Morgunblaðið - 12.11.1965, Blaðsíða 5
FSstucIagur 12. nóv. 1965
MORGUNBLADIÐ
5
MENN 06
= malefni=
í októbeiihefti hins fræga
listatímarits í París La revue
moderne des arts et de la vie,
birtist nýlega gagnrýni á verk
um Sveins Björnssonar, en
þau voru þá á sýningu þar.
Einnig var birt mynd af einu
verka hans, og birtist hún bér
á síðunni.
Gagnrýnin er á þessa leið:
„Smáatriði sögumannsins
hafa litla þýðingu fyrir
Björnsson. Fyrir honum tákn
ar málverkið (málaralistin)
ofsafenginn expressionisma,'
skapara myndformanna, og
útskýrir þetta vel skapgerð
-ians.
í áhrifamestu málverkum
sínum skapar Björnsson
„massa“ á hreyfingu, dum-
bungsbirtu, ólgandi rythma,
en þótt áherzla sé ekki lögð
á smáatriði, útilokar slíkt ekki
einskonar kvíðaþrungna róm-
antík, en skin hennar er endur
minning um veröld Goya.
Björnsson er islenzkur að
þjóðerni og hefur verið sjó-
maður. Á hinni tómlegu og
drungalegu víðáttu hafsins,
þar sem dagarnir renna út í
eitt, hefur hann vafalaust
skynjað sinfoniskar hreyfing
ar sjávarins, hvítfyssandi,
drynjandi löðrið og sorann í
höfnunum. — Fernand Tra-
mier.“
Þess má geta að lokum, að
Sveinn Björnsson hefur um
þessar mundir sýningu í
Charlottenborg í'Kaupmanna-
höfn og sýnir þar 18 myndir.
Olíubrennari
Thatcher, til sölu.
Sími 34086.
Bandaríkjamaður
kvæntur íslenzkri konu,
óskar eftir 2—3 herb. íbúð
í Keflavík eða Njarðvik,
sem fyrst. Reglusemi. —
Uppl. í síma 1471, Keflav.
Vísukorn
Eftir lestur danskra skrita um
bandritamálið.
Nú er eins og allir Danir
islenzkuna skilji og virði.
Hrúgast samt upp lygalanir
lastmælgi og köpuryrði.
Sveinn Jónsson
að hann hefði hér á dögunum
lagt leið sína austur í Grímsnes.
Veðrið var ákjósanlegt, vegirnir
6æmilegir, og það er sennilega
ofaníburðinum mikið að þakka,
hvað vegirnir í Grímsnesinu eru
oftast góðir. Auðvitað hafa vega
kapparnir þurft að leggja veginn
í eintómum beygjum og hlykkj-
ima, sérstaklega hjá Svínhólum,
enda hestvagnar aðalfarartæki,
þegar hann var lagður. Litirnir í
rauðamölinni þarna eru afar
fallegir, og það heyrir undir nátt
úruvernd að spilla þessum hólum
ekki meira en orðið er. Daemin
frá Rauðhólum ættu að hræða.
Rétt austan við Minni-Borg
liggur barnaheimilið á Sólheim-
um. Það liggur niðri í kvos eða
litlum dal, eins og heill heimur
útaf fyrir sig. Þarna er mikið um
byggingar og þarft verk unnið.
Forstöðukonan, Sesselja Sig-
mundsdóttir, hefur unnið sér
alþjóðarþökk fyrir þjóðþrifa-
starf sitt þarna. Hin vangefnu
börn og unglingar í þjóðfélaginu
eiga þarna athvarf. Þetta er heim
ili þeirra, það er lærdómsríkt að
heimsaekja Sólheima. Það er á
svona stöðum, sem við sjáum
réttlætingu allra safnana og
happdrætta fyrir stuðning við
vangefin börn.
Þarna við eitt gróðurhúsið
hitti storkurinn mann, sem var
í góðu skapi, og það var tilbreyt
ing að hitta slíkan mann.
Storkurinn: Eitthvað kætir þig
góði?
