Morgunblaðið - 25.05.1965, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. maí 1965
ANN PETRY:
STRÆTID
' Hún var steinhissa, er hún sá
að hann hörfaði frá henni. Það
var orðið hálft gólfið á milli
þeirra. Hann stóð nú við skrif-
toorðið og reiddi ekki lengur
höndina ógnandi, heldur greip
henni fyrir andlitið. Hún stóð
þarna höggdofa og gat hvorki
játað né neitað þessum galdra-
áburði hans.
Hann gekk út úr stofunni án
þess að líta á hana. Hún ætti að
gera grein fyrir því, hversvegna
hún hefði komið svona snemma
heim, en hann var kominn út að
dyrunum áður en hún kæmi
upp orðunum.
— Mér var illt fyrir hjartanu,
tautaði hún lágt við sjálfa sig.
Hann svaraði engu og hún var
ekki viss um, að hann hefði
heyrt til hennar. Hurðín skell
ist í og svo var hann kominn af
stað upp á loft . . . og gekk
hægt, eins og honum væri illt
í fótunum.
Hún hallaði undir flatt og
hlustaði, því að stofan var full
af einhverju hvísli, en það var
á bara hennar eigin rödd, sem
var að segja, að henni væri illt
fyrir hjartanu. Röddin stóð ein-
hvernvegin á öndinni og það var
eins og hún væri hissa, og hún
fann sér til skelfingar, að hún
var að endurtaka orðin aftur og
aftur og hjartað hamaðist í
brjóstinu á henni, svo að það
líktist mest þrumuveðri.
Hún skalf svo á beinunum, að
hún gekk að legúbekknum og
settist niður. Hérna var það,
sem hann svaf, þegar hún var
alein í svefnherberginu. Þetta
var langur legubekkur, mjög
langur, svo að enda þótt Jones
væri hávaxinn, mundi höfuðið
á honum vera hér um bil þar
sem hún sat nú. Hún fór að
hugsa um, hvort vel hefði farið
Nýjasta hefti ICELAND
REVIEW kynnir á fræði-
legan hátt íslendinginn
LEIF HEPPNA.
Sendið ritið vinum og
viðskiptamönnum yðar
erlendis.
Hafnarfjörður
Afgreiðsla Morgunblaðsins
fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
er að Arnarhrauni 14, simi
50374.
Kópavogur
Afgreiðsla Morgunblaðsins í
Kópavogi eir að Hlíðarvegi 61,
simi 40748.
AKUREYRI
Afgreiðsla Morgunblaðs-
ins er að Hafnarstræti 92,
simi 1905.
Auk þess að annast þjón-
nstu blaðsins við kaupend-
ur þess í bænum, er Akur-
eyrar-afgreiðslan mikilvæg-
ur hlekkur í dreifingarkerfi
Morgunblaðsins fyrir Norð-
urland allt. Þaðan er blaðið
sent með fyrstu beinu ferð-
um til nokkurra helztu kaup
staða og kauptúna á Norður-
landi, svo og til fjölda ein-
staklinga um allai. Eyjaf jörð
um hann þarna, eða hvort hann
hefði bylt sér, af því að hann
gat ekki sofið vegna þrengsla.
Hvað hefði hann gert, ef hún
hefði komið til hans einhverja
nóttina og lagzt hjá honum á
legubekkinn, þegar hann var
andvaka. Vitanlega hefði stolt
hennar aldrei leyft henni að
gera það . . . og sízt eftir þetta
með náttkjólinn forðum. Hún
kveinkaði sér þegar hún hugs-
aði um hve rauður hann var og
fleginn og um gulu kniplingana,
sem voru á ermunum.
EMMHMMmi
47
Hún hafði lengi horft á hann
í glugganum áður en hún loks
ins keypti hann. Þetta var í
sömu búðinni sem hún fékk rós-
ótta kjólinn, en nú var bara
góða konan ekki í búðinni, og
hvíta stúlkan, sem var þar,
hafði orðið óþolinmóð við hana,
en hún átti bágt með að ákvarða
sig, af því að hún hafði aldrei
verið í neinu svona fínu og
henni fannst kjóllinn tæpast
fullkomlega siðlegur.
