Morgunblaðið - 22.12.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. des. 1964 — Alþingi Framh. af bls. 2 Hannibal Valdimarsson (K) raeddi í upphafi hve gífurlega söluskatturinn með framkvæmd þessa frumvarps ef að lögum yrði myndi hækka á þessu ári og nefndi tölur í því sambandi. Þá 'kvaðst hann vilja benda á fimm leiðir sem fara hefði mátt í stað þessarar lagasetningar m.a. með því að legigja þessar byrgðar á breiðu bökin í þjóðfélaginu svo og ef álögurnai* kæmust svika- laust í ríkissjóð- inn, hefði ekki þurft að leggja þennan nýja skatt á. Hann vitnaði til fyrri um- tnæla Alþ.fl.manna, þeirra Har- alds Guðmundssonar, Gylfa Þ. Gíslasonar og Emils Jónssonar «m óréttmæti söluskatts ag kvaðst nú vilja gera orð þeirra •ð sínum. Þá taldi hann að efnahagsmála ráðunautar ríkisstjórnarinnar hefðu nú verið á móti hækkun söiuskatts. Af þessu dró hann þá ályktun að hækkun söluskatts nú væri ekki aðeins versta leiðin héldur og óþörf. Þá taldi hann útveginn hljóta af þessu gífurleg ar byrðar, sem hann mætti þó ekki við. Hann kvað að ef þessi lög yrðu framkvæmd myndi það mjög tor velda samninga atvinnurekenda og launastéttanna á vori kom- anda, en ef stórfelldar kaup- hækkanir leiddu af þeim myndi það velta verðbólgunni af stað með nýjum þunga. Þá vitnaði Hannibal til sam- þykkta BSRB og miðstjórnar Al- þýðusambandsins gegn söluskatt- inum. Hannibal skoraði á fl.menn -J taka frv. þetta til baka. Hann kvað Alþbl.menn myndu greiða atkvæði gegn þessu frv. sem teldi sig þó sér I lagi full- trúa bændastéttarinnar á Alþingi skyldi vera á móti frumvarpi er tryggði bændum hærra verð fyr- ir vörur þeirra. Hitt væri svo annað mál að hver sú ríkisstjórn, sem að völd- um sæti á næstunni yrði að finna leiðir til úrlausnar landbúnaðin- um, þannig að bændur gætu fengið sanngjarnt verð fyrir sína vöru án þess að riða efnahags- kerfi landsmanna á slig. Loks ræddi ráðherra stöðu sjávarútvegsins í sambandi við þetta frumvarp og taldi ástæðu- laust að vera með bollalegging- ar um afkomu hans eða styrki og uppbætur meðan ekkert væri vit- að hvert fiskverðið yrði á kom- andi vetri. Þórarinn Þórarinsson (F) talaði síðastur ræðumanna Framsóknar flokksins og kvartaði mjög yfir innheimtu stóreignaskattsins, sem hann sagði, n að væri mjög lé- IjH leg. Þá sagði >1 hann. að ríkis- ^ f stjórnin hefði l!l| kappkostað að WB hafa ranga tekju H áætlun undan- Æ farin ár i því ÉSi skyni að hafa greiðsluafgang hjá ríkissjóði, sem hann sagði þó, að ekki þyrfti að vera óhygigi- legt undir öllum kringumstæð- um. Þá varð honum tíðrætt um orð heldni íslenzkra stjórnmála- manna og sagði, að kjósendur gerðu allt of litlar kröfur til þeirra í þeim efnum. Bjarni Benediktsson. forsætis- ráðherra hóf mál sitt, með því að rifja upp viðhorfin í efnahagslífi landsmanna fyrir jól in í fyrra og sagði, að fæstir myndu hafa búizt við, að komizt yrði hjá verðfalli á íslenzku krón unni og nýjum stórátökum. Allt hefði þó snúizt á betri veg og krónan haldið gildi sínu. Emil Jónsson, félagsmálaráð- herra, ræddi í upphafi máls síns um verðbólguhýtina, sem þjáð hefði ísl. efnahagslíf um lanigt árabil. Þá ræddi hann samkomu- lag launastéttanna og ríkisstjórn •rinnar og atvinnurekenda í