Morgunblaðið - 30.04.1965, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.04.1965, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐID Föstudagur 30. apríl 196! ísl. piitarnir unnu sigra í ullum greinum í gær #■ "■ Vís — en Kirsten Strange er ósigruð 1 GÆRKVÖLDI gerðu piltarnir okkar í sundinu heldur ræki- lega upp við dönsku sundmennina tvo sem hér gista. Guðmundur Gíslason ÍR og Hörður B. Finnsson ÍR sáu svo um að Danirnir unnu ekkert sund þetta kvöld. Vann Guðmundur 100 m skriðsund 'og 400 m fjórsund og voru það hvorttveggja glæsileg afrek. — Hörður vann með yfirburðum 100 m bringusund. Hins vegar fer ungfrúin, Kirsten Strange, ósigruð frá íslandi að þessu sinni. Hún vann enn í gær 3 greinar er hún tók þátt í og allt með yfirburðum. Hrafnhildur veitti henni minni keppni en ella bæði vegna lasleika og lítillar þjálfunar vegna vinnu utanbæjar. Mótið í gærkvöldi var hið skemmtilegasta, en hápunktur þess var þó f jórsund karla 400 metrar. hetta var eiginlega „þrívígi" milli Guðmundar, I.ars Kraus og Davíðs Vai- garðssonar. I>eir fylgdust allir mjög að í tveim fyrstu 100 metrunum, flugsundinu og baksundi. Þá kom bringu- sundið og nú- náði Guðmund- ur strax forystu en hún varð þó ekki nema 1—2 metrar. Framan af lokasprettinum, skriðsundinu, tók hann for- ystuna. En er 50 m voru eftifr tók Daninn endasprett — sem þó dugði ekki til og Guðmund ur vann glæsilegan sigur i þessari spennandi keppni sem Davið blandaði sér einnig vel í — þó allir eigi þeir betri tima frá betri æfingadögum. Sprettur Guðmundar í 100 m skriðsundinu var einnig góður. Hann var þar frá upphafi hinn öryggi sigurvegari og átti vel út- fært sund með góðum snúning- um. Guðmundur var í sérflokki — keppnin stóð milli Lars Kraus og Daviðs um annað sætið og Daninn hafði þar betur. Óvæntur yfirburðasigur Óvæntur var "og hinn mikli yfirburðasigur Harðar Finnsson- ar í 100 m bringusundi. Hann „átti“ sundið frá upphafi og eng- inn fékk ógnað honum. Árni varð hins vegar sterkari Heitmann á endasprettinum og- tryggði tvö- faldan sigur. , Þannig skiluðu piltarnir þrem- Enginn getur spáð um leik IR og KR i kvöld 1 KVÖLD fer fram aukaúrslita- leikurinn í íslandsmótinu í körfu knattleik milli ÍR og KR. Eins og frægt er tókst KR-ingum í siðasta leik mótsins að brjóta margra ára sigurgöngu ÍR-inga og vinna þá. Við þann sigur KR urðu liðin jöfn að stigum. Þau unnu bæði alla aðra keppinauta sína og fyrri leik félaganna vann ÍR en KR þann seinni. Og nú er það spurningin: Hrifsa KR-ingar íslandsmeist- aratitilinn af ÍR-ingum, sem hafa haldið honum um nokkur ór? Spumingunni fæst ekki svar- að fyrr en í kvöld, en mótið hefst kl. 7,30 með leik milli KR og Ármanns í 1. flokiki og er þar teflt um úrslitin í þeim flokki. Strax að þeim leik loknum leika KR og ÍR. ur sigrum. Glæsilega og orugga sigra vann Kirsten Strange — en oft áður og vonandi síðar á Hrafn hildur eftir að veita henni harða keppni ★ Úrslit Sigurvegarar í einstökum grein um: 200 m fjórsund kvenna: Strange 2.38.7. Hrafnhildur Guðmundsd. 2.58.0. Matht. Guðmundsd. Á 2.58.2. 100 m skriðsund karla: Guðm. Gíslason 57.8. Lars Kraus Jen- sen 59.7. Davíð Valgarðsson 59.9. 50 m flugsund kvenna: Strange 33.0. Hrafnhildur Guðm. 34.2 Matth. Guðm. 35.5. 100 m bringusud karla: Hörður Finnsson ÍR 1.14.4. Árni Kristjánsson SH 1.16.0. Heit- mann 1.16.4. 100 m baksund kvenna: Strange 1.19.0. Hrafnh. Guðm. 1.22.6 Hrafnh. Kristjánsd. Á 1.23.9. 400 m fjórsund: Guðm. Gísla- son ÍR 5.14.6. 2. Lars Kraus Jen- sesn 5.15.5. 3. Davíð Valgarðsson 5.15.6. 3x50 þrísund kvenna: Ármann A 1.51.2 Met (Það gamla 1.51.). B-sv. Á 1.57.6. Ægir 1.58.6. 50 m skriðsund stúlkna Hrafnh. Kristjánsd. 31.7. Sex eintvígi — q? Kirsten Strange (nær) hefur unnið þau öll, en Hrafnhildur hefur barizt vel. (Ljósm. Ól. K. M.) 50 m skriðsund sveina: Finnur Guðmundsson ÍA 30.8. 100 m bringusund sveina Ól- afur Einarsspn Æ 1.26.8. 