Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.12.1964, Blaðsíða 19
MORGU N BLAÐIÐ 19 r Sunnudagur 20. des. 198% — Reykjavíkurhréf Framhald af bls. 15. mönnum eitur í beinum, þ.e.a.s. þeim leiðtogum þeirra, sem marka stefnu flokksins. Margir hugsandi og ábyrgir menn innan Framsóknarflokksins, telja þetta framferði leiðtoga sinna hið mesta glapræði. Er og óhætt að fullyrða, að meðal almennings í öllum stjórnmálaflokkum eigi sú skoðun sífellt meira fylgi að fagna, að fara beri nýjar leiðir til þess að tryggja lífskjörin í stað þess að einblína á kaup- hækkanir einar, án tillits til greiðslugetu atvinnuveganna á hverjum tíma. Það var einmitt þessi skilningur, sem átti ríkast- »n þátt í því, að júnísamkomu- lagið tókst í sumar. Ef nýtt kapphlaup yrði hafið, milli kaupgjalds og verðlags á næsta ári, að loknu samnings- tímabili, myndi það leiða geig- vænlega hættu yfir allt efnahags- líf þjóðarinnar. Þeir menn vinna því illt verk og ógæfusamlegt, sem til slíks lánleysis hvetja. Mikil framleiðsla Árið 1964 hefur verið eitt mesta framleiðsluár í sögu lands- manna. Veldur hinn geysimikli síldarafli að sjálfsögðu mestu þar 'um. En þrátt fyrair hina miklu framleiðslu, á stór hluti útflutn- ingsframleiðslunnar við mikla erfiðleika að etja. Á það ekki sízt við um togaraútgerðina, mörg hraðfrystihúsanna og vélbátaút- gerðina í einstökum landshlut- um. Fram úr þessum erfiðleikum verður að ráða af festu og á- byrgðartilfinningu. Nýtt verð- bólgukapphlaup leysir síður en svo vandann. Það mundi þvert á móti skerða lífskjör alls almenn- ings um leið og það hlyti að hafa í för með sér samdrátt fram- leiðslunnar og veikari grundvöll íslenzkrar krónu. SNYRTIVÖRUR FRÁ ELISABETH ARDEN SNYRTIVÖRUR. Gott úrval. Lyfjabúöjn IÐUNN ísafoldar l Lánstraust erlendis Önnur afleiðing nýrrar verð- bólguöldu, hlyti að verða þverr- andi lánstraust þjóðarinnar er- lendis. Viðreisnarstjórninni tókst að endurreisa lánstraustið eftir gjaldþrot vinstri stjórnarinnar. Þessvegna hafa íslendingar getað fengið lán til nauðsynlegra fram- kvæmda, og geta í framtíðinni hagnýtt sér traust sitt erlendis til þess að afla fjármagns til ó- hjákvæmilegrar áframhaldandi uppbyggingar íslenzkra bjarg- ræðisvega. Því tækifæri má ekki spilla. Þróunin verður að geta haldið áfram. Þjóðinni fjölgar, og ný verkefni krefjast úrlausnar. Þessi litla þjóð verður að geta hagnýtt sér nútímatækni og vís- indi, til þess að treysta afkomu- grundvöll sinn og byggja upp framtíð sína. Þessvegna má hún ekki eyðileggja lánstraust sitt er- lendis. Hún má heldur ekki lama einstaklingsframtakið, sem lyft hefur Grettistökum í framfara- sókn þjóðarinnar. Sterkir eii*- staklingar skapa sterkt þjóðfélag, sem er þess megnugt að skapa fé- lagslegt öryggi til handa hinum minni máttar, þróttmikið og bat» andi þjóðfélag. Helsingfors, 18. des. NTB • Viðskipti Finnlands o* Sovétríkjanna munu á næst* ári aukast um 15%, eða sem svarar nál. 17 milljörðum kr. (ísl). Viðskiptasamningur ríkjanna fyrir árið 1965 var undiritaður í Helsingfors í dag. Upplýsing hjá Eymundsson Lítil ljós og illa staðsett eru óholl fyrir augun. Góð birta er nauðsynleg hverjum bókamannL Þetta vita þeir hjá Eymundsson. Sigtús Eymundsson selur bækur til upplýsingar almenningi OSRAM perur eru notaðar til upplýsingar hjá Eymundsson. OSRAM gefur bezta birtu. OSRAM endist bezt. A eru þekktustu og fremstu KEX-bakarar Bretlands síðan 1830. Hér er f jöldi tegunda ai M&D-kexi í búðum. Verð og gæði óviðjafnanleg. Einkaumboð: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson h.f, Sími 13425. m MJÓLKUK-. HNETU-, RÚSÍNU-, HNE TU og RÚSÍNU- og SUÐUSÚKKULABI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.