Morgunblaðið - 16.12.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.12.1964, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. des. 1964 ÚTVARP REYKJAVÍK SUNNUDAG, 6. des. hóf Sig- \ aldi Hjálmarsson, fréttastjóri, nýjan erindaflokk um- Indland. Mun hann án efa draga að sér at- hyigli margra. Um kvöldið vildi mér það óhapp til, að ég missti af erindi, sem ég vildi gjarnan heyrt hafa. Nefndist það: „Hvað er sálgæzla“, en séra Jakob Jónsson flutti. Nú þegar hina iærðustu menn greinir á um, hvað sál sé, má telja sérstakan hvalreka að fá flóknari hugtök, afleidd af sál, skýrð og jafnmik- ið ólán að missa af slíkum skýr- ingum vegna forfalla. Síðar um kvöldið var þátturinn „Vel mælt“, sem er nú óðum að breyt- ast í vísnaþátt, en er engu lakar n.æltur fyrir því. Jónas Pétursson, alþingismað- ur, talaði um daginn og veginn á mánudagskvöld. Hann talaði hratt og kom víða við. Ég held, að útvarpið mætti lengja tíma dags og vegs manna um 5—10 mínútur. í þeim þætti eru oft fiutt skínandi erindi, en flutn- ingsmenn verða oft að tala full- hratt vegna tímaskorts. Og þeg- sr þeir hafa lokið máli sínu, kem- ur oftast hljómplata. Og venju- lega er þeim plötum ekki mikið r.iðri fyrir. Mér fannst einna athyglisverð- ast það, sem Jónas sagði um „af- Cialakotin“, sem menn nefndu svo, og gjarnan í lítilsvirðingar- skyni. Þar teldu margir óbjörgu- leg búskaparskilyrði, en sann- leikurinn væri sá, að hvergi á íslandi væru betri búskaparskil- yrði en til dala. Þar yrði mestur hiti, en það réði aftur úrslitum um gróðurfar. Jónas hvatti til að hraða stór- iðjuframkvæmdum og rafvæð- ingu um land allt. Honum þótti kalt hagfræði-' legt mat vera fulláberandi meðal okkar nú, það lífsviðhorf, sem Bergþóra tjáði með hinum ódauðlegu setn- ingum: „Ég var ung gefin Njáli“ o. s. frv. mundi ekki metið hátt af hagfræðingum, en samt hefði margur í aldanna rás sótt dýrmæta lífsspeki í þau orð. Að endingu sagðist Jónas taka undir þau orð Si.gurðar Jónassonar, að Alþingi yrði endurreist á Þing- völlum í framtíðinni. Síðar um kvöldið kom Sigurð- ui Samúelsson, prófessor, fram á blaðamannafundi og svaraði spurningum um hjarta- og æða- sjúkdóma. Spyrjendur voru þeir ritstjórar Magnús Kjartansson og Andrés Kristjánsson, en stjórn- andi þáttarins dr. Gunnar G. Schram. Próf Sigurður sagði, að hjarta- og æðasjúkdómar hefðu stöðugt færzt í aukana hér á landi á seinni árum, og nú væri svo komið, að um 40% allra dauðs- falla stöfuðu af þessum sjúk- dómum. Mest væri aukningin hjá karlmönnum 40—60 ára. Á þeim aldri væru konur miklu ónæm- ari fyrir þessum sjúkdómum og væri talið, að orsökin lægi í hormónastarfsemi kvenna á þessu aldursskeiði. Annars taldi Sig- urður, að hin mikla aukning þessara sjúkdóma stafaði að veru- iegu leyti af breyttum atvinnu- háttum, auknum kyrrsetustörf- um. Lægi þó ekki fyrir nein óygigjandi vissa um orsakirnar. Athyglisvert væri, að Finnar, Bandaríkjamenn og Skotar hefðu mun hærri dánartölu en við af orsökum þessara sjúkdóma, eða yfir 50%. Væru þessar þjóðir þó síður en svo öðrum fremur þekktar að