vor, «n nú væri því haldið fram að kyforð ríkisstjórnarinnar þá hefði verið svikið með þessu frum- varpi. Hann mótmælti því og kvað loforðið hafa verið að halda vísitölunni niðri og það hefði verið gert með niðurgreiðslum en til þeirra hefði ríkissjóður þurft að afla tekna. Ef niður- greiðslur hefðu ekki komið til hefði framfærsluvísitalan hækk- •ð um 7,40 stig. Ráðherra taldi fráleitt að taka tekjuafganga fyrri fjárlaga úr jöfnunarsjóði. Til þeirra ætti að- eins að grípa er sérstök óhöpp steðjuðu að þjóð inni, en ekki ganga á það fé i góðu árferði. Hann bentt á hina óábyrgu af- stöðu stjórnar- andstöðunnar með sýndarfrum vörpum án þess að benda á tekju- Öflunarleiðir í staðinn. Þá svaraði ráðherrann ummael «mi Hannibais Valdimarssonar tim afstöðu Alþýðuflokksmanna fyrr á árum til söluskatts. Taldi aðstæður geta breytt afstöðu manna í þessum efnum sem öðr- ttm. enda væri það stefna Al- þýðuflokksmanna bæði hér og er iendis að taka bæri í auknum mæli tekjur hins opinbera í óbein um sköttum. Þá vitnaði ráðherrann til þess að það hefði fyrst og fremst verið til að mæta niðurgreiðslum á bú- vöruverðinu, sem mjög hefði hækkað sl. haust, sem hin miklu fjárframlög kæmu til úr ríkis- gjóði. Kvað hann niðurgreiðslur •g útflutningsuppbætur á búvör- um í heild nema 674 milljónum á árL Kvað hann spurningu hvort þjóðarbúskapurinn þyldi þetta. Hann kvað það nokkra fluiðu að Framsóknarflokkurinn, Viðbrögð stjórnarandstöðunnar Ýmsar orsakir hefðu valdið þessu, góð afla- brögð, ýmsar ráð stafanir stjórnar valda og síðast en ekki sízt júní samkomulagið. - Rakti forsætis- ráðh. síðan við- brögð manna við þeim kjarabót- um, sem í samkomulaginu voru fólgnar. Ýmsir hefðu gert of lítið úr þeim, en þar við bættist, að þeir menn væru til, sem með öllu móti hefðu reynt að gera sam- komulagið tortryggilegt, t.d. hefði I Þjóðviljanum verið frá upphafi gert of lítið úr þeim ráðstöfun- um til styttingar vinnutíma, sem um var samið, og á Alþingi hefði talsmaður Framsóknarflokksins ögrað umboðsmönnum Alþýðu- sambandsins með því að vinnu- tímastyttingin hefði verið ónóg og það svo mjög, að Hannibal Valdimarssyni hefði þótt nóg boðið. Tíminn hefði haldið þessum ögrunum áfram og væru þær gott dæmi hinna gegndarlausu yfir- boða, sem ættu sér stað meðal stjórnarandstöðunnar. Ekki hefði tekizt að fylgja júnísamkomulaginu í öllu. Ein- stakir stéttarhópar hafa neytt að stöðu sinnar sér til framdráttar, án þess að forvígismenn Alþýðu- sambandsins hafi við það ráðið. Fráleitt væri að halda því fram að skattaálagning á sl. sumri hefði rofið grundvöll eða anda júní-samkomulagsins. Tekju- skattslögin voru samþykkt nokkr um vikum áður en júnísamkomu- lagið var gert og það væri óve- fengjanlegt, að gildandi skatt- stigar voru öllum kunnir, þegar samið var í júní, og svipuðu máli gegndi um útsvarsstigann j Reykjavík, en frá honum varð af sláttur meiri en gert hafði verið ráð fyrir í útreikningum þeim, sem aðilar höfðu undir höndum, við gerð júnísamkomulagsins. Ástæðurnar fyrir því, að skatt- lagning kom illa við mena á sL sumri voru eínkum hinar miklu verðlagsbreytingar, sem orðið hefðu frá fyrra ári og stórhækk- að raunverulegt kaupgjald. Vegna júní-samkomulag'sins hlaut