2. Gunn- ar Guðmundsson á sama tíma. 100 m bringusund stúlkna Matthildur Guðmundsd. 1.27.7. 2 Eygló Hauksdóttir Á 1.29.1. íslandsmótið í bad- minfon hefst í kvöld í KVÖLD kl. 7 hefst Islandsanót- ið í badminton, en þetta mót verður fjölmennasta mót sem haldið hefur verið í þeirri grein. Keppendur verða um eða yfir 60 talsins og eru frá 4 félögum. Flestir þátttakenda eru frá TBR, síðan KR og nú koma utanbæjar menn aftur með. Koma 3 frá ísa- firði og 5 frá Akranesi. Mótið hefst sem fyrr segir kl. 7 í kvöld. Síðan verðux leikið kl. 2 á laugardag og fram undir 'kvöld og úrslitin verða á sunnu- dag og hefjast kl. 2. Alit mótið fer fram í KR-ihúsinu. Keppt er í meistaraflokki karla og kvenna, 1. 'fl. karla og drengjaflokki. í meistaraflokki karla og kvenna er keppt í ein- liða og tviliðaleilk og tvenndar- keppni, en í hinum flo'kikunum í einliða og tvíliðaleik. Mikil gróska er í badiminton- íþróttinni og má því ætla að þetta mót verði hið skemmti- legasta og bjóði upp á harða og jafna keppni sem gaman er á að horfa. * Ensko knottspyrnan Á þriðjudag og miðvikudag | u fram sn'ðustu leikirnir I v.isku deildarikeppninni og urðu úrslit þessi: 1. deild: Aston Villa — Manchester U 2—<1 Blaobum — N. Forest 1—1 Lokastaðan hjlá efstu og neðstu liðunum vafð þessi: 1. deild: Mandhester U. 42 26-9-7 89:38'61 Leeds 42 26-9-7 81:51 ©1 Ohelsea 42 24-8-10 89:54 56 Everton 42 17-15-10 69:60 49 Leidhester 42 11-13-18 ©8:85 38 Fulham 42 11-12-19 60:78 34 Wolverlhampt. 42 13-4-25 59:89 30 Birminigham 42 8-11-23 64:96 27 í II. deild sigraði Neweastle og fiytzt liðið ásamt Nortlhamton upp í 1. deild. Niður í III. deild flytjast Swansea og Swindon, en í þeirra stað koma Carlisle og Bristol City úr III. deild. KR-ingar eiga tvo stigalhæstu menn mótsins, þá Einar Bollason með 170 stig og Gunnar Gunn- arsson með 134 stig. Einar hef- ur einnig á þessu móti sýnt bezta „hittni" í vítaköstum eða 57,67% í 52 vítaköstum. Næst honum kemur hinn reyndi garp- ur ÍR-inga Þorsteinn Hallgrims- son með 55,3% „hittni“ í 47 víta- köstum. Þorsteinn hefur fæstar „villur" hlotið allra helztu leik- roanna þessa ’móts eða aðeins 12. í stigatölu standa • KR-ingar einnig heldur betur hafa skorað 581 stig gegn 385 en ÍR-ingar hafa skorað 588 ge^n 407. En í öllum saman/burði er svo mjótt á miilli liðanna og enginn veit hvað skeður. Góð byrjuin getur ráðið úrslitum — en sjón er sögu rikarL Sir Stanley kvaddi með heiðri SIR STANLEY Matthews, hinn fimmtugi meistari knatt- spyrnunnar, „kvaddi" enska latvinnuknattspyrnu í „við- hafnarleik" á leikvangi Stoke City á miðvikudagskvöld. Á- horfendur sem voru 50 þús, eða eins margir og frekast leyfði, upplifðu knattepyrnú- kvöld, sem þeir seint munu gleyma. Var það ekki síst vegna þess að hópur beztu knattspyrnumanna Evrópu síðasta áratuginn var kom- inn til að sína listir. sínar og með þvi hylla hinn mikla garp, sem með undraverðum listum í stöðu hægri útiherja hefur dregi'ð þúsundir manna til knattspyrnuval'lanna og fengið fól'k til að gapa af undr un í meira en þrjá áratugi. Og svo fengu áihonfendur að sjá 10 mörk í leiknum — sem milljóinir manna fylgdust með í sjónvarpi um alla Evrópu. Alþjóðlega úrvals'liðið sigraði með 6—4. Hafði það forystu í hálfleik 4—2. Sir Stanley sem var fyrir- liði heimaliðsins var ákaft hylltur af 50 þús manns og 21 leikmanni, dómara o. fl. í leikslok. Undir taktföstu lófa- klappi þúsundanna báru rúss- neski markvör’ðurinn Jaslhin og hinn heimsfrægi Puskas „gamila manninn", Sir Stan- ley á herðuni sér af leik- vangi. í leiknum stjórnaði Sir Stanley liði sínu vel. Hann sýndi enn sem fyrr óvenju- lega og óútreiiknanlega hug- kvæmni og plataði margan garpinn — og semdingamar voru afgreiddar með sömu ná kvæmni og alltaf áður. Hann kvaddi leikmennskuna með heiðri — og niú gerðist hann þjá'lifari og kemur fram í „sýn ingarleikjum“ víða um heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.