Morgunblaðið - 05.06.1965, Page 25
MCRGU N BLADIÐ
25
r Laugardagur 5. júní 1965
Áttræð á hvitasunnudag:
Halldóra Finnb|örns-
dóttir frá Hnífsdal
Áttræð er á hvítasunnudag frú
Halldóra Finnbjörnsdóttir frá
Hnífsdal, nú til heimilis að Laug-
arnesvegi 88 hér í borg.
Halldóra er fædd að Hóli í Bol-
ungarvík 6. júní 1885. Foreldrar
hennar voru þau Ingibjörg Guð-
mundsdóttir og Finnbjörn Elías-
Eon, bæði ættuð frá ísafjarðar-
djúpi. Halldóra ólst upp hjá föð-
ursystur sinni, Þorkötlu Elías-
dóttur og manni hennar, Bald-
vini bónda Þorsteinssyni að
Þverdal í Aðalvík, þar til hún
24 ára að aldri giftist Kristjáni
Egilssyni sjómanni, arnfirzkum
að ætt. Þau stofnuðu heimili sitt
í Hnífsdal og bjuggu þar um 9
ára skeið unz hún missti mann
sinn í sjóinn frá fjórum ungum
börnum og því fimmta ófæddu.
Slíkir atburðir eru alltaf mikið
reiðarslag, og ekki sízt í þá daga,
þegar engar ekkjubætur eða
tryggingar voru til í neinni
mynd. Ekkert nema „sveitin“
blasti við alþýðufólki, ef eitt-
hvað bar útaf. En með guðs hjálp
og góðra manna þurfti Halldóra
ekki að leysa upp heimili sitt og
láta börnin sín öll til vanda-
iausra. Drengirnir voru teknir til
fósturs af kunningjafólki, tveim
velstæðum fjölskyldum þar í
þorpinu, og gat hún því haft dag-
Iegt samband við þá, en það var
henni mikils virði. Svo vann hún
af óvenjulegum dugnaði fyrir
litlu stúlkunum sínum. En aftur
barði sorgin að dyrum á heimili
Halldóru. Kíghóstinn gekk í
„Dalnum“, og yngstu telpurnar
hennar, bráðefnilegar og falleg-
ar, dóu báðar sömu vikuna. Veit
ég, að sá missir var henni það
sár, sem aldrei grær til fulls,
þótt ekki sé oft um talað, því
þeir, sem þekkja Halldóru vel,
vita, að móðurástin í sínu marg-
brotna formi hefir alltaf verið,
er og verður sterkasti en líka
viðkvæmasti strengurinn í henn-
ar heilsteypta persónuleika. En
hún bjó einnig yfir miklu and-
legu og líkamlegu þreki, og með-
fæddu glaðlyndi. Og „óhaltur
skyldi gengið meðan báðir fætur
væru jafnlangir".
Nokkrum árum seinna giftist
Halldóra öðru sinni; Þorvaldi
Magnússyni, formanni, nú einum
elzta og kunnasta togarasjó-
manni landsins, sem enn í dag
endist á hafinu. Áttu þau heim-
ili sitt fyrst í Hnífsdal, en síðan
á ísafirði hátt á annan áratug,
unz þau 1943 fluttust til Reykja-
víkur, þar sem þau hafa búið
síðan.
Börn Halldóru af fyrra hjóna-
bandi eru þessi: Baldvin Þorkell,
fyrrv. erindreki SÍS, giftur Gróu
Ásmundsdóttur; Kristín Jóna, gift
Pétri Ó. Guðmundsesyni, sjó-
xnanni; Elías, trésmíðameistari,
kvæntur Hallfríði Jónsdóttur, og
svo litlu dæturnar, er létust í
bernsku, sem fyrr segir; Sturlína
Einarína og Kristjana Halldóra.
Synir þeirra Þorvaldar eru: Ás-
geir Guðbjartur, málarameistari,
giftur Ástu Torfadóttur, og Finn
björn, skrifstofustjóri Loftleiða,
kvæntur Theódóru Steffensen.
Öll eru börnin nú búsett í Reykja
vík.
Þannig er i fáum orðum og lín-
tim ytri saga þessa áttræða af-
mælisbarns, en milli línanna er
önnur saga, sem alderi verður
sögð — saga um baráttu og sigra,
bros og tár langrar lífsreynslu,
sem hefir stuðlað að því að skíra
gullið f sál þessarar góðu konu
og móður.
Það ern nú á þessum degi
35 ár síðan ég varð fyrsta
og móður. Það eru nú á þessum
degi 35 ár síðan ég varð fyrsta
tengdabarnið hennar, og frá
þeim degi hefir Halldóra verið
inér raunveruleg móðir. Og þann
ig veit ég að öll tengdabörn henn
*r gætu einnifi talað. í mínum
huga er orðið „tengdamóðir“ fal-
legt heiti.
