Morgunblaðið - 10.07.1965, Síða 13

Morgunblaðið - 10.07.1965, Síða 13
Laugardagur 10. 'júlí 1965 MORGU N BLAÐIB 13 Ansgarhátíðin í Hamborg HEILAGU R Ansgar, postuli Norðurlanda, var af saxnesku foreldri kominn. Foreldrar hans fluttust til Frakklands, og þar fæddist Ansgar árið 801. Móðir hans lézt, meðan hann var enn kornungur, og var honum þá kom ið í fóstur í Corbie-klaustur í Frakklandi. Hann gerðist munk- ur, þegar hann hafði aldur til, og fluttist ungur til Þýzkalands. Trúboðsstarf sitt hóf hann á þeim slóðum, sem borgin Slésvík stendur nú. Hann varð fyrstur til að boða kristna trú á Norður- löndum, þar sem aðstæður voru þá hinar erfiðustu, sakir umsvifa víkinga og mótspyrnu heiðinna manna. Hann var vígður til biskups yfir Hamborg og Brem- en, og þegar þeim biskupsdæm- um var steypt saman í eitt erki- biskupsdæmi, varð hl. Ansgar fyrsti erkibiskup þess. Það erki- biskupsdæmi átti að verða grund vallarmiðstöð trúboðsstarfseminn ar á Norðurlöndum. Fyrstu trúboðstilraunir AnsgA ars á Norðurlöndum báru lítinn árangur. Hann var rekinn brott frá Danmörku, og víkingar hremmdu skip hans og eigur, þegar hann sneri sér að Svíþjóð. Aðsetursborg biskupsstóls hans, Hamborg, var brennd til ösku af víkingum. Honum veittist aldrei að snúa konungum eða stórum hópum manna til kristinnar trú- ar. Hann fékk aldrei að stofn- setja sóknir eða vígja dýrlegar kirkjur. Hann átti jafnan við ofur efli að etja, en engu að síður er hann heiðraður sem „postuli Norðurlanda", sá maður, sem fyrstur sáði sæði fagnaðarerindis- ins á Norðurlöndum. Og á þessu ári minnast kristnir menn um gervöll Norðurlönd þess, að 1100 ár eru liðin frá brottför hans úr þessum heimi. Þegar á síðastliðnu ári var far- ið að gera ráðstafanir til þess í Hamborg að halda ártíð hl. Ansg- ers hátíðlega með veglegum hætti. Kaþólskir menn þar unnu sleitulaust að hverskonar undir- búningi, og skyldi minningar- hátíð þessi bera sem mestan svip þess ökumeniska anda, sem nú ber hærra en nokkru sinni áður *neð kristnum mönnum. Kaþólsk heimili í Hamborg buðu heim trúbræðrum og systrum frá Norðurlöndum ti'l endurgjalds- lausrar dvalar. Skyldu þannig tengd vináttubönd meðal manna í Norður-Evrópu. Dagana fyrir hátíðina dreif að til Hamborgar fjöldi manna af Norðurlöndum, alls um 1000 manns, að því er talið var. Frá Islandi reyndist ekki unnt að íenda néma tvo fulltrúa, ekki eízt vegna hins langa og kostn- ítðarsama ferðalags héðan. Segja mátti, að hátíðahöldin hefðust á dýradag, hinn 17. júní, 6em var almennur frídagur í Þýzkalandi til minningar um lippreisnartilraunina í Berlín 1953. Þann dag var sungin messa wndir beru lofti á hátíðasvæðinu i lystigarði Hamborgar, og voru þar staddar 4—5 þúsundir manná, þrátt fyrir rysjótt veður. Topptjald mikið hafði verið reist á miðju svæðinu, allhátt frá jörðu, og var þar undir altari, en merki Ansgarhátíðarinnar efst uppi, bagall með krössi. Báðum megin blöktu fánar Þýzkalands og Norðurlandaþjóðanna, ásamt fánum Vatíkansins og evangel- iskra manna. Verulegur hluti messunnar var sunginn á þýzku, því að sú stefna er nú mjög uppi meðal kaþólskra að hverfa að miklu leyti frá latínunni, en lesa messu á móðurmálinu. Margir kaþólskir, bæði prestar og leik- menn hafa snúist með nokkurri tortryggni við nýbreytni þessari, svo sera við fleiri