Morgunblaðið - 28.12.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.1965, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 28. des. 1965 Jólabjallan er að venju á gatna mótunum nieðst á Vesturgötu og setur jólasvip á bæinn. Kyrrt um jólin - og tíðindalítiö Farartæki ust í eldi Eigaiidiiin inn í BÆ, Höfðaströnd, 27. des. — Kl. 6 á jóladag varð eldur laus í tveimur sambyggðum skúrum á Hofsósi, viðgerðarverkstæði og bílageymslu Gunnars Baldvins- sonar. Toluverður eldur var kom- inn í verkstæðið þegar vart varð við, en sökum þess að mikið frost var og éljagangur, þá reynd ist seinlegt að koma slökkvitækj- um í samband. Voru því skúr- arnir mikið tii alelda, þegar slökkvistarf gat byrjað. f bílageymslunni var jeppabif- reið, sem náðist út töluvert skemmd. En dráttarvél á snjó- dekkjum, sem notuð hefur verið til olíuflutninga í sveitinni og í þorpinu, eyðilagðist alveg. Mikið af verkfærum var í verkstæðis- skúrnum, sem skemmdust óg eyðilögðust þau mikið. Talið er að kviknað hafi í út frá olíukyndingu. Um 8 metra frá skúrnum stendur íbúðarhús Gunnars. Það fylltist af reyk, en hægt var að verja það bruna. í öðrum skúrnum voru geymdir UM jólin hefur verið frost um allt land, og varð einna mest í gær, en þá varð það 23 stig á Staðarhóli í Aðaldal um há- degið og 20 stig á Hólsfjöll- um. Norðaustan lands gekk á með éljum jóladagana, en var orðið bjart í gær. Seinni hluta dagsins var far- ið að þykkna upp og draga úr frosti við suðvesturströndina, og mú búast við rigningu eða crapahríð þar i dag. Veðurhorfur kl. 22 í gær- kvöldi: Suðvesturmið O'g Eaxaflóamið: A-stinnings kaldi, skýjað og sums staðar dálítil snjókoma eða slydda. skemmd- á Hofsósi sótti gaskúta eldinn gasdunkar. Brauzt Gunnar, eig- andinn, þangað inn og gat náð þeim út. En við þessar aðgerðir hans, sviðnaði og brann af hon- um hár og fylla úr loftinu féll yfir hann og hruflaði hann dá- lítið á höfði; þó ekki alvarlega. Dráttarvélin var tryggð fyrir 20 þúsund krónur og hafði Gunn- ar lengi hugsað sér að hækka þá tryggingu. Skúrarnir voru lágt vátryggðir, en ekkert af verkfær- um. — Tokíó, 27. des. NTB—AP. • Skipgtjóri og þrir aðrir yfirmenn á kúbönsku flutn- in.gaskipi hafa óskað hælis í Bandaríkjunum sem pólitískir flóttamenn. Gáfu mennirnir sig fram við bandaríska aðal- ræðismanninn í japanska hafnarbænum Osaka og upp- lýstu þar m.a., að þeir hefðu ákveðið að flýja, er þeiim var skipað að sigla til Kína til að sækja hergögn fyrir N- Vietnam. Suðvesturland til Breiðafjarð ar og miðin: A-kaldi og sums staðar stinningskaldi, sums- staðar dálítil snjókoma. Vest- firðir og miðin: A-kaldi og sumsstaðar stinningskaldi, þykknar upp. Norðurland til Austfjarðar og miðin: hæg- viðri, léttskýjað. Suðaustur- land og miðin: A-gola og sið- an stinningskaldi, snjókoma með morgninum. Austurdjúp: N-kaldi og síðar hægviðri, léttskýjað. Horfur á miðvikudag: A- eða NA-átt, él og Norður og Austurlandi, einkum á ann- esjum. Frost um allt land. Fyrirspurn til ráðherra vegna ráns Tinu Wiegel Kaupmannahöfn, 27. des. — NTB — DANSKUR þingmaður, Niels Westerbye, hefur bcint þeirri fyrirspurn skriflega til dómsmálaráð- herra Danmerkur, K. Ax- els Nielsens, hvort hann myndi fáanlegur til þess að gefa upp sakir þeim, sem rænt hefur stúlkuharninu Tinu Wiegel, gegn því að henni yrði skilað aftur lif- andi. Þingmaðurinn færir þau rök að fyrirspurn sinni, að mikilvægara sé að harn- ið finnist, en að komið verði hegningu yfir hinn eða hina seku. Tina litla Wiegel, sem hvarf fyrir hálfum mánuði, varð þriggja mánaða í dag. Lög- reglan hefur enn hert leitina að henni og tóku í dag þátt í henni 113 lögreglumenn. Alls hafa lögreglunni borizt 2.500 skýrslur um ránið. Siglufirði, 23. des. Hlustunarskilyrði útvarps hérna hafa verið alls óviðunandi og stundum alls ekki hægt að hlusta á tækin. Fyrir stuttu var nýr endurvarpskálfur tekinn í notkun hér, þó án þess að til- kynnt væri um það, og heyrðist þá ágætlega fyrsta daginn. Síð- ar voru gerðar tilraunir til að styrkja stöðina, en. svo óheppi- lega tókst til, að óhlustandi er síðan fyrir véeli, ýli og sterku magnarasuði, sem yfirgnæfir annan styrk. Siglfirðingar hafa Sjálfvirk sím- slöð á Höfnum PÓST- og símamálastjórnin hef- ur óskað eftir því, að leiðrétt yrði missögn í tilkynningu hennar um opnun nýrrar sjálfvirkrar sím- stöðvar. í tilkynningunni