Morgunblaðið - 12.11.1965, Síða 12

Morgunblaðið - 12.11.1965, Síða 12
12 MORGUNBLADIÐ Fostudagur 12. nóv. 1985 n Þórdís Gísladóttir — Minningarorð HÚN var fædd að Valdasteins- Btöðum í Bæjarhreppi, Stranda- sýslu, þ. 29. maí 1872. Foreldrar íhennar voru Gu'ðrún Hannesdótt ir og Gísli Magnússon, sem þar Ibjuggu lengi, en siðast að Saur- um í Miðfirði. Ólst hún upp hjá Ifioreldrum sínum og dvaldist með þeim, meðan bæði lifðu. Þegar ég, sem þessar línur lita, var tveggja ára gömul, mi'sti ég móður mína. Faðir minn fcom mér þá fyrir á Saurum. IÞórdís var þá í foreldrahúsum og hjálparstoð mó'ður sinnar. Það varð n>ú eitt af hennar verkum að taka að sér móðurlausa barnið, sem komfð var á heimilið, en ekkert stóð hjarta hennar nær, en litlu börnin og þeir, sem veik ir voru og hjálparvana. Henni var því ljúft að annast mig og gerði það af kærleika. Hún var ríkuglega gædd kostum góðrar Ihjúkrunarkonu, enda var hún oft kvödd að beði sjúkra og deyjandi það þurfti jafnvel ekki alltaf að fcvaka til hennar, svo hún veitti liðsinni sitt. Hún var ætíð kær- fcomin og hjúkrun hennar og Ihuggun reyndist mörgum ómetan leg, bæði sjúklingnum og ástvin- sm hans. Guð styrkti hana í starfi. Er hún var ortSinn fullorðin, stóð henni til boða að helga sig Ijósmóðurstörfum og læra þau íræði, en sú þrá hafði frá æsku brunnið henni í brjósti. Af því igat þó ekki or'ðið. Alloft var Ihennar þó síðar vitjað til sæng- urkvenna og lánaðist aðstoð Ihennar jafnan vel. Sársaukalaust var henni ekki að hafna þessu mámsboði. Þó sá hún ekki eftir Iþeirri ákvöi'ðun, því móðir henn ar var farin að heilsu og þurfti dkSttur sinnar með. Bar hún líka gœfu til, að annast móður sína, að síðustu og hjúkra henni í langri og strangri sjúkdómslegu, unz hún lézt fáum árum eftir að ég kom á heimilfð. Nokkru síðar kom Jósef heitinn Guðmundsson aifi minn að Saurum og þau fóru Ifióru að búa saman hann og hún „Dísa mín“, sem ég kallaði hana, en það gælunafn var mér einkar kært. - Afi minn hafði orði’ð fyrir þungum raunum. Hann hafði á skömmum tíma mist foreldra sína og einn bróður, eiginkonu og sex börn af átta. Síðast dó móðir min, þá var líka reynslu- bikarinn barmafullur. Þá kom Dísa mín sem vermandi sólar- geisli inn í líf afa míns. Guð gatf þeim tvo efnilega syni, Loft Þórarinn og Gúðjón Daníel. Önn ur börn afa míns, sem lifðu og náðu fullorðinsaldri, auk móður minnar, eru Kristín sem giftist Magnúsi Pálssyni, hreppstjóra að Staðarhóli í Höfnum og gengdi þar Ijósmóðurstörfum um 40 ára skei'ð og Guðmundur, sem þar var hreppstjóri að mági sínum látnurn. Fyrsta búskaparár sitt bjuggu þau á Saurum, en jörðin er lítil og ekki til skiptanna, en Magnús, bróðir Þórdísar, var þá giftur og farinn að búa. Tóku þau þá á leigu hálfa jörð Súluvelli á Vatns nesi. Þar bjuggu þau nokkur ár og síðan á ýmsum stöðum á Vatnsnesi þar sem þau gátu feng fð leigða jarðarhluta, eins og fá- tækt fólk mátti hafa í þá daga. Fylgja slíkum hrakningum mikl ir örðugleikar, sem sá veit gjörst sem