kyrrsetu. Auk hreyfingarleysis taldi prófessor Sigurður mestar líkur til, að reykingar og matarræði ættu drýgstan hlut í myndun ofannefndra sjúkdóma. Stór- reykingamönnum, og þá einkum þeim, sem reyktu síigarettur, væri miklum mun hættara við að fá þessa sjúkdóma. Með stór- reykingamönnum á hann við þá, sem reykja a.m.k. einn pakka á dag. En hvað matarræði áhrærði, pá væri það einkum fituríkt fæði, sem varast bæri að neyta í óhófi, svo sem feitt kindakjöt, smjör og mjólk. Mönnum sem ynnu erfið- isvinnu, stafaði þó minni hætta af matarfitu, þar sem líkami þeirra brenndi svo mikilli fitu. Sagðist Sigurður litlar áhyggjur hafa af erfiðismönnum, með hlið- sjón af ofannefndum sjúkdómum. Enn sagði hann, að mikil tauga- spenna væri varhugaverð í þessum sökum, einkum í sam- bandi við litla hreyfingu. Undir lokin ráðlagði prófess- orinn mönnum að neyta meir fiskmetis en þeir gerðu. Það væri holl og góð fæða. * SAGA TIL NÆSTA BÆJAR ÞAÐ fór eins og mig grun- aði, að þegar snjórinn kæmi loksins ættu fæstir skíði. Fjöldi unglinga hér sunnan lands, sem kominn er yfir fermingu á engin skíði og hefur aldrei stig- ið á skíði — einfaldlega vegna þess, að snjór hefur varla sézt hér um slóðir á undanförnum árum. En fáir búa sennilega jafn illa og Vestmannaeyingar. Þar fundust aðeins fern skíði, að sögn eins dagblaðsins í gær, og nú hamast þeir í Eyjum við að ganga á skíðum til skiptis áður en snjóinn tekur upp. Vonandi tekst þeim að láta skíðin ganga eina umíerð milli allra Eyjaskeggja — áður en hlánar. Það þætti hins vegar saga til næsta bæjar í útlöndum, að í mörg þúsund manna bæ norður á íslandi, hefðu ekki fundizt nema fern skíði. Þegar þeim, sem lítið þekkja til íslands, er sagt frá snjóleysinu hér og vetrarblíðu undanfarinna ára — þá hljómar það í eyrum Hér er stiklað á stóru um upp- lýsingar Þaer, sem fenigust á þessum fundi, en hann var mjög fróðlegur. Merkilegt fannst mér, að ofneyzla áfengis var hvergi nefnd, Siigurður sem hugsanleg Samúelsson orsök hjarta- og æðasjúkdóma. Ég ætla mér ekki þá dul að véfengja orð sérfróðra og reyndra lækna. En við, sem einhvern tima á æfinni höfum fengið slæma timburmenn, með púlsinn reikandi milli 120—140 slaga á mínútu, skiljum ekki, að slíkt geti gerzt án verulegrar áreynslu á hjarta- og æðakerfi og síendurtekið ástand af því tægi geti verði heilsubót. Eða virkar þetta kannske sem eins- konar morgunleikfimi fyrir þessi iíffæri? Á miðvikudagskvöld las Bald- ur Pálmason upp úr bókinni „Örn Arnarson“ eftir Kristin Ólafsson. Segir skáldið þar m.a. frá sinni „fyrstu ástarsorg", er Símon Dalaskáld sveik hann um dóttur sína 8 ára gamlan. Var þetta hinn ágætasti bókarkafli. Ekki var þá kvöldvakan síðri. Var þá leikinn ný hljómplata með óvenjulegu innihaldi: ,,Sig- urður Nordal las þar upp erind- ið: „Ferðin, sem aldrei var far- in“ úr erindasafninu „Líf og dauði“, sem hann flutti í útvarp- íð 1940. Stytti dr. Sigurður er- indið lítið eitt s.l. sumar. Enn fremur hafði Jón Helgason, pró- fessor lesið ljóð og Ijóðaþýðinigar eftir sjálfan sig inn á plötuna. þeirra