Morgunblaðið - 15.04.1965, Side 3

Morgunblaðið - 15.04.1965, Side 3
Fimmtudagur 15. april 1965 MORGUNBIADIÐ 3 VETRARVEiRTÍÐ hefir lengst lengst af verið stunduð mei línu — o,g í net, þó nú st orðin á bretying með tilkomu nóta- og togveiða. Myndirnar hér á síðunni eru teknar í einni stærstu verstöðinni, Vest mannaeyjum, en þar er nú mikið að gera á sjó og landi við að koma þeim gula í gagn- ið. S.l. laugardag var að heita má fyrsti afladagurirm á ver- tíðinni. Þó var aflinn ákaflega misjafn, a.m.k. í netin og reyndar líka í nótina, en jafn beztur á handfæri og í troll. Dagsaflipn var 1200 tonn. Af netabátum var ísleifur III. hæstur með 55 lestir (7000 fiska) í 6 trossum yfir nótt- ina. Á þrem nóttum hafði hann þá fengið 110—120 tonn. Verður ekki annað sagt en að Bjarnleifur skipstjóri hafi komið með góðan afla. Með- fylgjandi mynd var tkin, þeg ar ísleifur III. var að landa þessum afla. Einnig fylgir önn ur mynd, sem sýnir fiskinn í nótinni hjá einum Eyjabátn um úti á miðunum. En það er fleira fiskur en sá sem veiddur er í nót, net eða troll. Handfæraveiðar hafa lengi verið stundaðar og frá handfærabátunum kemur eitthvert bezta hráefni, sem völ er á. Þeir Þorgeir á Sæ- lundi og Bjarni í Hágarði eru alltaf að fá ’ann á færin. Og á einni myndinni hér á síð- unni sjást þeir að landa afla sínum. Ómar, yngri bróðir Bjarna, kemur oftast niður á við Eyjar bryggju og keppist við að hjálpa tii við löndunina. Afl- inn hefur eingöngu verið þorskur að sögn þeirra Þor- geirs og Bjarna, gön'gulegur Vonandi hafa þeir rétt fyrir sér um að fiskurinn sé að hefur verið lélg, þangáð til koma á miðin, því vertíðin hrotan kom um siðustu helgi. Kannski er hin svo til árvissa páskahrota að hefjast. Þegar vel aflast hjá bátun- um er mikið í húfi að nógur mannafli sé í landi, til að gera úr aflanum verðmæti til .útflutnings. Eitt af erfiðustu störfunum sem unnin eru í fiskverkuninni er hausun. Og hér birtum við mynd af mönn fiskur, fremur Ijós og smár. um við það verk. Sr. Eiríkur J. Eiriksson „Oss veita himnar vernd og hlé“ Páskar. Guðspjaílið. Mark. 16, 1—7. „HÚSIГ heima var í hugum okkar barnanna eins konar himnaríkishöll. Okkur þótti vel hæfa að píesturinn færi þar í hempuna og gengi þaðan til kirkju á helgum dögum til guðs- þjónustu. Frá bernskudögum er minnis- stætt annað hús. Það var reist austur í kirkjugarði.. Fyrst var tekin stór gröf og síðan steypt gólf og veggir og gert þak á, sem að einhverju leyti mátti rjúfa, er kistum skyldi fjölgað í grafhús- inu. Þarna var kista hinnar ágætu frúar „hússins" látin og manns hennar síðar. Húsið var hvítmálað og bar eiginlega af híbýlum lifandi fólks þarna utan garðsins a. m. k., hvað varanleik snerti, því að trú manna var á þessum tíma, að steinsteypa væri næsta eilíft byggingarefni. Líklega stendur og hús grafar- innar lengur í sandjarðveginum á Ströndinni en „húsið“ í rökum veðrum og hörðum, skjóllaust svo að sleppt sé öðrum hættum, er vofa yfir timburhúsum. Á páskum horfum við til hinna eilífu bústaða. Orðið sjálft felur í sér þá sögn, að engill dauðans gekk fram hjá, þar sem þeir bjuggu, er skyldu lifa. Mundi dauðans engill eða lífs- ins koma til mín og þín á þess- ari blessuðu páskahátið, sem nú fer í hönd? Hversu varanleg eru híbýli okkar? Á páskum reis Jesús Kristur upp frá dauðum. Konurnar í páskaguðspjallinu búast ekki við því. Þær halda til grafarinnar til þess að veita hinum látna nokk- urn umbúnað. Er þær svo heyra fregnina um upprisuna, verður hún þeim um megn og ótti og skelfing grípur þær. Hvað er þessum konum boðað á páskadagsmorgni? Skáldið svarar því: „En Mannsins sonar mildi skal máttug standa í gildi. Hún boðast oss í engils róm“. „En ef nú er predikað, að Krist- ur sé upprisinn frá dauðum, hvernig segja þá nokkrir á meðal yðar, að