Morgunblaðið - 25.05.1965, Blaðsíða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Þrlðjudagur 25. maí 1961
ÁNÆGJULEG FÖR TIL NOREGS
DR. Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra, og frú Sig-
ríður Björnsdóttir, komu .
heim á sunnudagskvöld með
flugvél frá Flugfélagi ís-
lands að lokinni opinberri
heimsókn til Noregs. Forsætis
ráðherra sagði á fundi með
blaðamönnum í gær, að heim-
sóknin hefði verið hin
ánægjulegasta. Þau hjón
hefðu séð margt, sem gaman
hefði verið að skoða, bæði í
Suður- og Norður-Noregi, en
þau fóru alla leið norður til
Bodö. Þá sagðist hann einnig
hafa hitt margra forustumenn
í Noregi og átt við þá gagn-
legar viðræður, en ekki hefðu
þeir rætt nein vandamál,
enda - slíkum málum ekki til
að dreifa í sambúð þessara
tveggja bræðraþjóða.
Forsætisráðherra skýrði
ennfremur frá því á blaða-
mannafundinum, að heim-
sóknin, sem stóð yfir frá 15.
maí til 23. maí síðastliðinn,
hefði verið afráðin fyrir
nokkru og ekki hefði verið
um annsrv tíma að ræða en
þennan, vegna þess að nú
fara í hönd kosningar í Nor-
egi, og er þjóðlíf þar nú þegar
ingfþelrra^M sagð^i forsætis- Skólabörn íra Bodö taka a moti forsætisraðherra hjonunum. Bue Fjermros, fylkismaður, og kona
ráðherra að maí-mánuðurhans Kan«a m«ð þeim að flughöfninni.
hefði verið valinn til ferða-
lagsins, enda þótt umræður_______________________________________________________________________________
um nýja kjarasamninga færu
nú fram, en hann hefði
ákveðið að halda til Noregs
þegar Ijóst var að málin væru
á því stigi að það hefði éngu
getað spillt, þó hann hefði
farið í Noregsförina á þessum
tíma.
Forsætisráðherra benti á,
að slíkar heimsóknir væru
mjög farnar að tíðkast milli
landa og má geta þess, að dag
inn áður en hann kom til
Nóregs lauk Tító heimsókn
sinni þangað. Fór hann til
Noregs með fríðu föruneyti
og ferðaðist um landið.
Á heímleið var komið við
í Kaupmannahöfn. Sendi for-
sætisráðherra, Krag forsætis-
ráðherra Dana, skeyti og lét
í ljós ánægju með það göfug-
lyndi sem lýsti sér hjá hon-
um, dönsku stjórninni og
meirihiuta þingsins við af-
greiðslu handritamálsins, og
bætti við að við kynnum þeim
mun betur að meta ákvörðun
þeirra sem andstaðan var
harðari. Þeir hefðu sýnt vilja-
styrk sem mundi efla vin-
áttu þjóðanna. ,
★ ★ Ll'
Hér á eftir fara helztuhaskolans * ÞrándheirrJ hefur gert, og er það á 630 ferm. gólffleti. Mælikvarði: 1:50 og 1:20.
atriðin, sem fram komu áNiðurstöður rannsóknarinnar munu liggja fyrir á þessu ári (Allar myndirnar tóku fréttaritarar
blaðamannafundinum me®Morgunbiaðsins í Noregi.)
forsætisráðherra í gær:
Forsætisráðherra sagði i
upphafi, að ferðalagið hefði ' ------------------------------------------------------
gengið snurðulaust að öllu
leýti. í Osló vorum við stödd
17. maí og sánrri hina miklu
barnaskrúðgöngu, sem gekk
eftir Karl Jóhannsgötu fram
hjá konungshöllinni, í tvær
og hálfa klukkustund sam-
fleytt. Þar voru valdir hópar
úr hverjum skóla, ennfremur
hljómsveitir, sem settu mik—
inn svip á görvguna. Sagði for-
sætisráðherra að hátíðahöldin
17. maí hefðu glögglega sýnt
það frjálsræði og það lýð-
ræðislega fyrirkomulag, sem
Norðmenn búa við. Hann tók
fram, að þessi hátíðahöld
væru með nokkru öðru móti
en 17. júní-hátíðahöldin hér
heima, og þá helzt að því
leyti að ræður eru ekki haldn
ar eins og hjá okkur, nema Forsætisráðherra á fundi með íslenzkum blaóam önnum í gærmorgun. (Ljósm. Ol. K. M.)