verðlag að haekka * Forsætisráðherra sagði enn- fremur, að engum hefði dulizt, að einmitt vegna júnísamkomulags- ins hlyti verðlag að hækka á næstu mánuðum til viðbótar öðr- um verðhækkunum, sem voru fyrirsjáanlegar. Ekki Ihetfði verið samið um, hvaða viðbrögð kæmu íhelzt til greina, þó var ítarlega um þau rætt. Ríkisstjórnin lýsti því yfir að Ihún myndi í fyrstu greiða veðhækkanir niður. Enga fasta ráðagerð kvaðst hún þó hafa lengur en þangað til þing kæmi saman, og ekki væri neinn ágrein ingur um, að stjórnin faefði ber- um orðum sagt, að til áframhald anidi niðurgreiðslna eftir ára- mót mundi þurfa nýjar tekjur í rikissjóð og mundi ákvörðun um það tekin í sambandi við af- grefðslu fjárlaiga, þetta sannaði hvilí'k fjarstæða það væri, að Ihalda því fram, að það gæti ver- ið á móti anda 3úná-sam>komu- laigsins að innlheimta slíka skatta. FV>rsætisráðherra rakti síðan þær hækkanir, sem sjá mátti fyrir og rætt var um viðbrögð gegn, þegar júní-samkomulagið var gert og studdist þar vfð yfirlit frá efna- faagisstofnuninni. Sagði faann m. a., að vísitala framfærslukostnað- ar íhefði hækkað um 8,4 stig, ef engin breyting hefði orðið á niðurgreiðislum. Á því tímabili, sem faér ræðir, faafa niðurgrei’ðsl ur fains vegar verið au'knar sem svarar 7.4 stigum, en það jafn- gildir 228 millj. kr. árlegum kostnaði. Hrein faækkun vísitölu framfærslukostnaðar er því 1.0 stig. Langsamlega mestur hluti þeirra faækkana, sem faér um ræðir væri vegna faækkunar land búnaðarvara. Öðrum meiri bændavinir Framsóiknarmenn þættust vera öðrum meiri bændavinir, en það væri grár leikur í garð bænda- stéttarinnar að róa nú a'ð því öllum árum að magna tortryggni og fjandskap út af þeim ráð- stöfunum, sem gerðar eru til þess að milda þessa hæ'kkun og það væri unidrunarefni bonum og öðr um, sem litu á iandbúnaðinn, ekki eingöngu út frá fjárfaagslegu sjónarmiði, heldur einnig út fra því, að þar væri um viðfaald eins faelzta eðiisháttar isL þjóð- arinnar, þegar Framsóknarmenn gerðu sér nú leik að því að efna til faatramms ófriðar ein- mitt af þessum sökum. Eftir ÖM viðfarögð Framsókn- armanna þ.ájn. eftir að (hafa les- ið tillögur Framsóknarmanna um 220 millj. króna auikin útgjöld á fjárlögum án þess að ætla til þess einn eyri í auknum tekjum, — getur enginn undrast á'byrgð- arlauisa faegðun Framsóknar- manna. Fyrir þeim vaikir þáð eitt að koma núveramdi ríkis- stjórn á kné. Til þess að ná því takmarki, svífist Framsóknar- flokikurinn einskis. Hvað varðaði spamaðarfajal Fremsóknarmanna þá hefðiu þeir sjálfir fekki fliutt eina ein- ustu sparnaðartililögu og í mól- flutningi sínum hefðu þeir aldrei linnt á kröfum um nýjar fram- kvæmdir og stofnun nýrra env- bætta í óJikustu gneinum. Fjorsætisráðfaerra sagði, a@ sér kærni ekki til hugar en að ýmis legt mætti spara, en það yrði ekki gert nema á löngum tíma og með markvissu samfeMdu starfi. Á það bæri einnig að líta, að sumstaðar þar sem aiuð- vel* virtist að gkiera niður út- gjöld, væri með öliliu óvist, hvort sl'ikt borgaði sig. Glöggt dæimi un. slí'kt væri utamríkisþj ónust- an en það væri vegna starfa u* arwíkislþjón’ustuninar og fyrir at- beina utanríikisráðfaerra, að Loftleiðadeilan leystLst okkur i viL