Morgunblaðið - 26.03.1965, Page 19
Föstudagur 26. marz 1965
MORGUNBLADID
19
Vaxbrúðan
Vaxdockan. Svíþjóð 1962.
94 mín. Nýja bíó. Handrit:
Lars Forssell. Xökurit: Eva
Seeberg. Kvikmyndari: Áke
Dalilquist. Tónlist: Ulrik
Neumann. Framleiðandi:
Lorens Marmstedt. Leik-
stjóri: Arne Mattsson.
Kvikmyndaáhorfendur hér
hafa tíðum sýnt að þeir eru
mjög óþolinmóðir og all þröng
mótaðir í sínum kvikmynda-
smekk. Flest sem er ekki eins
og það sem þeir hafa séð árin
áður dagar oft uppi við Kína-
múr þess afturhalds og áhuga-
leysis sem einkennir vora þjóð
í menningarlegu tilliti, í mót-
sögn við gleypugang okkar yf-
ir öllu sem lýtur að efnahags-
legum velfarnaði og tækni.
Þetta kom nokkuð glöggt fram
á þeirri sýningu Vaxbrúðunn-
ar sem ég var viðstaddur. Fá-
menni og neikvæð viðbrögð á
þeirri sýningu er nokkurt rang
læti gagnvart myndinni, sem
er þó engan veginn fullnægj-
andi verk, en er hrein listahá-
tíð í samanburði við flest ann-
að kvikmyndadót bæjarins —
fyrirgefið borgarinnar.
fslendingar eiga ef til vill
nokkuð sökótt við Arne Matts-
son, en hann var að gaufa hér
suður í Grindavík fyrir ára-
tug og varð úr því Salka
Valka. En líklega er lang-
rækni ekki ástæðan fyrir á-
hugaskorti á Vaxbrúðunni,
því sá áhuigaskortur er að
nokkru leyti skiljanlegur.
Arne Mattsson, sem í tvo ára-
tugi hefur stundað kvik-
myndagerð, er einn af þeim
sem hafa reynt að ná sjálfstæð
um kvikmyndastíl, en ekki tek
izt svo heitið geti. Stíltilraun-
ir hans reynast nokkuð þving-
aðar og óekta, því þær eru
hálfgerðir uppvaknin„ar. Kom
það nokkuð vel fram í Kerru-
sveininum (Körekarlen, Há-
skólabíó), þar sem Mattsson
vakti upp gamlan stíl þöglu
myndanna þýzku — expres-
sjónismann — en áragnurinn
varð nokkuð stílsnotur mynd,
en fremur áhrifasmá.
Vaxbrúðan segir söigu ein-
mana innhverfs ungmennis,
einangraðs sandkorns í eyði-
merkursandi stórborgarinnar,
þar sem milljónir snerta oln-
boga hvers annars án þess að
þekkjast. Hann er næturvörð-
ur og því einangrar vaka hans
meðan aðrir sofa hann enn
frekar frá mannlífinu, heldur
en feimni hans og innhverfun.
í einsemd sinni leitar hann á
vit blekkingarinnar. Hann
ímyndar sér að útstillingar-
brúða ein sé lifandi stúlka og
stelur henni. Hann laumar
henni inn í leiguherbergi sitt
og snýr ástarþörf sinni að
henni otg brátt öðlast hún líf
fyrir augum hans og lífið verð
ur um stund bærilegt. Til þess
að gleðja þessa veru gerist
hann jafnvel þjófur, færir
henni skartgripi og klæði. En
smám saman nægir henni ekki
þetta líf á háaloftinu. Hún vill
komast út til annars fólks. Og
brátt verður hún honum
heimtufrek og þjáningarfull
byrði. Atburðir þessir í her-
bergi næturvarðarins vekjj
eftirtekt nábúanna, sem undr-
ast yfir hegðun hans. Og þegar
hann hættir að sækja vinnu
sína til að sinna sinni ímynd-
uðu vinkonu og lokar sig inni,
brjótast nábúarnir inn til hans
og finna hann í rúminu — hjá
gervibrúðu. Þegar kvennabós-
inn, sem sífellt sængar hjá
Lolitu hússins, leiðir hann
kaldhæðnislega í allan sann-
leika gagnvart brúðunni, verð
ur það honum um megn.
