Morgunblaðið - 26.03.1965, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.03.1965, Qupperneq 15
1 FBstudagur 99. mVrs 1963 MORCUNBLAÐIÐ 15 Gjaldeyristekjur af erlendum feröamönnum 82 millj. kr. ’64 lancíL tíííkast, og talið að fæ-li út- lendinga frá ferðalögum á Is- landi, til dæmici gjaildmæla í ieiguibifreiðum. Hvaða auigum lít ur ferðamálaráð þessi mól? — Gjaldmælarnir eru afskap- lega hvimleitt vandamál. A m*l unum stendur miktu lægri upp- hæð en siðan er inn.heimt af farþegum. Flestir útlendingar halda að bílstjórarnir séu að stela af þeim. Við höfum sent bréf tit bílstjórafélagsins Frama og óskað eftir samvinnu þeirra um að leyisa málið á viðunandi hátt. Samtal við Luðvig Hjólmtýsson, iormann lerðamólaráðs FERÐAMÁLARÁÐ var stofnað með lögum 30. april, 1964, og. kom það fyrst saman til fundar 1. júli sl. í því eiga sæti Lúðvig Hjálmtýsson, sem er formaður og framkvæmdastjóri þess, skip- aður af ráðherra, Albert Guð- mundsson, varaformaður, einnig skipaður af ráðherra, auk full- trúa frá 9 aðilum, Sigurlaugur l»orkelsson frá Eimskipafélagi ís- lands, Ágúst Hafberg frá Flug- félagi sérleyfishafa, I.árus Otte- sen frá Ferðafélagi íslands, Birg- ir Þorgilsson frá Flugfélagi ís- lands, Sigurður Magnússon frá Loftleiðum, Þorleifur Þórðarson frá Ferðaskrifstofu ríkisins, Pét- ur Daníelsson frá Sambandi veit inga- og gistihúsaeigenda, og Geir H. Zoega frá Félagi ís- lenzkra ferðaskrifstofa. Morgun- þlaðið hafði fyrir skömmu sam- tal við Lúðvig Hjálmtýsson og spurði hann um starfsemi Ferða málaráðs. — Við höldum vikulega fundi, sag'ói Lúðvig, og fyrir tveim mánuðum fengum við loksins fast aðsetur hér á Skólavörðu- stíg 12. Hlutverk ráðsins er að vera Alþingi og ríkisstjórn ráð- gefándi um allt, sem lýtur að ferðamálum á landinu og gera tillögur til umibóta, t.d. um skip- an gistiihúsmálanna og tillögur um lánveitingar úr ferðamála- sjóði, sem stofnaður var með sömu lögum og ráðið. Heimi’d er til að taka að láni allt að 20 mLllj kr. til að endurlána. Auk þessa hefur sjóðurinn tekjur á fjarlögum, 1,5 millj. kr. árið 1965. — Eruð þið farnir áð lána úr sjcðnum,? — Nei, ekki ennþá, þar sem við höfum ekki fengið til um- ráða féð, sem heimildin er fyrir. Hins vegar hefur Ingólfur Jóns- ®on ráðherra, gefið okkur fyrir- heit um það, að fer’ðamálasjóður muni fá 10 millj. kr. sem von- andi yrði handibært fyrir mitt yfirstandandi ár. Virðist svo sem hægt verði að endurlána það á síðari hluta ársins. Seinni 10 milljónirnar kveðst ráðherra munu beita sér fyrir að fáist á næsta ári, — Eru umsóknir um lán úr sjó'ónum teknar að berast? — Já, þær byrjuðu að streyma að, strax eftir að ferðamálaráð eettist á rökstóla. Voru það um- sóknir um lán bæði til endurbóta og nýbygginga á gistihúsum. 82 millj. kr. gjaldeyristekjur 1964. — Ferðamálin eru orðinn svo ríkur þáttur í efnahags- og at- vinnulífi flestra þjó'ða, að mikið rfður á hvernig til tekst um skipu lagningu þeirra og stjórn, hélt Lúðvíg áfram. — Hve miklar voru gjaldeyris tekjur íslendinga af erlendum ferðamönnum á síðastliðnu ári? — Þær voru 82 milljónir króna Árið 1963 voru þær 56 milljónir. 