upprisa dauðra sé ekki til“. í söfnuðinum í Korintuborg, sem Páll er hér að skrifa, voru þannig ýmsir, sem ekki trúðu á upprisinn. Enn í dag er það svo* um okkúr kristna menn, að við efumst um hana, en án hennar er lífsbygging okkar ótraust, hver sem veraldlegi efniviðurinn er. Upprisan er eins og lokasteinn- Martin Luther King til Höfða- borgar Höfðaborg, Suður-Afríku, 14. apríl — (AP) — DR. MARTIN Luther King, leið- togi blökkumanna í Bandaríkj- unum í réttindabaráttu þeirra, hefur verið kjörinn til þess að flytja fyrirlestur þann sem kennd ur er við T. B. Davie (T. B. Davie Memorial Lecture) við há- skólann í Höfðaborg i ár. Fyrir- lesturinn fjallar um akademiskt frelsi. Kjöri þessu verður visað til háskólayfirvalda þeirra er taka eiga lokaákvörðun um val fyrir- lesarans og síðan bjóða honum formlega. Ekki eru taldar líkur á að stjórn Suður-Afríku leggi blessun sína yfir þessa heimsókn dr. Kings. inn í hvelfingu. Án hans hrynur byggingin. „En ef Kristur er ekki uppris- inn þá er ónýt prédikun vor, ó- nýt líka trú yðar“, segir Páll enn fremur í pistli páskanna. Við staðnæmumst í kirkju- görðum og sjáum þar, hve mis- miklu menn hafa haft áhuga á eða efni til að gera af varanlega úr garði hinzta sýnilega húsið sitt. Ef til vill er upprisa ekki mesta vandamál kristins manns, heldur, hversu henni sé háttað, hver orsök hennar sé, ef svo mætti að orði komast. Postulinn spyr einmitt: „Hvern ig rísa dauðir upp?“ Hann svarar og segir: „Það sem þú því sáir verður ekki lífgað nema það deyi“. Hér mætir okkur hið eiginlega vandamál páskanna, að við öðl- umst fögnuð þeirra. Sáning er okkar stolt, fegurst iðja mannsins, tákn hinnar var- anlegustu byggingar. Þau örlög mannleg eru þung, að það, sem . við sáum, skuli þurfa að deyja. Margur horfir á fræið sitt dá- ið. Móðirin vefur barnið sitt reif- um. Lítill hugljúfur drengur gengur út í vorið. Hann fer að heiman í skólann. Skólastjórinn er að kveðja síðasta nemenda- hópinn sinn. Einn þeirra kveður skólann og kennarana með því að taka ágætiseinkunn og hann á hana, hvernig sem prófið væri. Hinn hugljúfi sveinn, héldur vor göngu sinni áfram með sól og yl í sál, er um hann leikur út til umhverfis hans. Faðirinn fer með drengnum sínum í framandi land að búa honum einnig þar stað. Svo kemur helfregnin. Slys slær til jarðar vonirnar fögru og fyrirheitin. En postulinn heldur áfram: „En Guð gefur því líkama eftir vild sinni“. Frækornið dáið. Jurtin lifir. Mannleg viðleitni Guðleg náð. Gröf Jesú var rammgert hús. Konurnar ætla að fylla það ang- an smyrsla sinan — og kærleika. Skyndilega er gröfin horfin. Engillinn segir aðeins um hana: „Þarna er staðurinn“. Líf án stað ar og tíma hefur tekið við. Hús Guðs hefur risið. Jafnvel „húsið“ hrörnar og hrynur. Lögmál dauðans og fall- veltisins gengur yfir sérhverja grafarsmíð. Það eitt rís og hryn- ur aldrei, sem Guð reisir með fórn og dauða síns blessaða son- ar og fyrir viðtöku þess lífsins lögmáls í hjörtum okkar mann- anna og viðleitni. . í guðspjallinu segir, að kon- urnar hafi flúið frá gröfinni og að ótti hafi gripið þær. Margan hefur þetta hneykslað, er hinn mesti fagnaðarboðskapur var fluttur um sigurinn yfir dauðan- um. Við fögnug heilagri páskahá- tíð, en gleymum ekki, að sál hennar rísjjpp úr hafi táranna og baráttunnar, missisins og sorgar- innar — föstudagsins langa. Kær leikurinn sigrar. En hikum við ekki einatt á að fela ráð okkar honum? En er við óttumst dauðans dyr og þyrnibraut þjónustu og kær- leika, látum þá sól páskanna verða okkur vor og líf varanlegt hús um eilífð. „Svo helgist hjartans varðar. Ei hrynur tár til jarðar í trú, að ekki talið sé. í aldastormsins straumi og stundarbarnsins draumi oss veita himnar vernd og hlé“, Amen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.