „Einn kostur kjarnyrða er sá, að þau er auðvelt að læra og muna, og það sem festist í minni manns- ins, fylgir honum, hvar sem hann fer. Til þess er þá oft þægilegt að grípa“. Maður brennist við saftsuðu SLYS varð í Efnagerðinni Vál, Fossvogsbletti 42, á 18. tímanum í gær, þegar pottur með sjóð- andi berjasaft sprakk. Gusaðist saftin framan í manninn, og brenndist hann í andliti, á höod- um, bringu og víðar. Hann vaf fluttur í Slysavarðstofuna. Leiðrétting Að gefnu tilefni vil ég undir- ritaður taka fram — og hef þrá- sinnis verið beðinn að reyna að koma þeirri leiðréttingu til Ieiðar — að hin svonefnda Barðaströnd, sem Barðastrandarsýslur draga nafn sitt af, nær aðeins yfir einn hrepp: Barðastrandarhrepp. þ.e. ströndina millum Sigluness- og Brjánslækjarlandareigna, eða nánar tiltekið: ströndina alla frá Stálfjalli til Vatnsfjarðarár vest- an Þingmannaheiðar, þeir bseir einir eru á Barðaströnd, sem eru innan þessara takmarka. Það er því alrangt að segja eða skrifa: „Reykhóla á Barðaströnd“ aða „Skóga (í Þorskafirði) á Bar»-\- strönd,“ eins og iðulega kemur fyrir og veldur póstafgreiðslunni óiþarfa erfiðleika, sem oftaat teíja fyrir greiðum skiium. P.t. Reykjavík 1. des. 1964. J. M. Eggertssoo Skógum Þórskafirði. Önnur blöð eru vinsamlega beðin að birta þessa leiðréttingu. ■N UM.E.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.