nýjungum í helgisiðum, t d. því, að prestur- inn snúi sér að fólkinu, meðan hann les messu. Breytingar þess- ar eiga rót sína að rekja til þeirra ákvarðana kirkjuþingsins í Róm, að aðhæfa kirkjuna og helgisiði hennar sem mest nú- tímanum. Þessvegna er nú um al'l an heim leitað þeirra aðferða, sem bezt megi duga til að reka erindi Krists hér á jörðu, sem sé að færa fagnaðarerindið öllum þjóðum. I þessari messu hljómuðu í fyrsta sinn einkunnarorð Ansg- arshátíðarinnar — mitt á meðal vor — byggð á orðum Krists: Hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra. Að lokinni messu hófst skrúðganga um hátíðasvæðið, kórdrengir, fulltrúar ýmissa kaþólskra fé- laga með fána sína, nunnur, munkar, prestar og biskupar. Föstudaginn 18. júní hófst hin eiginlega Ansgarshátíð. Prestar og biskupar höfðu ráðstefnur ýmsar og fundi, og var haft eftir dr. John Taylor, Stokkhólms- biskupi, sem gisti hjá yfirpresti evangelisk-lútersku kirkjunnar í Hamborg, D. Hans Heinrich Harms, að lítill tími gæfist til hvíldar og svefns, því að um- ræðuefni væru óþrjótandi. Séra Laurits Brunicardi frá Næstved í Danmörku flutti erindi um hl Ansgar, messur voru sungnar og síðdegis voru flutt fjögur framsöguerindi, hvert á sínum stað, um hlutverk krist- inna manna. Nefndust erindi þessi öll: Mitt á meðal vor, en báru undirtitlana: í fjölskyld- unni — á vinnustaðnum — í söfn uðinum — í heiminum. Á eftir hverju erindi fóru fram umræð- ur, með líkum hætti og við könn- umst við frá síðastliðnum vetri í Ríkisútvarpinu, þegar Sigurður Magnússon stjórnaði umræðum um þau mál, sem mönnum þóttu helzt forvitnileg. Um kvöldið kl. 8, fór fram guðsþjónusta í lysfigarðinum, svonefnd „þjónusta orðsins“, þar eð altarissakramentið var þá ekki haft um hönd. Töluðu þar Eftir Torfa Olafsson dr. Bruno Heim erkibiskup, full- trúi páfa á Norðurlöndum, sem hér var á ferð fyrir skemmstu, svo og prófessor Rahner, einn af kunnustu guðfræðingum kaþólsku kirkjunnar í Þýzka- landi. Laugardaginn 19. júní sungu Norðurlandabiskupar messur í sóknarkirkjum ýmsum í Ham- borg. Jóhannes Gunnarsson Hóla biskup messaði í St. Ansgar- kirkju í Niendorf, en sú sókn hefur tekið að sér að halda uppi vináttu og hjálparsambandi við kaþólska söfnuðinn á Islandi. Aðrar sóknir í Hamborg halda uppi slíku sambandi við söfnuði á Norðurlöndum. Síðdegis þann dag höfðu Norð- urlandamenn fundi með biskup- um sínum, og æskufólk hafði sér- staka samkomu, þar sem glatt var á hjalla, svo sem vera ber meðal ungs fólks. Um kvöldið var ökumenisk samkoma í lystigarðinum, og töl- uðu þar Augustin Bea kardináli, sem unnið hefur mikið að sam- starfsmálum kirknanna, og D. Heinrich Harms, yfirprestur evangelisk-lútersku kirkjunnar í Hamborg. Kaþólskir menn og evangeliskir höfðu unnið saman að undirbúningi guðsþjónustu þessarar, og einkenndist hún öll af bróðurhug og samstarfsvilja. Þar var lesin trúarjátningin, og nefnd í henni „kristin" kirkja í stað „kaþólskrar“ og Faðir vor var lesið á hinn evangeliska hátt, með niðurlagsorðunum: Því að þitt er ríkið o. s. frv. Þrátt fyrir kalsaveður voru saman komnar við guðsþjónustu þessa um 12 þúsundir manna. Sunnudaginn 20. júní sungu biskuparnir sameiginlega messu, ásamt Joseph Frings kardináli frá Köln. Dr. Helmut Wittler biskup frá Osnabruck predikaði. Lesnar voru bænir