Hann „myrðir' hana með því
að mölbrjóta hana og setur
svo líkið í ferðatösku og varp-
ar í djúpið. En þar með hefur
hann ekki losað siig úr greipum
hennar,- Þegar hann hverfur
heim aftur, þá bíður hans
síðasta skelfingin. Brúðan hef-
ur náð þeim tökum á honum
sem ekki verður sleppt.
ímyndun og raunveruleiki
fléttast saman í myndinni. Á
víxl sézt brúðan og líkamning-
ur hennar og er sú víxlun oft
vel unnin. Gio Petré leikur
nokkuð skemmtilega „lifandi"
brúðuna. En fyrir utan Per
Oscarsson er Tor Isedal athygl
isverðastur í hlutverki hins
kaldhæðna kvennabósa, and-
stæða en þó um leið einmana
hliðstæða næturvarðarins.
Skemmtilegur er einnig strák-
hnokkinn, sem lesið hefur
heldur mikið af haZarblöðum
og horft of mikið á sjónvarps-
glæpi og sér lík á hverju strái.
í kynningaratriði myndar-
innar, þar sem un_g stúlka leik
ur sér að bolta, má kenna á-
hrif gamalla mynda, en sá
blær hverfur fljótt og verður
aðeins vart aftur nokkur
augnablik. Myndir þær af grá-
myglulegu umhverfi sem flétt-
ast inn í, minna nokkuð á
enskan realisma í kvikmynd-
um Tony Richardsson o.fl. um
gráan hversdagsleikann. En
víða verður vart ofnotkunar á
myndavélinni til að framkalla
„effekta“ með skringisjónhorn
um og yfirleitt er eins og um
forskriftarvinnu sé að ræða
hjá Mattsson, án nokkurs veru
legs innblásturs. Þar af leið-
andi grípur myndin mann
ekki nógu föstum tökum, en
er samt nokkuð eftirtektar-
verð. Kemur þar til fyrst ag
fremst afbrags leikur Per
Oscarsson í aðalhlutverkinu.
Leikur hans er ákaflega sterk-
ur og innlifaður og hinn inn-
hverfi piltur sem leitar endur-
óms innilokaðra tilfinninga
hjá gervimanneskju, er eftir-
minnileg persóna. Spurningin
er aðeins þessi: er hugmyndin
um ást hans á vaxbrúðunni
svo fjarstæð? Hversu margir
eru þeir ekki sem úthella ást
sinni og lífi yfir það sem í
raun er tilfinningalaus gervi-
manneskja? .
Vaxbrúðan vaknar til lífsins í ímyndun næturvarðarins.
Framh. af bls.
Verkamannaflokknum eða
íhaldsflokknum mun takast að
laða til sín þessa kjósendur,
sem hafa meiri áhuga á hæfni
en hugmyndafræði.
Samkeppni íhaldsflokksins
og Verkamannaflokksins um
þessi atkvæði er einn snarasti
þáttur brezkra stjórnmála í
dag. Verkamannaflokknum er
það ljóst að hann verður að ná
fylgi úr röðum kjósenda frjáls
lyndra, ef honum á að takast
að auka meirihluta sinn.
íhaldssflokknum er það ljóst
að hann verði að ná aftur í at-
kvæði, sem lentu til frjáls-
lyndra í fyrra ef flokknum á
að takast að ná völdum á ný.
f miðju þessu mikla reip-
togi sitja hinir níu þingmenn
frjálslyndra, oig svo sýnist sem
þeir verði að bera kápuna á
báðum öxlum. Þeir verða að
bíða eftir því að hinum verði
á í messunni. Hlutverk þeirra
er nánast hlutverk áhorfand-
ans á knattspyrnuvelli, sem
bendir á mistök leikmanna, en
á enga aðild að leiknum.