— Já, en hann er svo gasalega
fínn, góða mín, hafði stúlkan
sagt og rauðar neglurnar á
henni höfðu fitlað við knipl-
ingana. ,
— Æ, ég veit ekki, sagði Min
efablandin.
— Og hann er svo glæsileg-
ur. Sjáðu bara! Stúlkan hélt
honum upp framan á sér, tók
hann að mittinu og hélt háls-
málinu upp með hinni hendinni
Isvo að brjóstin komu fram og
sýndust standa út í ljósrauðan
kjólinn. ,
Min leit undan, feimin. — Ég
hef aldrei verið í svona fínu.
— Þá hefurðu bara misst af
hálfu lífinu, góða mín. Stúlkan
hreyfði axlírnar ofurlítið til, til
þess að vekja eftirtekt hennar
betur. En Min horfði bara fram
í búðina og stúlkan teygði kjól-
inn út á búðarborðinu og tók
að leggja hann aftur í felling-
arnar. — Jæja, góða mín? sagði
hún.
—'Æ, ég er ekki viss um það,
sagði hún, enn óákveðin. En
glæsilegur var kjóliinn, jafnvel
þegar hann lá svona á borðinu .. .
Stúlkan reyndi hvað hún gat
til að koma kaupunum í kring. —
Karlmaður, sem sæi þig í þessu
mundi . . .
Tvo dali nítíu og átta hafði
hann átt að kosta, mundi hún, og
iðraðist eftir allt saman, í hvert
skipti sem hún fór í hann. Hann
var dálítið of síður og hún varð
að fara varlega til þess að hrasa
ekki í honum, en hún gekk nú
samt, án þess að þurfa þess nokkr
um sinnum framhjá legubekkn-
um þar sem Jones sat. En hann
var svo niðursokkinn í einhverja
skuggalega hugsanaflækju, að
hann tók alls ekki eftir henni fyrr
en henni varð fótaskortur, svo
að hún var næstum dottin.
— Guð minn góður! sagði hann
og hrökk upp.
En eftir að hafa litið sem
snöggvast á hana, horfði hann
bara niður í gólfið, rétt eins og
hann tæki ekki eftir neinu óvenju
legu. Eina mekri þess að hann
væri ekki alveg utan við heim-
inn var það, að hann fór að fetta
fingurna, svo að brakaði í öllum
liðum, rétt eins og þeir væru reið
ir.
Nei, hún hefði aldrei getað
fengið sig til að leggjast hjá hon
um á legubekknum, og hvað sem
öðru liði yrði hún að fara að
taka saman dótið sitt. Kjólarnir
hennar gætu vel komizt fyrir í
einum böggli, ásamt skónum, sem
hún var venjulega í og . . . já
. . . ekki að gleyma Epsomsalt-
inu, sem hún hafði vegna fót-
anna. Og greiðan og burstinn og
handspegillinn gætu farið í sama
böggul. Og þá var næstum allt
upp talið, nema krossinn og borð
ið og fuglabúrið. Hún hefði ekki
í rauninni neina þörf fyrir dropa
stautinn og þetta rauða ástareyð
ingarmeðal, sem spámaðurinn
hafði gefið henni, en hún skyldi
nú taka það með sér samt, því
að hún gæti alltaf rekizt á ein
hverja vinkonu sína, sem væri í
vandræðum með eiginmanninn
sinn, og þá gæti hún gefið henni
það.
Það var skrítið, að hún skyldi
hafa getað lagt svona mikið upp
úr því að þurfa ekki að borga
húsaleiguna, því að í rauninni
var það svo lítilvægt atriði. Það
stóð á miklu meiru að hafa nægi
legv. svigrúm til að anda. En í
seinni tíð hafði það ekki verið
hægt hérna. Henni hafði alltaf
fundizt sem hún hefði verið á
harðahlaupum og hefði aldrei
mátt stanza nógu lengi tii að
fylla nefið af frísku lofti. Það
stafaði allt af illskunni í hon-
um Jones. Hún fann hana eins
og einhvern ferlegan ofvöxt, sem
þrengdi að henni. Hann hafði gert
íbúðina þrengri og dimmari en
hún var áður, svo að hún þrengdi
æ meira að henni.