Maðurinn í sólskinsskapinu:
Og er ástæða til, storkur minn.
Líttu á allt það starf, sem hér
er unnið. Sjáðu öll þessi böm,
sem hér fá gott atlæti og ástúð,
og kennslu í mörgum greinum,
eins og hver hefur greind til og
þroska. Það er stundum verið að
hafa horn í síðu þessa starfs, en
við sem þekkjum það, vitum, að
það er nauðsynjastarf, og það
er unnið af kærleika og í trúnni
á eitthvað háleitt markmið í líf-
inu.
Storkurinn var mannimun al-
veg sammála og með það flaug
hann upp á turninn á Mosfells-
kirkju, sem er þarna í nágrenn-
inu, og hugsaði mikið, meðal
annars um Messuna á Mosfelli,
í MosfellssVeit — þá frægu, og
óskaði eftir fleiri slíkum mess-
um, sem gætu hrist upp í þjóð-
lífinu.
GAMALT og con
Ólafur Pétursson smíðaði bát
fyrir Ólaf stiftamtmann, áður
en hann fór frá honum, og er
lokið var smiðinni, gerði stift-
amtmaður upp reikning þeirra og
taldi þá svo til, að Ólafur ætti
hjá honum tískilding.
Stiftamtmaður spurði þá Ólaf,
hvað bátur sá skyldi heita.
Ólafur kvaðst fyrst mundu
ganga að bátnum, og er stiftamt-
maður kom og leit yfir smíðið,
hafði Ólafur rekið nagla gegn-
um stafnlokið, haft tískildinginn
fyrir ró og hnoðað.
Stiftamtmaður spurði, hvað
það skyldi merkja.
Ólafur mælti:
„Það merkir það, að báturinn
heitir Tískildingur“.
f RÉTTIR
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík heldur fund mánudaginn
16. nóv. kl: 8.30 í Iðnó uppi.
Kristileg samkoma verður í sam-
komusalnum Mjóuhlíð 16, sunnudags-
kvöldið 14. nóv. kl. 8. Allt fólk hjart-
anlega velkomið.
Frá Guðspekifélaginu. Fundur verð-
ur í stúkunni SEPTÍMU í kvöld kl.
8.30 í húsi félagsins Ingólfstræti 22.
Fundarefni: Indverjinn Jay Dinshah
mun flytja erindi, sem nefnist: Hin
austræna kenning um meinleysið.
Ólafur Jóhannsson þýðir. Hljóm'list.
Kaffiveitingar.
Skaftfellingafélagið í Reykjavík og
nágrenni heldur skemmtifund í Lindar
bæ föstudaginn 12. nóvember, er
hefst kl. 9 stundvíslega. Skemmti-
nefndin.
Kvenfélag Ásprestakalls heldur
Basar 1. desember kl. 2 e.h. í Lang-
holtsskóla þeir sem vildu gefa muni
snúi sér til: Guðrúnar S. Jónsdóttur,
Hjallaveg 35 sími 32195, Oddnyjar
Waage, Skipasundi 37 sími 35824, I>or-
bjargar Sigurðardóttur, Selvogsgrunni
7 simi 37855 og Stefaníu Önundardótt-
ur, Kleppsveg 52 4. hæð. h.
Kvennadeild Slysavarnafélags, Kefla
víkur heldur hlutaveltu mánudaginn
15. nóv. kl. 8.00 síðdegis í umgmenna-
félagshúsinu. Margir góðir mvmir.
Styðjið gott málefni.
Basar kvenfélagsins Fjólu, Vatns-
leysuströnd verður í Barnaskólanum
sunnudaginn 28. nóv. kl. 4 síðdegis.
Nemendasamband Kvennaskólans í
Reykjavík, heldur bazar miðvikudag-
innn 17. nóv. kl. 2 í Góðtemplara-
húsinu. Vinsamlegast komið munum
til Reginu Birkis, Barmahlíð 45,
Mangrétar Sveinsdóttur, Hvassaleiti
101, Körlu Kristjánsdóttur, Hjallavegi
60 og Ástu Björnsdóttur Bergstaðar-
stræti 22.