Frjálslyndir hafa stefnu í
nokkrum málum, sem þeir
telja algjörlega sína, T.d. hafa
þeir haft miklu meiri og raun-
verulegri áhuga á samvinnu
við Evrópu en báðir hinir
flokkarnir (enda þótt einn
þingmanna flokksins hafi bar-
izt gegn þessu í kosningun-
um).
Á þingi því, sem nú situr,
hafa þingmenn Frjálslyndra
kosið 18 sinnum með stjórn
Verkamannaflokksins en 2r9
sinnum með íhaldsmönnum.
Þetta kann að virðast þeim til
lofs varðandi hlutleysisstefnu
og að þeir kjósi um hvert mál
á grundvelli inntaks þess, en
þetta gefur kjósendum naum-
ast heilsteypta mynd af flokkn
um.
Kannski gera frjálslyndir
sér það ljóst — enda þótt þeir
myndu aldrei viðurkenna það
opinberlega — að framtíð
þeirra byggist á því að hafa
hlutina heldur lausa í reipun-
um og óljósa. Ef frjálslyndir
beittu raunverulega at-
kvæðum sínum á þingi til þess
að Verkamannaflokksstjórn
sæti áfram, eða kysu með
íhaldsmönnum og felldu stjórn
ina, hefði flokkurinn þar með
raunverulega eyðilagt aðstöðu
sina sem einskonar högg-
deyfir milli flokkanna.
Svo lengi sem orðið frjáls-
lyndur er einum þetta og öðr-
um hitt getur flokkurinn búizt
við að halda áfram að upp-
skera atkvæði óánægðra
flokksflokksmanna úr báðum
röðum. En ef flokkurinn tek-
ur eindretgna afstöðu með
íhaldsmönnum, eða kanske
heldur Verkamannaflokknum,
yrði þetta ekki lengur svo.
Það er þannig ekki að undra
að frjálslyndir hafa verið
beggja blands á þingi. Það
er e.t.v. eina vonin til þess
að viðhalda flokknum sem slík
um. Að taka afstöðu gæti orð-
ið til þess að flokkurinn þurrk
aðist út.
(Observer — öll réttindi
áskilin).
Ekki alvarlegur
faraldur í
Skap;afirði
TALSVERÐUR inflúenzufarald-
ur virðist nú ganga í Skagafirði
og nærsveitum. Læknar í hérað-
inu vilja þó ekki staðfesta að
þarna sé um hættulegan farald-
ur að ræða, en munu telja þetta
stafa af sífelldum kuldum, er
þarna ganga um þessar mundir.
Uppsetning og tenging
hinna nýju VEM-Standardmótora, er
eins auðveld og hugsast getur, þar eð
allir mælikvarðar eru í sambandi við
alþjóðlegar reglur. Allar mótorteng-
ingar á afkastasviðinu frá 0,12 til 100
kw eru samræmdar mælikvörðum, sem
mælt er með af Alþjóða raftækninefnd-
inni, en þær reglur gilda nú, í 34 lönd-
um.
Með því er vandkvæðum, í sambandi
við mismunandi tegundir mótora, rutt
úr vegi.
Framvegis verða skipti á mótorum og
viðhald þeirra eins auðveld og fram-
ast má verða. Einnig eru orkuáætlanir
auðveldaðar þar eð öll mál fyrir undir-
stöður, festingar og orkuflutning eru
samkvæmt alþjóðlegum reglum.
Við veitum yður fúslega allar nauð-
synlegar nánari upplýsingar um Stand-
ardmótorana frá verksmiðjunum í
Sachsenwerk, Thurm og Werningrode.
Þeir, sem áhuga kynnu að hafa, geta
einnig snúið sér til Verzlunarfulltrúa
Þýzka Alþýðulýðveldisins á íslandi,
Laugavegi 18, pósthólf 582, Reykjavík.
.Útflytjandi;
Deutscher Innen- und Aussenhandel
VEM - Elektromaschinenwerke
104 Berlin — Chausseestr. 111/112.
der Deutschen Demokratischen Republik. Þýzka Alþýðulýðveldinu.
GEVAPAN GEVAC0L0UR