Morgunblaðið - 09.09.1965, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 09.09.1965, Qupperneq 3
Fimmtudagur 9 sept. 1965 M0RGUN2LADIÐ 3 Illuti af byg-ging-unni séður neðan frá vogmum. Skjólgóð flöt myndast milli íbúðarálman na. Húsahverfi fyrir van- gefna við Kópavogshæli SUNNAN á Kársnesinitx við Kópavoginn stendur gamla Kópavogshælið, notað sem hæli fyrir vangefna sí'öan berklasjúklingar þurftu þess ektki lengur sem hróssingar- hælis. Og í kringum það verð ur með tímanum komið upp heilu hælishverfi fyrir van- gefina, með þeim byggingum sem slíku hæli fylgja. f>arna er nú eitt hús í bygig- ingu og snýr sex stöfnum að vegfarendum, sem aka út Kárshesið. Blaðamáður og ljósmyndari blaðsiná beygði þarna út af vegkxum í gær, tiíl að forvitnasit nánar um þessar framkvæmdir. Það kom í ljós að þetta er íbúðarhús fyrir vangefna, og á að rúma 45 manns. Smi'ðir voru þarna að verki. Byggingawneistar- inn, Ingibjartur Arnórsson, leysti úr spurningum okkar. Húsið er á einni hæð, og eiginlega þrjár byggingarein- ingar, um 500 ferm. hver. Tvær þeirra eru að verða til- búnar, komin inn húsgögn og rafm.agnsmenn voru að setja upp lam.pa. En sú þriðja er komim undir þak. í hverri húsaeiningu er íbúðarálma me'ð fjórum þriggja manna herbergj-um og þremur eins manns herbergjum, auk snyrtiherbergja. Þessu fylgir setus'tofa, borðstofa, lítið eld- hús o.fl., en matur á að koma frá sameiginlegu eldhúsi hæl- inins. Gangar alilir eru stórir og byggingin yfirlieitt björt og vönduð. Húsgögn í herbergj- unum eru falleg og nýtízku- lag, svefnsófar, skrifborð og bókahilláur úr teakviði og sikápar rúmgóðir. í hverri húsaeiningu munu búa 16 manns og þa'ð fer áreiðan- lega vel um þá í þessu fallega rúmgóða umhverfi. Búist er við að fyrstu sjúklingarnir flytji inn í lok mánaðarins. Rafvirkjar að ganga frá ljósrm á ganginum. Einn af vistmönnum i þrlggja manna herbergi í nýju bygg- ingunni. _ Húsin teiíknaði Gísli Hall- dórsson arkiteikt. Þar hagar þannig til, að innangengt er milli þessara þriggja húsa- eininga, og á milili þeirra myn'dast skjólgóð flöt með palili og grasbletti, þa'ðan sem útsýni er niður að sjónum. Inigibjartur sagði okkur, að þetta mundi vera sú fyrsta af fimm svona húsaeiningum, sem fyrirbugaðar eru enda væri stoorturinn á hújsrými geysimikill á hæhnu og marg- ir biðu eftir að komast að. Auk þess væru áætlanir um fleiri byggingiar, sameigiinlegt eld- hú's, kymdiklefa, vinnustoáia o.fl. Bklki kváðst hanin þó vita hvenær þær byggingar mun'du rísa. En þeim er ætlað ur staður á svæðinu miili þessa nýja húss og vegarins. Þar er nú aðeins starfsmanna- bústaður, ailistórt blotokhús. Sex stafnar snúa i norður. Tvaer húsaelningar eru að verða búnar, sú þriðja er uppsteypt. SIAKSTFINAR Línan frd Peking HERNAÐARÁTÖKIN í Kasmir eru að vonum mikið rædd í blöð- um hér á landi, sem annars stað- ar og sýnist sitt hverjum. Segja má, að það einkenni Kasmír- deiluna, að fáir aðilar eru reiðu- búnir tij þess að taka afstöðu með öðrum hvorum deiluaðila. Mönnum er ljóst, að hér er um mjög flókið vandamál að rseða og hvorugur deiluaðila er án sakar í málinu, þótt báðir hafi margt til síns máls. 1 þessu ljósi er athyglisvert að lesa forystu- grein Þjóðviljans í gær um Kas- mírdeiluna, ekki sízt þar sem hin tvö höfuðríki kommúnismans, Sovétríkin og Rauða-Kína hafa ólíka afstöðu til málsins. Sovét- stjórnin hefur hvatt báða aðila til þess að hætta vopnaviðskipt- um, en Pekingstjórnin hefur tekið ákveðna afstöðu með Pak- istan í þessari deilu. Ljóst er af tóninum í leiðara Þjóðviljans í gær, að Þjóðviljinn hallast frem- ur að málstað Pakistana í þessari deilu og er út af fyrir sig ekkert við því að segja. Þjóðviljinn hlýtur að taka afstöðu í málinu eins og aðrir, en óneitanlega hljóta menn að veita þvi athygli, að Þjóðviljinn og kommúnistar hér á landi taka nú líkari afstöðu til Kasmírmálsins, þeirri sem Peking-stjórnin hefur, en sem Sovétstjórnin hefur haldið fram. Tengslin við Peking Ágreiningurinn milli Moskvu og Peking hefur valdið klofningi i kommúnistaflokkum um heim allán og þessa ágreinings hefur einnig orðið vart í kommúnista- flokknum hér á landi, þótt fylgis menn Pekingstjórnarinnar hafi verið fremur fáliðaðir hingað til. En ef til vill eru skrif Þjóð- viljans nú um Kasmírde5,”tia vísbending um, að þeim vaxi nú styrkur innan kommúnistaflokks- ins, sem vilja halla sér meir að Peking en Moskvu í framtíðinni. Annars hefur bókmenntafélag kommúnista, Mál og menning verið aðalmiðstóð Pekingssinna í kommúnistaflokknum hér á landi, og hefur Kristinn E. Andrésson verið í fararbroddi þeirra harðsnúnu gömlu komm- únista, sem líkað hefur betur línan frá Peking en sú sem frá Moskvu hefur komið. Miðstöð í Kaupmannahöfn Sendiráð Pekingstjórnarinnar í Kaupmannahöfn hefur verið aðal-miðstöð fyrir áróður frá kínverskum kommúnistum, sem dreift hefur verið til Islands og hefur sú dreifing farið fram á vegum Máls og menningar, enda hefur Kristinn E. Andrésson verið mjög tíður gestur og dval- izt langdvölum í Kaupmanna- höfn síðustu árin, eftir að Kín- verjar fóru að beina athygU sinni hingað norður á bóginn. Mál og menning hefur einnig haft margvíslegan hag af þess- um tengslum við Peking, þar sem fyrirtæki þetta hefur flutt • inn ýnúskonar kínverskan varning, sem það hefur vafalaust fengið með hagkvæmum viðskiptaleg- um kjörum. En Sovétsinnar í kommúnistaflokknum hér á landi og aðrir útsendarar Sovét- stjórnarinnar hér, ættu að’ lesa vandlega skrif Þjóðviljans um Kasmírdeiluna. Vafalaust mun það valda þeim nokkrum heila- brotum, hvort málgagn þeirra hér á landi sé nú farið að haU- ast að Peking í stað Moskvu, sem kannski væri ekki svo óeðlileg afleiðing langrar heim- sóknar stjórnmálaritstjóra blaðs- ins til Kína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.