Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 13. apríl 1965
MORGUNBLABIÐ
13
Úr páskamynd Xónabíóis, „McLintock.“ f aðalhlutverkum
John Waine og Maureen O'Hara.
að vera nægileg trygging fyr-
ir góðri skemmtun. Gaman-
myndin „Þrjár stú.lkur í
París“ er tiltölulega ný af nál-
inni og hefur hlotið góða
dóma í dönskurh blöðum, en
í Danmörku hefur hún lengi
verið sýnd við góðar undir-
tektir — og er ekki að efa, að
svo verður einnig hér.
• HAFNARBÍÓ:
40 pund af vandræðum.
Heiti páskamyndar Hafnar-
bíós, „40 pund af vandræð-
um“, gefur til kynna, að hér
sé létt og fjörug gamanmynd,
enda er sú raunin. Þetta er
bandarísk kvikmynd í litum
og Panavision með Tony
Curtis, Phil Silvers og Suz-
apne Pleshette í aðalhlutverk
unum, Þessi 40 pund, sem um
ræðir, er raunar sex ára
gömul stúlka, Penny Piper, en
það er hún, sem veldur öllum
vandræðunum. Faðir hennar
hefur skilið hana eftir á hótel
herbergi meðan hann skrepp-
«r til San Fransisco til þess
að verða sér úti um peninga,
sem hann skuldar vegna þátt-
löku i fjárhættuspili. Það fell
ur í hlut eiganda spilavítisins,
Steve (Tony Curtis), að sjá
tim stúlkuna á meðan. Þegar
Jaðirinn kemur ekki aftur á
tilteknum tíma, brýtur hann
með sér, hvort hann eigi að
gera lögreglunni aðvart, en
hverfur að því ráði, að ann-
ast um stúlkuna sjálfur í
þeirri von, að karl skjóti upp
koiiinum innan tíðar, því að
satt að segja fer vel á með
honum og þeirri litlu. Um-
byggja Steves fyrir litlu
stúlkunni, verður til þess, að
hann og Chris, sem hann hef-
ur iengi litið hýru auga, taka
að felia hugi saman. En einn
góðan veðurdag fær Steve
slæmar fréttir. Honum berst
vitneskja um það, hvers vegna
faðir litlu stúlkunnar hafi
ekki komið aftur. Ástæðan
var sú, að hann hafði lent í
bOsiysi og beðið bana. . . .
En sagan er ekki öll, þótt
hér verði iátið staðar numið
að rekja efnisþráðinn.
• NÝJA BÍÓ:
Síösumarsmót.
Fyrir þá, sem hafa gaman
að söngva- og gamanmynd-
um, hlýtur leiðin að liggja í
Nýja bíó, en þar verður páska
kvikmyndin „Síðsumarsmót**,
amerisk mynd í litum og
Cinemascope frá 20th Centry
Fox. í þessari mynd koma við
sögu hinir víðkunnu dægur-
lagasöngvarar Pat Bonne og
Bobby Darin, en einnig leikur
sænska stúlkan Ann-Margret
stórt hlutverk. Tónlistina í
myndinni hefur Richapd
Rodgers, en söngleikir, sem
hann hefur samið í kompaníi
við Hammerstein eru alkunn-
ir.
Það er sem sagt sungið í
þessari mynd — og margt
spaugilegt kemur fyrir. Auð-
vitað er hæfilegur skammtur
af rómantík líka. Myndin
fjallar um siðsumarsmót eða
markaðshátíð í Texas, en þá
er mikið um dýrið og ailir
samtaka í að eiga ánægjuleg-
ar stundir, en söguþráðurinn
er of margslunginn til þess
að unnt sé að gera honum skil
í stuttu máli.
• STJÖR.NUBÍÓ:
Barabbas.
Stjörnubíó sýnir stórmynd-
ina Barabbas. Þetta er ítölsk-
amerisk kvikmynd í litum og
Cinemascope, gerð eftir sam-
nefndri sögu Per Lagerkvist,
en hún var lesin upp í útvarp-
inu á sínum tíma. Kvikmynda
handrit hefur Christopher
Fry samið, en leikstjóri er
Dina de Laurentiis.
Myndin gerist á þeim tím-
um, þegar Pontíus er lands-
höfðingi Rómverja í Gyðinga-
landi. Hann ætlar að láta
lausan einn sakamann vegna
páskahátíðarinnar, og hann
býður lýðnum að velja um
tvo, Jesús frá Nasaret og
Barabbas, morðingja og of-
beldismann. Og þá æpir múg-
urinn: „Gef oss Barabbas!"
Barabbas leitar samvista
við fyrri félaga í drykkju-
kránum til þess að fagna
óvæntri náðun, en þegar hann
hefur verið látinn laus, hverf-
ur hann að fyrri iðju sinni,
rænir og drepur Rómverja,
en er svo handtekinn. Nú er
hann dæmdur til þrælkunar
i brennisteinsnámum á Italiu,
og þar þrælar hann i 20 ár,
hlekkjaður við annan saka-
mann. Meðfangar hans hrynja
niður, en hann fær þá trú,
að ekkert geti unnið á honum,
þar sem hann slapp við bana,
þegar Kristur var krossfest-
ur. . . .
Þetta er stórbrotin og áhrifa
rík kvikmynd með frábærum
leikurum í aðalhlutverkum:
Anthony Quinn leikur Barabb
as og Silvana-Mangano leikur
Rakel.
