Morgunblaðið - 06.12.1964, Blaðsíða 17
ittlill*
H.tndev&faitners
.
Hti*** *-'*'***
K i,mxt <s* W‘TÍ*
**>*> »*
í«tK«í»S
Huntley & Palmers
MORGU N BLAÐIÐ
Aðalumboð á íslandi:
O. Johnson & Kaaber hf.
Það eru 300 kexverksmiðjur í Englandi. Aðeins
þrjár af þeim eru risastórar og ein af þeim er
Hl’NTI-EY & PALMKRS. Um allan' hinn vestræna
heim vita húsmæður og stjórnendur veitingastaða,
að sé kexið merkt HUNTLEY & PALMERS verður
ströngustu kröfum fullnægt. — HUNTLEY &
PALMERS er konunglegt kex. — Verksmiðjurnar
hafa raunar í áratugi verið sérstaklega útnefndar
til að framleiða fyrir brezku konungsfjölskylduna.
Stærsti markaðurinn er Bandarikin. —
Tegundirnar eru fjölmargar. — Verðið er hagstætt.
„Og sjálf er Látra-Björg komin að fót-
um fram, orðin þreytt og þjáð, og þá
yrkir hún eina af síðustu vísum sínum:
Langanes er ljótur tangi.
Lygin er þar oft á gangi.
Margur ber þar fisk í fangi,
en fáir að honum búa.
— Nú vil ég heim til sveitar
minnar snúa.
f þessari vísu teemur fram reisn henn-
ar óbuguð, en hún finnur feigðina
kalla. Og þess vegna er hún á heim-
leið. Hún er staðráðin í að ljúka hel-
göngu sinni á sömu slóðum og hún
lagði upp í hana — fyrir heilum manns
aldri. í alla þá tíð hefur hún borið með
sér þungan brimgný Látra-Strandar
um öræfi og annes, og nú neytir hún
síðustu krafta til að geta sofnað við
hann, áður en hann deyr ú.t í hjarta
hennar.
Næsta morgun er Rósa risin árla úr
rekkju. Hún verður þess strax vör, að
sýslumaður muni kominn, því að þarna
eru hestar hans við túnfótinn. Hún
flýtir sér að hita kaffið og telur til
þeirrar stundar, er hún færir honum
það í rúmið.
Svo drepur hún hljóðlega á svefn-
herbergisdyrnar og lýkur upp hurðinni.
En þá sortnar henni skyndilega fyrir
augum, og það má litlu muna, að hún
missi kaffibakkann úr höndunum. Páll
Melsteð er vaknaður, en fyrir ofan
hann í rúminu hvílir amtmannsdóttir-
in á Möðruvöllum, Anna Sigríður.
Að þessu sinni gleymast allar kveðjur.
Páli Melsteð verður snöggvast litið til
lagskonu sinnar og gengur úr skugga
um, að hún sefur værum svefni. Þá
snýr hann sér aftur að Rósu, horfir í
augu hennar drykklanga stund og mæl-
ir síðan í hálfum hljóðum:
„Einhvem tíma var þér nú ætlað að
sofa þarna“.
Bókaútgáfan FORNI
Svo virðist sem það hafi orðið örlög
Hjálmars jafnan að verða söguefni í
hverri sveit, þar sem hann stakk nið-
ur staf sínum. Gróusagan spann sinn
fíngerða þráð um æði hans og athafn-
ir. Heimur hans var að vísu ekki stór,
en undan narti hans gat Hjálmar Jóns-
son ekki komizt, hvernig sem hann
fór að. Veröldin var við Hjálmar eins
og heimarík búrtík, glefsaði í hann sem
óboðinn og umkomulítinn gest. Hæl-
bitinn og hundeltur var Hjálmar alla
ævi, og virtist einu gilda, hvort hann
gengi einstigu eða alfaraveg. Veröld-
inni var uppsigað við þennan mann.
Hann hafði kvatt æskusveit sína til
þess að losna við eril og illdeilur heima
haganna. En hann fékk aldrei gengið
fylgju sína af sér. Hún settist við fót-
skör hans, hvar sem hann sló upp tjöld
um á lífsleið sinai. Svo fór einnig í
Biönduhlíðinni.
Gegn rógi veraldarinnar átti Hjálmar
ekki annað vopna en vísuna. Þegar
rakkar og bitvargur sveitarinnar sóttu
að honum, þeytti hann eldingum á alla
vegu eins og reiður þrumuguð, og nú
sem fyrr flugu neistarnir um stólpa
sveitarinnar og sviðu skegg prestanna.
BÓK TÓMASAR og SVERRIS
ÍSLENZKIR ÖRLAGAÞÆTTIR
TÖMAS shrifar
um Látra-Björgu: um Skáld-Rósu:
SVERRIR skrifar
um Bólu-Hjálmar:
TJEPANOL TÆPANOL TÆPANOL
froðu-hreinsari
er hreinsiefni af vönduðustu gerð, og fjar-
lægir fljótt og vel öll óhreinindi og bletti,
samtímis því að það skýrir og fegrar litina.
TÆPANOL hreins:.r teppi, húsgögn, máln-
ingu o. fl. o. fl.
froðu-hreinsari
er afbragðs hreinsiefni á allt bílaáklæði.
Haldið bílnum ávallt hreinum og ferskum
að innan. Bíllinn er góður vinur yðar og
hjálpartæki. Hreinn bíll veitir yður aukna
vellíðan við aksturinn. TÆPANOL er fljót-
virkt og öruggt hreinsiefni.
VejksmiðJan SÁIVI8JR
Hlíðargerði 13 — Símar: 34764 & 21390.
f roðu-hreinsari
hleypur ekki úr vistinni þegar verst gegnir.
Húsmæður loksins er vandinn leystur.
TÆPANOL auðveldar yður baráttuna við
öll óhreinindi. TÆPANOL er sérefni, fram-
leitt samkvæmt þýzku sérleyfi. TÆPANOL
fæst í flestum málningar og nýlenduverzl-
unum svo og benzínafgreiðslum.
Leiðarvísir fylgir hverri pakkningu.
Einu sinni TÆPANOL alltaf TÆPANOL.
Einkauinboð fyrir Efnaverksmiðjuna
INTERFICO, Danmörku.
SOKB
KQNUR og KRAFTASKÁLD