Margt hefur farið verr en skyldi og verst af öllu er, að enn hefur okkur ekki tekizt *ð »áða við verðbóliguna. En við skulura ekki þess vegna gleyma því, sem vel hefur tekizt fyrir okkar kyn- slóð og þar ber ekki sízt að telja það, sem áunnizt hefur með trygg ingunum. Gildi trygginganna En fyrst og fremst eru það hinir fátækari, sem nú búa við aollt annan en ella vegna trygginganna. Þeirri gerbreyt- ingu er oft gleymt, þegar verið er að telja fram hversu kaup- gildi almennra verkamanna sé nú lakara en stundum áður. Á tímabilinu 1958—1963 hafa hreinar þjóðartekjur á mann aukizt um 15,6%. Á sama tíma hefur kaupmáttur ráðstöfunar- tekna kvæntra verkamanna í Reykjavík hækkað um 18,5% frá árinu 1958 til ársins 1963 og ef sjómerm og iðnaðarmenn eru taldir með er meðalhækkunin 23,3%. Þessar stéttir hafa því fylli- lega haldið sinni hlutdeild í þjóð- artekjunum. Gerbreyting á kjörum Almenningur veit, bezt af eig- in raun, hvílík gerbreyting til hins betra hefur orðið á kjörum hans undanfarna áratugi og þá ekki sízt s.l. 3 ár. Stjórnmála- menn og verkalýðsleiðtogar eiga þar vafalaust minni hluta að máli — bæði til góðs og ills — en bæði þeir sjálfir og aðrir oft- ast láta. Mestu veldur tækniþró- un, dugnaður almennings og framtak athafnamanna. Þá minntist forsætisráðherra á kaupgjaldsbaráttu undanfarinna áratuga og sagði þar m.a., að víst væri að stjórnmálamenn og verka lýðsleiðtogar gætu greitt fyrir og tafið. ÖMum kæmi þó saman um nú. að kaupgjaldsbarátta undan- farinna ára hefði verið einstak- lega ófrjó og síður en svo skil- að erindi sem erfiði. Allir sem hlut hefðu átt að júní-samkomu- laiginu teldu sig menn að meiri fyrir þá hlutdeild. Ráðherrann skírskotaði síðan til orða, sem höfð eru eftir Taft heitnum, foringja íhaldssamari arms republikana í Bandaríkjun um, þar sem hann sagðL að „hlut- verk stjórnarandstöðu væri að vera í andstöðu", og sagði. að málflutningur Framsóknarmanna og Alþýðubandalagsins í þessum umræðum væri mjög í samræmi við orð þessa íhaldssama stjórn- málamanns. Sízt mætti vera án gagnrýni, en ríkisstjórn má ekki hverfa frá skyldu sinni, einungis af því að hún veit, að hún á von á gagnrýni. Allir vildu hrósið Ríkisstjórnin hefði vitað ofur vel, þegar hún gerði júní-sam- komulagið, að allir myndu vilja taka sinn hluta af hrósinu fyrir það, en ríkisstjórnin hefði einnig vitað að samkomulaginu fylgdi sitthvað, sem ekki var líklegt til vinsælda, en stjórnin yrði engu að síður að tryggja. Engir sæju betur annmarkana á söluskatts- hækkun nú en ríkisstjórnin, en annmarkarnir á þvá að skjóta sér undan að afla nauðsynlegs fjár væru enn meiri. Þá fyrst yrði vonlaust að ráða við verð- bólguna. Að lokum sagði ráðherrann: Við skiljum þá gagnrýni, sem uppi er höfð, en við treystum því, að áður en yfir lýkur munu þau þjóðheillaöfl, sem voru okk- ur hvatning að samkomulaginu síðastliðið sumar, fá því ráðið, að á ný verði leitað sameiginlegr ar lausnar á vanda, sem að a'llri íslenzku þjóðinni steðja, og okk ur ber því öllum að gera allt sem við megnum að leysa. Eðvarð Sigurðsson (K) hóf mál sitt með því að ræða um að jóla- boðskapur ríkisstjórnarinnar væri myrkraverk. Þessi skatta- hækkun væri sögð gerð til að standa straum