reynir. Þórdis fióstra mín var greind kona, glöð í lund, sagði meiningu sína, en ætíð með hlýleik og skilningi. Hún var hagmælt vel, en fór dult með. Ég læt hér tvær vísur sem hún gerði fyrir fiáum árum og lýsa henni vel: „Ég elska sólskin, yl og fri'ð, æskugleði sanna. Bláan himin, blóm og klið, blíðu vordaganna." og „Höndin mín er beinaber, bráðum þrotinn máttur. Nær sem Drottinn þóknast þér þagnar andardráttur." Hún var framúrskarandi söng elsk og hafði mikla og fagra rödd. Kunni hún og ógrynni laga, og var eftirsótt við kirkju- söng. Á heimili hennar var les- inn húslestur bæði á sunnudög- um og eins á föstunni og voru þá sungnir Passíusálmar og kunni hún lög vi'ð þá alla, Bók- hneigð var hún og las mikið eftir því sem tími og ástæður leyfðu. Hún var ríkulega gædd frásagn- arhæfileika og sagði svo frá, að unun var á að hlýða. Mikil var tilhlökkun okkar krakkanna til rökkurstundanna, Þá tók hún prjónana sína og sagði okkur sög ur og æfintýri svo ógleymanlegt varð hverjum þeim er á hlýddi. Ég var á heimili þeirra til árs ins 1920, að ég giftist Þórhalli Bjarnasyni og stofnaði mitt eig- ið heimili. Nokkrum árum síðar kvæntist eldri sonurinn, Loftur, Margréti Gúðmundsdóttur frá Gnýstöðum. Voru þau með for- eldrum hans og tóku smásaman við búi. Þau festu kaup á jörð- inni Ásbjarnarstöðum og fluttust þangað vorið 1936. Þanga'ð flutt- ist fjölskyldan öll og var fögnuð ur foreldranna mikill, að sjá þar fram á framtíðarheimili son- anna beggja. En um sumarið dó svo afi minn, nær 82 ára að aldri. í þrjátíu og eitt ér höfðu þau, fóstra mín og hann, þá búið sam- an og deilt kjörum í blíðu og stríðu. Skömmu síðar kvæntist Guð- jón, yngri sonurinn, Sigrúnu Sig urðardóttur frá Katadal. Fengu þau hálifa jörðina og byggðu þar nýbýlið Ásbjarnarstaðir 2. en öll bjuggu þau fyrst í sama bæn um, þótt þröngt væri um, en allt gekk vel, þvi mikið ástríki var með bræðrunum alla tíð og fullkomin eining ríkti á heimil- unum bá'ðum, sem eitt væri. Þau hjón, Sigrún og Gúðjón, hafa eignast sex efnileg börn, sem nutu ástríkis og umhyggju ömmu sinnar, Sat hún tíðum við litla rúmið þeirra, þegar með þurfti og þerraði tár af kinn, ef móti blés, það veitti henni mikla ánægju a’ð mega hafa þau hjá sér og taka þau í kjöltu sína, segja þeim sögur og stytta þeim stundir á annan hátt. Og gott þótti þeim líka að hlaupa inn til „gömlu ömmu“ og láta hana verma kalda hönd eða greiða úr vanda. Frá fyrstu tíð var fóstra mín mjög nærsýn. Ágerðist sjóndepr- an með aldrinum svo hún var nærri blind, þá var og heyrnin svo farin, að hún heyr’ði ekki nema með heyrnartæki. Þótt hún næði háum aldri, var hún ekki heilsu hraust um æfina, gekk m.a. undir stóra uppskurði. Á síðari árum var hún oft mjög veik og alveg rúmföst nokkur þau síðustu. Andlegri reisn hélt hún til hins síðasta og var jafn- an glö'ð í lund sem fyr. Naut hún ætíð ástúðar og umhyggju tengda dætra sinna beggja og annarra vandamanna. Sonarbörnin lásu fyrir hana til skiptis, henni til mikillar ánægju. Komu