eins og verið væri að segja þeim, að fílar og tígrisdýr væru helztu húsdýr íslendinga. ★ FLUGVÖLLURINN ENN Á DAGSKRÁ Flugmenn hafa nú enn einu sinni lagt áherzlu á að óæskilegt sé að verja meira fé í endurnýjun Reykjavíkurfluig- vallar. Að þessu sinni komu þeir saman á fund til þess að skipuleggja aðgerðir í málinu, en þessu hefur margsinnis verið hreyft á undanförnum árum — og hafa flestir bent á Álfta- nes sem heppilegasta staðinn fyrir framtíðarflugvöll Reykja- víkur. Erlendir sérfræðingar oig nefnd innlendra sérfræðinga hafa tekið svipaða afstöðu. Mér skilst, að forráðamenn á sviði flugmála vildu gjarna ganga lengra til móts við þess- ar mergendurteknu óskir en orðið hefur. Hingað til hefur þeim víst þótt pyngja lands- manna fulllétt til þess að þola fyrirtækið. Viðhorfin breytast hins veg- ar með ört vaxandi tækni og sú spurning hlýtur að vakna, Varð þetta ein bezta kvöldvaka vetrarins fram til þessa. Vonandi gætir útvarpið plötu þessarar vel og ruglar henni ekki saman við aðrar plötur. Á fimmtudagskvöld talaði frú Lára Sigurbjörnsdóttir um þátt heimilisins í menntun æskunnar. Hún harmaði, að uppeldishlut- verk heimilanna færðist nú meir og meir yfir á kennarana og skólana, enda þótt barnið væri orðið 7 ára, þegar það færi í skóla, en persónugerð barnsins sagði hún, að mótaðist þegar á ungum aldri. Hvatti hún foreldra til að sinna sem bezt uppeldi barna sina og gefa sér tíma til að tala við þau — og ekki tæpi- tungu, eftir að börnin væru far- in að tala. Barnið væri sjálfstæð persóna með eigin skapgerð, sem foreldrarnir gætu þó mótað mjög til góðs, ef þau legðu rækt þar við. Börnum ætti að kenna að bera virðingu fyrir sjálfum sér, lífinu og Guði. Síðar um kvöldið annaðist Ingólfur Kristjánsson þáttinn „Raddir skálda“. Var hann helg- aður Jóni Björnssyni, rithöf- undi, (f. 1907) æfiferill hans lauslega rakinn og nokkrar bækur taldar, en alls hefur hann igefið út 18 bækur. Síðan var lesið úr fyrstu bók Jóns .„Máttur jarðar" svo og kafli úr skáld- sögu hans „Valtýr á grænni treyju". Sumar bækur Jóns Björnsson- ar hafa náð vinsældum. Þær eru r.okkuð reyfarakenndar sumar og munu ekki að öllu falla eftir farvegi hins nýrri skáldskapar- skóla. En þar sem fæstir íslenzk- ir lesendur munu mjög tízku- frekir í þessum sökum, hafa margir þeirra lesið sögur Jóns sér til ánægju. Haukur Kristjánsson, læknir, talaði um slys á föstudagskvöld- ið. Hann sagði, að slys ýmis- konar væru algengasta sjúkdóms- hvort ekki sé rétt að endur- nýja matið á öllum aðstæðum með hæfilegum fresti — og ráð- stafa ekki því landsvæði, sem til greina kæmi undir flugvöll, á annan hátt fyrst um sinn. íslendingar vilja yfirleitt fá allt gert „í einum hvelli“. Þrátt fyrir allan seinagang er það hreint kraftaverk, að hér hefur þó tekizt að byggja upp það, sem byggt hefur verið — þegar tillit er tekið til smæðar þjóðar- innar, stærðar landsins og vega- lengdanna, sem flytja verður hráefni til nær allra fram- kvæmda. Oig einmitt vegna þess að við verðum að halda vel á okkar fé vonast allir til að ekki verði fest meira fé