að júní-samkomu- laginu svonefnda. Það væri ekki rétt. Þar hefði verið samið um að verðtryggja kaupið, en svo væri það ríkisstjórnarinnar að á- kveða hvort það væri gert með beinni kauphækkun eða með nið- urgreiðalu víaitöiunnar. Eðvarð kvað verðlag nauð- synja hafa tvöfaldast á fjóruin. árum. Þetta hefði skapað ófríð á vinnumarkaðnum en launþeg^r hefðu ávalt verið á eftir með sífr- ar kjarabætur og því væru þeir ekki orsök verðbólgumynd unarinnar. Júnísamkomu lagið hefði ver- ið skilgreint sern vopnahié. Síðan hefði hin óhóf- lega skattpining komið til og sem reiðarslag yfir fólkið. Viðræður hefðu farið fram um þessi mál við fjármála- ráðherra, en lausn ekki fengizt fyrr en komið var fram yfir síð- asta greiðsludag skattanna. Tóic ræðumaður dæmi um það að nú í síðustu skattgreiðslum fyrir jól hefðu launamenn margir fengið lítið sem ekkert kaup, aðein* kvittanir frá skattheimtunni. Eðvarð spurði hvort söluskatt- urinn væri til þess gerður að hygla milliliðastéttunum, en á þeim hvíldi innheimta skattsins. Hann lauk máli srnu með því að segja að yrði nú öllu hleypt af stað til hækkunar yrðu launþega samtökin að beita öllum tiltæk- um ráðum til að rétta hlut sinn. Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta- málaráðherra var síðastur ræðu- manna við umræðurnar. Hann ræddi í upphafi um nauðsyn þess að ríkisbú- skapurinn væri rekinn með hagn aði. Taldi hann eiga að vera greiðsluafgang í góðæri, en greiðsluhalla í mögru árunurn. Benti hann á að í fyrra hefðn launahækkanir numið 30% en þjóðarframleiðslan aðeins 7%. í ár hefði þetta færzt til meira samræmis, að tekjuaukning hefði verið r samræmi við þjóðartekj- urnar. Þá hefði ekki verið greiðsluhalli á viðskiptunum víð útlönd. Viðskiptamálaráðherra sagðí* að nauðsyn bæri til að íhuga hvað framundan væri og að hve miklu leyti ríkissjóði væri nauðsyn á þessum tekjum á næsta ári. Hækkun búvöruverðs ins í haust hefði skapað alveg nýtt viðhorf. Þrennt hefði komið til mála í leiðréttingu þess við- horfs: Að verðlag búvara hækk- aði, að lagður yrði á nýr skattur til niðurgreiðslu varanna, eða að dregið yrði úr útgjöldum ríkis- sjóðs sem þeim næmi. Hyggilegast hefði verið að draga úr útgjöldunum, en til þess þyrfti að koma víðtækara sam- starf innan Alþingis en nú væri fyrir hendi. Niðurgreiðslur at völdum landbúnaðarvara myndu á næsta ári nema 228 milljónum króna, en hvað ætti að lækka » móti? Skattlagningarleiðin hefði þvf verið valin. Þá ræddi ráðherrann það sem þýðingarmest væri að fram- kvæma á næsta ári, en það væri víðtækt raunhæft samkomulag atvinnurekenda og vinnustétt- anna. í því sambandi kæmi eink- um fernt til athugunar, sem leiða mætti til raunhæfra kjarabóta; 1. Viðleitni til styttingar vinnu- tíma, 2. Endurskoðun skattalög- gjafarinnar, 3. Lækkun tolla og 4. Endurskoðun landbúnaðar- stefnu þjóðarinnar. Svo virtist nú komið að hver hagsmunahópurinn af öðrum vildi skara eld að sinni köku. Þetta væri galli góðærisins. Ráðherrann kvaðst að lokum vilja óska þess að sem fyrst á næsta ári mætttt hefjast viðræð- ur um einlægt og raunhæft sam- komulag er leiddu til vaxandi launabóta og vaxandi þjóðae- t framieiðstu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.