Undanfarnar vikur hafði hún
skynjað nærveru hans svo mjög
að hún kipptist við ef hann bara
hreyfði sig, hvort sem hún var
í svefnherberginu eða eldhúsinu.
Hvert hljóð, sem hann gaf frá
sér jókst og margfaldaðist. Taut
ið í honum við sjálfan sig varð
að þrumugný og þetta órólega
spígspor hans fram og aftur um
gólfið kom henni til að depla
augunum, svo að hún gat ekki
hætt því aftur. Þegar hann spark
aði 1 hundinn, fékk hún illt í mag
ann, því að hundurinn ýlfraði
alltaf og það eins og hljóp í
maganum á henni.
En þegar hann var alveg kyrr
og hljóðlaus, fann hún einhverja
hvöt til að leita hann uppi. Þetta
hljóðleysi gerði hana enn órórri,
því að þá gat hún aldrei vitað,
hvaða fúlmennsku hann hefði 1
huga.
Ef hún var í eldhúsinu, var
hún alltaf að líta um öxl og
hlusta meðan hún þvoði gólfið
eða hreinsaði maskínuna, þangað
til hún þoidi ekki við að vita
ekki hvar hann var, og læddist
þá loks að stofudyrunum, en sá,
að hann var abar sitjandi á legu
bekknum, bítandi á vörina, en
augun blóðhlaupin og svo full
haturs, að hún hrökklaðist sem
fljótast aftur út í eldhúsið. Eða,
ef hiin var í svefnherberginu, þá
sat hún á rúmstokknum og horfði
á dyrnar, því að hún bjóst hálf-
partinn við að sjá hann koma
snögglega í Ijós, en þá neyddi
þögnin í stofunni hana til að
standa upp aftur og finna ekki
annað en hatursfull augu hans
starandi á hana.
Hún stóð upp af legubekknum
ánægðari í skapi. Nú hafði hún
ráðið það við sig til fullnustu,
að hún mundi aldrei sjá eftir því
að fara, enda ekki annað hægt
að gera. Hann var meira en
dauðleg manneskja gat þolað.
Hún svipaðist um vandlega í
eldhúsinu, til þess að fullvissa
sig um, að ekkert, sem hún ætti,
væri þar eftir, en síðan gekk
hún út í baðherbergið og tók þar
fimm punda pakka af Epsom-
salti, sem var undir vaskinum. í
stofunni var ekkert henni tilheyr
andi nema fuglabúxið og borðið.
Á leiðinni út í svefnherbergið
varð henni litið á skrifborðið hjá
Jones. Hann hafði ekki lokið við
að rífa sundur bréfin og hún )eit
á þau forvitin. Hún vissi ekxí til
þess, að hann fengi nokkurntíma
bréf, og þetta voru ekki auglýs-
ingabréf, heldur almennileg bréf
með handskrifuðum áritunum.
Hún tók upp tvö umslögin.
Nokkuð af nöfnunum hafði ver-
ið rifið af, og hún stafaði sig
fram úr því, sem eftir var af
þeim með því að benda fingri á
hvern stafinn eftir annan. Ekkert
þeirra var til Jones. Eitt umslag
við var næstum heilt, og hún sá
sér til furðu, að þetta bréf var
alls ekki þarna í húsið. Það var
í húsið hinumegin við götuna,
rétt við hornið, húsíð með
mörgu krökkunum og hundun-
um, sem varlar varð þverfótað
fyrir ef farið var þar framhjá.
YFIR 50 ÁRA REYNSLA
OUTÐOARD MARINE í SMÍOI
UTANBORÐSHREYFLA
ER TRYGGING YÐAR
ÞEGAR ÞÉR KAUPIÐ
8EE VINRUDE
3 hö. Kr. 7.469,00
5i£ — — 14.650,00
18 — — 21.833,00
40 — — 30.515.00
*EE VINRUDE
- (doHxzm
LAUGAVEGI 178 SIMI 38000
Husqvarna
Sláttuvélar
hand- og
vélkniínar
Husqvarna
GUNNAR ASGEIRSSON H.F. — SIMl 35-200.