þegar einstakir hópar leggja
kransa á leiði látinna manna
í virðingarskyni. Eins og hér
hjá okkur setja „rússarnir“
mikinn svip á hátíðahöldin
og taka þátt bæði í göngunni
og í hátíðahöldunum á eftir,
en þess ber að geta, að þeir
eru 1 miðjum prófum, þegar
hátíðahöldin fara fram, en
hér hafa stúdentarnir lokið
sínum prófum 17. júní, eins
og kunnugt er.
Þá gat forsætisráðherra
þess, að hann hefði rætt við
Gerhardsen og Lange, borðað
hádegisverð hjá konungi og
rætt við hann og ríkisarfann.
Hann ræddi við stjórnmála-
foringja, eins og fyrr getur og
kvaðst hafa átt við þá fróð-
legar viðræður um almenn
mál, en ekki var drepið á
nein sérstök vandamál, enda
slíkum málum ekki til að
dreifa milli þessara tveggja
landa.
Af einstökum stofnunum i
Oslo sem þeim hjónum var
sýnd, minntist forsætisráð-
hera á stofnun, sem er einna
sambærilegust við Rann-
sóknaráð ríkisins. í stofnun
þessari fara franj ýmis konar
tækniathuganir og rannsókn-
ir, og er mjög fróðlegt að
kynnast því, hversu yfirgrips
miklar mann- og fjárfrekar
tæknirannsóknir Norðmanna
eru.
í stofnun þessari er sam-
vinnu ríkis- og atvinnuveg-
anna háttað líkt og gert er
ráð fyrir í nýjum lögum hér
heima, þ.e.a.s. stjórnmála-
menn, vísindamenn og full-
trúar atvinnuveganna hafa
með rannsóknir og fram-
kvæmdir að gera í sameín-
ingu og mynda eins konar
rannsóknarráð. Forsætisráð-
herra benti á, að við yrðum
að herða okkur, ef við ættum
ekki að dragast aftur úr á
þessum sviðum, en það yrði
okkur fjötur um fót, hversu
fámennir og fjárlitlir við
værum í samanburði við
þjóð eins og Norðmgnn.
Hann gat þess og, að
við íslendingar hefðum
alltof sjaldan sent menn til
þess hluta Noregs, þar sem
fólk á við svipuð vanda-
mál að etja og við, þó að
margt sé ólikt á þessum slóð-
um og þeim stöðum hér á
landi sem eru á svipuðum
breiddargráðum, því strjál-
býlið er miklu meira hér á
landi og við höfum engan
svipaðan þéttbýliskjarna til
að byggja á og þeir hafa sunn
an Þrændalaga.
Þá gat forsætisráðherra
þess, að við ættum í þessum
efnum að hafa samvinnu við
erlenda sérfræðinga og læra
af þeim — og þá ekki sízt
norska sérfræðinga. Norð-
menn hafa á að skipa mörg-
^um sérfræðingum í öllum
greinum, þar sem við höfum
aftur á móti ekki nema einn
eða tvo. Hann benti þó á, að
svo gífurlegt fé þyrfti til
margra þessara rannsókna, að
við mundum aldrei geta ann-
ast nema hluta þeirra, og þá
með því að leita upplýsinga
til annarra. Hann hafði orðið
þess var, að Norðmenn \ _jru
fúsir til að veita okkur hvers
kyns aðstoð og benti meðal
annars á, að forstjóri þessar-
ar rannsóknarstofnunar I
Osló hefði verið hér á landi
og rætt við forstjóra Rann-
sóknarráðs ríkisins, og lét
hann vel af þeirri samvinnu.
Forsætisráðherra sagði enn-
fremur, að hann hefði óskað
eftir að komast norður til
Þrándheims og þó nokkru