Hvar sem Halldóra átti heim-
ili sitt, hefir það verið hreint og
fallegt, og opið öllum í hennar
stóru fjölskyldu og vinahóp, og
þó svo mörgum fleirum. Má
segja í sambandi við hana, að
„þar, sem hjartarúmið sé nóg,
skorti aldrei húsrúmið", því
stundum hefir nú verið þröngt,
þegar allir voru mættir á hátíð-
is- og tyllidögum, eihkum eftir
að fjölskyldur barnanna urðu
stórar og barn^börnin og barna-
barnabörnin komu til sögunnar.
En hið góða hjarta mömmunnar,
ömmunnar og langömmunnar var
alltaf nógu stórt til að rúma alla.
Enn í dag, þó heilsan sé farin að
bila og sjónin að daprast, gengur
hún um heimili sitt og stjórnar
því sem alsjáandi væri, því allir
hlutir eru á sínum stað, í röð og
reglu, þótt aldrei sé sparað að
grípa til þeirra. Hún tekur sjálf á
móti gestum og gleður sig við að
geta veitt þeim sem beztan beina,
og ótaldir munu þeir vera, sem
hafa farið glaðari og hressari frá
en þeir koma á hennar fund. Hið
milda umburðarlyndi hennar og
dómleysi í garð annarra, veit ég
að oft hefur sáð góðu fræi. Þann-
ig er gott áð lifa og eldast —
sáttur við allt og alla; guð og
menn — gerandi engar kröfur
fyrir sig — unnandi öðrum alls
hins bezta — þakkandi guði allt;
vitandi, að „frá honum, fyrir
hann og til hans eru allir hlutir",
og þess vegna alltaf óþarfi að
æðrast
Kæra tengdamóðir; innilegar
heillaóskir á þessari tvöföldu
hátíð, og hjartans þökk fyrir
allt.......... G. Á.
PS: — Afmælisbarnið verður á
hvítasunnudag stödd á heimili
yngsta sonar síns að Hvassaleiti
13, og tekur þar á móti gestum
sínum.
Sjötugur 2. hvítasuunudag:
r r
Þórour Asgeir
Kristjánsson
UM langan aldur hafa Grund-
firðingar verið dáðir sem af-
burða sjómenn. Einn þeirrrmætu
manna, Þórður Ásgeir Kristjáns-
son, verður sjötugur 7. maí n.k.
Ásgeir var fæddur að Setbergi
í Eyrarsveit 7. maí 1895. Foreldr-
ar hans voru þau Soffía Jónas-
dóttir og Kristján Jónsson, en
hann var tekinn 1 fóstur af þeim
hjónunum Kristínu Jónsdóttur og
Sigurbirni HeJigasyni, sem bjuggu
á Setbergi og síðar í Garðshorni.
Ásgeir kvæntist 16. sept. 1916
Þórdísi Þorleifsdóttur frá Hömr-
um, sem er virt fyrir mannkosti.
Hófu þau búskap í Móabúð og
dvöldu þar í 1% ár, en þaðan
fluttu þau að Hömrum og
byggðu þar íbúðarhús með Páli
bróður Þórdísar — og bjuggu
þar til 1929, að þau reistu ný-
býli á Grundarkambi, sem þau
nefndu Fornu-Grund. Þaðan
fluttu þau til Grafarness á árinu
1944 og hafa átt þar heimili síð-
an.
Börn þeirra Þórdísar og Ás-
geirs eru þessi;
Kristín, gift Þorsteini Kristins-
syni bifreiðastjóra, búsett á Dal-
vík. Halldór, vélvirkjam., kvænt-
ur Elsu Þorkelsdóttur, búsett í
Reykjavík. Soffía, gift Jóni Þor-
valdssyni múrara, búsett
Reykjavík. Björn skipstjóri,
kvæntur Aðalheiði Guðmunds-
dóttur^ búsett í Grafarnesi. Ásdís,
gift Árna Hallgrímssyni tré-
smíðameistara, búsett í Reykja-
vík. Ragnheiður, gift Hinrik El-
bergssyni skipstjóra, búsett í
Grafarnesi. Páll sjómaður,
kvæntur Elínu Markan, búsett í
Grafarnesi.
Auk þessara barna eignuðust
þau hjónin þrjú börn, sem dóu
ung.
Ásgeir byrjaði ungur að aldri
að stunda sjómennsku með Páli
mági sínum — og var að mestu
við róðra fram til fimmtuigs ald-
urs. Er mér kunnugt að Páll heit
inn bar mikið traust til mágs
síns, sem afburða sjómanns, sem
ávallt mátti treysta — og hvað
bezt, er mest lá við fangbrögð-
um við Ægir. Síðustu 20 árin,
eftir að Ásgeir lét af sjómennsku,
hefir hann unnið ýmsa land-
vinnu — og þá sérstaklega störf
við frystihúsið í Grafarnesi.
Ég sem þessar línur rita, hefi
haft gagn af nánum kynnum
mínum af þeim Þórdísi og Ás-
geiri, notið mikilla vinsælda af
þeirra hálfu Oig haft margar á-
nægjustundir á heimili þeirra.
Börn þeirra öll hafa einnig, á
meðan þau dvoldu í foreldra-
húsum, verið samhent með að
skapa heimilsprýði — og eftir
að þau mynduðu heimili sjálf
stefnt að sama marki.
