Morgunblaðið - 31.08.1965, Side 6

Morgunblaðið - 31.08.1965, Side 6
0 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 31. águst 1965 ppill)U... hiiiwwwtw ' ' ----------- KlÍ */•*.« >* " ; *- ~ < A *^y;>.y.-: : 'W ■ ' s •'. ■ Stórbrotiö sjókvikindaval ílugmaður og Loðmundarfirb ingar við flugvélma undan Stakk ahiíð. — Ljósm. H. A. Flugvél lendSr í Loðmundar- firðS í fyrsta sSnn LAUGARDAGINN 21. ágúst lenti í fyrsta sinn flugvél í Loð- mundarfirði, og var það tveggja , sæta flugvél af gerðinni KZ-3. Flugmaður var Ómar Tómasson, flugstjóri hjá Loftleiðum. Með honum í ferðinni var Hákon Aðalsteinsson, Egilsstöð- um, sem þetta skrifar. Lent var rétt sunnan og neðan við Stakka- hlíð á sléttu milli tveggja ný grafinna skurða og tókst lend- ingin mjög vel. Flugmaðurinn Ómar Tómasson sagði, að þarna væru ágæt skilyrði fyrir flug- braut, og væri vel fært fjögurra sæta vélum, þegar sléttan þorn- aði meira, en þarna er um ný grafið land að ræða. Dálítill mosi er í rótinni og þyngdi það nokkuð brautina. Enn fremur sagði Ómar, að þarna yrði ágæt 800 metra braut, þegar landið væri full sigið. Flugtími í þessari fyrstu ferð var 45 og 50 mínútur. Vegna þess að lágskýjað var þurfti að fljúga út yfir Héraðsflóa, austur tyrir Glettinganes og þannig inn á Loðmundarfjörð. Sé um að ræða beint flug frá Egilsstöðum til Loðmundarfjarðar og flug- tíminn um það bil 10 mínútur. í Loðmundarfirði búa um 10 manns, þar af níu í Stakkahlíð. Á Sævarenda, sem er um það bil einn kílómetra frá Stakkahlíð býr aðeins einn maður, Kristinn Halldórsson, sem fluttist þangað fýrir einu ári frá Seyðisfirði. Pkstverhsmiðja d Ahranesi Akranesi, 27/8 1965. HÉR á Akranesi tók til starfa I gær ný piasteinangrunarverk- smiðja undir nafninu SKAGA- PLAST. Um uppsetningu verk- smiðjunnar annaðist Bragi Sig- urðsson, vélvirki frá Sauðár- króki. Verksmiðjan á að geta framleitt um 300 ferm. af ein- ungarplasti á sólarhring, en starfslið mun vera 6 manns. Sölu umboð verksmiðjunnar í Reykja vik annast ísplast h.f., Eigandi og framkvæmdastjóri verksmiðj unnar er Guðmundur Magnús- son. — Gunnar. Hjónin í Stakkahlíð, Magnús Sigurðsson og Ásta Stefánsdótt- ir, eiga fimm myndarleg og mannvænleg, og er það elzta sextán ára. Þegar lent hafði verið, kom Kristinn bóndi á Sævarenda á bíl sínum og sótti okkur og ók okkur heim að Stakkahlíð. f>ar beið veizluborð, og sátum við þar í góðu yfirlæti í tvær og hálfa klukkustund. Að því loknu var flugmanninum boðið á hest- bak, og fór hann ríðandi að flugvélinni aftur. Vegurinn frá Borgarfirði til Loðmundarf jarðar er um það bil 35 km. og í bezta færi hefur hann verið ekinn á tveimur tím- um, en fyrir tveimur dögum var farið frá Loðmundarfirði til Húsavíkur, sem er 15 km. leið, um að fá bætt vegarsamband næstu ár, en kváðust hugsa gott og tók það nærri tvo tíma. Loð- mundarfirðingar hafa enga von til að geta skotizt til Héraðs með flugvélum ef á lægi. f Loðmundarfirði er nú skurð grafa að vinna við að þurrka land til ræktunar og hefur verið mælt fyrir skurðum allt að níu km. Ágætt er að rækta í Loð- mundarfirði, og -virðist vera framkvæmdahugur í bændum þar. Akranesi, 30. ágúst. TOGARINN Víkingur kom hing- að kl. 6:30 í morgun eftir 