KVENFÉLAG KEFLAVÍKUR
heldur bazar sunnudaginn 14. nóv. kl.
4 í Tjarnarlundi. Félagskonur eru
beðnar að koma munum á basarinn
til: Lovísu Þorgilsd., Sóltúni 8, Sóleyj-
ar Sigurjónsdóttur, Sólvallag. 4, Guð-
rúnar Ármannsd., Vallartúni 1, Sigríð
ar Guðmundsd., Smáratúni 6, Katrínar
Ólafsd., Sóltúni 18, Sigríðar Vilhelmsd.
Smáratúni 7, Drótheu Friðriksd.,
Sóltúni 6.
• Kvenfélag Grensássóknar heldur
basar í Víkingsheimilinu við Breiða-
gerðisskóla sunnudaginn 14. nóv. Fé-
lagskonur vinsamlegast minntar á
að skila munum til nefndarkvenna
sem fyrst. Nánari uppl. gefnar í síma
35846. Nefndin.
Áheit og gjafir
Handritastofnun íslands hefur
borizt áheitafé, kr. 1200.—, frá
góðviljuðum manni, sem ekki ósk
ax að láta nafns síns getið.
E.Ó.S.
Til lamaða íþróttamannsins
M.E. kr. 500.
Spakmœli dagsins
Gagnvart vorum ágætu for-
feðrum væri óneitanega miklu
heiðarlegra að lofa þá minna í
orði, en líkja þeim mun betur
eftir þeim á borði.
.— Th. Mann.
• •
Okumenn!
Cœtið varkárni gagnvart gangandi
fólki. — Gerið ráð fyrir gangandi fólki
allsstaðar og akið samkvœmt því. —
Það, sem ekki hefur komið fyrir þig í
10 ár getur gerxt á 10 sekúndum.
Xil sölu
mjög vönduð brún kápa
með skinni, stærð 44—46.
Upplýsingar í síma 38022.
Takið eftir
Húsasmíðameistari getur
bætt við sig verkum strax.
Tilboð sendist Mbl., merkt:
„2041“.
Eggert Isaksson
HÁDEGISVERÐARFIINDUR
verður haldinn laugardaginn 13. þessa mánaðar.
Eggert ísaksson bæjarfulltrúi flytur
erindi um HAFNARMÁL.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Alifuglaeigendur!
Samband eggjaframleiðenda heldur fræðslufund að
Aðalsrtæti 12, sunnudaginn 14. nóvember kl. 2 e.h.
Framsöguerindi: Gunnar Bjarnason, ráðunautur.
Kvikmyndasýning.
Allir eggjaframleiðendur velkomnir.
STJÓRNIN.
Berklavörn, Reykjavík, heldur
félagsvist
í Skátaheimilinu við Snorrabraut laugardaginn
13. nóvember kl. 8,30 e.h.
Góð verðlaun. — Mætið vel og stundvíslega.
Heslamonnafélagið
FÁKUR
Skemmtifundur verður haldinn í félagsheimili Fáks
laugardaginn 13. nóvember kl. 8,30 síðdegis.
Skemmtiatriði:
Sýndar verða litskuggamyndir, sem teknar
voru á Kjóavöllum sL sumar af hestum og
félagsmönnum Fáks. — Dans.
Félagar fjölmennið.
NEFNDIN.
Borgfirðingafélagið
hefur skemmtun fyrir eldri Borgfirðinga
sunnudaginn 21. þ.m. kl. 14 í Tjarnarbúð.
Upplýsingar í síma 15552.
Borgfirðingafélagið.
Góð fiskverzlun
um 60 ferm. á jarðhæð við Hólmgarð til sölu.
Öll tæki og áhöld fylgja. — Verzlunin er nú í full-
um gangi og getur orðið laus strax ef óskað er.
Ný]a fasfeignasalan
Laugavegi 12 — Sími 24300.