Morgunblaðið - 09.09.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.1965, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 9. sept. 1965 Anna Sigmundsdóttir Fædd 24. jan. 1888 Dáin 2. sept. 1965 TVENNT var það, sem einkum vakti athygli mína og aðdáun á Seyðisíirði, er ég gerðist prestur þar fyrir tæpum aldar- fjórðungi: Falleg og menningar- leg heimili. frjálsmannlegt og háttvíst íólk. Það var ekki auðuigit á veraXdaæ vísu, því að þessi minnsti kaupstaður lands- ins hafði orðið fyrir mörgum og þungum búsifjum, sem hér verð- ur ekki um rætt. Bærinn var samt þrifalegur, húsum ve’. við haldið, lóðir hreiniegar og víða fallegir trjá- garðar. Aiis staðar blasti við smekkvísi og menning. Fólk gekk vel til fara og var fágæt- lega prúðmannlegt í framkomu. Þeim, sem ekki kunnu háttvísi að meta, fannst íátt um og köll- uðu Seyðfirðinga aristokrata í háði. Þeir vissu ekki og skildu ekki, að höfðingsbragúr þessa fólks var hvorki sýndarmennska né hégórr.askapur, en ræktuð siðmennirxg, sem stóð djúpum rótum, sprottin af heilbrigðri sjálfsvirðingu og sómakennd. Kurteisi þess var þáttur í and- legu hrein'æti. Það kunni sig vel og mátti ekki vamm sitt vita. Mörg hin gömlu menningar- heimili eru Jiðin undir lok, en ný rísa af rústum, því að enn held- ur seyðfirzk siðmenning velli, þrátt íyrir síld og peninga. Mörgu hinu gamla menningar- fólki hef ég fylgt inn í kirkju- garðinn heima. Sumir fluttu suð- ur til þess að deyja þar og horft var á eftir þeim með trega. í dag er til moldar borin á Seyðisfirðx sannur fulltrúi seyð- firzkrar siðmenningar, frú Anna Sigmundsdóttir, ekkja Jóns G. Jónassonar, málarameistara og kaupmanns, sem látinn er fyrir rösku hálfu öðru ári. Jón var einn af brautryðjend- um í iðngrein sinni hér á landi, fjölhæfur maður og smekkvís. Hann gerði teikningu hinnar sviphreinu kirkju, sem Seyðfirð- ingar reistu af miklum myndar- skap árið 1922 og málaði hana að innan af slikum vöndugleik, að verk hans sendur enn, ómáð að kalla. Slík voru vinnubrögð hans. Lengst mun hann' þó lifa í minni þeirra, er kynntust hon- um, sakir drengskapar síns og vammleysis. Ég var í oríofi er andlát hans bar að, og féll því eigi í hluí minn að kveðja hann iátinn Nú. þegar hin mæta kona hans er gengin, er ég aftur fjar- staddur og í þann veg að kveðja Seyðfiðinga. Ég á þessum heiðurshjónum mikla þakkarskuld að gjalda og eiga þessi fátæklegu kveðjuorð að vera þakklætisvottur — sjálf um mér til hugarhægðar. FLUGVIRKJANEMAR LOFTLEIÐIR H.F. hafa í hyggju að aðstoða nokkra pilta til flugvirkjanáms í Bandarikjunum. Nauðsynlegt er að umsækjendui séu fullra 18 ára, hafi gagnfræðapróf, landspróf eða hliðstæða menntun. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félagsins, Lækj- argötu, Reykjavík og hjá urnboðsmönnum félagsins úti á landi. Umsóknir ásamt afriti af prófskírteinum skulu hafa borizt ráðningardeild félagsins fyrir 20. september n.k. Blaðburðarfólk Sigtún Austurbrún Laugarásvegur Snðurlandsbraut Laugarteigur Bugðulækur Skólavörðustíg SÍMI 22-4-80 Anna Sigmundsdóttir var fædd 24. janúar 1888 að Gunnhildar- gerði í Hróarstungu. Voru for- eldrar hennar Sigmundur Jóns- son, bóndi í Gunnhildargerði og kona hans, Guðrún M. Sigfús- 65 ára í dag: Eiríkur Jóha nnesson dóttir. Bjuggu þau þar allan sinn búskap. Ólst Anna upp með for- eldrum sínum og 9 systkinum. Heimilið var meðal mestu menningarheimila i þá daga og er það til marks, að fenginn var heimib'skennari til þess að uppfræða börnin. Frú Anna stundaði nám í kvennaskóla í Reykjavík og