24 daga útivist með 250 tonna afla. Afl- anum er landað til vinnslu í Prestar hætta störfum SIGURÐI Stef'.nssyni, vígslu- biskupi í Möðruvallaprestakalli hefur verið veitt lausn frá em- bætti frá 15. júlí 1965 að telja, samkvæmt frétt í síðasta lög- birtingablaði. Einnig hefur sr. Sigurði Ó. Lárussyni verið veitt lausn frá embætti frá 1. október. Og sr. Páli Pálssyni í Vík í Mýr- dal frá 1. september. Ný bók eftir Agatha Christie FYRIR sköfmmu kom úit hjá Regnbogiaútgáfunmi ný bók eftir Agatha Ohristie og nefnist hún Ráðgátam á hóteliniu. Bó(k þessi koim út í Englamdi um síðustu áraimót og mefnist húin á frum- máiinu A Carribean Mystery. Þýðinguina gerði Jómas St. Lúð- víksson, en Prentsmiðja Suður- lamdis sá um setnimgiu og prentun. Ráðgátan á hóteliniu hefur ekiki áðuir bomið himgað til lands í ensku útgáfumni. öllum hraðfrystihúsuim staðar- ins. Veiðiförin byrjaði á Austur- Grænlandsmiðum, sfðan kippti skipstjórinn yfir á þau vestri og venti loks á heimamið með 110 tonn í lest. Sjókvikindaval er stórbrotið á Vestur-Grænlandsmiðum. Þar fengu þeir þrjá gríðarstóra há- karla, engar smáskepnur, og vó hver um sig 400 til 500 kg. Þeim fannst nú fyrst kasta tólftunum, er þeir fengu tvo hákarla í sama hadi. Háseti einn horfði í giaupn- ir sér og spurði: „Hvað er nú á seýði?“ Hann þóttist vel skilja, hvers vegna skipstjórinn setti á fulla ferð tiil heimamiða. — Odd- ur. IViinningar- sjoÖur Olavs Brunbnrg ÚR sjóðnum verður íslenzkum stúdent eða kandídat veittur styrkur árið 1966 til náms við norskan háskóla. Styrkurinn er að þessu sinnl 2300 norskar krónur. Umsóknir skulu sendar skrifstofu Háskóla íslands fyrir 1. okt. 1965. Æskilegt er, að umsækjendur sendi með umsókn skilríki n™ námsferil sinn og ástundun. (Frá Háskóla íslands). Prentvillupúkinn Ég sá það í blaðinu á sunnudaginn, að Svavar Gests ætlar að fara að blása lífi í ís- lenzka plötuútgáfu — og er þegar byrjaður. Reyndar skrif- aði ég sjálfur viðtalið og ætla að nota tækifærið til þess að leiðrétta mistök, sem orðið hafa í prentsmiðjunni. Ég er fyrir löngu hættur að eltast við prent villupúkann, þegar hann lætur sér nægja smá glettur eða hrekki. Þeir blaðalesendur, sem leita með smásjá að ambögum í blöðunum til þess að geta hlegið að fávizku blaðamanna, njóta oft góðrar samvinnu hins margnefnda púka — og það er þeim sjálfsagt ekki ofgott. Reyna blöðin ekki að hafa eitt- hvað fyrir alla? Ég er nú hræddur um það. Nýr útvarpsþáttur En þegar þrjóturinn gerir einhverjar meiriháttar brellur, eins og t.d. að stela nokkrum línum úr stuttu viðtali og snúa því við, sem sagt er, — þá er ekki um annað að ræða en koma með leiðréttingu. Þetta gerðist einmitt í viðtalinu við Svavar Gests. Ég spurði hann (Svavar — ekki púkann) hvort við mætt- um eiga von á að heyra í hon- um í útvarpinu. Og Svavar svar aði: „Nei, alls ekki“. Þarna hafa einmitt nokkrar blýlínur skoppað á gólfið í prentsmiðj- unni, því Svavar sagði raun- verulega: „Jú, ég geri frekar ráð fyrir því. Útvarpið hefur beðið mig að sjá inn þátt í vet- ur, en ég hef ekki gefið mér tíma til að hugleiða málið og velja þættinum form.