þau jafn an kvölds og morgna að bjóða ömmu sinni góðan dag og góða nótt, með kærleiks kossi. Svo gera a'ðeins góð börn góðri ömmu. Hún var alla tíð á heim- ili Lofts sonar síns og Margrétar og hlaut hjá henni ágæta hjúkr- un, en þung raun var það henni þegar Loftur lézt fyrir meira en ári, eftir þungbær veikindi. Þess vil ég geta, að héraðslækn arnir á Hvammstanga, sérstak- lega Hörður Þorleifsson og Þór- arinn Ólafsson, en til þeirra þurfti oftast að leita, áttu margar fer’öir til fóstru minnar, í veikind um hennar og sýndu þar einstaka alúð og lofsverða hjálpsemi. Og þegar veikindi herjuðu á Marg- réti, sem lengi hefir verið heilsu veil, þá var leitað til vinkonunn ar Hólmfríðar Levy, sem brá þá við og annaðist gömlu konuna af sérstakri hlýju og nærgætni. Oft heimsótti hún líka þessa öldruðu vinkonu sína ,enda var vinátta þeirra einlæg og traust. Það, sem mér finnst, að ein- kenndi fóstru mína mest, var góðvild hennar í allra garð. Hún vildi færa allt til betri vegar. Merk kona í Miðfirði sagði eitt sinn um hana: „Ef allir væru eins og hún Þórdís, sem ætíð sér það góða í hverjum og einum og allt vill bæta, þá væri heimurinn betri, en hann er“. Hún eignað- ist marga vini og góðkunningja, ekki síður þá er miður máttu sín og ýmsar vinkonur hennar bundu við hana æfilanga tryggð og trú naðarvináttu. Hún var líka ein- læg og staðföst í trú sinni á guðlega forsjón og handleislu. Þetta var hinn trausti þáttur í lífi hennar, sá þáttur, sem bar uppi allt hennar líf. Og fer það ekki einmitt saman, trúin á Guð og góðvild í dagtfari? Hinn þriðja dag aprílmán. s.L sofnaði svo þessi góða kona í rúm inu sínu, sem hún hafði gist i svo mörg og löng ár. Þar hafði hún líka þráð að mega deyja. Hún var jarðsett að Tjörn Þ. 14. s.m., að viðstöddum fjölmörgum vinum. Hún var mér, manni mín um og dætrum, alla tíð sem um- hyggjusöm og bezta móðir. Allir, sem henni kynntust, báru til hennar hlýjan hug og sakna henn ar. En hvíldin var orðin henni nauðsyn og férðin yfir landa- mærin örugg og heimvonin góð. Svo kveð ég þig að síðustu, hjartkæra fóstra mín og ástvinir þínir allir. Far þú í friði Friður Guðs þig blessi Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þóra Sigvaldadóttir Heimilistæki Iðnaðartæki Ferðatæki Kosangas Sölvhólsgötu 1. Sími 17171. v ' ' . / Pétur ‘ Kósan Bezt að auglýsa 1 Morgunblaðinu IJnglingstelpa óskast til sendiferða á skrifstofu vora. Vinnutími 1—6 e.h. JÍiprgaiiilíWiiib Systrafélagið ALFA Reykjavik heldur sinn árlega bazar mánddaginn 15. nóvember i Góðtemplarahúsinu við Templarasund. Bazarinn hefur á boðstólum hlýjan ullarfatnað barna og einnig ýmislegt til tækifæris- og jólagjafa. — Allt, sem inn kemur fyrir bazarvörurnar, fér til hjálpar bágstöddum. Bazarinn verður opnaður kl. 2. — Allir velkomnir. STJÓRNIN. Prjónanælonsioppar Hvítir krónur 248,00. Mynztraðir krónur 275,00. Miklatorgi — Lækjargötu 4. <3B>ávaxtasúpa SVESKJUSÚPA <ffi> APRIKÓSUSÚPA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.