á Norður- landamálunum, svo sem einnig hafði verið gert við guðþjónustu á föstudagskvöldið. Talið var, að um 25.000 manns hefðu tekið þátt í guðþjónustu þessari. Fjöldi presta útdeildi altarissakrament- inu, og var mál manna, að ekki færri en fimm þúsundir hefðu þá neytt brauðsins. Kl. 2.30 eftir hádegi hófst svo lokaþáttur hátíðarinnar. Dr. Jos- S.L. sunnudag, 4. júlí, var minnzt við guðsþjónustu í Skarðskirkju á Landi, aldarafmæjis sr. Ófeigs Vigfússonar, fyrrum sóknar- prests og prófasts í Fellsmúla. í upphafi athafnarinnar afhenti Grétar Fells, rithöfundUr, Skarðs kirkju að gjöf, helgiljós, sem hangir í kór kirkjunnar, til minningar um bróður sinn, sr. Ragnar Ófeigsson. Standa að gjöf þessari auk Grétars, kona hans frú Svava Fells og uppeldis bróðir, Guðbrandur Guðjónsson, múrari. Ennfremur flutti Björg- vin Filippusson frá Hellum kvæði, sem hann hafi ort í þessu tilefni. 1 ræðu sinni minntist sóknarpresturinn á hið mikla og göfuga menningarstarf, sem sr. Ófeigur vann meðal safnaða sinna, bæði sem prestur og fræðari, en um tíma rak hann einkaskóla á heimili sinu og undirbjó ýmsa af menntamönn- um þjóðarinnar undir háskóla- ef Jacobi prófessor, yfirstjórn- andi hátíðahaldanna, setti sam- komuna, fulltrúar Norðurlanda fluttu ávarpsorð og kveðjur frá landsmönnum sínum, sendifull- trúi páfa í Þýzkalandi dr. Corr- ado Bafile, Frings kardináli, dr. John Taylor Stokkhólmsbiskup, dr. H.H. Wittler biskup og fleiri kirkjuleiðtogar töluðu, lesið var ávarp frá Páli VI páfa, og að lokum veittu biskuparnir móts- gestum, um það bil 30.000 manns, blessun sína. Þar með var lokið Ansgarshá- tíðinni, sem hafði að öllu leyti tekizt vel, þrátt fyrir heldur leið- inlegt veður flesta daga, kalsa- veður og oft rigningu. Skipulagn- ing mótsins var með afbrigðum góð, svo sem vænta mátti aí Þjóðverjum, vináttubönd höfðu tengzt milli manna og fjöl- skyldna, svo sem til var aétlazt, og greiðasemi og vinarhugur gestgjafa okkar Norðurlanda- manna var frábær. Það sem á skorti af hálfu veðurlagsins, bætti hjartahlýja fólksins upp. Og sá samhugur kaþólskra áberandi var á móti þessu. gefur manna og evangeliskra, sem svo góðar vonir um, að sú stund muni einhverntíma upp renna. að kristnir menn um allan heim megi sameinast í því hlutverki, sem meistari þeirra fól þeim fyrir tvö þúsund árum, að færa fagnaðarerindið öllum þjóðum. Torfi Ólafsson. nám. Ennfremur skýrði sóknar- presturinn frá því, að i tilefni aldarafmælis sr. Ófeigs, hefðu söfnuðir Skarðs- og Marteins- tungusókna látið gera minnis- varða á legstað hans. Daginn áður hafi farið fram helgistund í Hagakirkju, en sá söfnuður kaups að minnast sr. Ófeigs með því að láta gera skírnarfont fyrir kirkjuna, útskorinn af Ríkarði Jónssyni. Kór Skarðskirkju söng við guðsþjónustuna, en ungfrú Anna Magftúsdóttir lék á orgel. Að guðsþjónustunní lokinni bauð kvenfélagið Lóa kirkjugestum til kaffidrykkju á kirkjustaðnum. Þar tóku til máls Ófeigur Ófeigs- son, læknir, sr. Sigurður Pálsson frá Hraungerði og Grétar Fells. Einnig flutti Guðni Kristinsson, formaður sóknarnefndar nokkur þakkarorð. Kveðja barst frá biskupnum yfir íslandi, herra Sigurbirni Einarssyni. Ansgarskir kjan að innan. Ansgarskirkja í Niendorf. Minningarguðs- þjónusta í Skarðskirkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.