í Reykjavik- urvelli en hægt er að komast af með — á meðan hann er notað- ur. Ljóst er, að sérfróðum ber saman um að æskilegt væri að nýr völlur leysti þann gamla af hólmi eins fljótt og auðið yrði. ★ NIÐURGREIÐSLA Á LYFJUM Og hér kemur bréf til Sjúkrasamlagsins — frá Finn- boga: Jónas Pétursson orsökin, og hefði trúlega Verið svo frá upphafi vega (notar hann þá væntanlega nrðið sjúk- dómur í víðtækari merkingu en venjulega er gert). Sagði Hauk- ur, að nauðsynlegt væri að kenna almenninjgi undirstöðuat- riði í slysahjálp og væri eðlilegt að sú kennsla færi fram í öllum barna- og unglingaskólum. Kennslan yrði að vera vel sam- ræmd, svo að menn rugluðust ekki í ríminu, þegar mest á reyndi. Athyglisvert var, að Haukur hélt því fram, að nú væri öllu þungbærara fyrir menn að missa t.d. einn fingur vegna slysfara fceldur en var fyrir svo sem 50 úrum. Skýrði hann þetta svo, að enda þótt slysatryggingar væru nú mun öflugri, þá hefðu kröfur manna til lífsiþæginda vaxið svo mjög. Liklega er nokkuð til 1 þessu. En koma þá ekki fleiri skýringar til greina. Hefur ekki vaxandi efnishyggja og minnk- andi Gúðstrú beiní athygli manna meir en áður var að ytra borði hlutanna, trú beint athygli manna meir en aður var að ytra borði hlutanna, hin miskunarlausa barátta um jarðnesk gæði, án tillits til sálu- fcjálpar þessa heims eða annars, átt þátt í því að torvelda fötluðu fólki lífsbaráttuna, þrátt fyrir auknar tryggingar? Að vísu munu kjör fatlaðs fólks fyrir 50 árum ekki hafa verið til fyrirmyndar, og frá beinu efna- fcagslegu sjónarmiði fcafa þau trúlega verið lakari en nú. Ei» oft verður maður var við það á okkar miklu „menningartímum“, að rík hneigð er hjá mörgum til að leggja nánast siðferðilegt mat á fatlað fólk. Líkt og fólk þetta ætti minni rétt til lífsins. Kannske er þetta eðlislægt mat hjá manninum, sem hann fær ekki við ráðið, nema gæða hug sinn æðri sjónarmiðum Guðstrú- ar og lífstilganigs. Framh. á bls. 10 „Síðustu 2ð ár hef ég þjáðst af ólæknandi húðsjúkdómi oig eru þeir peningar ótaldir, sem ég hef greitt í læknis og lyfja- kostnað. Síðast þegar ég fór til læknis, skrifaði hann lyfseðil og við framvísun í lyfjabúð var mér tjáð að Sjúkrasamlagið greiddi ekki niður þetta lyf. Ég ákvað samt að reyna lyf- ið, sem reyndist mér afbragðs- vel, betur en nokkuð annað, sem ég hef reynt. Þetta er lítil túba og kostar 142.00 krónur og nú er ég aftur að leggja af stað til læknisins og er neyddur til þess að kaupa mér aðra túbu, lyf þetta heitir SYNALAR-N og nú spyr ég, hvers á ég að gjalda, Sjúkra- samlagsgjaldið er tekið af kaupinu mínu hvern mánuð en þagar ég þarf á lyfjum að halda þá nýt ég engra hlunninda? Hver ákveður að eitt lyf er greitt niður en annað ekki og eftir hvað reglum er farið? Finnbogi“. Og svo getur Sjúkrasamlagið svarað — ef það fær-tíma tii að stinga niður penna i jólaönn- unum. B O S C H rafkerfi er i þessum bifreiðum: BENZ SAAB DAF TAUNUS NSU VOLVO OPEL VW Við höfum varahlutina. BRÆÐURNIR ORMSSON HF. X esturgötu 3. — Simi 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.