2)2,969 erlendir ferðamenn komu til landsins, 1964, en 1963 komu 17,575. í þessum gjaldeyristekj- um eru ekki tekin með í reikn- inginn fargjöld flug- og skipa- félaganna, né heldur tekjur af viðskiptuim fríhafnanna. Ekki er svo vafi á því, áð ferðamanna straumurinn á eftir að vaxa geysilega á næstu árum, og tekj- ur þessar að auikast að sarma •kapi. — Hiöfum við nokkur hótei til að taka við slíkri aukningu? — Það skprtir mikið á að lands byggðin sé undir það búin, þótt ástandi'ð sé mjög að batna í Reykjavík, einkum eftir að Loft- leiðahótelið verður til'búið, vorið 1966. — Hvaða ráðstafanir eru gerð ar til að bæta úr hótelskortinum úti á landi? — Mikil og góð bót hefur þegar verfð ráðin á þessu ástandi fyrir tilstuðlan Ferðaskrifstofu ríkisins, þar sem mörgum skól- um úti um land er breytt í sumarhótel í kennsluhléinu. Margt af þessum skólum eru ágæt húis og má því með tiltölu- lega litlum tilkostnaði breyta þeim í boðleg hótel. — Anna hótelin í Reykjavík eftirspurn? — Mestan hluta ársins nægja þau. En á surnrin væri neyðar- ástand um hýsingu gesta, eif stúdentag'arðarnir væru ekki reknir sem hótel. Þá eru íslend- ingar utan af landi, sem koma í kaupstaðarferð, að byrja að iáta sér detta í hug a'ð búa á hóteli í stað þess að gista hjá ætt- ingjum eða vinum. Ég gerði að garnni mínu athugun á því, hve margir íslendingar væru gest- komandi í Reykjavík að jafn- aði á nóttú, og komst að því, að þeir væru ekki færri en 500 til 600. Eru það menn í viðskipta- erindum, sjúklingar a'ð ná sér eftir spítalavist, fólk í læknis- rannsókn og fleiri erindagerðum. Mörgum kann að koma það spánskt fyrir sjónir, en þó er það staðreynd, að ef við byggj- um við jafnháþróaða hótelmenn- ingu og nágrannaþjóðir okkar, þá mundi hótelrými í Reykjavík ekki nægja íslendingum einum. Gera þarf svæði fyrir tjaldstæði í Reykjavik. — Hverjar hafa verið helztu tiilögur ferðamálaráðs, síðan það tók til starfa? — Okkur er ekkert óviðkom- andi, sem snertir á einhvern hátt ferðamálin. Mörg mál eru rædd, svo sem samgöngumál, verðlag og ástand gistihúsa um land allt, og mörgum tillögum hefur verið hreyft. En margir þurfa að hjálpast að, ef verulegar fram- farir eiga að verða á þessu sviði og höfum við ákveðið að halda ferðamálaráðstefnu í vor. Þang- að verður bóðið öllum þeim, sem við álítum að málin varði. — Við sendum borgarráði bréf fyrir skömmu og lögðum til, að komið verði upp svæði fyrir tjald búðir í Reykjavík á stað, sem vel liggur við ferðum strætis- vagna og þar sem sett væru upp salerni, aðstaða til þvotta og snyrtingar auk söluskýlis með gæzlumanni. Okkur finnst ekki óeðlilegt, að Reykjavíkurborg grefði fyrir ferðamönnum, þar sem a.m.k. helmingur þesisara 82 milljóna renna í vasa borgarbúa. — Einnig skrifuðum við borg- arráði til að taka undir tillögu sem fram kom í grein eftir Sig- urð Magnússon i Morgunblað- inu, þess efnis að staðsett verði fyrirmyndar gróðurhús á góðurn stáð í bænum, t.d. í Laugardal eða á Klarobratúni. í gróðurhúsi þessu ætti að vera safn alls þess gróðurs, sem hægt er að rækba við jarðhita. — Hvað hefuir verið rætt um verðlagið á íslandi? — Vfð höfum, að mínu viit, slegið öll met í verðhækkunum á síðustu bveim árum, þótt að vísu sé verðlag allsstaðar hækk andi t.d. í Danmörku, þar sem geysimikið er um erlenda ferða- menn. Við megum vara okikur að spenna bogann ekki of hátt. Geir H. Zoega, sem tekur á móti flestum útlendingum, er til lands ins koma, sagði mér, að skipa- félögin erlendu hefðu haft á Lúðvik Hjátmtýsson orði að láta farþegana af skemmti ferðaskipunum ganga um á landi, en koma um borð á mál- tíðum, ef verðlagið hér héldi á- fram að hækka svona ár frá ári. Með hækkúðu verði misstum við hreinlegg markaðinn — Svo er önnur reginfirra í verðlagi á íslandi og hún liggur i því, að ekki er gerður nægi- legur greinarmunur á verði vara og þjónustu með tilliti til gæða. Það nær til dæmis engri átt, að sölusk'áli við þjó'ðveginn selji kaft'i og vínadbrauð á næstum því sama verði og beztu hótel- Ln í Reykjavfk. — Hvað er