• TÓNABÍÓ:
(VlcLintock!
Tónabíó sýnir ameriska
gamanmynd frá United Art-
ists, sem viða hefur verið
sýnd og hvarvetna hlotið hina
lofsamlegustu dóma. Þessi
mynd er í litum og tekin í
Panavision og enn má reikna
henni til gildis, að í henni er
íslenzkur texti, en margir
kvikmyndahúsgestir eru þakk
látir fyrjr það framtak. Kvik-
myndin McLintock gerist í
litlum bæ, en bærinn er heit-
inn eftir ókrýndum konungi
bæjarins: George Washington
McLintock. Bærinn ber nafn
hans, því að hann hefur grund
vallað hann og á meiri hluta
hans. Hann rekur þar banka-
starfsemi, sögunarmyllur og
ræður öllu í bænum, enda
verða allir að sitja og standa,
eins og hann vill. Eina mann-
eskjan, sem hann hefur ekki
ráðið yfir, er kona hans, hin
fagra, rauðhærða Katherina.
En hún hefur yfirgefið hann
fyrir nokkrum árum, því að
hún grunaði hann um að vera
sér ótrúan. Lintock bónda
stendur ekki á sama um þetta,
og hann neitar með öllu að
ræða við hana, þegar hún fer
fram á skilnað. Ýmsir spaugi-
legir atburðir fléttast inn í
ævintýrið, en ekki væri rétt
að segja hér, hverjir verða
iyktir mála. Með aðaljjlutverk
fara John Wayne, sem leikur
McLintock og Maureen O’
Hara, sem leikur hina fögru
en óstýriiátu eiginkonu hans.
^ Kvikmyndahúsin um páskana*
Fréttir í
stuttu
Túnis, 12. apríl NTB.
TÍMARITIÐ „Jeune Arique“ í
Túnis segir svo frá, að Chou
En-lai, forsætisráðherra Kin-
\ ska AlþýCulj ðveldisins,
hafi tjáð Ben Bella, forseta
Alsír, að hann væri sannfærð-
ur um að Bandaríkjamenn
myndu, áður en langt um iioi,
gera loftárásir á Kína. Væru
Kínverjar viðbúnir slikri
árás.
London, 12. apríl NTB.
33 ÁRA Lundúnabúi, fjögurra
barna faðir, játaði á sig í dag
fyrir rétti í London, að hafa
selt brezk hernaðarleyndar-
í hendur starfsmanna sendr-
ráðs íraks og Egyptalands,
vegna þess að hann hafi verið
í vonlausri fjárþröng.
Maður þessi, Percy AJlen,
hafði fengið fjárupphæð sem
nam t:rpum fimm þúsund ís-
Itnzkum krónu.n, fyrir ýmsra
upplýsingar — og noiað pen-
ingana til að grciða afborgun
l- .-,kuld er hann varð að
stofna til er kona hans var
10«,- á sjúkrahús, talin vera
með krabbamein.
- j_
Stokkhólmi, 12. april NTB.
• SVÍAR drukk„ á síðasta
ári áfenga drykki fyrir
2.179 milljónir sænskra
króna — eða ur 250 miJJjón-
um hærri fjárupphæð en
nokkru sinni fyrr. Sala öls
minnkaði um fimm milljónir
s. kr. á árinu.
Tokio, 12. apríl AP.
PEK NG-ÚTVARPIÐ skýrði
svo á í kvöld, að Peking-
stjórnin kærði sig —tt um
heimsókn Patrick Górdons
Walkers, fyrrverandi utan-
rikisráðh. Bretlands. Brezka
stjórnin hef ,r ákveðið að
s^nda Gordon Walker til Pe-
king sem sérstakan sendimann
Michaels Stewarts, utanríkis-
ráðherra Bretlands.
LAND- FJÖLHÆFASTA
-ROVER farartækið á landi
Því svara hinir fjölmörgu
Land Rover eigendur!
Land-Rover er afgreiddur með eftirtöldum búnaði:
Aluminium hús, með hliðargluggum — Miðstöð og rúðublásari — Afturhurð með
varahjólafestingu — Aftursæti — Tvær rúðuþurrkur — Stefnuljós — Læsing á
hurðum — Innispegill — ÚtispegiII — Sól skermar — Gúmmí á petulum — Dráttar-
krókur — Dráttaraugu að framan — Km-hraðamælir með vegmæli — Smurþrýsti-
mælir — Vatnshitamælir — 650x16 hjólbarðai' — H. D. afturfjaðrir og sverari
höggdeyfar aftan og framan. — Eftirlit einu sinni eftir 2500 kílómetra.
i)
Ef þér ætlið að kattpa lartdbú naðarbifreið, þá ættuð þér að
—^ spyria Land-Rover eigendur um reynslu þeirra.
Spyrjið einnig eigendur hliðstæðra bifreiða og gerið samanburð.
Hvers vegna er Land Rover
mest selda landbúnaðarbitreiðinl
Benzín
eða
diesel
1
Leitid nánari upplýsinga um
fjölhæfasta farartækib á landi
Benzínvél gcl kx. 144.000,00 — Dieselvél kr. 162.400,00.
Simi
2,1240
ÍHEiiBYimUNEN
í HEKLA hf
Laugavcgi.
170:172