gift- ist úr föðurhúsum árið 1908 Jóni G. Jónassyni, sem þá var mál- arameistari á Seyðisfirði, og hófu þau þar búskap. Hún hefur því verið húsmóðir á Seyðisfirði röska hálfa öld og stjórnað einu myndarlegasta heimili á Austur- landi, kunnu að reglusemi, holl- um lífsvenjum og menningar- brag. Þau hjónin eignuðust 5 börn. Elztu dóttur sína, Guð- laugu, misstu þau 7 ára að aldri. Önnur born þeirra eru: Sigrún búsett á Seyðisfirði, Jónas, framfcvæmdastj óri í Reyikjiaivik, kvæntur Kristínu Ingvarsdóttur, Guðlaugur. kaupmaður á Seyð- isfirði, kvæntur Erlu Magnús- dóttur og Herdis skrifstofustúlka í Reykjavík. Auk barna sinna fóstruðu þau systurdóttur frú Önnu, Guðrúnu Sigfúsdóttur, húsmóður í Reykjavík. Anna Siigmundsdótti.r hefur skilað miklu dagsverki. Hún var mikilhæf kona og móðir og hús- freyja mikils rausnarheimilis. Vinum hennar verður þó minn- isstæðastur persónuleiki hennar. Hún var eftirminnilega vel gerð kona til líkams og sálar, mynd- arleg og höfðingleg, þrekmikil og andlega sterk, kona, sem vakti virðingu, hvar sem hún fór. í löngu og erfiðu helstríði manns síns. sem hún hjúkraði af alúð unz yfir lauk sýndi hún andlegan þrótt sirxn, því að þá var hún sjálf farin að heilsu og var skömmu síðar lögð á sjúkrahús til mikillar aðgerðar, sem ekki bætti mein hennar. Þar hitti ég hana síðast, fár- sjúka, en andiega hressa. Hún bognaði aldrei, en brotn- aði að lokum eins og sterkir viðir gera. Frú Anna var sveitakona, ramíslenzk í hugsun, en hafði tileinkað sér hið bezta og heil- brigðasta í heimsborgararlegri siðmtnningu. Skó’agangan var ekki löng og lærdómsfögin ekki mörg. Það bætti hún upp siðar með lestri góðra bóka og þjóðlegra fræða. Aldrei skorti umræðuefni á heimiiinu, því að hjónin voru margfróð um menn og málefni og kunnu skil á mörgum annáls- verðum viðburðum Austurlands. Lengst miuin frú Önnu verða minnzt fyrir mannkosti og dyggðir. Trúfræðin og siðfræðin, sem hún nam í sveit sinni hafa verið henni gott veganesti, og hún hefur numið þau fræði af alvöru og aiúð. því að sæmd og heiður einkenndu hana alla ævi. Hún var sterk í raunum, af því að hún var sterk í trú og átti helgidóma: Virðing og lotning fyr ir öl!u því, sem göfugt er og heilagt. Hún trúði og treysti Guði Úr fjarlægð sendi ég að hinztu hvílu hennar þá kveðju, sem ég vildi hafa flutt frá altarinu í dag: Drottinn blessi þig og varðveiti Þig • • . Erl. Sigmundsson. ,HANN Eirlkur, vinur minn, Jó- ‘ hannesson er hálfsjötugiur í dag. ILéttur í spori, eða ríðandi á 'hjóli sínu, mieð blik drengjaár- anna í augum og kímnina í augnakrókunum. Ótrúlegt en satt, 65 ára er hann. Eiríkur er fæddur hinn 9. septemiber aidamótaárið í Skaft- (hoiti í Gnúpverjahreppi í Árnes- sýslu. Foreldrar hans voru þau jhjónin Jóhannes vefari frá Ás- ■ um Gnúpverjahreppi, Eggertsson- ar sjómanns frá Móum í Njarð- *víkum, Jónssonar, og kona hans IMargrét Jónsdóttir bónda á ‘ Álfsstöðum á Skeiðúm, Magnús- 1 sonar. Um tvítugt fór Eiríkur til Nor- egs og stundaði þar nám í nokk- ur ár, en kom svo aftur heim. til fósturlandsins og settist að í Hafnarfirði. Eirífcur hefur lagt gjörva hönd á margt um dagana. Hann hefur verið starfsmaður við St. Jósefsspítalann í Hafnarfirði frá 1927. Þá hefur hann annazt söng og smíðafcennslu, verið leiðbein- andi í leiklistarstarfi hjá ýms- um félögum, tekið mikinn þátt i störfum Lúðrasveitar Hafnar- fjarðar og margt fleira, sem of langt yrði upp að telja. En það var ekki á vettvangi þessara starfa, sem leiðir okkar Eiríks lágu saman. Okkar leiðir lágu saman í skátahreyfingunni. Þar hittir maður góðan Skáta- Samhomur Kristniboðssambanidið Á samkomunni í kvöld í Betaníu kl. 8.30 talar Bjarni EyjólfssOn ritstjóri. — Efni: Ekki hálfvolgir. Allir velkomnir. Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Bræðurnir Haraldur cg Hafliði Guðjónssynir tala og syngja. Einar Gíslason kveður. Er á förum til út- landa. Hjálpræðisherinn í kvöld kl. 8.30: Almenn samkoma. Við bjóðum löytin- ant Kaspersen og Mona Grefs- rud velkomin til íslands. — Allir velkomnir. — Föstudag og laugardag er merkjasala. Kaupið merki og styrkið gott málefni. Peningar Getur ekki einhver góðviljaður maður lánað kr. 150.000,00 í einhvern tima gegn góðu fasteignaveði. Ef einhver sæi sér það fært, þá geri svo vel að senda nafn sitt til Mbl., merkt: „Skjót hjálp — 2158“. dreng, sem Eiríkur er. Eirífcur fylgdist með fyrstu sporum skátahreyfingarinnar í Hafnar- firði fyrir rúmum 40 árurn, »g það leið ekki á löngu, unz hann varð þátttakanidi í Skátastarfinu af lífi og sál. Og þótt sfcátaárin séu orðin nokfcuð mörg hjá Eiríki, „er andinn þó sarnur og jafn“, eldurinn eins skír og heit- ur og þegar hann hóf skátagöng- una. Með Hraunbúum hefur hann þolað súrt og saett, verið þeim ómetanlegur liðsmaður bæði I meðlæti og mótlæti, gegnit fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir Hraunbúa, verið félagsforingi þeirra um árabil og nú í dag leiðir hann frítt og föngulegt lið, St. Georgsgildið í Hafnarfirði. samtök eldri skáta, jiafnframt þvl sem hann er nú formaður lands- samtaka þeirra. Þar sem Eiríkur er svo ungur enn, þrátt fyrir aldurinn, og á eflaust eftir að eiga mörg og merkileg afmæli, þá hafði ég nú hugsað mér að hafa þessi orð ekki fleiri að sinni, enda er ævi- ferili hanis litsfcrúðugri en svo, að hann verði rakinn í fáurn orð- um. Það sem fyrir mér vafcir með þessu skrifi mínu núna, er að flytja Eiríki þakkir frá Hraun- búum fyrir samveruna í leik og í starfi, flytja honurn þakkir frá mér og mínum fyrir ágæt kynni, og óska honum gæfu og gengis um mörg ókomin ár. Það er von mín, að Eiríkur eigi enn eftir að vera mörg ár með okkur Hraun- fcúum og syngja með okkur sfcátasönginn, sem hann gaf okik- ur: „Við Hraiunbúair fýlikjum' oss fánann við og fegurstu eflum vor heit . . .** Guð blessi þér daginn Eiríkur, svo og aðra ókomna daga. Hörður Zóphaníasson. Si«;urður Guð- mundsson garð- yrkjumaður sextu^ur f DAG minnist vinur minn og mágur, Sigurður Guðmundsson, frá Skáholti við Bræðraborgar- stíg, sextugs afmælis síns. Það má gera góða leit ef það á að finnast betri eða meiri mað ur en Sigurður, brezkir mundu kalla hann sjentilmann en Norð menn höfðingja. Hárið er grátt og ennið hátt en hendurnar hrjúfar og skorn- ar, því að þótt hendurnar beri með sér gróðurmátt eru í hverju blómabeði rósir, sem bera auk blaða og ilms þyrna, sem skera og stinga. Mér þykir vænt um Sigurð eins og alla aðra, sem skapa í kringurn sig fegurð og þögn. Hver leyfir sér að tala, sem minnist sxáidsins, sem orkti um burknirótina, hún bað vindinn og hún bað lækinn að bera sig í birto,og yl en Sigurður veit að til Guðs verður bænin að berast til þess að við berumst þangað. Sigurður minn, þroski þinn og persónule:ki ber þig til blóm- anna og þér fylgja hlýjar hugs- anir og beztu árnaðaróskir. Hilmar Biering. London, 7. sept. NTB-AP ic George Ball, aðstoðarutan ríkisráðherra Bandaríkjanna kom í dag til London frá París. Mun hann ræða við brezka ráðamenn, m.a. um Vietnam-deiluna og ástandið í Kasmír.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.