Morgunblaðið - 22.12.1964, Qupperneq 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
r T»riðjudagur 22. des. 1964
Furðuleg vinnubrögð
ista í Verkalýðsfé-
lagi Borgarness
kom
mun-
KOMMÚNISTAR og Framsóknar
menn hafa fariff med stjórn í
Verkalýðsfélagi Borgarness í
nokkur undanfarin ár. Hafa þeir
þar eins og svo víða annars stað-
ar í verkalýðshreyfingunni beitt
andstæðinga sína hvers kyns bola
brögðum og yfirgangi og ekki
hikað við að brjóta lög og regl-
ur samtakanna eftir því sem
þeim hefur hentað í það og það
skiptið.
Fyrir tveimur árum rak stjórn
félagsins m.a. sex andstæðinga
sína úr félaginu. Gerði hún það
rétt fyrir stjórnarkjör til að
tryggja sig i sæti. í þeim stjórn-
arkosningum urðu atkvæði jöfn
milli kommúnista og stuðnings-
manna þeirra og lýðræðissinna,
svo að kjósa varð upp í félaginu
og þá munaði aðeins örfáum at-
kvæðum. Þessi úrslit sýndu að at
kvæði þeirra, sem reknir voru
úr félaginu hefðu getað ráðið
úrslitum, enda vissu kommúnist-
ar það og þess vegna var leikur-
inn gerður.
Nú hefur það gerzt síðan, að
einn helzti kommúnistinn í Borg
amesi, Sigurður nokkur Guð-
brandsson, hefur tekið upp ná-
kvæmlega sama starf og einn
þeirra manna, sem rekinn var,
starfaði við þegar brottrekstur-
inn úr félaginu átti sér stað. Er
kosið var síðast til þings A.S.Í.
mótmælti fulltrúi lýðræðissinna
m.a. að þessi maður yrði hefður
á kjörskrá og leyft að kjósa, þar
sem eftir fyrri gerðum stjómar
félagsins ætti hann ekki að vera
í félaginu. í>essi mótmæli vom
ekki tekin til greina og fékk mað
urinn að greiða atkvæði.
Síðan hefur það gerzt, að þess
um sama manni hefur verið stillt
upp í ritarasæti í stjóm félags-
ins.
Greinilegt er af þessum vinnu-
brögðum og fleiru, sem of langt
yrði hér upp að telja, að komm-
únistar hyggjast h.alda félaginu
með því móti að ákveða sjálfir
hverjir fái að greiða atkvæði og
hverjir ekki og fara þar í öllu
eftir þvi hvaða stjórnmálaskoð-
un félagarnir hafa. Slik vinnu-
brögð eru með öllu óþolandi og
verður að hnekkja.
Lýðræðissinnar í Verkalýðsfé-
lagi Borgarness telja þá upp-
Þórður V. Sveinsson
ÆSKUFÉLAGI minn og tryggða
vinur, Þórður V. Sveinsson, verð
ur borinn til grafar á Akureyri í
dag. Ég get ekki sagt að fráfall
hans kæmi mér á óvart, en það
er svo undarlegt með okkur
mennina, að jafnvel þótt dauð-
inn geri boð á undan sér, viljum
við oft ekki trúa því, að hann
sé að koma, þegar hann er að
sækja okkar beztu vini. Ég hafði
vissulega ríka ástæðu til að ætla,
að vinur minn Þórður ætti ekki
langt eftir ólifað, þegar við sá-
umst síðast, en ég vildi ekki trúa
því. Ég vildi fremur trúa á mátt
lífsins og lifsviijans en sigur
dauðans.