hægt að gera til að koma á einihverskonar flokk- un? — Sá hængur hefur verið á, að ekki er til á einurn stað skrá yfir alla veitinga- og gististaði á landinu og ásigkomulag þeirra. Nú er hins vegar orðin til stofn- un, Gisti- og veitingastáðaeftirlit ríkisins, og forstöðumaður henn- ar, Edward Frederiksen, hefur að undanförnu ferðazt um land- ið og kynnt sér staðina. Vinnur Edward nú að því að gera ná- kvæma skrá eða skýrslu um rannsóknir sínar. Ég tel, að þarna sé verið áð vinna ákaflega merkilegt starf, sem gefi góða mynd af ástandinu eins og það raunverulega er. Þá fyrst er hægt að taka tii við úrbætur. Æskilegt er að ferðaskrifstof- urna.r og fleiri aðilar hafi í hönd um lista yfir hótel og veitinga- hús, þar sem þa>u væru flokkuð eftir gæðum og þeirri þjónustu, sem þau veita. — í blaðaskrifum hefur veri'ð getið um ýmislegt, sem hér á — Hvað er að segja um 25 króna aðgangseyrinn að veitinga stöðunuro? — Það mál var snemma rætf hér í ráðinu. Það er samdóima álit þeirra, sem bezt þekkja til, að erfitt sé að koma útlendingum I skilning urp það, að þeir þurfi að kaupa sér aðgang að matlborði. Hins vegar er það staðreynd, að sjóðirnir, sem tekjur £á af þessu gjaldi, mega í engu missa. Við höfum skrifað menntamálaráðu- neytinu bréf um málið og bíðum nú svars um það, hvort ekiki séu eimhverjar leiðir færar til að afla þessa tekna annarsstaðar. — En veitingmenn fiá nú einnig 15 krónur af gjaldinu. Er það ekki? — Jú, að vísu. 10 krónur eru fatagjald, og það er einnig er ábyrgðartrygging hússins gegn tjóni eða tapi á fatnaði, sem oft er rándýr. Þá eru 5 krónur í inn- heimtulaun fyrir skattinn. Held ég að veitingamenn séu ekki of- sælir af því, þar sem hafa þarf sérstakan mann við þá inn- heimtu. — Hvernig lízt þér svo á fram tfð íslenzkra ferðamála? — Mér lízt mjög vel á hana, ef ekki verða stórkostlegar breyt ingar til hins verra í efnahags- málum þjóðarinnar. Skilningur ráðamanna og almennings hefur verið prýðilegur. En hér er núk- ið verk að vinna á óplægðum akri. Beztur árangur fæsf ekki endilega með því að fara sér allt- of geyst, því að lengí býr að fyrstu gerð. Mynd þessa tok oi. K. M. í gær hjá Olivetti umboðinu þegar þriggja vikna námskeið starfsmann- anna var að ljúka. Lengst til vinstri er Harones Arnórsson, forstöðumaður verkstæðisins. Næstuir honum er ítalinn Fancelli, og siðan nem.arnir þrir, Sveinn Jóhannesson, Óttar Baldvinsson og Þorst- einn Guðnason. Innflutningur rit- véla undirbúinn * Itailskur sérfrædingur kennir starfsmönnuni Olivettiumboðsins UNDANFARIN ár hefur inn- flutningur á ritvélum eingöngu verið heimill frá Austur-Evrópu, en niýlega var ákveðið að gefa hann frjálsan frá 1. júli nk. Fá nú innflytjendur skrifstofuvéla frá Vestur-Evrópu og Ameríku samikeppnisaðstöðu í fyrsta sinn i mörjj ár. Meðal þessara innflytjenda er G. Helgason & Melsted hf., en félag þetta hefur umboð fyrir ít- alska fyrirtækið Olivetti, sem er stærsti skrifstofuvélaframleið- andi Evrópu. Er Olivetti umboð- ið til húsa að Rauðarárstíg 1. Mbl. sneri sér í gær til Ragn- ars Borg, framkvæmdastjóra um- boðsins, til að kanna hvaðá ráð- stafnir hafi verið gerðar til að undirbúa innflutning á Olivetti ritvélum. Vildi þá svo vel til að þar var að ljúka þriggja vikna námskeiði í viðgerðum og við- haldi ritvéla, en kennari var sérfræðingur frá Ítalíu, Fancelli að nafni. Nemendur voru þrír starfsmenn umboðsins, þeir Sveinn Jóhannesson, Óttar Bald- vinsson og Þorsteinn Guðnason. Hafa þeir allir starfað um nokk- urt skeið hjá umboðinu undir Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.