Morgunblaðið - 28.12.1965, Qupperneq 19
Þriðjuðagur 28. des. 1965
MORGUNBLADIÐ
19
Þýzkir og norskir héldu
jól í Rey kjavíkurh öf n
— innan um 130 íslenzk skip og báta
BEYKJAVÍKURHÖFN var
þéttsetin skipum yfir jóladag
ana. I bátahöfninni voru allt
upp í 6 föld röð við bryggjur,
en farskipin lágu 2—3 hvert
utan á öðru. Þetta kom ekki að
sök, því ekki bærðist hár á
höfði, né alda á sjó. Voru skip
in ljósum prýdd og fallegt um
að litast í höfninni. Aðfara-
nótt 2. jóladags byrjuðu skip-
in að tínast út og í gær voru
síldarbátarnir farnir að fara,
svo og togarar, sem mannskap
hafa.
Tvö erlend skip lágu i
Reykjavíkurhöfn yfir hina ný
afstöðnu jólahátíð, þýzki tog
arinn Heinkendorff frá Brem-
en og norskt vöruflutninga-
skip Mercur frá Bergen.
Fréttamenn brugðu sér nið
ur á Ingólfsgarð síðdegis í
gær, þar sem þýzki togarinn
liggur við festar, meðal ann-
ars til að forvitnast um hvern-
ig skipsmönnum leið yfir jól-
in og hvað þeir gerðu sér til
hátfðarbrigða. í brú togarans
var samankominn hópur skips
manna og meðal þeirra skip-
stjórinn Harry Böhler og innt
um við hann eftir því hvenær
togarinn hefði lagzt að
bryggju hér. Böhler skipstjóri
kvað þá hafa komið að fyrir
hádegi á aðfangadag og haldið
heilög jól me’ð 'svipuðum hætti
og gerðist í Þýzkalandi, nema
hvað þeir hefðu ekki haft jóla
tré og væri um að kenna ófor
sjálni þeirra, er þeir lögðu af
stað frá Þýzkalandi fyrir
nokkrum vikum. í ljós kom af
samtalinu við Böhler að Þjóð
verjar halda jól með áþekkum
hætti og íslendingar, en
Böhler kvað þá skipverja ekki
hafa átt kost á að hlýða messu,
og þess í stað hefði hann les-
ið skipverjum sínum ritningar
grein fyrir borðhald, en um
kvöldið hefðu þeir spila'ð og
teflt eins og þeirra væri siður,
er þeir dveldu í ókunnri höfn
á jólum.
Böhler skipstjóri sagði, að
Heikendorff mundi leggja úr
höfn þá um kvöldið og verða
að veiðum hér vi'ð land yfir
nýári'ð, eða í 12 daga. Böhler
kveðst oft hafa verið að veið-
Jarle Lisöy yfirbryti.
Hluti áhafnarinnar á Heikendorff. Böhler skipstjóri stendur
lengst til hægri. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
um við íslandsstrendur en
þetta væri í fyrsta skipti, sem
hann héldi hér jól.
Norska vöruflutningaskipið
Mercur lá vi'ð Faxagarð og
fyrsti maður af áhöfninni, sem
við hittum var yfirbrytir.n
Jarle Lisöy, og notuðum við
tækifærið og spurðum hann
hvað áhöfnin hefði haft til
matar yfir jólin. Lisöy sýndi
okkur matarlistann og kenndi
þar ýmissa grasa og hafa skips
menn auðsjáanlega ekki verið
vanhaldnir um jólin. Á að-
fangadagskvöld hafa skips-
menn snætt þurrkaðan og salt
aðan kindabóg og súpu, sem
Lisöy kallaði Buljong Print-
aniére. Daginn eftir, jóladag,
snæddi áhöfrlin lambasteik,
blómkálssúpu og Banana Split,
og sagði Lisöy að steikin hefði
verið mjög ljúffeng og kvað
það mikinn skaða, að geta
ekki gefið okkur sýnishorn af
matargerðarlist þeirra Norð-
manna.
Lisöy yfirbryti sagði, að
hinga’ð kæmi Mercur frá New
castle og héðan færi skipið í
átta daga hringferð umhverfis
landið og héldi síðan í sólina
og veðurblíðuna á Ítalíu með
íslenzka skreið innanborðs.
Glœsilegasta happdrœtti, sem efnt hefir verid tíl á 'lsbndi
60,000 NÖMER - 30.000 VIMNINGAR
vhr 90 MILUÓNIR
Goðfúslega endurnýið sem fyrst til að forðast biöraðir seinustu dagana.
í