Hér er maður genginn, sem ég
sakna mikið. Leiðir okkar lágu
saman á unga aldri og á vinátt-
una bar aldrei skugga. Ég held
að ég megi kveða svo sterkt að
orði, að Þórður hafi talið mig
einn af sinum beztu vinum. Ég
sá og fann þess alltaf svo mörg
merki. Og ég tel líka óhætt að
segja, að allir, sem nokkur veru-
leg samskipti höfðu við hann,
muni ljúka upp um það einum
munni, að hann hafi verið sann-
ur drengskaparmaður. Ég var
svo oft vitni að drengskap hans
og réttsýni, að ég er ekki í vafa
um, að þeir, sem þekktu hann
bezt, sakna hans mest. Um-
hyggjusamari heimilisfaðir hygg
ég að sé vandfundinn og fáa
menn vissi ég eins barngóða og
hann. Hjólpfúsari mann hef ég
ekki þekkt. Hann var einn þeirra
sjaldgæfu manna, sem leita að
tækifærum til þess að verða öðr-
um að liði. Ég tala hér að sönnu
sem sá vinur hans, er ef til vill
varð þessa eðliskostar aðnjótandi
í hvað ríkustum mæli, en þó
hygg ég að margir^ muni vilja
taka undir orð mín. Ég hika ekki
við að fullyrða, að hann reyndist
mér einn bezti og sannasti dreng-
ur, sem ég hef þekkt á lífsleið-
inni.
Þórður V. Sveinsson var kom-
inn af tveimur höfðingjum á
austurströnd Eyjafjarðar, þeim
Þórði í Höfða og Vilhjálmi í Nesi.
Sveinn faðir hans, um langt skeið
hótelstjóri á Akureyri, var son-
ur Þórðar í Höfða og Sigurlaug
móðir hans dóttir Vilhjálms í
Nesi. Þetta fólk þarf ekki að
kynna Eyfirðingum ,og reisn þess
er þekkt langt út fyrir heima-
byggðina.
Mér finnst að þessi vinur minn
hafi farið of ungur, aðeins tæpra
52 ára. Hann átti ung börn og
að því er virðist ólokið dags-
verki sínu. En hér verður engu
breytt og engin skýring gefin af
þeim ,sem ræður. Leiðir skilur í
bili. Ég á engin orð til huggunar
ástvinum hans. Á mestu harma-
stundum vina okkar erum við
svo fátæk og lítils megnug, þótt
við viljum ekkert fremur en
verða þeim að liði.
Ég samhryggist ekkju hans —
æskuleiksystur minni og tryggða
vinkonu — aldraðri móður hans,
börnum, systkinum og venzla-
fólki öllu. Ég kann ekki það mál,
sem mætti verða þeim til varan-
legrar huggunar, en styrks get
ég beðið þeim frá honum, sem
styrkinn gefur. Hér reynir á trú
og lífsskoðun þeirra sjálfra. —
En ég trúi því, að eins og þessi
stillingu, sem núverandi valda-
menn í stjórn verkalýðsfélagsins
hafa gert, ólöglega, þar sem mað
ur á að skipa ritarasæti í stjórn
inni, sem vinnur þau störf, sem
félagsstjórnin hefur fyrir tveim
ur árum úrskurðað að væru þess
eðlis, að þau hindruðu að mað-
urinn gæti verið í verkalýðs-
félaginu.
þessari framkomu stjórnarinnar
og kommúnistar og fylgismenn
þeirra halda fast við þessa á-
kvörðun munu lýðræðissinnar
líta svo á, að stjóm, sem þannig
er skipuð, sé með öllu ólögleg
og ákvarðanir hennar að engu
hafandi og haga gerðum sínum
samkvæmt þvL
aldavinur minn stóð jafnan í
varpa og tók á móti mér með út-
rétta hönd, þegar ég vitjaði æsku
stöðvanna, svo muni hann einn-
ig verða framarlega meðal þeirra,
sem bjóða mig velkominn á hinni
ókunnu strönd, þegar ég tek þar
land.
Víglundur Möller.
Brynjólfur Jóhannesson og Haraldur Björnsson í hlutverkuu
sínum í „Ævintýri á gönguför".
„Ævintýri á gönguför"
— Jólaleikrit Leikfélagsins
JÓLAIEIKRIT Leikfélags
Reykjavíkur í ár verður hinn
þekkti gamanleikur Hostrups
„Ævintýri á gönguför." Mun
þetta verða níunda skipti, sem
þessi gamanleikur er settur á
svið í Iðnó, en auk þess hefur
hann verið sýndur víða annars
staðar á landinu.
Leikritið .Ævintýri á göngu-
tför mun (hafa verfð sýnt hér
fyr®t árið 1886, síðan hjá Leilk-
tfélaginu 1888.
Leikstjóri verður nú Ragn-
hiklur Steingrímsdóttir, en þetta
mun vera í fyrsta skipti, sem hún
stjórnar leikriti hjá Leikfélaginu.
