Morgunblaðið - 15.04.1965, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 15. apríl 1965
8
SKAGASTRÖND, 14. apríl. —
Vélbáturinn VÍSIR, HU 10, sem
gerður er út frá Skagaströnd,
hefur að undanförnu verið á
Þorskanetaveiðum í Húnaflóa.
Hefur hann aðallega haldið sig
fram af Höfðakauptúni og und
an Króksbjargi. Sjómennirnir
hafa lítinn frið haft með net
sín vegna hafísa undan strönd-
inni. Hafa þeir verið á sífelldu
flökti með netin, vegna þess
hve mikil hreyfing hefur verið
á ísnum inn og út flóann.
S.l. fimftudag fór fréttamað-
ur Mbl. á Skagaströnd með í
róður á Vísi, en ísinn var þá
mjög þéttur hér undan. Tók
alllangan tíma að komast gegn
um ísbreiðuna og út á auðan
sjó. Þurfti víða að stjaka ís-
jökum frá og yfirleitt að við-
hafa mestu varúð og gætni.
Þótt jakarnir sýnist stundum
litlir um sig að ofan, geta þeir
skagað langt út undir yfirborði
sjávsur. Þacf að vera bjart veð-
Þessi mynd var tekin seinni hluta dags á móti sól, úr fjörunni á Skagaströnd fyrir rúmlega viku. Pilturinn virðir fyrir sér haf-
þökin. Jakarnir eru allir landfastir. (Ljósm. Mbl. Þórður Jorusson).
f róðri innan um hafís á Húnaflóa
afar óvenjulegt hér um slóðir á
þessum tíma árs. Ein falleg lúða
veiddist, og þótti sjálfsagt að
gefa farþeganum hana.
— Þ.J.
ur, svo að glampi á jakana neð
ansjávar.
Á Vísi eru fjórir menn, þrír
eigendur hans, þeir Sigurður
Árnason, skipstjóri, Jón Stefáns
son og Jósef Stefánsson, og svo
Bernódus Ólafsson.
Afli var lítill í þessari veiði-
för .Vitjað var um þrjár tross-
ur, og fngust 25—30 fiskar í
hverri, en fiskurinn var mjög
fallegur, fullur af loðnu, sem er
^ ák ^
*m
Báturinn bak við ískamb
Verið aó stjaka bátnum frá ísnum.
Hér eru þeir (frá vinstri talið) Jón Stefánsson; Jósep Stefánsson og Bernódus Ólafsson að taka
á móti fiskinum. Kvöldið áður stóð Bernódus á sviðinu á Skagaströnd, en hann. hefur lengi verið
helzta driffjöður leiklistar á Skagaströnd. Leikið var að þessu sinni „Skipt um n»fn“ eftir
Edgar Wallace og var Bernódus bæði aðalleikari og leikstjórL
Grimseyingar uggandi
um hrognkelsaveiðina
FRÁ því ísinn kom hér fyrst
hefur hann aldrei farið úr aug-
sýn og síðustu viku hefur hvergi
sézt út fyrir hann í neina átt,
þó hefur hann alltaf verið gis-
inn upp við eyna sjálfa og alltaf
hreyfzt eftir sjávanföllum og
straumi. Höfnin hefur lengst af
verið íslaus.
Nokkrum sinnum hefur verið
skroppið á sjó til fiskjar, en ekki
fengizt branda í soðið. Hrogn-
kelsanet hafa verið lögð 3 eða
4 sinnum. Sum af þeim hefur nú
ísinn hirt, en nokkrir rauðmagar
hafa fengizt í þau, sem náðust
aftur. Enginn selur hefur sézt
og bjarndýr ekki einu sinni
heyrzt góla, enda vitum við ekki,
hvort þau gelta, góla eða baula.
Flóabáturinn Drangur átti og
ætlaði að koma hingað í gær, en
komst ekki nær eyjunni en 5 eða
6 mílur og sneri þar við. Hann
var bæði með hey, matvæli og
annan varning, sem okkur fer
nú senn að vanhaga um.
Hér er mikill uggur í mönnum
út af hrognkelsavertíðinni, sem
ekki er sýnilegt annað um en að
hún bregðist alveg. Menn hölðu
hins vegar miklar vonir bundn-
ar við hana vegna hins háa verða
á grásleppuhrognum. Undanfar-
in ár hafa sumir haft talsverðar
tekjur af hrognkelsaveiði, þrátt
fyrir miklu lægra verð á horgn-
unum.
M.S.