“ Siðan spurði ég: Verður ekki erfiðara að annast skemmtiþátt og njóta ekki lengur aðstoðar hljómsveitarinnar? — Það var þá, sem Svavar sagði: „Nei, alls ekki“. Mér finnst sjálfsagt að koma þessu á framfæri, bæði til þess að þeir hjá útvarpinu neiti ekki að hleypa Svavari inn — næst þegar hann heimsækir þá — og líka vegna þeirra mörgu, sem ánægju hafa af skemmtiþáttum Svavars. Þeir geta sem sagt bú- izt við að heyra í honum í vet- ur. •Jf Buslið Víða erlendis er rekinn mikill áróður gegn óþrifum og hirðuleysi í umgengni. Ég man ekki hve margar milljónir doll- ara það kostar að þrífa götur New York borgar árlega, en þeir fyrir vestan hampa þeim tölum oft í sjónvarpi og segja í leiðinni, að ef hægt yrði að skera þennan kostnaðarlið nið- ur um helming mundu útsvör- in lækka að sama skapL Þar vestra er fólk víða sekt- að, ef það sést' kasta rusli út úr bílum sínum — á akbrautir eða gangstéttir. Árangur slíks aðhalds verður líka góður. En sums staðar í útlöndum þarf alls ekki að hóta fólki öllu illu til þess að það sýni menningar- brag og kasti ekki bréfum og öðru rusli frá sér hvar sem er. Skapar hætlu Mér dettur þetta í hug vegna þess að hingað kom mað ur, sem sagði mér litla sögu um það hve alvarlegar afleiðingar þetta hirðuleysi getur haft í för með sér. Dóttir hans var á gangi í Austurstræti í síðustu viku og steig þá á bananahýði, sem einhver hafði kastað á gangstéttina. Henni skrikaði fótur og hún hefði sennilega fengið slæmt höfuðhögg, ef veg farandi hefði ekki gripið hana og tekið af henni mesta fall- ið. En hún féll á annað hnéð á gangstéttarbrúnina og braut hnéskelina. Þetta var það versta, sem fyrir gat komið, því tvisvar áður hefur hún lagzt undir hnífinn einmitt vegna hnésins og hún hefur í mörg ár verið máttlítill í þeim fæt- inum. Nú var hún skorin upp í þriðja sinn, verður að liggja með fótinn í gipsi — og þótt við vonum, að uppskurðurinn hafi gengið vel — er ólíklegt að fóturinn verði betri en hann var. Sennilega eru hliðstæð dæmi fjölmörg. Það er ómenningar- bragur að kasta frá sér um- búðum og öðru, sem fólk þarf að losna við, á götum úti —• og auk þess getur það verið stórhættulegt eins og framan- greint dæmi sannar. ★ Fánarnir Hann Baldur á íþrótta- vellinum hringdi í mig fyrir helgi og þótti honum sagan um norsku fánana á vellinum ómakleg. Sagði hann, að íþrótta völlurinn ætti mikinn fjölda af fánum og væri sá aðili, sem flestir leituðu til, þegar fá þyrfti fána að láni. Hins vegar hefðu umræddir þrír fánar ekki allir verið af sömu stærð, en tveir þeir minni þó jafnstórir. Sagðist hann hafa leitað til sendiráðs og ræðismanns Norð- manna í bænum en hvorugur aðilinn gat leyst vandann. —* Baldur neitaði því ekki, a3 heimildarmaður Velvakanda hefði haft á réttu að standa; — að æskilegt væri að fánar væru allir sömu stærðar við slík tækifæri, þótt ekki værl lögð nein áherzla á það atriði — t.d. á erlendum íþróttaleik- vöngum. En honum fannst mál ið ekki það merkilegt, að það réttlætti blaðaskrif — og það getur verið alveg rétt. Samt held ég að ábendingar í vinsamlegum tóni skaði engan, jafnvel þótt um ómerkileg málefni sé að ræða. AEG NYJUNG TVEGGJA HRAÐA HÖGG- OG SNÚNINGSBORVÉLAR Bræðurnir ORMSSON h.f. Vestufgötu 3. — Simi 38820.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.