„Ævintýri á gönguför verður
•nú leikið í gamalli þýðingu Jón-
asar frá Hrafnagili, en Láruis Sig-
urbjörnsson hefur yfirfarið þýð-
inguna og lagfært. Einnig hefur
Tómas Guðmundsson samið texta
við nokkra söngva í leikritinu.
Þetta er eins og áður er sagt
ekki í fyrsta skipti, sem „Ævin-
týri á gönguÆör er leiki'ð hér 1
Reykjaivík. Alls mun það hafa
verið sviðsett einum 12—13 sinn-
Framhald á bls. 31
★ HVÍT JÓL?
ENN er komin rigning og
leiðindaveður. Ég var farinn að
vona. að snjórinn mundi hald-
ast fram yfir hátíðar. Það er
samt ekki vonlaust enn að við
fáum hvít jól. Þeir á veðurstof-
unni eru óútreiknanlegir, enda
þótt oftast megi reikna með
rigningu úr þeirri áttinnL
★ JÓLATRÉN
Maðurinn, sem seldi mér
jólatré í söluskála vestur á Mel-
um fyrir nokkrum dögum, tók
það fram, að bezt væri að hylja
tréð með snjó — þannig að ekki
næddi um greinar þess. Þá var
enn frost og snjór og auðvelt að
láta jólatré liggja úti í garði
eða uppi á svölum hulið snjó.
Nú er rigning og rok og erfitt að
varna því að það gusti um allt,
sem er utan dyra. Sennilega er,
ráð að breiða yfir tréð svo að
það skemmist síður.
★ í LANGFERÐABÍL
Hér kemur bréf frá Finn-
boga nokkrum, sem fór upp á
Akranes um daginn:
,.Ég fór um daginn upp á
Akranes. Ferðaáætlun mín
raskaðist og óg þurfti að taka
áætlunarbifreið í bæinn aftur.
Margt manna var með bílnum
og þegar í öll sæti var skipað
var komið með aukasæti og
þeim stillt upp við hvert sæti i
miðju, þannig að gaiugurinn
fram eftir bílnum tepptist alveg.
Þar sem ég sat, á næst aftasta
bekk, hvarflaði sú spurning að
mér, hvernig við, sem aftast
sátum, ættum að komast út. ef
eitthvað bæri að höndum. T.d.
ef eldur yrði laus í bílnum, ef
um árekstur eða veltu yrði að
ræða. Þennan dag var færi illt
vegna hálku. Væri fróðlegt að
heyra um þær varúðarráðstaf-
anir, sem gerðar eru í lang-
ferðabílum.
Finnbogi.*‘
* SPÉHRÆÐSLA
Og loks kemur bréf frá
einni 42 ára, sem vafalaust seg-
ir rétt til aldurs:
„Kæri Velvakandi!
Vegna alls úlfaþytsins út af
„uppvaskinu" langar mig að
spyrja þig hvort -til séu prent-
aðar leiðbeiningar um hvað séu
kvenmannsstörf og hvað séu
karlmannsstörf. Ég man ekki
eftir að hafa séð að konur hafi
orðið spéhræddar þó einhver
kæmi að þeim um hábjartan
dag, þar sem þær voru að grafa
grunn, naglhreinsa spýtur, mála
hús, slá blettinn, moka snjó af
stéttinni o.s.frv. Væri ekki
lausn fyrir spéhrædda karl-
menn. sem langar til að flýta
fyrir heima, þegar þess gerist
þörf (t.d. þegar þá langar að fá
frúna með sér í bíó eða bara
að spila við sig, otg vilja ekki að
hún geymi uppvaskið) að eiga
bara vinnubuxur. Svo gæti
húsbóndinn látið hamar liggja
'á áberandi stað í eldhúsinu, svo
að fólk, ef einhver kæmi, héldi
að hann hefði verið að negla
upp mynd. Engum dytti í hug
að konan hans snerti hamar,
Það er jú karlmannsverk.
Elín 42 áraM.
B O SC H
rafkerfi
er í þessum bifrelðum:
BENZ SAAB
DAF TAUNUS
NSU VOLVO
OPEL VW
Við h varahlutina.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF.
Yesturgötu 3.
Sími 11467.