átti að standa Höfnum í Hafnahreppi, I en ekki Höfn í Hornafirði. Jerúsalem, London, Berlín, 27. des. — NTB t FREGNIR frá þeim stöð- um heims þar sem spenna og ófriður hefur ríkt að und- anförnu, herraa, að allt hafi verið með nokkurn veginn kyrrum kjörum á jólunum og þau hátíðleg haldin með mik- illi kirkjusókn, þar sem við varð komið. Ó Þúsundir pílagríma héldu jólin hátíðleg í Betlehem og Jerúsalem og í Berlín flykktust íbúar vesturhluta borgarinnar í tugþúsundatali austur yfir borgarmörkin til þess að halda jólin hátíðleg með vinum og vandamönnum í A-Berlín. Lítið bar til tiðinda þessi jól, og framámenn heimsins, þeirra á meðal Páll páfi VI og U Thant framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvöttu til friðar og ein drægni manna á meðal. Ayub Khan, forseti Pakistan, hvatti til þess, áð Indverjar og Pakistanar hættu vígbúnaðar- kapphlaupinu sín í milli, og semdu frið um þrætueplið Kasm ir, — enda bæri fjandskapurinn þá óðfluga að brún efnahagslegs skipsbrots. Kommúnistaflokkarn- ir í Moskvu og Peking skiptust á köldum jólakveðjum og Kín- verjar fóru svívirðingarorðum um Sameinuðu þjóðirnar. I borginni Favette í Mississippi í Bandaríkjunum — einu sterk- asta vígi Ku Klux Klan-hreyfing arinnar söfnuðust u. (þ. b. 500 blökkumenn saman til friðsam- Tokió, 27. des. — NTB: HANDTEKNIR voru I dag á Okinawa bandarísku hermenn- irnir tveir, sem fyrir nokkrum vikum voru látnir iausir úr fanga búðum Viet Cong — í þakklætis- slcyni við þá Bandaríkamenn, sem berjast gegn stefnu stjórnar sinn ar í Vietnam, eins og þá var til- kynnt. Mennirnir verða leiddir fyrir herrétt í Bandaríkjunum, sakaðir um að hafa veitt óvinum misst af mörgum útvarpsdag- skrám og hætt er við, að þeir missi algerlega af jóla, og ára- mótadagskrám. Ríkir megn ó- áriægja hér í bæ með þetta á- stand. — Stgr. Kr. legra jólamótmæla gegn misrétti í kynþáttamálum. í Danang í S- Vietnam komu 500 kaþólskir land gönguliðar úr her Bandaríkjanna og hlýddu messu Spellmanns kardínála frá New York. Þar var einnig haldin jólatrés- skemmtun fyrir tvö hundruð for eldralaus S-Vietnam börn. í Berlín var jólahelgin rofin af skoti a-þýzks landamæra- varðar, er særði banasári ung- an mann, er reyndi að flýja yfir> til V-Berlínar. Aðrir a-þýzkir verðir skutu á Bandaríkjamenn er fleygðu vindlingapökkum yf- ir múrinn. Enn aðrir skutu á franska hermenn, er þeir klifr- uðu upp i varðturn á yfirráða- svæði Frakka. En þrátt fyrir atburði þessa flykktust íbúar V- Berlínar í tugþúsundatali yfir til A-Berlín til þess að halda þar hátíðleg jól með vinum og vandamönnum. Annan jóladag fóru þangað 85.000 manns. 1 annarri skiptri borg — Jer- úsalem — voru hliðin einnig opnuð til þess að pílagrímar gætu farið þar um og haldið jól. Þús- undir kristinna manna hvaðan- æfa að úr heiminum flykktust til Jerúsalem og Betlehem til þess að halda hátíðlega fæðingu frelsarans, allar kirkjur voru yfirfullar og múgur manns safn- aðist saman, þar sem guðsþjón- ustur voru haldnar utan dyra á helgum stöðum í Palestínu. Loks segir NTB-fréttastofan norska frá því í jólayfirliti sínu, að hinn færeyski bóndi Páll Pat- ursson hafi í nafni norsk-fær- eyska félagsins sent Ólafi Noregs konungi, fjölskyldu hans og þegn um, hinni norsku frændþjóð, óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. . lands þeirra aðstoð og Iátið þetm í té skjöl og upplýsingar, er brjóti gegn hagsmunum Bandaríkjanna. Hermennirnir tveir voru látnir lausir 28. nóvember sl. og voru þá óþekkjanlegir frá því, sem verið hafði. Héldu þeir blaða- mannafund í Cambodiu þar sem þeir formæltu stefnu Bandaríkja stjórnar í Vietnam og töluðu máli kommúnista í einu og öllu. Þótti mörgum því líkast, sem mennirn ir hefðu sætt þeirri meðferð, er heilaþvottur kallast. Mexico City, 27. des. AP. • Annan jóladag hóifs.t I Mexico City allþjóðaþing Esperantista, sem sitanda mun yfir í fjóra daga. Þingið hótfst með því, að sungin var ka- þólsik messa á esperanito, og er það í fyrsta sinn, sem það máil er notað við kaiþótfsika mesisugerð. Heimdellingar í Menntaskólanum í Reykjavík Jólatagnaður verður í FélagsheimilS Heimdallar í Valhöll v.Suðurgötu í kvöld og hetst kl. 9.30. FJÖLMENNIÐ! Missa Siglfirðingor of jóla- og áramótadagskrd útvarpsins? Hinir „heilaþvegnu44 teknir é Okinawaeyju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.