Ásgeir hefir undanfarna mán-
uði átt við vanheilsu að stríða,
sem fjölskylda hans og vinir
vona og biðja að hann megi yfir-
stíga. Þau Þórdís og Ásgeir
dvelja nú hjá syni sínum Hall-
dóri vélvirkjameistara, sem býr
að Löngubrekku 14 í Kópavoigi.
Sifi Ágústsson.
Jón Björgvln
Björnsson - Minning
Ásvallagötu 39. F. 25/12.
1913. D. 29/5. 1965.
Hann verður til grafar borinn
í dag. Einn af mörgum, sem
hverfa héðan á miðjum aldri, og
— að okkur finnst — miklu fyrr
en dagsverki er lokið. En hvað
yitum við um lögmál lífsins?
Fáum við þar huggun harmi
gegn? Ef við trúum á einingu
lifsins og framhaldslíf, þá er
aðskilnaðurinn í reynd ekki til,
því að eining er kærleikur, og
þá hlýtur sannleikurinn að vera
sá, að lögmálið sé byggt á traust
um grunni réttlætis. Oft eigum
við erfitt méð að skilja þessi
sannindi og skynja þau rétt, en
samt hljóta þau að vera fyrir
hendi, ef tilveran hefir einhvern
tilgang.
Á kveðjustund þökkum við
fyrir adlt fagurt og gott, og rifj-
um upp liðnar samverustundir
og kynni öll, til þess tileinka
okkur það bezta og fegursta,
sem viðkynningin gaf, festa það
í sál og sinni til gagns og gleði.
Jón Björgvin var borinn og
barnfæddur Reykvíkingur, en for
eldrar hans voru þau hjónin
Margrét Jónsdóttir frá Heiði í
Holtum og Björn Björnsson frá
Bakkárholtsparti í ÖlfusL Hann
var jólagjöf þeirra fyrir 52 ár-
um, og sú jólagjöf, sem þau gátu
glatt sig við til æfiloka sinna,
því að þau skildu ekki fyrr en
daúðinn kaldaði þau til sín.
Síðustu árin áttu þau í skjóli
hans og tengdadóttur sinnar, og
nutu sérstakrar og elskusamrar
umönnunar þeirra til hinnstu
stundar.
Kynni okkar Jóns Björgvins
voru orðin nokkuð löng. Við
unnum saman að félagsmálum
m.a. í V.M.F. Dagsbrún um nokk
urra ára skeið. Fyrir 30 árum
vorum við samverkamenn við
byggingu íbúða þeirra, er Bygg-
ingafélag AJþýðu reisti síðast
Meðan við unnum að grunngreft-
inum bundum við það fastmæl-
um að búa í sama húsL Og það
gerðum við í 20 ár.
Ég minnist þess ekki að nokk-
urntíma bæri skugga á okkar
kynni öll þessi ár, enda var Jón
Björgvin jafnlyndur maður og
glaðsinna, dagfarsprúður og
elskulegur á heimilL Hann var
söngelskur og söngvinn vel,
hafði næma tilfinningu fyrir
fegurð í tónum, og var gæddur
góðri söngrödd. Samvizkusamur
var hann i störfum, nærgætinn
og umhyggjusamur heimilisfað-
ir, encla var ástriki með þeim
hjónum 1 bezta lagi, og gott heim
ilislíf,
Jón giftist eftirlifandi konu
sinni Esther Högnadóttur frá
Vatnsdal í Vestmannaeyjum
hinn 16. maí 1937. Þau eignuð-
ust 5 börn og lifa fjögur þeirra,
en fyrsta drenginn sinn misstu
þau tveggja ára gamlan. Það var
mikil reynsla ungum elskendum,
sem þau tóku með stillingu og
sýndu þá vel það jafnvægi i lund
og tilfinningum, sem þeim báð-
um var gefið.
Við hjónin og börn okkar, sem
voru í sambýli með hinum Játna
vini og fjölskyldu hans, vottum
minningu hans þakklætí. og virö
ingu, og sendum hugheilar sam-
úðarkveðjur konu hans og böm-
um.
Öll trúum við á einingu lífsins
og endurfundi í framhaldSlifi,
megi minningin um fegurðina og
sannleikann í lífi og starfi hins
látna vinar, lifa í huga okkar
og endast til auðnugjafer og
andiegs þroska.
Góða ferð Nonni minn yfir í
hið óþekkta.
Guðjón B. Baldvinsson.
Er í ryðfríum
öryggisstálrama
íOLIGLASS
er selt um allan heim.
POLYGLASS
er belgíska fram-
leiðsla.
r
LUDVI STORI G R :
k A
EINANGRUNARGLER
Afgreiðslutími 6 vikur.
Tæknideild sími 1-1620.
Landnám sff.
Vantar mann á J. C. B. 4 skurðgröfu.
Upplýsingar í síma 50091 milli kl. 12 og 13 og 20
til 21 næstu daga.
Lagfæring á loð
Menn óskast í ákvæðisvinnu við standsetningu
á lóð. — Mikil vinna.
Nánari upplýsingar í síma 16155.